Framsóknarblaðið


Framsóknarblaðið - 08.06.1963, Page 1

Framsóknarblaðið - 08.06.1963, Page 1
26. árgangur. Vestmannaeyjum 8. júní 1963. 12. tbl. Látum ekki aftur muna einu atkvæði Við stöndum nú mitt í blindbyl svartasta kosningaáróðursins. Ekkert er til sparað af hálfu stjórnmálaflokk- anna, til þess að ná í sem flest at- kvæð'i. Eins og venja er til málar ríkis- stjórnin allar sínar gerðir hvítar og; fagrar, en stjórnarandstaðan málar- hið sama dökkt og ljótt. Eflaust hafa báðir nokkuð til síns máls, en stjórnarandstaðan ábyggi- lega meira, enda fer þeim stöð'ugt. fjölgandi, sem snúast á móti núver- andi ríkisstjórn, eða „viðreisnar- stjóm“. (Eg hirði ekki að rekja hér ávirð- ingar ríkisstjórnarinnar, það er svcp víða gert þessa dagana, heldur er er- indi mitt með þessum línum að' ræða um það, hvernig helst er hægt að fella stjórnina. Ríkisstjómin hefur nauman þing- meirihluta. Hún má ekki missa nema tvo þingmenn til þess að tapa meiri- hlutanum. Því er nokkurn vegin slegið föstu, að Framsóknarflokkur- inn muni vinna eitt þingsæti í Reykja- ■ vik, að líkindum frá Alþýðuflokkn- um. Mestar vinningslíkur Framsókn- arflokksins að' öðru leyti eni í Suður- landskjördæmi og Vesturlandskjör- dæmi. Ef athugaðar eru tölur siðustu kosninga til Alþingis og sveitar- stjórna, sést það glöggt, að Alþýðu- bandalagið er ekki líklegt til þess að vinna eitt einasta sæti. Það hefur aðeiins rúmlega til þess að halda sín- um þingmönnum. Kjósendur sem þannig eru stemmdir, þurfa ekki að óttast um sína Alþýðubandalagsþing- menn, en þeir geta ekki fjölgað þeim, a. m. k. ekki að 'þessu sinni. Slagurinn hlýtur þess vegna að standa milli Framsóknarflokksins og ríkisstjórnarinnar. Hér í kjördæminu stendur baráttan miili Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins, því ag vitað er, að' Alþýðuflokkurinn hefur enga möguleika til þess að koma hér að manni. Er reyndar af mörgum talið, að Alþýðuflokkurinn muni beina ein- hverju af fylgi sínu yfir á Sjálfstæð- isflokkinn, til að reyna að tryggja að ég hefði kosið með ykkur — en þá var þag bara of seint. Enn höidum við Framsóknarmenn því fram, að við séum líklegastir til sigurs, og nú er ekki teflt um bæjar- stjórn, heldur heila ríkisstjórn, fram- tíð lands og þjóðar. Þess vegna vil ég segja þetta við alla þá sem vilja og taka vilja mark á orðum mínum: Látið ekki blekkjast í annag sinn, hvorki af fagurgala stjórnarliðsins né persónulegu narti í Helga Bergs eða aðra frambjóðendur B-listans. Látið heldur hendur standa fram úr erm- um og vinnið að falli stjórnarinnar meg því að vinna fyrir og kjósa B-listann. Látið ekki aftur muna einu atkvæði, því að úr því er ekkí hægt að bæta mánudaginn 10. júní. Hrólfur Ingólfsson. Séð yfir Vestmannaeyja- kaupstað. Heimaklettur í baksýn. áframhaldandi völd ríkisstjórnarinn- ar. En óánægjan með' „viðreisnar- stjórnina" er mikil og vaxandi og maður finnur það einnig hvað fylg'i Framsóknarflokksins vex dag frá degi. Þáð leikur því ekki á tveimur tungum, ag flokkurinn á ákaflega mikla möguleika á því að vinna þing- sæti af stjórninni í þessu kjördæmi — svo mikla möguleiika, að það getur oltið á einu cinasta atkvæði, hvernig fer, hvort ríkisstjórnin heldur velli, eða hvort brevtt verður um stjórnar- stefnu. S.l. vor fóru fram bæjarstjórnar- kosningar. Fi'amsóknarmenn hér héldu því fram, að þeir einir væru líklegir til þess að leggja meirihluta Sjálfstæð'isflokksins að velli. Marg- ir trúðu þessu, en ekki nógu margir — einn vantaði. — Meirihluti Guð- Iaugs lafði á einu atkvæði. Eftir á sögðu margir við mig: ef mig hefði grunað' þetta, þá held ég Agúst Þorvaldsson bóndi, skipar efsta sæti B-!istans. Hann hefur um þrjá áratugi búið myndar- íegu og vaxandi búi á Brúnastöðum í Hraungerð- ishreppi, en hann hefur einnig kynnst högum út- vegsins og sjómannastéttar innar. Á árunum 1925— 1937 réri hann 12 vertíðir héðan úr Vestmannaeyjum, og er síðan mörgum Vest- mannaeyirgum að góðu kunnur. Sunnlendingum til sjáv- ar og sveita væri mikill sómi að því að efla svo Framsóknarflokkinn við þessar kosningar, að bónd- inn og sjómaðurinn Ágúst Þorvaldsson yrði fyrsti þingmaður kjördæmisins. iiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii immmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmiiiiiiiii TAKMARKIÐ ER 7 MENN Á ÞING ÚR SUÐURLANDSKJÖRDÆMl, - TIL ÞESS AÐ SVO MEGI VERÐA, ER MÖGULEIKINN AÐEINS EINN 0G HANN ER SÁ, AÐ HELGI BERGS NÁI KJÖRI. m

x

Framsóknarblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Framsóknarblaðið
https://timarit.is/publication/795

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.