Fréttablaðið - 26.11.2011, Blaðsíða 42
Framkvæmdastjóri: Jónas Þ. Þórisson
Margt smátt, 4. tbl. 23. árg. 2O11
Ábyrgðarmaður: Bjarni Gíslason
Prentvinnsla:
Umbrot: Pipar/TBWA
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja
Við höfum öll hlutverk í lífinu. Já, við höfum hvert og
eitt okkar mörg hlutverk, ég er t.d. eiginmaður, faðir,
vinur, bróðir, fræðslufulltrúi og svona mætti lengi telja.
Sum hlutverk tvinnast saman og ganga í eitt, önnur
hoppar maður í og úr. Sumir eru glaðir að fá ný hlutverk
og taka þeim fagnandi, aðrir halda sig við hlutverk sem
þeir kunna og taka helst ekki við nýjum. Um leið og við
erum í hlutverkum erum við líka leikstjórar og hand-
ritshöfundar í lífi okkar. Við getum tekið upp nýja siði
og fengið nýtt hlutverk. Það er eitt hlutverk sem við
ættum að koma að og fara í sem oftast, það er hlutverk
miskunnsama samverjans. Hvenær fórst þú í það
hlutverk síðast? Hversu stórt var það?
Viljum við sveigja framhjá?
Í dæmisögu Jesú um miskunnsama samverjann kom
samverjinn að manni sem lá í vegkantinum nakinn og
allslaus, nær dauða en lífi eftir að ráðist hafði verið á
hann. Áður höfðu tveir sveigt framhjá og haldið för
sinni áfram. Samverjinn fann til samkenndar, batt um
sár og sá til þess að hinn þjáði fengi hjálp og bjargaði
þannig lífi hans. Vegkantur okkar í dag liggur um
Austur-Afríku þar sem náungi okkar liggur sárþjáður,
nær dauða en lífi vegna fátæktar, langvarandi þurrka,
uppskerubrests og ófriðar. Við getum sveigt framhjá
og látið sem ekkert sé, en viljum við það? Eða viljum við
ganga inn í hlutverk miskunnsama samverjans og
leggja okkar af mörkum.
Það geta ekki allir verið á vettvangi og sjálfir bundið um
sár en við getum öll fundið til samkenndar og lagt það
sem við getum af mörkum til hjálpar og falið Hjálpar-
starfinu að koma hjálpinni til skila, sjá til þess að manns-
lífum verði bjargað. Sveigjum ekki framhjá náunga okkar
í neyð heldur gerum það sem við getum til bjargar.
Þín hjálparhönd
Tölum við leikstjórann í sjálfum okkur! Ákveðum að láta
þetta hlutverk eiga ríkari tök í okkur og bregðumst við
kalli og björgum mannslífum og tryggjum framtíð náunga
okkar sem orðið hefur fyrir árás þurrka, uppskerubrests
og ófriðar. Leyfðu miskunnsama samverjanum í þér að
dafna, taktu þátt í jólasöfnun Hjálparstarfsins, við
lofum að vera þín hjálparhönd á vettvangi.
Bjarni Gíslason
fræðslu- og upplýsingafulltrúi
Hjálparstarfs kirkjunnar
Söfnun fermingarbarna fyrir vatni gekk vel, um 2.7OO
börn knúðu dyra um allt land dagana 7.–15. nóvember.
Áður en þau lögðu af stað höfðu þau séð myndir og fengið
fræðslu um líf jafnaldra í Úganda, Malaví og Eþíópíu og
hvernig vatnsverkefni Hjálparstarfsins hafa borið árangur.
Hvernig hreint vatn breytir lífinu til hins betra, heilsan
verður betri, hætta á sjúkdómum minnkar og stúlkur
komast nú í skóla þar sem þær þurfa ekki að fara langar
leiðir til að sækja vatn eftir að brunnur kom við þorpið.
Þegar þetta er skrifað er upphæðin sem safnast hefur
komin í 7,4 milljónir króna og enn eiga þó nokkrir eftir
að telja og leggja inn á söfnunarreikninginn. Aldrei að
vita nema upphæðin eigi eftir að nálgast 8 milljónir
sem var það sem safnaðist í fyrra.
Hjálparstarf kirkjunnar þakkar starfsfólki kirkna
frábært samstarf og fermingar börnum einstakan
dugnað og fórnfýsi til hjálpar þeim sem ekki hafa
aðgang að hreinu vatni. Ekki síst þökkum við öllum þeim
sem létu fé af hendi rakna til söfnunarinnar.
Miskunnsami samverjinn í okkur
Frábær fermingarbörn
2 – Margt smátt ...
Brunnur með hreinu vatni breytir öllu.