Morgunblaðið - 21.08.2010, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 21.08.2010, Qupperneq 4
4 Íþróttir MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2010 01.09.2010 Fyrstu 50 áskrifendur fá 2 miða á leik ÍBV og Grindavíkur Mættu við innganginn og framvísaðu Moggaklúbbskortinu til að fá miða BÝÐUR ÁSKRIFENDUM ÁVÖLLINN ÍBV - GRINDAVÍK 22. ágúst kl. 18 á Hásteinsvelli Á VELLINUM Stefán Stefánsson ste@mbl.is Heldur betur dró til tíðinda í Efra- Breiðholtinu í gærkvöldi þegar ná- grannaslagur Leiknis og ÍR fór fram því eftir tíðindalítinn fyrri hálfleik brast á með 2 rauðum spjöldum og tveimur mörkum en það var ÍR sem fékk spjöldin en Leiknir mörkin í 2:0 sigri. Sigurinn heldur Leikni enn á toppi deildarinnar með 38 stig en ÍR heltist úr lestinni en tölfræðin segir þó að enn sé von. Leiknismenn voru með strekk- ingsvind í bakið fyrir hlé en tókst ekki að nýta sér það til fulls. Nokkr- um sinnum var mikil þvaga við mark ÍR-inga en með skynsemi og því að halda boltanum sjálfir tókst þeim að hemja nágranna sína. Hamagangurinn hófst þegar níu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik en þá fékk Tómas Agnarsson, varn- armaður, ÍR rautt spjald fyrir brot, strangur dómur. Heldur hitnaði í kolunum og þrjú gul spjöld fylgdu í kjölfarið næstu mínúturnar auk þess sem liðsstjórinn var sendur upp í stúku. Leiknismaðurinn Óttar Bjarni Guðmundsson fékk líka gult spjald fyrir leikaraskap inni í víta- teig ÍR. Dramatíkin fór ekki vel ÍR- inga og ekki bætti úr skák þegar Gunnar Einarsson, varnarmaður Leiknis, þrumaði boltanum í hönd Elvars L. Guðjónssonar úr ÍR á 65. mínútu svo dæmt var víti. Aftur strangur dómur en úr vítinu skoraði Kjartan Andri Baldvinsson af ör- yggi. Leiknismenn létu kné fylgja kviði og áttu mörg færi en ÍR líka eitt þegar Árni Freyr Guðnason tók aukaspyrnu, sem Eyjólfur Tómas- son í marki Leiknis varði með herkj- um í horn. Það kom því fáum á óvart þegar Kristján Páll Jónsson kom Leikni í 2:0 þegar þrír Leiknismenn voru gegn tveimur ÍR-ingum í skyndisókn en hún hófst á því að boltinn fór greinilega í hönd Leikn- ismanns en ekkert var dæmt. Í lokin fékk Árni Freyr sitt annað gula spjald og var vikið af velli. Þrátt fyr- ir allt var sigurinn sanngjarn en ÍR- ingar fá hrós fyrir baráttu og að hætta ekki þó þeir væru einum og tveimur færri. „Þetta var frábær leikur og góð skemmtun fyrir áhorfendur því það var nánast allt á suðupunkti allan leikinn,“ sagði Kjartan Andri Bald- vinsson sem skoraði fyrra mark Leiknis. „Baráttan var gríðarleg en svo náum við tökum á leiknum í seinni hálfleik og stjórnum honum. Síðan missir ÍR menn út af og þá varð þetta léttara því þeir missa að- eins einbeitinguna og byrja að safna spjöldum. Það var jafnvel stress í byrjun því leikurinn var mjög mikil- vægur fyrir bæði lið en síðan róaðist aðeins hjá okkur og spilið komst í gang svo að við fengum fullt af fær- um en ég held að ÍR-ingar hafi ekki átt neitt færi,“ bætti Kjartan Andri við og þrátt fyrir góða stöðu Leiknis í deildinni ætlar hann að halda haus. „Við vitum að efstu liðin liðin unnu sína leiki svo að staðan í toppbarátt- unni breytist ekki neitt og við tökum bara einn leik fyrir í einu, hver leik- ur er einskonar bikarúrslitaleikur og við verðum að halda okkar striki. Við erum ekkert að hugsa um neitt nema næsta leik, megum ekkert vera að spá of mikið í stöðuna heldur halda hausnum rólegum og fara í hvern leik til að vinna – alveg eins og við höfum gert frá byrjun móts.