Framsóknarblaðið - 24.06.1959, Qupperneq 4
4
FRAMSÓKNARBLAÐIÐ
Hermann Jónasson:
Glæfraspil með stjórnskipan landsins
í s.l. mánuði kom Hermann Jónasson, formaður Framsóknar-
flokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, í heimsókn hingað til
Vestmannaeyja og flutti ræðu á fundi, sem Framsóknarmenn
héldu þann 29. f. m. Ræða hans fjallaði aðallega um kjördæma-
málið, og eftirfarandi ræðukaflar eru sýnishorn af málflutningi
hans í þessu örlagaríka máli.
Eg held að fáir sem gefa sér
tíma til að yfirvega þetta mál ró-
lega, muni komast að þeirri nið-
urstöðu að alþingismenn eða Al-
þingi hefði sett niður þótt það
hefði ráðlagt þjóðinni að láta sér
staklega kjörið stjórnlagaþing
setja hin nýju stjórnskipunarlög
með eitthvað svipuðum forsend-
um og rakið er hér að framan.
— Ég held að heiður þess hefði
þvert á móti vaxið við þetta. —
Stundum eru þau rök færð fram
gegn því að sérstakt stjórnlaga-
þing afgreiði stjórnarskrána —
að kosið mundi til þess eftir
flokkssjónarmiðum, og þetta
myndi því engu breyta. — Mót-
báran er þá orðin sú að með
þessari leið losnum við við svo-
lítið af flokkssjónarmiðum og
fordæmum að ekki taki því að
reyna þetta. M. ö. o.: Það er
álit þeirra, sem mótmæla sér-
stöku stjórnlagaþingi, að þótt
menn væru kosnir sérstaklega til
þess að leysa stjórnarskrármál-
ið, það mál eitt, og ekkert ann-
að — og án tillits til annarra
mála og án tillits til flokkssjón-
armiða þá mundu flokksböndin
vera svo sterk að fulltrúarnir
mundu bregðast þeim trúnaði er
þeim hefði verið sýndur, bregð-
ast því háleita verkefni, sem
þeim hefði verið falið, og láta
flokkssjónarmið ráða við lausn
þess. Ég er ekki þessarar skoð-
unar. —
En er ekki mótstaðan gegn sér-
stöku stjórnlagaþingi sprottin af
því, öðru fremur, að þröngsýnir
flokksforingjar telja sig missa
flokkslegt vald yfir lausn máls-
ins, ef sérstakt stjórnlagaþing
fœr vald til að afgreiða málið.
Eitt er alveg víst. Sérstaklega
kosið þing hefði ekki orðið lé-
legra en Alþingi við lausn máls-
ins; það hefði að minnsta kosti
leyst málið í heild, enda ekki
haft umboð til annars. Það hefði
ekki tekið einn þátt stjórnar-
skrármálsins, kjördæmamálið út
úr og gert það að illdeilumáli,
leyst það í flaustri, en skilið allt
annað eftir óleyst. — Það liggja
sannarlega engin rök fyrir, er
bendi til þess, að Alþingi sé hæf-
ara til að leysa stjórnarskrár-
málið en sérstaklega kjörið
stjórnlagaþing, — enda hef ég
ekki heýrt neinn mann halda
því fram.
Hins vegar benda sterk rök til
þess og líkur að fulltrúaþing, sér-
staklega til þess kjörið að leysa
málið, mundi verða hæfara til
þess en Alþingi — með sínum
pólitísku flokkssjónarmiðum,
sem hætt er við að brengli dóm-
greindina. En þröngsýn flokks-
sjónarmiðin hafa nú lokað þess-
ari leið, að sinni, — og kem ég
nú að þvi að ræða málið nokk-
uð efnislega.
En áður vil ég þó benda á þá
furðulegu og bágbornu mál-
færslu þríflokkanna, að saka
Framsóknarflokkinn um flokks-
sjónarmið í þessu máli — eina
flokkinn, sem hefur barizt fyrir
því að flokkssjónarmiðum væri
vikið til hliðar — með því að
láta sérstakt stjórnlagaþing af-
greiða málið.
Valdið skal tekið af
landsbyggðinni
Sú spurning er ásækin við
marga, hvers vegna flokkarnir
vilji ekki sættast á þessar miðl-
unartillögur, sem eru miðaðar
við að rétta hlut þéttbýlisins án
þess að leggja gömlu kjördæmin
niður. Hvað veldur því, að þeir
allir sem einn hafna þessu eins
og af einhverjum dularfullum
ástæðum, sem ekki má nefna?
