Framsóknarblaðið - 14.04.1965, Blaðsíða 4
4. SÍÐAN
FRAMSÖKNARBLAÐIÐ
fcííiiv í
Landakirkja.
Messur um hátíðarnar:
Skírdag kl. 2. Séra Jóh. Hlíðar.
Altarisganga.
Föstudagurinn langi kl. 2. Séra
Þorsteinn L. Jónsson.
Páskadagur kl. 2. Séra Jóhann
Hlíðar.
2. dag páska kl. 2. Séra Þorsteinn
L. Jónsson. Barnaguðsþjónusta kl.
11 f. h.
Sumardagurinn fyrsti kl. 2. Séra
Þorsteinn L. Jónsson.
Betel.
Samkomur um hátíðarnar:
Skírdagskvöld kl. 8,30.
Föstudaginn langa, kl. 4,30.
og báða páskadagana kl. 4,30.
Andlát.
Nýlega er látin Andrea Kristjáns-
dóttir, Nýja húsi, við Heimagötu.
Jarðarför hennar fer fram frá
Landakirkju í dag.
Merkisafmæli.
S. 1. laugardag, hinn 10. þ. m.
átti Pálína Eiríksdóttir, Varmahlíð
sjötugsafmæli.
Listsýning.
Núna þessa dagana stendur yfir í
Akóges sýning á verkum frú Vig-
dísar Kristjánsdóttur frá Reykja-
vík. Á sýningunni *er listvefnaður,
vatnslitamyndir og bókaskreyting-
ar. Stærsta myndin ber nafnið: Óð-
ur til íslenzku sauðkindarinnar. Ó-
hætt mun að fullyrða, að sauðkind-
inni hefur ekki áður verið fluttur
dýrri óður. Segja má, að vatnslita-
myndirnar, sem eru af íslenzkum
jurtum, séu óður til íslenzkrar nátt-
úru.
Hér er gömul íslenzk list í skáld-
legum búningi, og blómamyndirnar
eru svo lifandi, að ekkert vantar
nema ylminn.
Nýlega
hafa nokkrir Vestmannaeyingar
keypt togarann Donwood, sem
strandaði hér við Heimaklett hinn
13. marz. Hefur þeim tekizt að
bjarga olíunni úr skipinu, og er
þar með létt af þeim áhyggjum að ■
olían færi í sjóinn, og jafnvel inn
í höfnina.
Sigfús J. Johnsen
hefur tekið sæti Guðlaugs Gísla-
sonar á Alþingi vegnai anna Guð-
laugs heima í héraði, eins og það
var orðað í fréttum.
frá bsjarrdði.
Bæjarráð Vestmannaeyja óskar
að fá birt eftirfarandi frá fundi sín-
um 12. apríl s. 1:
„Fyrir lá:
6. liður: Skýrsla frá rannsóknar-
stofu Fiskifélags íslands dags. 8.
apríl s. 1. varðandi gerlagróður í
vatnsbólum við Skiphella. Sýnir
skýrslan, að ekki er um að ræða
að cóli-gerlar séu í vatninu, enda
aldrei komið fram áður við fyrri
rannsóknir.
Bæjarráð samþykkir að biðja blöð
bæjarins að birta framanritaða bók-
un til að leiðrétta fullyrðingu M. M.
í Brautinni 8. apríl um cóli-(saur-)
gerla í vatninu jafnhliða og bæjar-
ráð harmar, að slík alröng og á-
byrgðarlaus fullyrðing skuli hafa
komið fram í innanbæjarblaði, þar
sem fiskframleiðslunni getur stafað
hætta af slíku, auk þess, sem það
er til leiðinda fyrir bæjarbúa og á-
litshnekkis fyrir byggðarlagið. Vill
bæjarráð undirstrika, að það ber
fyllsta traust til héraðslæknis stað-
arins, sem annast hefur sendingu
sýnishorna af vatni Vatnsveitunn-
ar til gerlarannsóknar og efnagrein-
ingar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið.
Sighvatur Bjarnason,
Jóhann Friðfinnsson,
Sigurður Stefánsson,
Guðlaugur Gíslason,
Gísli Gíslason."
Sveinn Guömundsson.
Framhald af 1. síðu.
hafi, eða í tæp 28 ár og verður það
seint fullþakkað.
Margháttuð önnur félagsmál hef-
ur Sveinn látið til sín taka. Hann
tók m. a. um langt skeið þátt í söng
lífi þessa bæjar, bæði í Vestmanna
kór og í Kirkjukór Vestmannaeyja.
Sveinn hefur látið menningarmál
þessa bæjar sig miklu skipta. Hann
hefur hvað eftir annað flutt tillög-
ur í bæjarstjórn um skrúðgarð,
listasafn o .fl., en jafnan fyrir dauf-
um eyrum. Yfirleitt hefur Sveinn
veitt góðum málum lið, án tillits
til flokkssjónarmiða, eða eiginhags
muna.
