Morgunblaðið - 25.08.2010, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 25.08.2010, Blaðsíða 15
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 2010 Síðustu dagar útsölunnar - Flugustangir á útsölu - Fluguhjól á útsölu - Kayakar á útsölu - Kayakbúnaður á útsölu - Vöðlur á útsölu - Kaststangir á útsölu - Kasthjól á útsölu - Tjöld á útsölu - Veiðijakkar á útsölu - Veiðivesti á útsölu - Útivistarfatnaður á útsölu - Vöðluskór á útsölu - og sitthvað fleira á útsölu Sportbúðin Krókhálsi 5 – Sími 517 8050 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Skoska olíuleitarfyrirtækið Cairn Energy skýrði frá því í gær að það hefði fundið gas í þunnu setlagi und- an vesturströnd Grænlands. Fyrir- tækið segir að gasið geti verið vís- bending um að olía sé á svæðinu, en það er þó ekki víst. „Við getum ekki komist að þeirri niðurstöðu að fundist hafi olía eða örugg vísbending um olíu í þess- ari borholu,“ hafði fréttavefur danska ríkisútvarpsins eftir Erling Stenby, prófessor við efnafræði- stofnun Tækniháskóla Danmerkur. Hann sagði að ekki væri óalgengt að gas fyndist í þunnum setlögum undir sjávarbotni. „En þetta sýnir að vert er að halda leitinni áfram.“ Olíuleitarfyrirtækið birti í gær hálfsársskýrslu þar sem fram kom að gas hefði fundist í Baffin-flóa, um 170 km vestan við strönd Græn- lands, og það væri vísbending um að kolvatnsefni væri að finna undir sjávarbotninum. Grænland er langt frá stórum gasmörkuðum og það getur verið flókið og dýrt að flytja gas, en Cairn Energy vonar að olía finnist í mikl- um mæli á svæðinu. Gasið fannst í borholu sem ráð- gert er að ljúka fyrir lok mánaðarins. Cairn Energy hyggst bora aðra holu á svæðinu fyrir lok september. Mikil fjárfesting Finnist olía í miklum mæli á svæðinu gæti hún orðið til þess að Grænlendingar yrðu efnahagslega sjálfstæðir, en þeir eru enn háðir styrkjum frá Danmörku sem nema sem svarar um 80 milljörðum ís- lenskra króna á ári. Danska dagblað- ið Politiken hafði eftir Josef Motzfeldt, forseta græn- lenska þingsins, að lands- stjórnin legði nú áherslu á að ná sem hagstæðustum samningum fyrir Græn- land við stór olíufyrirtæki. Cairn Energy hefur lagt mikið kapp á að verða fyrst olíuleitar- fyrirtækja til að finna olíu undan strönd Grænlands. Fyrirtækið hefur lagt um 500 milljónir dollara, sem svarar 60 milljörðum króna, í olíu- leitina frá árinu 2007, að sögn Politiken. Olíuleitarfyrirtækið skýrði frá því í vikunni sem leið að það hygðist selja um 51-60% hlut í indversku dótturfyrirtæki sínu fyrir 9,6 millj- arða dollara, eða 1.150 milljarða króna. Fyrirtækið hyggst nota hluta söluandvirðisins til að halda áfram olíuleitinni við strönd Grænlands. Fann gas undan strönd Grænlands  Er þó ekki vísbending um að olía sé á svæðinu Olíuleit við Grænland GRÆNLAND Í S LAND KANADA Ammassalik Aasiaat Nuuk Borpallur Esperanza Fyrstu tvær af fjórum holum sem boraðar verða á Sigguk-svæðinu. Olíuleitarsvæði Cairn Energy. Skólastúlkur binda „rakhi“, eða helga þræði, á úlnlið hermanns í indverskri öryggissveit við útjaðar borgar- innar Amritsar á Norður-Indlandi í tilefni af árlegri há- tíð hindúa, Raksha Bandhan, sem var í gær. Hátíðin er helguð tryggðaböndum milli systra og bræðra. Venja er að systur bindi þá helgan þráð um úlnlið bræðra sinna. Þráðurinn á að verða bræðrunum til heilla og í staðinn lofa þeir að vernda systur sínar. Reuters Bræður og systur treysta böndin Umhverfisverndarsamtökin Greenpeace hafa sent skip sitt Esperanza að olíuborpalli Cairn Energy til að mótmæla olíu- leitinni og sögðust í gær ekki ætla að verða við fyrirmælum grænlenskra yfirvalda um að skipið héldi sig utan við 500 metra bannsvæði umhverfis borpallinn. Samtökin segja að hætta sé á alvarlegum mengunar- slysum ef haldið verður áfram að bora eftir olíu á svæðinu, meðal annars vegna hafíss. Skoska olíuleitarfyrirtækið seg- ir hins vegar að það fari eftir ströngustu öryggisreglum. Fyrir- tækið sé með dráttarbáta til að draga ísjaka frá borpallinum en í ljós hafi komið að minni hafís sé á svæðinu en gert hafi verið ráð fyrir. Aðeins komi tveir eða þrír ísjakar á dag innan við 25 km frá borpallinum. Segja hættu á mengunarslysi UMHVERFISVERNDARSAMTÖK MÓTMÆLA OLÍULEITINNI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.