Alþýðublaðið - 24.10.1923, Page 4

Alþýðublaðið - 24.10.1923, Page 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ Bannmenn kjósa A-listann. ræna bláfátæka verkamenn og sjómenn, konur þeirra og börn lélegu lífsuppeldi, trúi á tilveru al- góðs og réttiáts guðs? Dettur nokkr- um manni í hug, að t. d. klerk- ur, sem ekki getur unt sjómönn- um hvíldar á páskadaginn, af því að hann á hlut í skipi, sem þeir eru á, trúi á lærdóma kristninnar, þótt hann hafl hálaunað embætti innan kirkjunnar? Halda kristnir menn, að þeir séu hugheilir læri- sveinar Erists, sem í forboði landslaga fara með ólögskráða menn á haustdegi út á reginhaf? Halda kristnir menn, að okrarar og féfletti.ngamenn séu sérstaklega máttarstólpar guðstrúar og krist- indóms? Nei og aftur nei. „Sýn mér trú þína af verkunum!" segir meistarinn. Pramferði burgeisanna ár og daga sýnir bezt, að þeir hljóta að vera sannfærðir um tilveruleysi guðs, og þeir eru þeim mun verri en aðrir guðleys- ingjar, að þeir kannast ekki við það, heldur skýla sér með trú annara manna og nota hana sér til hagsmuna. En það tekst ekki til lengdar, því að til er óbrigðult mat á þeim: „Af áÝöxtunum skul- uð þér þekkja þá“. Guðrœkinn. Di daginn 09 vegion Fnll sonnnu þess, að „Vísir“ trúir ekki sjálfum sér, er greinin ,Magnús eð'a Héðinn" í 209. tbl. Ef Héðinn væri ekki jafnaðar- maður, eins og blaðið heldur fram, mundi það skora á burgeisana að kjósa hann. Landráð. Níundi kapítuli hegn- ingarlaganna 25. júní 1869 ræðir um landráð. B-listamennirnir ættu að lesa þann kafla vel áður en þeir halda áfram landráðabjali sínu. Sömuleiðis væri Jakob Möller holt að lesa 22. kafla sömu laga: ,Um rangar sakargiftir. Jakob Mðller og R,ús«land Þjóðnýtingin er hætt í Rússlandi og verslunin gefin frjáls, segir Jakob á hverjum fundi og oft í „Vísi“. Hver er sannleikurinn? Ekki það, sem Jakob segir, — sem einu sinni var kallaður íslands- banka-Jakob, en nú ætti að heita Jakob ólyginn. f Rússlandi eru öll einstaklingsfyrirtæki, sem hafa fleiri menn en 20 í þjónustu sinni, bönnuð. Af 1,080,000 iðnaðar- mönnum vjnna að’ eins 40,000 í verksmiðjum einstaklinga. ,Og af 5 miijónum verkamanna vinna að eins á annað hundrað þús. hjá einstaklingum. Öll utanríkisverlzun er í höndum ríkisins (sjá símskeyti um kornsöluna til Frakklands í öllum dagblöðunum nýlega), og innanríkisverzlunin er að miklu leyti líka í höndum ríkisins (sjá símskeyti í Morgunblaðinu frá 19. okt. þ. á). Jakob þyrfti sannarlega að læra sannleiksást, veslings maðurinn! En skyldi dósentinn vera fær um að kenna honum? Fnndir Jóns Porlákssonar. Moggi heflr gumað mjög af fund- um Jóns Þorlákssonar, er hann hélt á leið sinni kring um land. Menn er komu á Esju segja aðrar fréttir. Á Akureyri var Jón ger- samlega kveðin í kútinn og spilti mjög málstað B. Líndals. Á Aust- fjörðum hélt hann stutta fyrirlestra og t. d. á Norðfirði komu 16 á- heyrendur, kaupmenn og nánasta skyidulið. Syo fór um sjóferð þá! Prjá iwewn, að minsta kosti, á alþýðan í Reykjavík að geta sett á þing, standi hún sameinuð. Láti ekki blekkjast af illmælum og rógburði burgeisanna. Og hún kemur samt tveimur að, hvenig sem að burgeisarnir hamast við að svívirða frambjóðendur A-iist- ans og rangfæra jafnaðarstefnuna. Ejóslð heima. Þeir, sem sjúkir eru á kjördegi geta kosið heima. A-lista-skrifstofan gefur uppiýsing- ar, þeim er þess óska. Trímæli. „Getur nokkur setið í kór, sem hefir verið flengdur, prestur minn?* spurði Hjáimar. um Grím meðhjálpara. En getur nokkur setið á þingi, sem hefir verið margstaðinn að ósannindum eins og „Kobbi“. Kendlng. Guðrún Jónasson lýsti yfir því á kvennafundi B- listans, að alþýðan hér í bænum eyddi of miklu. Ber að skilja þessa yfirlýsingu svo, að alþýðumenn kaupi of mikið í verzlun hennar, sem er í Eimskipafélagshúsinu? (Hún rekur þar verslun í félagi við Gunnþórunni Halldórsdóttur). Yonandi taka alþýðumenn þetta til athugunar, og ónáða hana ekki að óþörfu framvegis. Hlutayeltu heldur Prentarafé- lagið á sunnudaginn kemur til eflingar sjúkrasjóðs sínum. Drátt- um sé skilað til hvaða prentara sem er. Hlutaveltan verður núlla- laus. Botnia Og Esjan fara héðan á morgun. Botnia kl. 8 f. h. en Esjan síðdegis. Undir rauðura fána talaði Björn mælski Ólafsson á unglinga- fundi B-listans í fyrrakvöld. Menn kannast við söguna um nautin. Öll ropn sagði Jakob Mölier á sama fundi að yrði að nota til þess að hnekkja framgangi jafnað- arstefnunnar. Hann hefir í þeim hóp þorað að kannast við grein- ina frægu frá í sumar, þó hann frammi fyrir verkamönnum mót- mælti því, að hún sé, eins og hún stendur í Yísi. Kauplækkun eltir kosning- arnar. B-listamönnnm vefsttunga um tönn og fara undan í flæm- ingi, þegar bent er á, að burðeis- arnir bíði að eins fram yfir kosn- ingarnar til þess að bera fram kauplækkunarkröfur sínar. En hvers vegna bíða þeir fram yflr kosningar? Vegna þess að þeir búast við að geta dorgað fleiri at- kvæði meðal almennings, en ella. Þeir vita að kauplækkun er illa séð, þegar hún er ósanngjörn. Ritstjóri Hallbjörn Halldórsson. Prentsm. Hallgr. Benediktsspnar.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.