Morgunblaðið - 20.08.2010, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 20.08.2010, Blaðsíða 6
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Þrot Framleiðslan heldur áfram. Jónas Margeir Ingólfsson jonasmargeir@mbl.is Með úrskurði Héraðsdóms Suður- lands, sem kveðinn var upp 30. júlí, hefur bú Ölvisholts Brugghúss ehf. verið tekið til gjaldþrotaskipta. Brugghúsið í Ölvisholti framleiðir m.a. Skjálfta, Freyju, Lava og Móra ásamt öðrum árstíðabundnum teg- undum. Christiane L. Bahner, skiptastjóri búsins, segir í samtali við Morgun- blaðið að ákvörðun hafi verið tekin um að tryggja áframhaldandi rekst- ur ölgerðarinnar. „Það var ákveðið með stærstu kröfuhöfum strax í síð- ustu viku að rekstri yrði haldið áfram til að missa ekki viðskipti. Það er bjór til á lager, það er bjór til á tönkum og líka til að missa ekki við- skiptavildina niður.“ Brugghúsið er nú rekið á nýrri kennitölu enda reksturinn þess eðlis að ekki er mögulegt að loka ölgerð- inni tímabundið. Jólaöl brugghúss- ins er í framleiðslu en fyrirtækið hef- ur einnig gert samning við áfengisverslun sænska ríkisins um sölu á fimmtán þúsund flöskum af Skjálfta. Ölvisholt tekið til gjaldþrotaskipta  Bruggar vinsælar bjórtegundir 6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 2010 Oddur Benediktsson, prófessor emeritus, lést þriðjudaginn 17. ágúst sl., 73 ára að aldri. Oddur var fædd- ur í Reykjavík 5. júní 1937. Hann lauk stúd- entsprófi frá Mennta- skólanum í Reykjavík árið 1956 og hélt að svo búnu vestur um haf til frekara náms við Rensselaer Polytec- hnic Institute (RPI) í Troy í New York. Hann lauk BME- gráðu í vélaverkfræði og stærðfræði árið 1960, meistaragráðu í stærð- fræði 1961 og loks doktorsgráðu í hagnýtri stærðfræði 1965. Oddur vann sem sérfræðingur við Reikni- stofnun Háskóla Íslands frá 1964- 1969. Þaðan lá leið hans til IBM á Ís- landi þar sem hann starfaði og sat í stjórn frá 1969-72. Árið 1973 hóf hann störf sem dósent við stærð- fræðiskor HÍ og hann var prófessor við tölvunarfræðiskor frá 1982-2007. Oddur var heiðursgestapró- fessor hjá Middlesex University. Hann var skorarformaður í tölv- unarfræði við HÍ í fjöl- mörg ár og var áður formaður stærð- fræðiskorar, auk þess sem hann var varafor- seti raunvísindadeildar HÍ frá 1995-97. Oddur var valinn tölvumaður ársins hjá PC World árið 1996 og Félag tölv- unarfræðinga gerði Odd að fyrsta heiðursfélaga sínum árið 1997 í við- urkenningarskyni fyrir brautryðj- andastarf hans. Oddur var hug- sjónamaður og lét víða til sín taka í þjóðfélagsumræðu, t.d. á sviði um- hverfisverndar, persónuverndar og friðarmála. Hann var stofnandi og formaður Krabbameinsfélagsins Framfarar. Eftirlifandi eiginkona hans er Hólmfríður R. Árnadóttir. Andlát Oddur Benediktsson Kristján Jónsson kjon@mbl.is Kirkjuráð átti á þriðjudag fund með Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur, dóttur Ólafs heitins Skúlason- ar biskups, þar sem hún rakti samskipti sín við föður sinn. Ólafur, sem lést fyrir tveim árum, var biskup Íslands frá 1989 til 1997. Eftir samtal sem Karl Sigurbjörnsson biskup átti við Guðrúnu Ebbu í fyrra bað hann öll fórnarlömb siðferð- isafbrota af hálfu kirkjunnar manna opinberlega afsökunar. Séra Kristján Björnsson, sem