Fréttablaðið - 26.11.2011, Blaðsíða 69
LAUGARDAGUR 26. nóvember 2011 11
Starf umsjónarmanns vídeóvers
Listaháskóli Íslands auglýsir eftir umsóknum um starf
umsjónarmanns vídeóvers myndlistardeildar. Vídeóverið er
staðsett í húsnæði deildarinnar í Laugarnesi.
Umsækjandi skal hafa lokið sérmenntun á sviði myndlistar og
hafa góða þekkingu og reynslu af hverslags tækjum og tækni
sem notuð eru við gerð og framsetningu verka á sviði vídeó,
hljóðs og gagnvirkni innan myndlistar. Hann þarf að geta
unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði í úrlausn ólíkra verkefna.
Umsjónarmaður aðstoðar nemendur og kennara við
lausn verkefna. Hann kennir tækninámskeið og hefur umsjón
með daglegum rekstri vídeóvers, viðhaldi tækja og
innkaupum í samráði við deildarforseta.
Leitað er að fjölhæfum einstaklingi sem getur miðlað af
þekkingu sinni, er lipur í samskiptum og á auðvelt með
að starfa með öðrum.
Umsókn skal fylgja yfirlit um námsferil og störf umsækjanda
og afrit af prófskírteinum. Umsækjendur skulu láta fylgja nöfn
og símanúmer tveggja aðila sem leita má til um meðmæli.
Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf 1. febrúar 2012.
Umsóknum og meðfylgjandi gögnum skal skilað á skrifstofu
skólans, Skipholti 1, 105 Reykjavík, eigi síðar en
mánudaginn 5. desember n.k. Fyrirspurnir um starfið
skulu sendar á netfang deildarforseta myndlistardeildar:
kristjan@lhi.is
Ertu mikið í símanum?
Þá gæti þetta verið rétta starfið!
Starfssvið:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Við bjóðum:
- sérfræðingar í sölu!
Bókasafn til sölu
Til sölu er bókasafn úr dánarbúi. Í safninu eru mikill fjöldi
ættfræðibóka auk annarra eigulegra bóka.
Íslenskar bækur: Um 900
Erlendar bækur: Um 500
Safnið selst í heilu lagi. Sérfræðingur hefur farið yfir og metið
bókakostinn. Um 150 -200 íslenskar bækur teljast nokkuð
verðmætar.
Lista yfir verðmætustu bækurnar má sjá á vefsíðunni:
http://www.heima.is/olih/bokasafn/bokasafn.htm
Upplýsingar fást í síma 841 9929.
TIL SÖLU
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
15156. Vestmannabraut 22, Vestmannaeyjum eignarhluti
Íslandspósts hf.
Um er að ræða afgreiðsluhúsnæði, vinnusal, skrifstofuhúsnæði,
kaffistofur, geymslur og snyrtingar á 1 og 2 hæð ásamt herbergjum
í kjallara og hlutdeild í sameign, stærð samtals 823,9m², samkv.
Fasteignaskrá Íslands, ásamt tilheyrandi leigulóðarréttindum. Húsið er
byggt úr steinsteypu árið 1950. Brunabótamat er kr. 145.250.000,- og
fasteignamat er kr. 32.040.000,- Húsnæðið þarfnast gagngera endur-
bóta. Húseignin verður til sýnis í samráði við Sigrúnu Ingu
Sigurgeirsdóttir í síma 481 1002 eða 825 1124 og Ríkiskaup,
Borgartúni 7, 105 Reykjavík í síma 530 1400.
Gögnin eru einnig aðgengileg á heimasíðu Ríkiskaupa
www.rikiskaup.is
Tilboðseyðublöð liggja frammi á sama stað ásamt reglum um frágang
og útfyllingu á tilboðseyðublaði.
Tilboð skulu berast Ríkiskaupum, Borgartúni 7, Reykjavík
fyrir kl. 10.00 þann 13. desember 2011 þar sem þau verða opnuð í
viðurvist bjóðenda er þess óska.
Tilboð óskast í hluta fasteignarinnar
Vestmannabraut 22 Vestmannaeyjum.
Styrkir til gæðaverkefna
árið 2011
Velferðarráðuneytið auglýsir styrki vegna gæðaverk-
efna árið 2011. Að þessu sinni verður sérstök áhersla
lögð á verkefni tengd samþættingu heilbrigðis- og
félagsþjónustu, s.s. verkefni sem stuðla að umbóta-
starfi, nýbreytni eða auknum gæðum þjónustunnar.
Önnur gæðaverkefni koma einnig til álita.
Í styrkumsókn skal m.a. koma fram markmið verk-
efnis, framkvæmdaáætlun og hvernig unnt væri að
nýta niðurstöður til að bæta þjónustuna. Sótt skal
um í nafni einstakra stofnana og/eða starfseiningar.
Styrkirnir eru að hámarki 400 þúsund krónur.
Vakin er athygli á að umsækjendum er gert að sækja
um rafrænt á umsóknavef Stjórnarráðsins. Sækja
þarf um aðgang að umsóknavefnum á vefslóðinni
http://umsokn.stjr.is.
Aðgangur er gefinn á kennitölu ábyrgðarmanns um-
sóknar og verður lykilorð sent til viðkomandi á net-
fang sem hann gefur upp við nýskráningu.
Umsóknarfrestur er til og með 16. desember 2011.
Nánari upplýsingar veitir Ásthildur Knútsdóttir sér-
fræðingur í velferðarráðuneytinu í tölvupósti á
postur@vel.is. Einnig eru upplýsingar á vef ráðuneytis-
ins velferdarraduneyti.is.
Útboð nr. 15130 – Kaup á ráðherrabifreiðum
Ríkiskaup, fyrir hönd Rekstrarfélags stjórnarráðsbygginga,
standa fyrir þessu útboði á kaupum á ráðherrabifreiðum.
Heimilt er að bjóða í einstaka flokka útboðsins.
Ekki er ljóst hve margar bifreiðar verða keyptar hvaða ár eða
hvaða bifreiðar verða fyrir valinu fyrir hvert ráðuneyti. Fyrir-
hugað er að semja um tvo bifreiðaflokka, fl. 1: ráðherrabifreiðar
og fl. 2: ráðherrabifreiðar með auknar umhverfiskröfur. Bjóð-
endur skulu leggja fram tilboð í bifreiðar innan þessara flokka.
Rekstrarfélag stjórnarráðsbygginga áskilur sér rétt til að kaupa
þær undirtegundir, boðinna tegunda í þessu útboði, sem að
mögulega eiga eftir að koma í sölu á gildistíma samnings en
sem uppfylla jafnframt kröfur útboðsins.
Gert er ráð fyrir að samið verði við fleiri en einn aðila um
viðskipti þessi.
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum sem eru rafræn
og verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is, mið-
vikudaginn 30. nóvember n.k. Skila skal tilboðum til Ríkiskaupa,
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík þar sem þau verða opnuð þann
12. janúar 2012, kl. 11:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem
þess óska.
Útboð
Styrkir
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
ÍÞRÓTTIR Á ÞÍNUM
HEIMAVELLI m.visir.isFáðu Vísi í símann!
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir,
meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf,
meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á Vísi.