“ Hamagangur í Breiðholts- slagnum Morgunblaðið/Eggert Rautt Tómas Agnarsson úr ÍR horfir forviða á Vilhjálm Alvar Þórarinsson dómara sýna sér rauða spjaldið á 54. mínútu gegn Leikni í gærkvöldi. Samherji hans Haukur Ólafsson fylgist með.  Leiknir vann nágrannaslaginn við ÍR 2:0 og heldur efsta sætinu í 1. deild Ekkert toppliðanna í 1. deild karla í knattspyrnu var tilbúið til þess að gefa eftir í baráttunni um sæti í Pepsídeildinni að ári, þegar fimm leikir fóru fram í gærkvöldi. Þórsarar eru í 3. sæti deild- arinnar, fjórum stigum á eftir topp- liði Leiknis og tveimur á eftir Vík- ingi. Akureyringar fóru á kostum þegar þeir fengu Seltirninga í heim- sókn í Eyjafjörðinn. Jafnræði var með liðunum fyrstu 70 mínútur leiksins eða svo en þrátt fyrir það sigraði Þór 5:0. Þórsarar voru yfir, 1:0, í hálfleik en í síðari hálfleik skor- uðu þeir þrívegis á fjögurra mínútna kafla og gerðu út um leikinn. Ár- mann Pétur Ævarsson var í miklu stuði og skoraði þrennu fyrir heima- menn en þeir Jóhann Helgi Hann- esson og Kristján Steinn Magnússon skoruðu sitt markið hvor. Þór hefur 34 stig í 3. sæti en Grótta er með 17 stig í 10. sæti og nýliðarnir eru í mik- illi fallhættu þótt þeir séu ekki í fall- sæti. Tvö mörk Marteins Briem Víkingar gættu þess að hleypa Þórsurum ekki upp fyrir sig og sigr- uðu Þrótt 3:0. Rétt eins og í leiknum fyrir norðan var sigurinn ekki eins sannfærandi og tölurnar bera með sér. Hinn 18 ára gamli Sigurður Eg- ill Lárusson kom Víkingum á bragð- ið strax á 9. mínútu og fleiri mörk voru ekki skoruð í fyrri hálfleik. Fyrsta korterið í síðari hálfleik höfðu Þróttarar öll völd á vellinum en Magnús Þormar, markvörður Víkings, sá nokkrum sinnum við þeim með góðri markvörslu. Vík- ingur gerði svo út um leikinn með tveimur mörkum frá Marteini Briem á sex mínútna kafla. Fyrra markið kom á 71. mínútu og hið síð- ara á 77. mínútu. Víkingur er með 36 stig eftir 18 leiki en Þróttur er í 8. sæti með 21 stig. Með þessum sigrum gær- kvöldsins tókst Leiknismönnum, Víkingum og Þórs- urum að slíta sig frá ÍR-ingum en Fjölnismenn eiga veika von um að hanga inni í toppbaráttunni. Þeir þurfa þá að vinna KA í leik sem þeir eiga til góða og koma sér þannig í 31 stig. Austfirðingar bitu frá sér Fjarðabyggð tók á móti HK og vann afar mikilvægan sigur en Fjarðabyggð er í fallsæti með 15 stig. Eftir 2:0-sigur á HK er Fjarða- byggð aðeins tveimur stigum á eftir nýliðum Gróttu og fjórum stigum á eftir HK. Bæði mörkin komu í seinni hálfleik. Sveinbjörn Jónasson skor- aði á 64. mínútu með þrumuskoti upp í þaknetið frá vítateig. Fannar Árnason innsiglaði sigurinn með marki á 87. mínútu. Austfirðingar eru nú fjórum stigum fyrir ofan Njarðvík sem situr á botni deild- arinnar með 11 stig. Njarðvík tapaði á heimavelli 1:2 gegn Skagamönnum og var þetta áttundi tapleikur liðsins í röð. Gary Martin var drjúgur fyrir Skaga- menn og skoraði bæði mörk ÍA á 9. og 25. mínútu. Hinn 18 ára gamli Andri Fannar Freysson svaraði fyr- ir Njarðvík á 27. kris@mbl.is Toppliðin gáfu ekkert eftir  Þrenna Ármanns Péturs Ævars- sonar fyrir Þór  Martin skoraði tvö Ármann Pétur Ævarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.