Fréttablaðið - 07.10.2011, Blaðsíða 26
7. október 2011 FÖSTUDAGUR2
Krakkadagar
25-40% afsláttur af allri
Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
sendum frítt á pósthús
www.lindesign.is
barnavöru fram á laugardag
Sölustaðir:
10 -11, Inspired í Flugstöðinni, Samkaup, Nettó,
Kaskó, Fjarðarkaup, Skeljungsbúðirnar, Olís, N1,
Kaupfélag V- Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga,
Verslunin Vísir, Bláa lónið, Hreyfing, Krambúðin,
Fiskbúðin Freyja, Melabúðin.
ÍSLENSK FÆÐUBÓT
BITAFISKUR
-næring fyrir líkama og sál
Fæst í helstu matvöruverslunum landsins
-
Í Tösku- og hanskabúðinni finnur þú
mikið úrval af handtöskum, tölvu- og
skjalatöskum, seðla-og leðurveskjum,
ferðatöskum, leðurhönskum og vönduðum
göngustöfum svo fátt eitt sé nefnt.
Þú getur litið við í verslun okkar eða farið á
slóðina www.th.is þar sem hægt er
að skoða úrvalið og gera góð kaup!
ÚTSÖLULOK
MUNIÐ AFMÆLIS-
AFSLÁTTINN
Helga fullyrðir að sjaldan eða
aldrei hafi hérlendis verið lagður
jafn mikill metnaður í að blása
nýju lífi í þessa fornu sögu og nú.
„Til marks um það kemur fjöldi
manns að sýningunni, þar á meðal
innlendir og erlendir listamenn
frá leikhópnum Republique, sem
er eins konar Vesturport Dana,
og matreiðslumenn, Mette Sia
Martinussen og Gunnar Karl
Gíslason á Dilli, sem kappkosta við
að gera upplifunina ógleymanlega.
Þessi nálgun þekkist víða erlendis
en er ný af nálinni hérlendis.“
Verkið verður flutt dagana
23. október til 2. nóvember og er
einkum ætlað fullorðnum. Mest
geta 24 áhorfendur tekið þátt í
hverri sýningu. roald@frettabladid.is
Framhald af forsíðu
Helga Viðarsdóttir og Gunnar Karl Gíslason í Norræna húsinu þar sem brátt verður
hægt að upplifa Völuspá á óvenjulegan máta.
„Ég fer alveg frá klassíkinni,
Gershwin og Rodgers og Ham-
merstein, og yfir í The Who sem
er meira svona rokk og ról,“ segir
Margrét Eir um söngleikjasýningu
sem hún frumsýnir í Tjarnarbíói á
laugardagskvöldið. Sýningin nefn-
ist „Söngleikir með Margréti Eir“
og eins og nafnið gefur til kynna
ætlar Margrét að syngja lög úr
söngleikjum bæði nýjum, göml-
um, þekktum og óþekktum. Má til
dæmis nefna Cats, Company, Song
and Dance, Cabaret, Les Misera-
bles og Tommy.
„Ég er bara með píanóleikara
með mér og engan míkrófón eða
neitt,“ heldur Margrét Eir áfram.
„Ég verð svo með svona smá fróð-
leiksmola um þessa tónlist inn á
milli, aðeins að kynna hana. Það
hefur svo lítið af þessum söng-
leikjum komið hingað heim. Fyrir
sýningu verður svo boðið upp á
létta rétti sem Friðrik V. sér um
að elda og fólk getur fengið sér
fyrir sýningu, en það er þó alveg
hægt að mæta á sýninguna án þess
að borða. Við ætlum að reyna að
skapa sérstaka stemningu alveg
frá því að fólk gengur inn í húsið.
Svona svolítið í átt að kabarett-
stemningunni í Berlín í kringum
1930.“
Píanóleikari í sýningunni er
Vignir Þór Stefánsson og á hverri
sýningu kemur einnig fram gesta-
söngvari. „Ágúst Ólafsson barítón-
söngvari verður með mér á fyrstu
sýningunni og svo verða með mér
úrvals söngvarar sem hafa verið
viðloðandi söngleikjatónlist. Þau
Þór Breiðfjörð, Heiða Ólafsdóttir,
Sigríður Eyrún og fleiri.“
Dívusýningu fylgja mikil kjóla-
skipti og Margrét Eir segist skipta
margoft um kjól í sýningunni. „Ég
heyrði af því að kona sem kom á
svona sýningu í vor hefði hnippt
ofandottin í vinkonu sína og hvísl-
að: Guð hvað manneskjan á mikið
af kjólum! En þegar maður er
búinn að vera í bransanum í yfir
tuttugu ár er maður búinn að
sanka að sér alls konar kjólum
auðvitað. Það fylgir starfinu.“
Sýningin verður í Tjarnarbíói
vikulega fram að jólum og svo
verður séð til með framhaldið.
„Við munum sýna þetta eins oft og
fólk vill koma,“ segir Margrét Eir.
fridrikab@frettabladid.is
Kabarettstemning í anda
fyrri tíma í Tjarnarbíói
Söngleikir með Margréti Eir nefnist sýning sem frumsýnd verður í Tjarnarbíói annað kvöld. Þar verður
boðið upp á úrval laga úr söngleikjum auk þess sem Friðrik V. mun framreiða létta rétti fyrir sýningar.
„Við ætlum að skapa sérstaka stemningu um leið og fólk gengur inn í húsið,“ segir
Margrét Eir um söngleikjasýninguna í Tjarnarbíói. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Mugison flytur fyrirlestur í Ketilhúsinu á Akureyri í dag frá klukkan 14
til 15. Hann ber yfirskriftina Hljóðbóndinn og fjallar um sköpunarferlið
og hvernig það er að vera íslenskur listamaður í ört minnkandi heimi.
Fyrirlesturinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis.