Morgunblaðið - 03.09.2010, Blaðsíða 31
Minningar 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2010
✝ Þorbjörg HuldaÞorvaldsdóttir
fæddist á Gamla-
Hrauni II, Eyr-
arbakka 21. febrúar
1940. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Sóltúni mánudaginn
23. ágúst síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Þorvaldur Jóns-
son, bóndi frá Al-
viðru í Ölfusi f. 25.
apríl 1894, d. 30.
október 1955 og Mál-
fríður Sigurðardóttir
bóndi, f. í Sandvík á Eyrarbakka
16. mars 1898, d. 29. júlí 1978. Þor-
björg Hulda átti fimm systkini,
Helga, f. 14. júní 1921, d. 1. febr-
úar 2008, Steinþóru f. 25. júlí 1922,
d. 13. desember 1991, Sigurjón, f.
valdur, f. 5. maí 1992. Unnusta
Olga Ýr Björgvinsdóttir, f . 29.
apríl 1995. c) Andrés Helgi, f. 23.
apríl 1994. 2) Þorvaldur Birgir, f.
19. maí 1962. Sambýliskona Andr-
ea Róbertson. 3) Jóna Kristín, f. 1.
mars 1967, maki Gunnar Guðbjörn
Gunnarsson, f. 28. mars 1966. Börn
þeirra eru: a) Rögnvaldur Gunnar,
f. 4. mars 1987. Sambýliskona
María Birgisdóttir, f. 28. febrúar
1984. b) Brynja Kristín, f. 14. febr-
úar. 1989. c) Agnar Birgir, f. 30.
maí 1991. Unnusta Kristín Ósk Elí-
asdóttir, f. 22. október 1991. d) Re-
bekka Ósk, f. 30. júní 1995. e) Rak-
el Líf, f. 28. nóvember 2002.
Þorbjörg Hulda ólst upp á
Gamla-Hrauni II á Eyrarbakka en
flutti þaðan til Reykjavíkur. Hóf
hún búskap með manni sínum
1958. Starfaði hún sem ritari á
Landspítalanum í þrá áratugi er
hún varða að láta af störfum vegna
veikinda.
Útför Þorbjargar Huldu verður
gerð frá Grafarvogskirkju í dag 3.
september 2010 og hefst athöfnin
klukkan 15.
15. september 1924,
d. 6. ágúst 2009, Guð-
geir, f. 27. apríl 1926,
d. 21. desember 1988
og Sigurð, f. 24. sept-
ember 1934.
Þorbjörg Hulda
giftist Rögnvaldi
Björnssyni hinn 21.
febrúar 1960, f. 5.
maí 1928, d. 12. júlí
2009. Börn þeirra
eru: 1) Björn, f. 28.
desember 1959. Sam-
býliskona Olga Haf-
berg, f. 28. apríl
1947. Fyrri maki Björns var Auður
Helena Hinriksdóttir, f. 21. nóv-
ember 1961. Þau skildu. Þeirra
börn eru: a) Hafdís Huld, f. 29. maí
1986. Unnusti Bjarni Eyfjörð Frið-
riksson, f. 8. maí 1985. b) Rögn-
Elsku amma Hulda.
Á þessari stundu eru margar
minningar sem sækja á huga okkar,
en við viljum minnast þín með þessu
fallega ljóði:
Þín elskuð ömmubörnin
af alhug minnast þín.
Þú varst þeim ungum vörnin
og veittir gæðin þín.
Þau börn þú barst á örmum
um bernsku ljúfust ár
og þerraðir þrátt af hvörmum
hin þýðu barnatár.
Svo far þú Guðs í friði
í fögnuð dýrðar ranns,
af ljóssins engla liði
ert leidd til frelsarans.
Hann launar mætri móður
fyr mildri ást og trú.
Það huggar best er hljóðir
þér heiman fylgjum nú.
