Fréttablaðið - 31.10.2011, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 31.10.2011, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 31. október 2011 13 Í síðustu viku voru haldnir í Hörpu heimsleikarnir í hag- fræði. AGS kvaddi hingað alls kyns heimsfræga hagfræðinga til að leggja mat á það hvernig til hefur tekist við endurreisn Íslands. Stjórnmálamenn og aðrir gæslumenn hagsmuna eru náttúr- lega þegar í óða önn að vinsa úr það sem hentar hverjum og einum að halda á lofti en stinga hinu undir stól. Þannig gengur það – en almennt talað var sláandi hversu ánægðir þessir hagfræðingar voru upp til hópa með árangur Íslend- inga eftir hrun: þeir voru hrifnir af krónunni og ómældum mögu- leikum til að fella hana og skerða þannig kjör almennings án þess að þurfa beinlínis að lækka launin; þeir voru hrifnir af niðurskurð- inum á fjárlögunum og þeir voru hrifnir af því hversu atvinnuleysis- tölur hafa staðið í stað. En umfram allt virtist allt þetta fólk afar hrifið af því hversu vel Íslendingum hefði tekist að standa vörð um sitt „glæsilega velferðar- kerfi“ eins og Emat Shafik, aðstoð- arframkvæmdastjóri AGS, orðaði það í samtali við Egil Helgason í Silfrinu í gær. Á bak við tölurnar Jamm. Bak við þetta allt saman er nú samt einhvers konar raunveru- leiki. Öll þekkjum við (en ekki þau) þá geggjun sem felst í því að búa við krónuna og verðtrygg- inguna sem henni fylgir og þegar við bætist verðtrygging og ströng séreignastefna á húsnæði ásamt miklum félagslegum þrýstingi að skuldsetja sig til bílakaupa verður veruleikinn óneitanlega ófrýni- legri „en hagfræðina þína grunar“. Atvinnuleysistölur kunna að vera lágar – en hversu margir hafa flutt af landi brott og fundið sér góða vinnu og gott þjóðfélag – og góða framtíð fyrir börnin sín? Hvaða fólk er þetta? Er þetta fólkið sem hefur í sér döngun og dug til að drífa sig burt frá rigningunni og rokinu og röflinu og skuld- unum? Er þetta menntað fólk? Læknar og hjúkrunarfræðingar? Er þetta fólk sem vont er að missa? Gæti svo farið að Íslands biði það hlutskipti sem sum kauptún úti á landi þekkja, að lenda í víta- hring fólksfækkunar og úrræða- leysis? Getur hugsast að Ísland verði eilífðar-útkjálki, verstöð þar sem mikil verðmæti skapist í hrá- efnavinnslu en beint og óbeint sé stuggað við sérhæfðu og menntuðu vinnuafli? Gæti samfélagið sogast ofan í slíkan svelg? Hagfræðingarnir vega og meta, mæla og pæla, skoða tölur og tak- ast á um rök. Við megum samt ekki halda að hagfræðin sé vegurinn, sannleikurinn og lífið. Við þurfum að muna að hagfræðingar vita ekk- ert meira um lífið en við hin. Þeir vita ekkert meira um réttlætið, hamingjuna, hjálpræðið eða heils- una. Þeir hafa sínar takmörkuðu forsendur. Til dæmis hagvöxt sem er hávaðinn í samfélaginu, umsvif- in, burtséð frá því hversu gáfuleg þau eru. Samkvæmt hagfræðinni er til dæmis viskulegra að byggja risa-sjúkrahús í Þingholtunum í Reykjavík en að veita aukið fé í rekstur spítala sem þegar eru til – og búa við fjársvelti. Bygginga- framkvæmdum fylgja meiri umsvif – meiri hávaði í hagkerfinu. Við hin vitum hins vegar að það verður að fara að hætta þessum eilífa niðurskurði í rekstri heilbrigðiskerfisins. Fyrir okkur öll Flestir þekkja það af eigin raun hversu frábært fólk starfar á íslenskum sjúkrahúsum – og