— Hver hugsandi maður veit þó
hver ástæðan er. Hún er sú fyrst
og fremst, að það kostar of mikl-
ar framfarir út um landið — út
í kjördæmunum, ef þau fá aö
haldast. Það er of mikið kapp-
hlaup um þessi litlu kjördæmi
segja þríflokkarnir. Litlu kjör-
dæmin valda pólitískri fjárfest-
ingu sagði einn af spekingum
Sjálfstæðisflokksins. Fjárfest-
ingarstefnan lagast þegar búið
er að leggja niður kjördæmin
sagði Einar Olgeirsson. Mest
gloprast þetta út úr þessum
þingmönnum. Niðurskurðurinn á
raforkuframkvæmdum og verk-
legum framkvæmdum út um
landið er aðeins smá sýnishorn,
dropi úr þeim beiska bikar, sem
borinn verður að vörum fólksins
út um landið og það látið tæma
í botn, ef það hefur ekki mann-
dóm til þes sað hrinda af sér til-
ræðinu í kosningunum í vor.
Falsrökin
Borin eru fram alls konar fals-
rök fyrir þessum breytingum.
Hermann Jónasson.
Kaupstaðadrengir fræða lands-
byggðina á því, að nú sé með
sameiningu hinna smáu kjör-
dæma verið að búa til sterkari
heildir, sem hafi 5 þingmenn. í
stað þess að smáu kjördæmin
höfðu einn. Auðveldara verði þvi
fyrir þessar heildir að sækja sinn
rétt. Rökrétt afleiðing ætti að
vera að leggja niður hreppana
alla, og kjósa sýslunefndarmenn
hlutfallskosningu. Það væri mun
ur fyrir hreppana að eiga hlut
í 10—20 sýslunefndarmönnum
heldur en að eiga bara einn. Hitt
skiptir minnu þótt litlu hrepp-
arnir fengjU engan fulltrúa úr
sínum hópi til að gæta sinna
hagsmuna.
Auðsætt er af þessum rökum,
ef rétt væru, að það eru svik-
samleg vinnubrögð að gera ekki
landið allt að einu kjördæmi.
Fyrst það er aukinn styrkur að
láta leggja kjördæmi sitt niður
og sameina það í 5 manna kjöri
og þannig eiga hlutdeild í 5 þing
mönnum — er það samkvæmt
hugsunarhættinum enn meiri
styrkur, að vera meðlimur í enn
stærri heild og eiga hlutdeild í
60 þingmönnum.
Samkvæmt rökum þessara
spekinga hefur það ekki verið
lítill búhnykkur og þjóðargæfa
fyrir Eystrasaltsríkin að vera
innlimuð í hið sterka Rússland.
— Það væri þá og samkvæmt
sömu rökvísi takandi til athug-
unar, þar sem við erum að fólks
fjölda eins og lítið kjördæmi í
tiltölulega fámennu landi —
hvort við íslendingar eigum frek
ar en gömlu kjördæmin, að basla
við þetta sjálfstæðishokur. Væri
okkur ekki nær að styrkja okkur
og gera allt voldugra með því að
sameinast stærri þjóðum. Þetta
var nú einmitt það sem Knut
Berlin og aðrir Danir voru að
kenna okkur í nokkrar aldir, en
við vorum svo fávísir að vilja
ekki trúa.
Hlutfallskosningar
Allar líkur benda nú til þess
að frumvarp þríflokkanna verði
Frh. á 3. síðu
Það er kosið um kjör-
dæmabreytinguna
79. grein 1. málsgrein Stjórnarskrár Lýðveldisins íslands
hljóðar svo:
„Tillögur, hvort sem er til breytinga eða viðauka á stjórn-
arskrá þessari, má bera upp bæði á reglulegu Alþingi og
auka-Alþingi. Nái tillagan samþykki beggja þingdeilda,
skal rjúfa Alþingi þá þegar og stofna til almennra kosn-
inga að nýju. Samþykki báðar deildir ályktunina óbreytta,
skal hún staðfest af forseta lýðveldisins og er hún þá
gild sem stjórnskipunarlög.“
Samkvæmt skýringum kennslubókar þeirrar í stjórnlaga-
fræði, sem notuð er við lagadeild Háskóla íslands, er þetta
ákvæði vörn gegn „hvatvíslegum stjórnarskrárbreytingum.“
Það leikur því ekki á tveim tungum að kosið er um kjör-
dæmamálið fyrst og fremst. Það er nú lagt í hendur kjós-
endanna að samþykkja eða hrinda þessari hvatvíslegu
stjórnarskrárbreytingu, kjördæmabreytingunni. Áður en
gengið er í kjörklefann, verður sérhver samvizkusamur
kjósandi að gera það upp við sig hvort hann vill láta leggja
kjördæmi sitt niður eða ekki. Þetta aukablað af Fram-
sóknarblaðinu er gefið út til að auðvelda honum þá
ákvörðun.
Eyjarnar áfram sérstakt kjördæmi: X HELGI BERGS