Sveinn er drengur góður, og allt-
af reiðubúinn að rétta hjálparhönd
og er þá ekki spurt um laun.
Merkisafmæli.
12. þ. m. var Ingibjörg Ólafsdótt-
ir í Bólstaðarhlíð sjötug. Ingibjörg
er Rangæingur að ætt, en fluttist
hingað um tvítugt, og giftist stuttu
síðar Birni Bjarnasyni frá Hlaðbæ,
en hann rak hér útgerð um langt
skeið í félagi við Eirík Ásbjörns-
son. Þau Ingibjörg og Björn byggðu
húsið Bólstaðarhlíð, og þar hefur
Ingibjörg búið alla tíð. Mann sinn
missti Ingibjörg fyrir allmörgum
árum. Þeim varð átta barna auð-
ið, og eru sjö þeirra á lífi, og öll
búsett hér í Eyjum.
Ingibjörg hefur yndi af blómum,
og hefur komið sér upp fallegum
blómagarði. Síðustu árin hefur hún
fengizt nokkuð við ritstörf, og á
Framsóknarblaðið henni mikið að
þakka í þeim efnum.
Blaðið vill nú nota þetta tæki-
færi og flytja þessari heiðurskonu
beztu þakkir og árnaðaróskir á þess
um tímamótum.
Ingibjörg dvelur nú á sjúkrahús-
inu Sólheimum í Reykjavík.
VINYL-veggdúkurinn
kominn aftur í 10
mismunandi litum.
ATH.: Hentar vel þar
sem eitthvaö mæöir á
GUÐMUNDUR
BÖÐVARSSON & CO. HF.
Hástv. 23. — Sími 2061.
vizkusemi í störfum, m. a. í sam-
bandi við fjárreiður hinna mörgu
fyrirtækja og stofnana, sem hann
hefur annazt.
Hann er viðurkenndur fyrir sam-
Tómstundastarf Sveins um ára-
tugi, hefur verið steinasöfnun, og
á hann nú eitt bezta steinasafn
hérlendis.
Kvæntur er Sveinn Unni Pálsdótt
ur, frá Hofsósi, hinni ágætustu
konu. Sveinn er enn léttur í spori,
og léttur í lund og ber því ekki
aldurinn utan á sér.
Framsóknarfélagið og Framsókn
arblaðið þakkar Sveini fyrir öll
störf hans, og við vonum, að störf
hans og annarra brautryðjenda fé-
lagshyggju í þessum bæ, séu ekki
unnin fyrir gíg, heldur beri ávöxt
til hagsbóta fyrir heill þessa bæjar.
J. B.
PÁSKAHROTAN
í gær var mesti afladagur vertíð-
arinnar og hafa borizt á land um
1500 tonn hér í Eyjum. Afli í net-
in var yfirleitt jafn og góður, en
hjá nótabátum var hann misjafn
Troll- og færabátar öfluðu vel. í
morgun var hvöss austanátt og því
erfitt fyrir nótabáta að athafna sig,
en netabátar eru allir á sjó.
Miklar annir eru að sjálfsögðu í
vinnslustöðvunum og kemur sér
mjög illa, að vertíðarfólk hefur ver-
ið að tínast í burtu að undanförnu.
Horfur eru á að flestallir Færeying
arnir, sem hér hafa unnið í vetur,
séu á förum með Gullfossi um
helgina.
RAFMAGNS-
KRULLUJÁRNIN
margeftirspuröu,
komin aftur.
Har. Eiríksson h. f.
TIL SÖLU.
er CLARK VÖRULYFT
ARI, — buröarþal 3 tonn.
SKIPAAFGREIÐSLA
HERJÓLFS.
Ný sending
af hinum vinsælu
amerísku gólfflísum
vœntanl, um 20. þ.m.
GUÐMUNDUR
BÖÐ VARSSON & CO. HF.
Hástv. 23. — Sími 2061.
BARNARUM,
nýlegt og vel meö far
iö óskast til kaups.
Uppl. í síma 1577.
Slétt galvaniseraö járn,
stærö 100x250 cm. platan.
GUÐMUNDUR
BÖÐVARSSON & CO. HF.
Hástv. 23. — Sími 2061.
íbúð óskast.
Ung hjón óska eftir að taka íbúð
á leigu. — Helzt sem fyrst.
Upplýsingar í síma 1235 og 1230.
Tilboð óskast
í smíði og uppsetningu stiga- og svalahandriða í Sambýlis-
húsið, Hásteinvegi 60—62—64.
Tilboðsgögn liggja frammi á Bæjarskrifstofunum.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu bæjarstjóra mánu-
daginn 26. apríl n. k.
BÆJARSTJÓRI.
]*> ii~x«ri<tiiii«x Hw—r^i—i~ *• • * ■ "« ^***1