gerir enn þrátt fyrir endalausan niðurskurð og markvissa við- leitni stjórnvalda til að flæma heilbrigðisstarfsfólk til Skandi- navíu, einkum Noregs og Svíþjóð- ar. Góðir spítalar þar sem gott starfsfólk fær að njóta sín í hvetj- andi umhverfi skipta samt meira máli en næstum því allt annað – fyrir okkur öll, hvað sem við heit- um, hvað sem við gerum, hvað sem við þykjumst vera. Öll eigum við ástvini sem hafa þurft á þjónustu spítalanna að halda og flest eigum við í vændum að veikjast og liggja varnarlaus, þjáð og öðrum háð í sjúkrarúmi. Það er hreinlega ekki sæmandi siðuðu samfélagi að láta einungis endalaus sparnaðarsjón- armið ráða þegar kemur að því að reka heilbrigðiskerfi sitt. Það er dýrt og það verður dýrt og það á að vera dýrt. Við ætlumst til þess að fólkið sem vinnur þessi sérhæfðu og dýr- mætu störf sé vel launað og geti látið stjórnast fyrst og fremst af mannúðar- og líknarsjónarmiðum fremur en að hugsa alltaf bara um afköst og nýtingu. Hvað sem líður landlægum barlómi þá er íslenskt samfélag hundríkt og hefur vel efni á því að rekja sómasamlegt heilbrigðiskerfi. Hagfræðin mælir ekki angist sjúklings sem veit ekki hvort honum verður vísað heim á morg- un eða hinn. Hún mælir ekki öryggisleysi starfsfólks sem veit ekki hvað komandi fjárlög bera í skauti sér fyrir lífsstarf þess. Hún mælir ekki þau lífsgæði sem felast í traustu og vel reknu heilbrigðis- kerfi. Haldi menn áfram að höggva svona og höggva í heilbrigðiskerf- ið, flæma lækna og hjúkrunar- fræðinga úr landi, neita að kaupa ný tæki, loka deildum og þar fram eftir götunum er raunveru- leg hætta á að heilbrigðiskerfinu okkar hraki skyndilega mikið – hrapi niður á nýtt stig – og erfitt og dýrt verði að ná aftur fyrri gæðum. Það vill enginn – nema kannski hagfræðingar. Náttúruvörur úr íslenskri ætihvönn Mikið mál? Minna mál með SagaPro www.sagamedica.is Tíð næturþvaglát eru heilmikið mál fyrir marga karlmenn. SagaPro er náttúruvara úr íslenskri ætihvönn ætluð þeim sem eiga við þetta vandamál að etja. Með SagaPro fækkar næturferðum á salernið og þar með færðu betri hvíld. SagaPro fæst í heilsuvöruverslunum, apótekum, stórmörkuðum og Fríhöfninni. Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í DAG Eigi skal höggva Hagfræðin mælir ekki angist sjúklings sem veit ekki hvort honum verður vísað heim á morgun eða hinn. Hún mælir ekki öryggisleysi starfsfólks sem veit ekki hvað kom- andi fjárlög bera í skauti sér fyrir lífsstarf þess. Fréttablaðið og Vísir hvetja lesendur til að leggja orð í belg um málefni líð- andi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð, að hámarki um 4.500 tölvuslög með bilum. Aðeins er tekið við yfirlesnum og villulausum texta. Greinahöfundar eru beðnir að hafa í huga að því styttri sem greinin er, þeim mun líklegra er að hún fái skjóta birtingu. Eingöngu er tekið við raunverulegum umræðugreinum, en ekki greinum sem eru fyrst og fremst kynning á til dæmis fyrirtæki eða félagasamtökum, ráðstefnu eða átaki. Tekið er á móti efni á netfanginu greinar@frettabla- did.is eða á vefsíðu Vísis, þar sem finna má nánari leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða á Vísi eða í báðum miðlum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni. Sendið okkur línu

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.