Framsóknarblaðið - 09.06.1965, Page 1
ÚTGEFANDI:
FRAMSÖKNARFÉLAG
VESTMANNAEYJA
28. árgangur.
Vestmannaeyjum 9. júní 1965
MALGAGN FRAMSOKNAR- OG
SAMVINNUMANNA I
VESTMANNAEYJUM
11. tölublað
Þegar þetta er skrifað eru gild-
andi kjarasamningar á seinasta
degi. Undanfarnar vikur hefur ver-
ið unnið að undirbúningi nyrra
samninga, en með heldur litlum ár-
angri, ennþá að því er bezt er vit-
að. Enginn veit því enn um hvað
við tekur, verkföll og ringuireið á
vinnumarkaðinum eða nýir samn-
ingar.
Það veltur þó fyrst og fremst á
ríkisstjórninni hvort samningar tak
ast og er það ekki óeðlilegt, þar sem
hún ber ábyrgð á þeim vandá er skap
azt hefur. Undirrót þess, að kjara-
málin eru nú komin í hnút, er <.u
ferlega dýrtíð, sem hér hefur þróazt
undanfarin ár.
Hér hefur verið góðæri. Mikið
hefur aflazt, útflutningsverðlag
hækkað stórlega og því hafa þjóð-
artekjur aukizt. Nær daglega má
sjá um það deilt í blöðum ,hvort
kaupgjald almennra launa hafi auk-
izt eða minnkað í valdatíð núver-
andi ríkisstjórnar. Um þetta ætti
ekki að þurfa að deila. Staðreynd-
irnar liggja ljóst fyrir. Þegar um
það er deilt, er það vegna þess að
menn eru ekki að tala um sama
hlutinn. Annars vegar er um að
ræða kaupmátt almenns tímakaups,
sem hefur minnkað, en hins vegar
liafa menn unnið það upp með því
að vinna lengri vinnudag, svo að
kaupmáttur heildarteknanna hefur
staðið í stað eða jafnvel aukizt eitt-
hvað. Þannig hafa menn orðið að
lengja vinnutíma sinn til þess að
halda óbreyttum kaupmætti.
Þetta er auðvitað alveg óviðun-
andi niðurstaða fyrir launa- og
verkafólk. Á tímum tækni og vél-
væðingar ætti það að geta aukið
tekjur sínar stórlega þó að vinnu-
timinn yrði styttur verulega.
Sú spurning leitar auðvitað á í
þessu sambandi hvort atvinnurekst-
urirm geti staðið undir hærra kaup
gjaldi. Víst er um það að aðstaða
ýmissa greina atvinnurekstrarins er
erfið við þau skilyrði, sem núver-
andi stjórnarstefna hefur skapað.
Dýrtíðin, sem ríkisstjórnin hefur
kynt undir í stað þess að reyna að
hamla gegn, er atvinnurekstrinum
og þá sérstaklega útflutningsat-
vinnuvegunum þung í skauti. Samt
ber ekki á öðru en að atvinnuveg-
irnir treysti sér til að borga allhá
vinnulaun. Nýleg athugun sýnir að
verkamenn hér á landi hafa aðeins
rúman helming tekna sinna af dag-
vinnu hitt fæst í eftir- nætur-
og helgidagavinnu, sem er atvinnu-
iekstrinum helmingi dýrari. í fisk-
iðnaðinum er þetta hlutfall enn ó-
hagstæðara. Þar eru tekjur af dag-
vinnu minna en helmingur af heild-
artekjunum. í sumum atvinnugrein-
um er sjálfsagt erfitt að komast alv-
eg hjá eftirvinnu, en það hlutfall
sem hér tíðkast nær ekki neinni
átt. Ljóst er því að með breyttri
vinnutilhögun og minnkaðri næt-
urvinnu væri hægt að stórhækka
dagkaupið.
Hvers vegna er þetta þá ekki
Vr greinargerð Þórhalls
Jónssonar, verkfrœðings.
Framhald.
í síðasta Framsóknarblaði birt
um við kafla úr greinargerð Þór
halls Jónssonar verkfræðings,
þar sem rætt er um vatnsleiðslu
frá landi hingað til Eyja. Næstu
kaflar í greinargerðinni fjalla
um kostnaðaráætlanir og vinnslu
vatns úr sjó. Sá liluti skýrslunn-
ar hefur nú verið birtur í blað-
inu Fylki, og sjáum við ekki á-
stæðu til að endurtaka það. Þá
er eftir kaflinn um mannvirki í
Vestmannaeyjum og fer hann
gert? Vilja atvinnurekendur það
ekki? Eg held þeir vilji það. Sem
betur fer mun það heyra til undan-
tekninga hér á landi að atvinnurek
endur séu illviljaðir í garð síns
verkafólks. En meðan verkafólkið
sjálft sættir sig við það ástand sem
er í þessum efnum, og það gerir
það vonandi ekki lengi úr þessu,
þá verður það í undandrætti hjá
atvinnurekendum að gera nauð-
synlegar breytingar á vinnubrögð-
um og tilhögun, enda eiga þeir við
ýmsa óþarfa örðugleika að stríða
af völdum rangrar stjórnarstefnu
undanfarinna ára.