á sæti í Kirkju- ráði, segir að þjóðkirkjan standi ávallt með ein- staklingum og samtökum sem vinni gegn kynferð- islegu ofbeldi. Öll þöggun í þessum efnum sé slæm og því heppilegast að segja frá því sem fram fór á fundinum með Guðrúnu Ebbu. „Hún bað um fund til að segja okkur frá sam- skiptum sínum við föður sinn, sagðist vilja sýna okkur hvað mann hann hefði haft að geyma, eins og hún orðaði það,“ segir Kristján. „Hún ákvað sjálf hversu ítarlega hún segði frá þessari reynslu sinni, hvernig hún hefði verið misnotuð af föður sínum í nokkuð langan tíma. Hún lýsti því hvernig hún hefði brugðist við, hvar hún hefði fengið að- stoð og frá starfi sínu með Stígamótum og í félag- inu Blátt áfram. Hún sagði svo sem ekkert frá þessu í smáat- riðum og ég sá ekki ástæðu til að spyrja nánar. En þetta var ekki bara einhver snerting heldur alvar- leg kynferðisbrot í mörg ár þegar hún var barn og unglingur. Þannig voru æskuár hennar og þetta voru þær heimilisaðstæður sem hún ólst upp við.“ Töldu ekki þörf á að spyrja Guðrúnu Ebbu frekar Ráðið hefði ekki talið þörf á að spyrja Guð- rúnu frekar enda hefði frásögn hennar verið skýr og skilmerkileg. Hún hefði verið spurð hvort hún vildi sjálf spyrja Kirkjuráð einhverra spurninga en svo hefði ekki verið. Guðrún Ebba fór fram á formlegan fund með ráðinu í bréfi sem hún sendi í mars í fyrra, að sögn Kristjáns. En af ýmsum ástæðum, m. a. vegna sumarleyfa, dróst að hún hitti Kirkjuráð sem að jafnaði fundar einu sinni í mánuði. Ásakanir Sigrúnar Pálínu Ingvarsdóttur á hendur Ólafi um kynferðislega áreitni komu fram um það leyti er Ólafur var að hætta fyrir röskum áratug. En kirkjan réð að sögn Kristjáns ekki yfir neinum stofnunum þá til að aðhafast í málinu. Aldrei hefðu komið upp mál af þessu tagi fyrr og engar reglur til. -Væri ef til vill best fyrir kirkjuna sjálfa að láta nú gera formlega rannsókn á málinu þótt Ólafur sé látinn? „Mál Guðrúnar sýnir mikinn sársauka og neyð og það er sjálfsagt að ræða það hvort fólki finnist nóg að við tökum þennan sársauka hennar nærri okkur. Það er mjög langsótt að rannsókn myndi skila einhverju núna. En við horfumst í augu við að það hefur eitthvað gerst og við ætlum ekki að láta neitt gerast aftur sem sært getur börn. Þetta var hennar frásögn en Kirkjuráð er ekki rannsóknaraðili og getur ekki fullyrt að Ólaf- ur hafi verið sekur. Það sem er staðreynd er að hún kemur fram með frásögn sína, í henni er mikill sársauki, mikil kvöl og aðstæður voru óviðunandi fyrir hana þeg- ar hún var að alast upp. Þessum sársauka lýsir hún og það er staðreynd í sjálfu sér. Við getum því ekki gert annað en þakkað henni fyrir að trúa okkur fyrir þessu.“ Galli að engin kæra skyldi vera borin fram Nokkrar konur sögðu frá kynferðisáreitni af hálfu Ólafs. Er orðið ljóst að fótur var fyrir þessu? „Ég held að allir hljóti að sjá það. Það er mik- ill galli að engin kæra skyldi vera borin fram, eng- in rannsókn gerð þegar Sigrún Pálína bar fram sínar ásakanir. En það var ekkert í reglum kirkj- unnar sem gerði henni fært að fara inn í þessi mál. Það höfum við verið að laga, við settum starfsreglur um meðferð kirkjunnar á kynferð- isbrotamálum árið 1998, nokkru eftir að þessar ásakanir komu fram og Ólafur var að hætta. Það var enginn að draga lappirnar eftir að mál Pálínu var komið fram.