Morgunblaðið - 03.07.2010, Síða 48
LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 184. DAGUR ÁRSINS 2010
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 590 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
VEÐUR » 8www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Vilja ekki tengdadóttur eins og mig
2. Holland sló út Brasilíu
3. Liggur enn á sjúkrahúsi
4. Vala Grand í Ungfrú Ísland
Breski leikarinn Andrew Garfield
hefur verið valinn til að fara með
hlutverk Peters Parkers í næstu
mynd um Kóngulóarmanninn. Myndin
kemur út árið 2012 og verður sýnd í
þrívídd.
Garfield er næsti
Kóngulóarmaðurinn
Sigríður Ósk
Kristjánsdóttir
mezzósópran fer
nú með hlutverk
Tisbe í Ösku-
busku eftir Ross-
ini á Iford-
óperuhátíðinni í
Bath á Englandi.
Tisbe er önnur af
stjúpsystrunum í ævintýrinu um
Öskubusku. Sigríður Ósk lauk óp-
eruskóla- og meistaraprófi vorið
2009 frá Royal College of Music í
London.
Syngur í Öskubusku á
óperuhátíðinni Iford
Sæunn Ýr Marinósdóttir
útskrifaðist í fyrradag
með BA-gráðu í klass-
ískum ballett frá einum
virtasta ballettskóla í
Evrópu, Ungversku
dansakademíunni. Sæ-
unn Ýr hóf þar nám
árið 2007, en hún var
ein af 15 stelpum sem
teknar voru inn á þeim
tíma af 250 sem mættu í
inntökupróf. Sæunn Ýr var
einungis þriggja ára göm-
ul þegar hún hóf ball-
ettnám.
Útskrifast úr virtasta
ballettskóla Evrópu
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Rigning með köflum syðra og eystra, en skýjað með köflum
og dálitlar skúrir um landið suðvestanvert. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast SV- og V-lands.
Á sunnudag og mánudag Norðaustan 5-10 m/s norðvestantil, suðvestan 5-8 við
suðurströndina en annars hæg breytileg átt. Víða skúrir og hiti yfirleitt 9 til 16 stig.
Á þriðjudag Norðaustan 5-10 m/s um landið norðvestanvert, en annars fremur
hæg austlæg átt. Skúrir víða um land og hiti breytist lítið.
Salvador Cabanas, aðalmarkaskorari
knattspyrnulandsliðs Paragvæ, er
fjarri góðu gamni á HM. Hann er með
byssukúlu í höfðinu eftir skotárás í
janúar og er í endurhæfingu á meðan
liðsfélagar hans standa sig með prýði
í Suður-Afríku. Cabanas fylgist hins-
vegar vel með leikjunum í sjónvarpi
og leikmenn Paragvæ hringja reglu-
lega í hann. »3
Markaskorarinn horfir á
HM með kúlu í höfðinu
Úrúgvæ og Holland munu
mætast í undanúrslitum
heimsmeistaramóts karla í
knattspyrnu eftir að bæði
lið unnu sigur í 8-liða úrslit-
um í gær. Holland vann
fimmfalda heimsmeistara
Brasilíu en Úrúgvæ lagði
Gana að velli í hádramatísk-
um leik þar sem úrslitin
réðust í vítaspyrnukeppni
eftir að Gana klúðraði víti í
lok framlengingar. 2-3
Úrúgvæ áfram
eftir hádramatík
Evrópumeistarar Spánverja fá það
erfiða verkefni í kvöld að brjóta niður
sterka vörn Paragvæa þegar liðin
mætast í átta liða úrslitum heims-
meistaramótsins í fótbolta. Mikið er í
húfi, sæti í undanúrslitunum og leik-
ur við annaðhvort Argentínu eða
Þýskaland, og þeir David Villa og
Fernando Torres verða vafalítið mikið
í sviðsljósinu. »4
Ráða Villa og Torres við
vörnina hjá Paragvæ?
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Hafinn er undirbúningur að bygg-
ingu Ofanleitiskapellu í Vest-
mannaeyjum til heiðurs sjómönn-
um, á háey Heimaeyjar þar sem í
aldir var prestssetur Ofanleitis-
sóknar og kapella alla tíð.
Högna Sigurðardóttir, arkitekt
úr Vestmannaeyjum, teiknaði kap-
elluna að beiðni heimamanna í
Eyjum fyrir 30 árum en þá rakst
verkefnið á við byggingu glæsilegs
félagsheimilis við Landakirkju og
fór í bið. Nú hefur Herjólfsbæj-
arfélagið, menningarfélag áhuga-
manna í Eyjum, tekið af skarið og
ýtt framkvæmdinni úr vör. Í for-
svari eru Halldór Sveinsson,
Gunnlaugur Geirsson og Árni
Johnsen.
Að sögn Árna er Högna Sigurð-
ardóttir tvímælalaust einn þekkt-
asti íslenski arkitektinn erlendis
en hún hefur lengst af ævinnar
starfað í París. Frægar eru húsa-
teikningar hennar þar sem hún
sækir form í náttúru Eyjanna,
berg, fles, bringi, hlíðar og brekk-
ur. Eina húsið eftir Högnu sem
byggt hafði verið í Eyjum fór und-
ir hraun í gosinu 1973. „Ekki þyk-
ir einleikið að í Eyjum skuli ekki
vera til bygging eftir þessa róm-
uðu dóttur Eyjanna,“ segir Árni.
Ofanleitiskapella Högnu er í raun
teiknuð eins og klasi smáeyja og
rímar við eyjarnar Hænu, Hana
og Hrauney mót vesturhafinu og
sólarlaginu. Húsið er alls um 200
fermetrar að stærð með útikapellu
á móti hafi, en byggingin verður
fjölnota fyrir menningarstarfsemi
auk kirkjunnar hljóma að sögn
Árna.
Stefnt er að því að ljúka verk-
inu á 3-4 árum og verður aflað
fjár hjá fyrirtækjum, stofnunum,
einstaklingum og velunnurum
verkefna í Eyjum sem eru þekktir
fyrir að leggja hönd á árarnar
þegar eitthvað sérstakt stendur
til. „Ofanleitiskapella Högnu er
engu lík, „eins og demantur á
fingri Drottins“ eins og einn
bjargveiðimaðurinn orðaði það,“
segir Árni Johnsen.
Kapella rís loks á Ofanleiti
Kapellan Ofanleitiskapella Högnu verður sérstakt mannvirki. Hún verður
staðsett vestan við Höfðaveg við Ofanleiti í Vestmannaeyjum.
Morgunblaðið/Einar Falur
Vestmannaeyingur Högna Sigurðardóttir, sem er einn þekktasti arkitekt Íslendinga, sækir form í náttúruna.
Byggð eftir 30
ára gömlum teikn-
ingum Högnu
Sigurðardóttur
Eyjainnblástur Kapellan er teiknuð
eins og klasi smáeyja.