Fréttablaðið - 26.11.2011, Blaðsíða 128
DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VÍSIR
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
3 - 110 R.
10 R.
R.
hálsi 3 -
110 R.
. .
Símablaðið fylgir
Fréttablaðinu í dag
Einnig á siminn.is
Mest lesið
FRÉTTIR AF FÓLKI
Ómar í góðum hópi
Degi rauða nefsins, skemmti- og
söfnunarþætti UNICEF á Íslandi,
verður sjónvarpað föstudaginn 9.
desember. UNICEF lætur þó ekki
þar við sitja og ætlar að hita upp
fyrir þáttinn með heljarinnar uppi-
standsskemmtun degi fyrr. Nokkrir
landsþekktir uppistandarar munu
leggja átakinu lið, þeirra á meðal
Bergvin Oddsson, betur þekktur
sem Beggi blindi, piltarnir úr Mið-
Íslandi, þeir Ari, Bergur Ebbi, Dóri
og Jóhann Alfreð, og
tvær úr framvarða-
sveit íslenskra kven-
uppistandara, Þórdís
Nadia Semichat og
Ugla Egilsdóttir.
Þekktasta
nafnið á
dagskránni
verður þó
líklega Ómar
Ragnarsson,
sem hefur
meiri reynslu
en flestir af
að láta fólk
hlæja.
- fgg, sh
Syngur með Paul Potts
Óperusöngvarinn ungi Sveinn Dúa
mun syngja dúett með sjálfum
Paul Potts, sigurvegaranum fræga
úr Britain‘s Got Talent, á jólatón-
leikum Björgvins Halldórssonar í
Laugardalshöll hinn 3. desember.
Sveinn Dúa hefur vakið verðskuld-
aða athygli fyrir góða frammistöðu
á óperusviðinu og Paul Potts
samþykkti að syngja dúett með
söngvaranum unga eftir að hafa
skoðað myndbönd og hlustað á
nokkur hljóðdæmi. Tónleikahald-
arar voru því snöggir til, sendu
honum hugmynd að lagi sem Potts
samþykkti og mega
áhorfendur því
eiga von á góðu
þegar hetjutenór-
arnir hefja
upp sína
raust.
1 Gífurlegt eignatjón eftir
ofsaveður í Færeyjum
2 Hundur beit þingmann
3 Ólafur Ragnar í slæmum
félagsskap
4 Ungi morðinginn talinn vera
veill á geði
5 Veturinn er kominn – og
helgarspáin er nokkuð góð