Fréttablaðið - 29.11.2011, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 29.11.2011, Blaðsíða 20
JÓLAGJÖFIN hennar og hans Verð 24.000.- Agavesírópið er, vegna framúrskarandi sætueiginleika, góður valkostur í staðinn fyrir sykur. Vegna þess hve bragðið er milt hentar það einkar vel til að sæta eftirrétti, morgunkorn, ávaxtarétti, drykki og í bakstur. Fæst í verslunum um allt land! Hægt er að fá Agave sírópið í 500 ml skvísum og 250 ml flöskum S k e i f u n n i 3 j · S í m i 5 5 3 8 2 8 2 · w w w . h e i l s u d r e k i n n . i s Heilsudrekinn er þitt val Besta jólagjöfin er góð heilsa · heilsumeðferð · heilsuvörur · dekur · leikfimi · heilsute · spavörur þriðja sæti í Laugavegshlaupinu í sumar þannig að það má eiginlega segja að þetta síðastliðna ár hafi ég farið af fullum krafti í utan- vegahlaupin. Það er að myndast hérna smá kjarni sem stundar ofurmaraþon og fjallahlaup og það var stór hópur Íslendinga í þessu hlaupi í Frakklandi með mér.“ Hvað hafa þessi löngu hlaup fram yfir önnur? „Þetta er bara svo æðisleg upplifun,“ segir Elísa- bet. „Mín fyrsta upplifun af svona löngu hlaupi var alveg frábær. Þetta var að sjálfsögðu mjög erf- itt en mér leið aldrei illa og tilfinn- ingin þegar maður kom í mark var alveg yndisleg. Ég ákvað strax þar og þá að þetta ætlaði ég að gera aftur. Ég myndi reyndar segja að það sé meira afrek að þjálfa vel fyrir svona hlaup en að fara það. Þjálfunin er mjög tímafrek en líka skemmtileg ef maður er í góðum hópi. Það er gaman að finna nýjar leiðir og ég fór heilmikið á fjöll hérna heima í sumar með vin- konu minni sem fór svo með mér í hlaupið úti.“ Er ekki allt lífið undirlagt af hlaupum? „Þessa dagana er ég bara að hlaupa svona tíu til tutt- ugu kílómetra fjórum, fimm sinnum í viku en svo eykst álag- ið þegar kemur fram á vorið. Það má eiginlega segja að þetta sé full vinna á sumrin,“ segir Elísabet og hlær. Hvað er svo fram undan? „Ég ætla að hlaupa heilt maraþon í vor, svona til að koma mér í gírinn fyrir sumarið, og fara síðan aftur út til Frakklands næsta sumar og þá í annað hlaup, sem er reyndar styttra, um 98 kílómetrar. Það eru fjögur mismunandi hlaup farin á hverju ári frá Chamonix, frönsk- um skíðabæ sem leggur heila viku í ágúst á hverju ári undir þessi hlaup. Lengsta hlaupið er alveg heill hringur í kringum fjöllin við Mont Blanc, 160 kílómetrar. Ég fer ekki alveg strax í það en draumurinn er auðvitað að kom- ast það einhvern tíma í framtíð- inni.“ fridrikab@frettabladid.is Framhald af forsíðu Elísabet með Helgu Þóru vinkonu sinni við rásmarkið í Ultra Trail. Við matarstöð um miðja nótt. Elísabet kemur í mark eftir 120 kílómetra í Ultra Trail-hlaupinu við Mont Blanc í sumar. Sölufulltrúar: Jóna María jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan brynjadan@365.is 512 5465 Snorri snorris@365.is 512 5457 Eru snyrtivörurnar þínar skaðlegar? Hægt er að komast að því á slóðinni www.ewg.org en þar er að finna gagnagrunn með yfir 69.000 hár- og snyrtivörum. Þar eru upplýsingar um öruggar snyrtivörur og skaðlegar.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.