Morgunblaðið - 08.07.2010, Side 2

Morgunblaðið - 08.07.2010, Side 2
2 Íþróttir MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2010 KNATTSPYRNA 1. deild kvenna B Fram – Fjölnir.......................................... 1:3 Staðan: Selfoss 7 7 0 0 40:8 21 ÍBV 7 6 0 1 40:5 18 ÍR 8 4 0 4 14:24 12 Fjarðab./Leikn. 7 3 1 3 13:18 10 Fjölnir 7 3 1 3 7:21 10 Sindri 7 2 0 5 12:22 6 Fram 8 1 2 5 10:22 5 Höttur 7 0 2 5 6:22 2 HANDKNATTLEIKUR Opna Evrópumót U18 kvenna Leikið í Gautaborg: Ísland – Austurríki............................... 18:18 í kvöld KNATTSPYRNA Evrópudeild UEFA, 1. umf, seinni leikur: Laugardalsv.: Fylkir – Torpedo Zhodino 19 Úrvalsdeild karla, Pepsí-deildin: Kópavogsv.: Breiðablik – Stjarnan..... 19.15 Hásteinsvöllur: ÍBV – Keflavík........... 19.15 Vodafonevöllurinn: Valur – Haukar ... 19.15 Grindavíkurv.: Grindavík – Selfoss..... 19.15 Kaplakriki: FH – Fram ............................ 20 1. deild karla: Akureyrarvöllur: KA – Þór ...................... 19 2. deild karla: Garður: Víðir – Víkingur Ó....................... 20 3. deild karla: Varmárvöllur: Hvíti riddarinn – Árborg. 20 Stjörnuvöllur: KFG – Björninn................ 20 Hvolsvöllur: KFR – Markaregn .............. 20 Fagrilundur: KFK – Berserkir........... 18.30 Egilshöll/úti: Vængir Júpíters – Ægir .... 20 Leiknisvöllur: KB – Augnablik ................ 20 Fagrilundur: Ýmir – Léttir ................. 20.30 Grenivík: Magni – Dalvík/Reynir ............ 20 1. deild kvenna: Bessastaðav.: Álftanes – Þróttur R ......... 20 Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hefur ákveðið að sekta Hand- knattleikssamband Íslands, HSÍ, um 2.000 evrur eða sem svarar rúmlega 315.000 íslenskum krónum. Sektin er tilkomin vegna leiks Ís- lands og Austurríkis í undankeppni Evrópumeistaramóts kvenna í Voda- fonehöllinni að Hlíðarenda 18. október á síðasta ári. Þar þóttu merkingar á gólfi ekki samræmast reglugerð und- ankeppninnar um að leikir hennar skuli fara fram á leikvelli þar sem ein- göngu eru merkingar fyrir hand- boltavöll. Í þessu tilfelli voru línur sem lagðar höfðu verið til notkunar í öðrum íþróttum en hand- knattleik, líkt og þekkist í flestum íþróttahúsum lands- ins. „Þarna áttu sér stað hrein og klár mistök hjá okkur hjá HSÍ þar sem við höfðum ekki farið nógu vel yfir reglu- gerð keppninnar þar sem segir að leika verði á sérstöku handboltagólfi,“ sagði Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, í gær. Að sögn Einars stendur ekki til að áfrýja niðurstöðu EHF. Aðeins verði látið nægja að mótmæla henni. Einar segir ennfremur að engar athugasemdir hafi komið fram hjá eftirlitsmanni á vegum EHF þegar hann tók út keppn- ishúsið áður en fyrrgreindur leikur fór fram. Einar segir að HSÍ hafi aldrei áður fengið athugasemd eða sekt fyrir að uppfylla ekki þær kröfur sem gerðar eru til sambandsins þegar alþjóðlegir kappleikir eigi í hlut. Áður höfðu austurrísku og þýsku handknattleikssamböndin verið sektuð um sömu upphæð af sömu sökum. iben@mbl.is/ sindris@mbl.is HSÍ sektað um 2.000 evrur vegna leikvallar Einar Þorvarðarson Ívar Benediktsson iben@mbl.is Ný þjóð bætist á lista þeirra sem hafa orðið heimsmeistarar í knattspyrnu karla á sunnudagskvöldið þegar úr- slitaleik Evrópumeistara Spánar og Hollands lýkur. Það er ljóst eftir að Spánverjar tryggðu sér sæti í úrslita- leiknum í gær með því að skella hinu bráðskemmtilega og efnilega liði Þýskalands, 1:0, í undanúrslitaleik í Soccer City í Jóhannesarborg. Hvorki Spánverjar né Hollendingar hafa orðið heimsmeistarar. Spánverjar hafa aldr- ei komist í úrslitaleik áður, en Hollend- ingar eiga tvær bitrar minningar frá töpuðum úrslitaleikjum með fjögurra ára millibili, 1974 í Þýskalandi og aftir fjórum árum síðar í Argentínu. Það var Katalóníumaðurinn Carles Puyol sem skoraði markið sem skildi liðin að í leikslok í gær. Hann skallaði boltann af krafti í mark Þjóðverja á 73. mínútu eftir hornspyrnu samherjans frá Barcelona, Xavi. Þótt Spánverjar ynnu með minnsta mun þá var sigur þeirra verðskuldaður þegar öllu er á botninn hvolft. Þeir voru beittari allan leikinn og héldu hinum frísku þýsku leikmönnum niðri lengst af leik með þeim afleiðingum að þýska liðið náði aldrei þeim hröðu og skemmtilegu sóknum sem einkennt hafa leik þess fram til þessa á heims- meistaramótinu. Spánverjar léku skemmtilega saman allan leikinn en á tíðum hafði maður þá tilfinningu að þeir ætluðu sér að leika boltanum alla leið í markið. Á stundum virtist einnig sem það vantaði beittari mann í fremstu víglínuna. Okkar besti leikur á HM „Þetta var klárlega okkar besti leik- ur í keppninni,“ sagði framherjinn David Villa sigurreifur á blaðamanna- fundi í gærkvöldi. „Enn einu sinni sýndum við okkar bestu hliðar þegar mest á reyndi. Við verðskulduðum þennan nauma sigur því við vorum betra liðið í leiknum frá upphafi til enda,“ sagði Villa ennfremur en hann fór af leikvelli rúmlega tíu mínútum fyrir leikslok í skiptum við Fernando Torres. Höfum ekkert unnið ennþá „Þótt við séum komnir í úrslitaleik- inn þá er alveg ljóst að við höfum ekk- ert unnið ennþá. En við höfum náð viss- um áfanga, áfanga sem önnur spænsk landslið hafa ekki náð í gegnum sög- una. Menn verða gera sér grein fyrir því að hollenska liðið er frábært og verður ekki auðveldlega lagt að velli,“ sagði Vicente del Bosque, landsliðþjálfari Spánar, yfirvegaður að vanda. „Við höfum leikið frábærlega í keppninni fram að þessum leik þar sem við náðum okkur því miður alls ekki á strik,“ sagði Joachim Löw, landsliðs- þjálfari Þjóðverja, í leikslok í gærkvöldi en hann var fyrsti maður til að óska Vi- cente del Bosque, landsliðsþjálfara Spánar, til hamingju með sigurinn og sæti í úrslitaleik heimsmeistaramóts í fyrsta sinn í knattspyrnusögu Spánar. „Því miður þá náðum við okkur aldr- ei alvarlega á strik í þessum leik,“ sagði Philipp Lahm, fyrirliði Þjóðverja á blaðamannafundi eftir leikinn. „Spán- verjar eru með afar sterkt lið og hafa verið og eru afar sigurstranglegir.“ Markvörður þýska liðsins, Manuel Neuer, sem vakið hefur mikla athygli á mótinu, sagði spænska liðið hafa verð- skuldað sigurinn. „Ég vil aðeins óska þeim alls hins besta í úrslitaleiknum við Hollendinga á sunnudag,“ sagði Neuer sem kom engum vörnum við þegar Pu- yol skoraði sigurmarkið. Reuters Sigurmarkið Carles Puyol (5) stekkur hæst og skallar knöttinn án þess að varnarmenn Þjóðverja fá rönd við reist. Spánn í úrslitaleik HM í fyrsta sinn  Þjóðverjar náðu sér aldrei á strik  Puyol með sigurmarkið Bert van Marwijk, þjálfari hol-lenska karlalandsliðsins í knatt- spyrnu, hefur ákveðið að verðlauna leikmenn sína með tveggja daga hvíld fyrir að komast í úrslitaleik HM. Hollensku leikmennirnir hafa nú leikið sex leiki á rúmum þremur vikum. Þeir munu mæta til æfinga á nýjan leik á laugardaginn og leika svo til úrslita á sunnudagskvöld.    Ólafur Sveinsson handknattleiks-þjálfari hefur verið ráðinn þjálf- ari norska kvennaliðsins Bravo frá Tromsö, sem leikur í 2. deild þar í landi. Ólafur hefur verið í Noregi undanfarin ár og þjálfað kvennalið Træff og Jotun. Hann tekur form- lega við liðinu þegar undir- búningstímabilið hefst 26. júlí. Ólafur er ráðinn til eins árs með ákvæðum um mögulega framlengingu.    Ágúst Jó-hannsson, þjálfari norska úrvalsdeildarliðs- ins Levanger, kemur með lið sitt í æfingabúðir hingað til lands í byrjun næsta mánaðar. Ágúst er að hefja sitt annað keppnistímabil með liðið sem hefur m.a. á að skipa íslensku lands- liðskonunni Rakel Dögg Bragadótt- ur. Þá gekk Ramune Pekarskyte til liðs við Levanger fyrir skömmu eftir sex ára veru hjá Haukum. Æfingar hefjast hjá Levanger eftir um 10 daga. Auk æfinga hér á landi og skoðunarferða þá mun Levanger- liðið leika æfingaleiki við íslensk fé- lagslið.    