Til þess að gera þær breytingar
á vinnutímanum, sem nauðsynlegar
eru þarf m. a. fjármagn til þess að
bæta aðstöðuna á ýmsa lund. En ein
af þeim afleiðingum stjórnarstefn-
unnar, sem atvinnuvegunum er
þyngst í skauti, er fjárskorturinn,
sem ríkisstjórnin hefur skipulagt,
fyrst vísvitandi með sparifjárbind-
ingunni, en síðan með eindæma ráð
leysi sínu.
Undanfarið hafa stjórnarliðar
hvíslað því að mönnum, að þrátt
fyrir allt skattaflóðið sé ríkiskass-
inn tómur. Að sjálfsögðu hafa menn
átt erfitt með að trúa því að það
geti átt sér stað í þessum eindæma
veltiárum með síauknum skattaálög
um. Ýmislegt bendir þó til að eitt-
hvað sé til í þessu a. m. k. er það
hér á eftir.
Mannvirki í Vestmannaeyjum.
Leiðslur frá landi koma inn hafn-
armynnið og að dælustöð, sem reist
verður neðan við Brattagarð á móts
við Skólaveg. Dælustöðin verður á
2 hæðum. Neðri hæðin verður jöfn-
unarþró ca 2. 5x8 m. að flatarmáli,
sem leiðslur frá landi koma inn í.
Botnkóti þróarinnar verður um
0,5m og vatnshæðarbreyting við
dælingu um 2 m, sem gefur jöfn-
unarforða um 40 rúmmetra. Með-
fram útvegg þróarinnar sjávarmeg-
in verður yfirfall með vatnslás og
er efri brún þess í kóta um 2,4 m.
Efri hæðin er dælurými að stærð
um 3. 5x8 m. Gólfkóti er 2,8 m. loft
víst, að ríkissjóður safnar yfirdrátt
arskuldum í seðlabankanum, sem
nema hundruðum milljóna, og eyk-
ur þannig enn á þann lánsfjárskort,
sem atvinnuvegirnir eiga við að
stríða. Þetta óttalega ráðleysi og
hættulega kæruleysi í fjármálum
er enn ein sönnun þess, að kjara-
mál verkalýðs og launþega verða
ekki fremur en önnur efnahagsleg
vandamál þjóðarinnar leyst til
frambúðar meðan þessi stjórn sit-
ur með óbreytta stefnu — eða
kannski er réttara að segja stefnu-
leysi. Launastéttunum nægja því
ekki sigrar í kaupgjaldsbaráttunni
meðan þær eru sundraðar og and-
varalausar í pólitíkinni.
Að sinni eiga verkalýðsstéttirnar
þó ekki annan leik en að knýja á
um bætt kjör til samræmis við
auknar þjóðartekjur. Þær hafa beð
ið nógu lengi eftir sínum hlut af
þeirri aukningu og hann verða þær
að fá. Hækkað kaupgjald mun svo
knýja atvinnureksturinn til að bæta
vinnubrögðin svo að hægt sé að
borga hærra kaup og svo verða
menn að leggjast á eitt um að
knýja fram nýja stjórnarstefnu, sem
sé við það miðuð, að auðvelda at-
vinnurekendum að koma rekstri
sínum í fullkomið nútímahorf í stað
þess að torvelda það.
5. júní 1965.
Helgi Bergs.
hæð um 3 m. Þar verða settar upp
3 dælur og dælir hver þeirra 1050
tonnum á sólarhring með 65 m.
lyftihæð, sem þýðir um 14 HK afl
pr. dælu Vinna 2 dælur saman, en
sú þriðja til vara. Auk þess er
fjórðu dælunni ætlað rúm við síð-
ari stækkun. Dælunum verður stýrt
af flotrofum í þró og vatnsgeymi.
Frá dælustöðinni liggur 8” asbest-
leiðsla upp Skólaveg að vatnsgeymi
sem staðsettur verður í kvosinni
ofan við Gagnfræðaskólann. Lengd
1000 metrar.
Vatnsgeymir.
Nokkur vandi er að ákveða
Framhald á 2. síðu.
Yatnsöflun í Vestm.eyfum