“ Lýsti alvarlegum brotum  Talsmaður Kirkjuráðs telur best að frásögn Guðrúnar Ebbu Ólafs- dóttur birtist í fjölmiðlum Morgunblaðið/Eggert Kirkjuhúsið Fundur Kirkjuráðs með Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur fór fram á þriðjudag. Ferðamönnum fjölgar jafnt og þétt í Reykjavík og að jafnaði eru þeir aldrei fleiri en á sumrin. Þeir koma víðs vegar að og tilgangur heimsóknanna er auðvitað misjafn eftir mönnum. Sumir vilja til dæmis upplifa það að spila golf í dagsbirtu á nóttunni og aðrir telja sig gera góð kaup í verslunum höfuðborgarinnar að degi til, burt- séð frá birtu utanhúss. Á þessum tíma árs geta allir notið sólarlags- ins á skikkanlegum tíma og oft má sjá fjölda fólks vestur á Granda virða fyrir sér náttúrumyndirnar og mynda sólsetrið í allri sinni dýrð. Sólsetrið í höfuðborginni vekur athygli erlendra ferðamanna Sólarlagið myndað vestur í bæ Morgunblaðið/Eggert Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís- lands, kannast ekki við að hafa haft samband við Björgólf Thor Björg- ólfsson í byrjun október 2008 og hvatt hann til að koma til Íslands vegna ástandsins sem þá ríkti. Fram kemur á vef Björgólfs Thors að for- setinn hafi hvatt til þessa. Björgólfur opnaði í gær vef með ýmsum upplýsingum um viðskipti sín, btb.is. Þar er meðal annars birt skýrsla sem Björn Jón Bragason sagnfræðingur gerði á síðasta ári, að frumkvæði Björgólfs Guðmunds- sonar, um aðdraganda hruns Lands- bankans haustið 2008. Í skýrslunni er sagt að föstudaginn 3. október hafi Björgólfur Thor fengið símtöl frá fjölmörgum áhrifamönnum á Ís- landi sem hvöttu hann til að koma aftur út til Íslands, þar sem ástandið væri erfitt. Þar á meðal hafi Ólafur Ragnar Grímsson, forseti lýðveld- isins, haft samband og brýnt fyrir Björgólfi að halda heim – það væri „mjög gott“ að hann kæmi. Björg- ólfur Thor er gefinn upp sem heim- ildarmaður fyrir þessu. Engar heimildir fyrir samtölum Ólafur Ragnar kannast ekki við að hafa hringt í Björgólf Thor eða aðra í þessum erindagjörðum og telur upplýsingarnar rangar. „Ég kannaði heimildir sem ég hef undir höndum og sé ekkert um samtöl við Björgólf Thor þessa daga,“ segir Ólafur Ragnar. MMeira á mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Úti Björgólfur Thor Björgólfsson við starfsaðstöðu sína í London. Hringdi ekki til Björgólfs Björgólfur Thor var beðinn að koma heim Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hjá Matvælastofnun, segir að hross hafi ekki myndað gott ónæmi gegn hrossapestinni, sem hrjáð hefur flest hross landsmanna frá því í vor, og því hafi mörg hross smitast á ný. Erfitt sé að útrýma veikinni en hægt sé að halda henni í skefjum og lág- marka tjónið með því að halda veik- um hrossum frá frískum dýrum. Á vefsíðu Matvælastofnunar eru leiðbeiningar um varnir veikra hrossa. Sýni til nánari stofngrein- inga hafa verið send til Bretlands og segir Sigríður að niðurstöður liggi fyrir innan skamms, en talið er að sýkin hafi borist úr hrossum í hunda og ketti og jafnvel í menn. Morgunblaðið/Ómar Sótt Flest hross landsins hafa sýkst og hugsanlega hafa menn smitast. Rjúfa þarf smitleiðir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.