Framsóknarblaðið - 20.12.1968, Blaðsíða 17
17
JÓLABLAÐ FRAMSÓKNARBLAÐSINS 1968
Eyjamót »FAXA« 1968
■ ið skartaði ekk sínu íegursta
Þrautabrautin.
Fyrsta skátamót, sem hald |
ið er af skátafélaginu Faxa, I
var haldið dagana 26. til 28.
júlí sl. inni í Djúptíal (gagnt
ílugskýlinu).
Undirbúningur mótsins
hófst í byrjun júní. Ástæðan
fyrir þessu móti var tvíþætt,
i fyrsta lagi voru margir
Eyjaskátar nýkomnir af mis-
heppnuðu vorrhóti. > ví
í öðru lagi átti skátafélag-
ið 30 ára afmæli í febr. sl. !
Verklegar framkvæmdir j
jjpfust ekki fyrr en líða fór J
Ú júlí ,og yar þá mikill á- j
hugi hjú Eyjaskátunum fyr- i
ir skátamóti.
Mótssvæðið var fengið að j
láni hjá Magnúsi Magnús- i
syni, eiganda Djúpadals.
Helgi Benediktsson gaf J
skátunum mikið af köðlum |
og spírum, en Helgi hefur
margoft i'étt Eyjaskátum
hjálpandi hendi, þegar til
hans hefir verið leitað.
Á mótssvæðinu voru reist-
ir tveir 4 m spíruturnar.
Þessa turna reistu hjálpar-
sveit skáta og dróttskáta-
sveitin „Apus” (Parajdísar-
fugl). Þá var búið að setj'a |
upp þrautabraut og stórt |
samkomutjald. Á mótssvæð- j
inu var hjálparsveitin búinn j
að lsoma sér fyrir.
Mótssvæðinu var skipt í
tjaldstæði, sem hvert hét
sínu ákveona nafni. Di-en'gja
tjaldbúðarsvæðið hér „Þorsk
ar”, stúlkna tjaldbúðasvæðið
hét „Ýsur”, dróttskáta tjald-
búðirnar hétu „steinbítar”,
Einkenni mótsins voru ör-
ncfni í Vestmannaeyjum og
fiskveiðar. Áttu skátaflókk-
arnir að skíra tjaldbúð sína
einhverju öi'nefni og skreyta
tjaldbúðarsvæðið í samræmi
við sjósókn. Sem dæmi um
‘tjaldbúðanöfn voru þessi:
Brimurðir, Teistuhellir,
Siggafics, Garðsendi, Narfi,
Hinum ýmsu hlutum svæð
isins var gefið heiti og voru
þau látin heita eftir úteyj-
unum. Mótsstjórnartjaldð hét
Elliðaey. Sjúkratjaldið hét
Hellisey. Varðeldasvæðið hét
Suðurey. Keppnissvæðið hét
Smáeyjar. Brunagæzlan hét
Surtsey.
Hver flokkur reisti lítið
hlið við sína tjaldbúð og not
uðu félagar flokkanna ímynd
unaröfl sín.
Einkunnarorð mótsins voi'u
„Að vera, en ekki að sýnast”
Vestmannaeyjaskátar biðu
með eftirvæntingu eftir hin-
úm stóra degi, 26. júlí. Veðr-
; - þennan júlídag, en það virt-
1 ist ekki hafa nein áhrif á
i Eyjaskátana ,því að nú voru
í þeir ákveðnir að halda sitt
fyrsta skátamót í glöðu
skapi og hafa grænlenzka
mólsháttinn í huga, að „öll
veður eru góð, einkum þau,
sem í vændum eru”.
Um 8 leytið að kvöldi var
komin álitleg tjaldbúð í
Djúpadal. Þá var þoka í
Djúpadal og úði og það fór
að rigna er leið á kvöldið.
Það varð að fella varðeldinn
niður fyi-sta kvöld mótsins.
Skátai-nir létu það ekki hafa
áhrif á sig, heldur söfnuðust
þá saman í samkomutjaldið
og sungu þar.
Laugai'daginn 27. júlí var
þokan horfin og komið ágæt
isveður. Um morguninn var
dreift mótsblaðinu, sem kom
út á meðan á mótinu stóð.
Því ritstýrði Georg Þ. Kristj
ánsson. Síðan fóyu allir skát
flokkarnir í gönguferðir. Það
voru glaðir skátaflokkar, er
gengu um austurhluta Eyjar
innar þennan morgun.
Síðari hluta dagsins
reyndu skátar hæfileika í
þrautabrautinni eða sótu inni
í tjöldum og sungu.
Um kvöldið var varðeldur,
sem Halldór I. Guðmundsson
stjórnaði. Þar voru sagðar
spaugilegar sögur, farið með
leikþætti og þrautir og mik
ið sungið.
Eftir varðeldinn var farið i
í leik. Eftir þann leik voru |
flestir votir og til þess að !
taka úr sér mesta hrollinn (
söfnuðust allir saman í sam- j
komutjaldið og sungu úr sér J
hrollinn.
I
Agætis veður var ó sunnu I
deginum, cn þó þoka. Morg- :
uninn notuðu skátarnir til að
safnast saman og syngja eða
tala saman.
Eftir hádegi vigði séra Jó-
hann Hlíðar nýja skáta. Þá
voru heiðraðir þeir Magnús
Magnússon eigandi móts-
staðarins og Helgi Benedikts
son, sem gaf línur og tóg, er
til þurfti, en þessir tveir
menn voru sérstaklega hjálp
fúsir okkur skátunum við
okkar fyrsta skátamót.
Þá voru veitt verðlaun fyr
ir beztu tjaldbúðirnar, en
þau verðlaun hlutu drengja-
flokkarnir Fóstbræður og
Lundar og stúlknaflokkarnir
Halastjörnur og Gazellur.
Þessu fyrsta skátamóti
lauk kl. 16.00.
Mótsstjóri var Jón Ög-
mundsson, núverandi félags-
foringi.
Tjaldbúðarstjóri var Bjai'ni
Sighvatsson, deildarforingi.
Tjaldbúðastjórar stúlkna
voru þær Edda Ólafsdóttir
og Gunnhildur Ólafsdóttir,
sveitaforingjar.
Gæzlustjóri var Guðjón B.
Olafson.
Skátamótið tókst með ó-
gætum og voru flestir ánægð
ir með þessa frumraun skáta
félagsins Faxa. Bj. Jóh.
Tjaldbúðasvœöi Skúma
Fáninn dregin að húni
Tjadbúðasvœði Smyrla
Varðeldasvœði Snujrla