Fréttablaðið - 21.12.2011, Blaðsíða 37
MIÐVIKUDAGUR 21. desember 2011 37
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
49
00
0
Nánari upplýsingar um opnunartíma er að finna á vinbudin.is
OPNUNARTÍMI UM HÁTÍÐIRNAR
Miðvikudagur 21. des. kl. 11.00 - 18.00
nema Skeifan, Dalvegur og Skútuvogur kl. 9.00 - 20.00
Fimmtudagur 22. des. kl. 11.00 - 20.00
nema Skeifan, Dalvegur og Skútuvogur kl. 9.00 - 20.00
Föstudagur 23. des. kl. 11.00 - 22.00
nema Skeifan, Dalvegur og Skútuvogur kl. 9.00 - 22.00
Laugardagur 24. des. kl. 10.00 - 13.00
Sun.-mán. 25.-26. des. Lokað
Þriðjudagur 27. des. kl. 11.00 - 18.00
nema Skeifan, Dalvegur og Skútuvogur kl. 9.00 - 20.00
Miðvikudagur 28. des. kl. 11.00 - 18.00
nema Skeifan, Dalvegur og Skútuvogur kl. 9.00 - 20.00
Vínbúðirnar á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri, Reykjanesbæ og Selfossi
Fimmtudagur 29. des. kl. 11.00 - 19.00
nema Skeifan, Dalvegur og Skútuvogur kl. 9.00 - 20.00
Föstudagur 30. des. kl. 11.00 - 20.00
nema Skeifan, Dalvegur og Skútuvogur kl. 9.00 - 20.00
Laugardagur 31. des. kl. 10.00 - 13.00
Sunnudagur 1. jan. Lokað
Mánudagur 2. jan. Lokað vegna talningar
Opið eftir talningu í eftirtöldum Vínbúðum:
Skeifan kl. 16.00 - 20.00
Austurstræti, Borgartún,
Mosfellsbær, Stekkjarbakki, Akureyri,
Selfoss og Reykjanesbær kl. 16.00 - 18.00
Samfélag okkar rótast í skóla-málum og veit sífellt minna um
ætlan yfirvalda og ætlan þjóðar-
innar. Þjóðin mun föndra það sem
þarf til að skólakerfið geti starfað
og undirbúið börnin okkar undir
lífið. Læti samfélagsins í dag verða
skólunum erfið og ýmislegt spenn-
andi á eftir að koma í ljós þegar
þjóðin öðlast reynslu í framtíðinni
varðandi tækni í rafiðnaði og sölu
á raforku.
Þjóðin verður ötul þegar hún fær
verkefni sem hvetja hana til dáða.
Þjóðin verður smám saman örugg
um það að ætlan leiðtoga þjóðar-
innar sé að þjóna þjóðinni en ekki
sjálfum sér. Þjóðin mun verða ótta-
laus og öðlast aftur þann kraft sem
hún hafði fyrir hrun. Þjóðin verð-
ur að fá tækifæri til að átta sig á
nýrri og þrengri fjárhagsstöðu og
þjóðin verður að fá peningana til
sín sem bankarnir yfirtóku eftir
hrunið. Yfirtaka bankanna á ötulu
sparifé þjóðarinnar og erlendum
lánum hefur veikt þjóðina og veikt
skólakerfið. Þjóðin þarf að verða
hún sjálf aftur og verða stolt.
Skólakerfinu þarf að hjálpa í
gegnum þessar þrengingar og yfir-
völd munu koma til með að þurfa að
rétta skólunum hjálparhönd. Hjálp-
in þarf að koma fljótt því þjóðin
getur ekki meir. Þjóðin þjáist vegna
peningaleysis og hún verður særð
til ólífis ef ekki koma til peningar
frá bönkunum. Samfélagsleg hnign-
un mun eiga sér stað og kjör fólks
verða óásættanleg. Samfélagið mun
verða óttalaust vegna peningaleys-
isins og ætlar sér það sem því ber.
Peningaleysið verður smám saman
til þess að þjóðin lætur stjórnvöld
finna fyrir reiði sinni, fyrst í formi
kærleiksverka, síðar sem læti og
æsing gegn yfirvöldum.
Þjóðin verður ekki bættari með
það því þjóðin í dag þarf peninga en
ekki stríð. Skólakerfið er að brotna
vegna peningaleysis og reiði þjóð-
arinnar mun smám saman rústa
skólakerfið. Reiði fólksins mun
magnast vegna kennara sem gefast
upp vegna aukins álags og ætlan
stjórnvalda vegna niðurskurðar að
setja meiri vinnu á þá.
Í dag eru kennarar að sligast
undan kröfum heimilanna um
ábyrgð kennara á börnum þeirra,
og foreldrar í dag eru að kikna
undan álagi vegna fjárhagsáhyggna
og atvinnuóöryggis. Skólarnir geta
ekki borið þessa byrði einir, yfir-
völd verða að sýna ábyrgð og setja
fjármagn í skólakerfið. Í dag koma
einungis sveitarfélögin að fjár-
mögnun skólanna, mörg þeirra eru
í erfiðleikum og ráða ekki við að
halda úti skólastarfi.
Þjóðfélagið má ekki við því að
stoðir menntunar þjóðarinnar
bresti, kennarar gefist upp, reiðin
búi um sig í skólunum og nemend-
ur upplifi sig sem bagga á þjóðinni.
Nemendur munu vona að þjóðfé-
lagið muni smám saman reyna að
hjálpa skólunum vegna mikilvægis
þeirra sem fólk framtíðarinnar.
Ef það gerist hins vegar ekki fá
nemendur þau skilaboð að líf þeirra
sé minna virði en þeirra fullorðnu.
Skólarnir geta lítið gert til að sýna
nemendum hið gagnstæða því sökn-
uður starfsfólksins eftir peningum
mun líka verða þeim erfiður. Skóla-
kerfið mun veikjast vegna þessa og
koma því til leiðar að þjóðinni mun
verða misboðið og gera uppreisn.
Þjóðin mun sækja peningana sína
og samfélagið mun lamast. Þjóðin
mun ekki sætta sig við skólakerfi
sem sýnir börnum þeirra lítilsvirð-
ingu.
Þjóðin mun krefjast ötullar upp-
byggingar á menntakerfi þjóðar-
innar og skólakerfis sem lítur á
nemendur sem þjóðfélagsþegna.
Þjóðin mun sópa burt ráðamönnum
og sækja þá til saka fyrir að hafa
litið fram hjá mikilvægi menntunar
æsku landsins og þóknast bönkun-
um. Þjóðin mun sækja rétt sinn til
menntunar barna sinna með því að
setja fjármagn í menntamál.
Þjóðin verður ekki ánægð fyrr
en kennararnir verða ánægðir,
foreldrarnir verða ánægðir, starfs-
fólkið í umönnunarstörfunum verð-
ur ánægt, vegna þess að nemendur
verða ekki sælir í skólanum fyrr
en starfsfólkið verður sælt. Þjóð-
in mun sjá að peningar bankanna
verða að koma til þjóðarinnar, skól-
arnir geta ekki tekið meiri niður-
skurð á sig, skólastarfið í dag þarf
fjármagn til að það geti sinnt hlut-
verki sínu. Þjóðin mun sjá að það
verður að setja peninga í skóla-
starfið og það strax.
Stundum verðum við að föndra grös og róla í núinu
Menntamál
Brynja Dís
Björnsdóttir
kennari og foreldri
Skólakerfið er
að brotna vegna
peningaleysis og reiði
þjóðarinnar mun smám
saman rústa skólakerfið.