Fréttablaðið - 07.10.2011, Blaðsíða 34
8 föstudagur 7. október
✽ Sítt og hlýtt
tíska
I
ngibjörg Rósa Harðardóttir hefur starfað í fatabransan-
um síðan hún var 17 ára gömul en nú er hún einn af
rekstrarstjórum NTC verslunarkeðjunnar. Inga Rósa,
eins og hún er kölluð, segist vera algjör buxnastelpa og
gengur sjaldan í kjólum eða pilsum. Inga Rósa deildi
með Föstudegi hverjar eru hennar fimm uppáhaldsbuxur
í fataskápnum.
TOPP FIMM Í FATASKÁPNUM
Uppáhalds
buxurnar
Nýjustu kaupin „Diesel-gallabuxur sem ég féll fyrir nýlega og sé ekki
eftir því. Hef varla farið úr þeim. Þær eru bæði háar í mittið og úr þægilegu
teygjuefni. Passa við allt, háa hæla jafnt og strigaskó.“
Háar í mittið „5 Unit-buxur sem ég keypti í Gallerí 17 í septem-
ber. Þessar minna svolítið á aðhaldsbuxur því þær eru svo háar í
mittið, sem skiptir mig miklu máli. Maður á aldrei nóg af svörtum
buxum í fataskápnum.“
Elstu og bestu „Þessar keypti ég í H&M á Ítalíu árið 2002 og eru mínar
uppáhalds. Stærsta hrósið fyrir buxurnar er að ég passa enn þá í þær, níu
árum og tveimur börnum seinna.“
Víðar og þægilegar „Köflóttar buxur frá Ichi sem eru keyptar í Gallerí 17.
Dragtarbuxur með síðu klofi sem ég nota helst við ökklastígvél og þröngan
bol eða skyrtu.“
NÝ LÍNA HILDAR HAFSTEIN Skartgripahönnuðurinn Hildur Hafstein,
sem var í forsíðuviðtali í síðasta blaði, var að koma með nýja línu í búðir í vikunni. Í
henni notar Hildur meira af handgerðu silfri í bland við steina í ýmsum litum en í lín-
unni eru bæði armbönd og hálsmen. Einnig býr Hildur til armbönd fyrir ungabörn
og börn, sem eru tilvaldar sængur- og skírnargjafir. Skartið fæst í verslunum Aftur,
Boutique Bella, Epal-búðunum, Kastaníu og vefversluninni Uma.is.
Ómissandi í fataskápinn „Æðisleg
útsölukaup sem ég rambaði inn á í EVU
fyrir fjórum árum. Teknar fram hvern ein-
asta vetur og tel ég það algjörlega nauð-
synlegt að eiga leðurbuxur í flottu sniði.
Þær eru mjög mjúkar úr hanskaleðri
og með rassvösum úr efni sem setja
skemmtilegan svip á buxurnar.“