Framsóknarblaðið - 17.04.1963, Blaðsíða 1
Útgefandi
Framsóknarfélag
Vestmannaevia.
26. árgangur.
Mólgagn Framsóknar- og sam-
vinnumanna í Vestmannaeyjum
Vestmannaeyjum, 17. apríl 1963.
8. tölublaði
Gumað af bættri
gjaldeyrisstöðu
Utdráttur úr ræðu Helga Bergs, sem hann
flutti nýlega, og birtist í Degi.
Stjórnarsinnar heyja nú liarða
baráttu. Baráttan verður því
harðari, sem málstaðurinn er
verri. Verðbólgan og leiðin til
bættra lífskjara eru málefni, er
stjórnarflokkarnir komast ekki
hjá að svara til saka um. Meðal
þeirra „trornpa", sem stjórnar-
flokkarnir þykjast hafa á hend-
inni um þessar mundir og
hampað er framan í kjósend-
ur, er hagstæð gjaldeyrisstaða.
Þeir hafa fengið marga til að
hlusta á þetta, án fuillrar yfir-
vegunar.
Um síðustu árarnót stóðu
gjaldeyrisreikningar bankanna
780 milljónum betur en í árslok
1958. En hin stuttu vörukaupa-
lán, sem tekin eru nú framhjá
bönkunum af einstaklingum,
námu þá upp undir 400 milljón
um. Og erlendu skuldirnar
höfðu aukizt á tímabilinu um
600 milljónir króna. Þessar töl-
ur sýna, að staða þjóðarinnar
út á við í þessu efni er mjög
svipuð og þegar vinstri stjórnin
fór frá völdum í árslok 1958.
Gjaldeyrisstaðan nú, ætti að
vera mun betri, vegna hins á-
gæta fiskafla síðustu árin, og
vegna þess, að ekki hefur verið
ráðizt í neinar stórframkvæmdir
í landinu.
Þá segja stjórnarflokkarnir
með miklu yfirlæti, að sparifé
landsmanna hafi vaxið alveg
dæmalaust mikið á „viðreisnar-
tímanum“. Aukningin sé um
70% fleiri krónur. En það er
bara ekki liægt að kaupa neitt
meira fyrir þær. Sannleikurinn
er því sá, að sparifé landsmanna
hefur sjaldan, eða jafnvel aldrei
á síðari árum, vaxið minna en
á þessum síðustu árum að verð-
gildi, enda tvær gengisféllingar •
á umræddu tímabili.
Þ;j gumar stjórnarliðið af
skattalækkun. Benda þeir ó-
Helgi Bergs
spart á tekjuskattinn, en hann
var felldur alveg niður
af 50 þúsund króna árs'tekjum
einstaklinga og af 70 þús. króna
tekjum hjóna. Einstaklingurinn
með 50 þúsund króna tekjurnar
losnaði þannig við að greiða
sínar 340 krónur í tekjuskatt.
En maðurinn með 150 þús. kr.
tekjurnar, losnaði við að greiða
19 þús. krónur og þessi tekju-
skattsbreyting kom því tekju-
háum mönnum mjög vel, enda
margt fyrir þá gert, á kostnað
hinna tekjuminni, svo sem þetta
dæmi sýnir Ijóslega og ótvírætt.
En þegar talað er um skatta-
lækkanir yfirleitt svo sem stjórn-
arblöðin gera oft, er ekki úr
vegi að geta þess, að allir tollar,
beinir og óbeinir, sém ríkissjóð-
ur innheimtir af landsfólkinu,
voru árið 1958 um 575 milljónir
en eru nú á þessu yfirstandandi
ári um 1831 milljón. Kaup
manna hefur vissulega ekki
hækkað tilsvarandi, það sjá all-
ir, sem vilja sjá.
Síðustu daga er enn montað
áf Tollalækkunum, samkvæmt
nýkomnu frumvarpi á Alþingi.
Þessi lækkun nemur 40—50
Framhald á 2. síðu.
Torfi Jóhannsson
látinn
Torfi Jóhannsson, bæjarfógeti,
andaðist í Landakotsspítalan-
um í Reykjavík s. 1. miðvikudag
10. þ. m.
Torfi var fæddur 7. apríl
1906 á Hólmum í Reyðarfirði,
og var hann því réttra 57 ára,
er liann féll frá.
Foreldrar hans voru séra Jó-
hann L. Sveinbjörnsson, pró-
fastur og síðari kona hans Guð-
rún Torfadóttir frá Flateyri.
Torfi Jóhannsson hefur verið
bæjarfógeti hér í Eyjum síðan
1950. Kvæntur var hann Ólöfu
Jónsdóttur frá Seglbúðum í
Meðallandi, og eiga þau einn
son, Kristján, sem stundar lög-
fræðinám.
Torfi var rnjög vel látinn,
bæði sem embættismaður og sem einstaklingur. Blaðið sendir
konu hans og syni innilegar samúðarkveðjur.
OCosningctr og §ramkvœmdir
Fyrir síðustu bæjarstjórnar-
kosningar hófu sjálfstæðismenn
hér mikinn áróður í sambandi
við fyrirhugaðar framkvæmdir
bæjarins. Meðal annars var stillt
út haglega gjörðum líkönum af
væntanlegum sjúkrahúss- og
sundhallarbyggingum. Voru þess
ir sýningargripir dagana fyrir
kosningar hafðir í áberandi
glugga við aðalumf'erðargötu
bæjarins, nema hvað þeim var
einn daginn skotið upp í barna-
skóla, svo að gestir, sem þar áttu
leið um, skyldu ekki missa af
þessu augnayndi. Eftir kosning-
arnar hurfu þeir svo af sjónar-
sviðinu, og hefur að litlu verið
getið síðan, enda þótt herrnt sé,
að stefnuvottar hafi á miðju
sumri mátt leggja Leið sína á
bæjarskrifstofurnar. . vegpa. van-
skila í sambandi við smíðakostn
að þessara hluta.
Engum duldist, að hér var um
áróður að ræða, því auðvitað
liafa bæjarbúar jafnmikla á-
nægju af að sjá „model“ af þess
um byggingum, þó að kosningar
séu ekki fyrir dyrum. Svo vildi
þannig til, að verklegar fram-
kvæmdir við sjúkrahúsið dróg-
ust fram á vetur, og sundhallar-
byggingunni var alveg slegið á
frest. Er nú unnið af miklum
krafti og með ærnurn kostnaði
við endurbætur á gömlu sund-
lauginni, meðal annars verið að
koma þar upp kynditækjum til
að hita upp vatnið. Það er ekki
líklegt, að líkanið af sundhöll-
inni verði á glámbekk næstu
mánuði, enda búið að gera sitt
gagn, því ef til vill hefur ein-
hver unnandi sundíþróttarinr-
ar .hrifizt og greitt Sjálfstæðis-
flokknum atkvæði sitt eins og
til var ætlazt.
Nú, þegar kosningar eru aft-
Framhald á 2. síðu.