Fréttablaðið - 26.11.2011, Blaðsíða 87
Forskólar, kvöldskólar, grunnskólar, framhaldsskólar.
iða þessir skólar af lífi − lífi barna sem án stuðnings
hefðu aldrei átt sér aðra framtíð en í þrælavinnu
í steinnámum, verksmiðjum, tehúsum, á ökrum eða við
vefnað. Þau eru börn stéttlausra. Útskúfuð og mismunað.
Mannréttindasamtökin Social Action Movement fræða
börnin um réttindi sín og nauðsyn þess að læra til að
brjótast út úr fátækt. Skuldir þrælabarna eru greiddar
og þeim komið í almenna skóla eftir ærna baráttu við
spillt kerfi. Á barnaþingum þjálfast þau í rökfærslu,
kynnast indversku stjórnkerfi og þroskast til baráttu
fyrir réttindum sínum. Foreldrar fá stuðning og aðhald
til að afla meiri tekna og halda börnum sínum frá
vinnu. Börn og foreldrar læra að spara fyrir útgjöldum
í stað lána frá vinnuveitendum sem hneppa í ánauð.
Eldri börn fá að læra eitthvað hagnýtt, eins og
viðgerðir, ensku eða vélritun. Hjá Sameinuðu indversku
kirkjunni sækja börn skóla og heimavist. Þaðan
útskrifast þau vopnuð til baráttu fyrir mannsæmandi
lífi. Í Úganda vinna samstarfsaðilar að því að finna
munaðarlaus börn sem hefur verið sópað bak við hurð
þar sem enginn hirðir um þau. Foreldrarnir eru dánir
úr alnæmi, allar eigur seldar fyrir lyfjum og mat,
kofinn að hruni kominn, börnin hrædd og ein. Þau fá
hús sem þau geta læst fyrir ókunnugum og yljað sér
þrátt fyrir rigningu og næturkulda. Þau fá helsta
innbú og best af öllu þykir þeim að fá vatnstank fyrir
rigningarvatn af þakinu. Ráðgjafi heimsækir þau
reglulega og hjálpar þeim að finna leið til að framfleyta
sér. Þeim stendur til boða hópvinna með fagfólki til að
vinna sig út úr áföllunum sem þau hafa upplifað.
Verkefni Hjálparstarfsins
Indland
kynþroska, heimanmund o.fl.
verndað umhverfi.
sínum í gegnum kerfið.
gegn barnaþrælkun.
Úganda
hjólaviðgerðir fyrir eldri börn.
Börn í skóla UCCI á Indlandi mynda skúlptúr.
Nemendur sem klára nám í klæðskurði fá saumavél
í útskriftargjöf.
Börn fá betri framtíð
Margt smátt ... – 11
Mikiðúrval
og
dekkja
fyrir fólksbíla jeppa
BETRA
Heilsársdekk
Loftbóludekk
Nagladekk
REYKJAVÍK - AKUREYRI - EGILSSTAÐIR
Reykjavík, Skeifan 5, 581 3002
Akureyri, Draupnisgötu 5, 462 3002
Egilsstaðir, Þverklettar 1, 471 2002
www.dekkjahollin.is
DEKKJAHÖLLIN
Þetta er aðeins brot af því sem
sem að við höfum uppá að bjóða...
Reykjavík, Skeifan 5, 581 3002
Akureyri, Draupnisgötu 5, 462 3002
Egilsst ir, Þverklettar 1, 471 2002
www.dekkjahollin.is
Þetta er aðeins brot af því sem
sem að við höfum uppá að bjóða...