Arsenal tilkynnti í gær um kaup áfranska varnarmanninum Laurent Koscielny. Hann kemur til Lundúnaliðsins frá franska liðinu Lorient. Koscielny er 24 ára gamall og leikur í stöðu miðvarðar. ,,Kos- cielny er miðvörður sem hefur mikla hæfileika og stóð sig afar vel með Lorient á síðustu leiktíð. Hann er sterkur og fljótur og hann er afar góð viðbót í okkar hóp,“ sagði Arsene Wenger knattspyrnustjóri á vef Ars- enal.    Massimo Mo-ratti, for- seti Evrópu- og Ítalíumeistara Inter, hefur stað- fest að Manchest- er United hafi sýnt áhuga á að fá hollenska knatt- spyrnumanninn Wesley Sneijder til liðs við sig. Sneijder kom til Inter fyrir síðustu leiktíð frá Real Madrid og er samningsbundinn Mílanóliðinu til ársins 2013. Hann hefur farið á kostum með Hollendingum á HM og á stóran þátt í að þeir eru komnir í úrslit mótsins en Sneijder hefur ver- ið prímus mótor liðsins á miðjunni og hefur skorað fimm mörk. Fólk sport@mbl.is U NDANÚRSLIT Þýskaland – Spánn 0:1 0:1 Carles Puyol 73. Lið Þýskalands: Neuer – Lahm, Merte- sacker, Friedrich, Boateng (Jansen 52.) – Khedira (Gomes 81.), Özil, Schweinsteiger – Trochowski (Kroos 62.), Klose, Podolski. Lið Spánar: Casillas – Ramos, Piqué, Puy- ol, Capdevila – Sergio, Xavi, Alonso (Marc- hena 90.) – Villa (Torres 81.), Pedro (Silva 86.), Iniesta. Dómari: Viktor Kassai, Ungverjalandi. Áhorfendur: 60.960. Markahæstir á HM David Villa, Spáni ........................................ 5 Wesley Sneijder, Hollandi.......................... 5 Thomas Müller, Þýskalandi ....................... 4 Miroslav Klose, Þýskalandi........................ 4 Diego Forlán, Úrúgvæ................................ 4 Gonzalo Higuaín, Argentínu ...................... 4 Róbert Vittek, Slóvakíu .............................. 4 Lúis Suárez, Úrúgvæ.................................. 3 Landon Donovan, Bandaríkj...................... 3 Lúis Fabiano, Brasilíu ................................ 3 Asamoah Gyan, Gana.................................. 3  Þeir Lukas Podolski (Þýskalandi), Elano (Brasilíu), Arjen Robben (Hollandi), Tiago (Portúgal), Robinho (Brasilíu), Keisuke Honda (Japan), Brett Holman (Ástralíu), Javier Hernández (Mexíkó), Kalu Uche (Nígeríu), Samuel Eto’o (Kamerún), Carlos Tévez (Argentínu), Lee Chung-Yong (S- Kóreu) og Lee Sung-Yoo (S-Kóreu) eru með 2 mörk hver. Ú RSLITALEIKIR Laugardagur 10. júlí, bronsleikur: Úrúgvæ – Þýskaland............................ 18.30 Sunnudagur 11. júlí, úrslitaleikur: Holland – Spánn ................................... 18.30 Nýliðar Hauka hafa samið við hollensk-banda- ríska leikmanninn Gerald Robinson um að leika með körfuknattleiksliði félagsins í Iceland Ex- press-deild karla á komandi leiktíð sem hefst 7. október þegar Haukar sækja Hamar heim í Hveragerði. Robinson er 26 ára gamall og fæddur í Amst- erdam, Hollandi, en uppalinn í Bandaríkjunum. Þar lék hann með Tennessee-háskólanum en í kjölfarið hélt hann til Evrópu og lék á Spáni og á Bretlandi áður en hann samdi við Freiburg í Þýskalandi sem hann lék með á síðustu leiktíð. Koma Robinsons er sjálfsagt hvalreki fyrir reynslulítið lið Hauka sem vann sér sæti í úrvals- deild síðasta haust með því að leggja Val að velli í umspilsleikjum. sindris@mbl.is Haukar semja Patrick Vieira hann gefi ekk beita sér alfar Vieira vona lék á HM en h mond Domen „Ég einbeit mitt besta fyr Mancini hefur Vieira segi Frakka á HM sínum riðli og leikur var í kr ar sem elska s hafði ekkert v inum en það t Patri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.