(SS)
Þín barnabörn,
Rögnvaldur Gunnar Gunnarsson,
Brynja Kristín Gunnarsdóttir,
Agnar Birgir Gunnarsson,
Rebekka Ósk Gunnarsdóttir,
Rakel Líf Gunnarsdóttir.
Þó missi ég heyrn og mál og róm
og máttinn ég þverra finni,
þá sofna ég hinst við dauðadóm,
ó, Drottinn, gef sálu minni
að vakna við söngsins helga hljóm
í himneskri kirkju þinni.
(Ólína Andrésdóttir)
Nú á hinum mildu haustdögum
lýkur lífsgöngu hennar Huldu æsku-
vinkonu okkar, eftir þungbær veik-
indi. Þegar horft er áratugi til baka
og rifjuð upp barna- og unglingsárin
á Eyrarbakka er ofarlega í huga
þegar við vorum að byrja skólagöng-
una fullar tilhlökkunar. Mislöng var
leiðin til skólans fyrir smáfólkið og
það var heldur meiri vegalengd fyrir
Huldu en okkur hin þar sem hið
reisulega heimili hennar, Gamla
Hraun, var mitt á milli Eyrarbakka
og Stokkseyrar. Engir voru ljósa-
staurar á þeirri leið svo þegar
skyggja tók var stundum var farið í
að fylgja Huldu heim eftir lengri
skóladagana og það fannst okkur
hugulsemi og líka mikið sport. Hulda
skellihló að þessu brölti okkar, enda
hláturmild mjög. Þessi leið gat verið
snjóþung yfirferðar á þeim árum, en
heimilsfólkið á Gamla Hrauni setti
það ekki fyrir sig þegar kom að því
að taka þátt í leik og starfi sem í boði
var á Eyrarbakka. Unglingsárin liðu
í glöðum og heilbrigðum stórum hópi
ungmenna, sem lærðu sund á Laug-
arvatni, fór í gróðursetningarferðir
og skólaferðalög, þar sem oft var
hressilega sungið í rútunni.
Alltaf höfðum við jafngaman af að
skoða myndir frá þessum ferðum og
Hulda hló ekki lítið þegar hún fletti
myndunum. Það var gott að alast
upp í þessu samfélagi.
Allt hefur sinn tíma og við stelp-
urnar sem fluttum til Reykjavíkur
héldum góðu sambandi, stofnuðum
heimili og þegar við höfðum eignast
frumburði okkar þá urðu samveru-
stundirnar nánari og fleiri. Heimilis-
störfin drifin af fyrir hádegið og við
síðan uppdubbaðar stormandi með
barnavagnana í heimsókn hver til
annarrar, enda ekki svo langt á milli
þar sem við þrjár bjuggum í 101
Reykjavík.
Svo líða árin, fjölskyldurnar okkar
stækka og heimsóknir verða strjálli
en alltaf var eins og við hefðum hist í
gær, spjallað og sagðar fréttir af
börnum og barnabörnum hver hjá
annarri og vegferð þeirra.
Faðir lífsins, faðir minn,
fel ég þér minn anda í hendur.
foldin geymi fjötur sinn.
Faðir lífsins, Drottinn minn,
hjálpi mér í himin þinn
heilagur máttur, veikum sendur.
Faðir lífsins, faðir minn,
fel ég þér minn anda í hendur.
(Sigurður Jónsson)
Blessuð sé minning vinkonu okk-
ar, samúðarkveðjur til Björns, Birg-
is, Jónu Stínu og fjölskyldna þeirra.
Halldóra og Áslaug.
Þorbjörg Hulda
Þorvaldsdóttir
Þegar góður æsku-
vinur fellur frá opnast
bók minninganna.
Fyrstu kynni mín af
Sigtryggi – Dibba –
urðu í fyrsta bekk í Gagnfræðaskóla
Akureyrar. Þar leiddu okkur saman
áhugamálin útivist og skíðaíþróttin.
Fjögurra ára nutum við saman,
að leik á skíðum og skautum, hjól-
reiða- veiðiferðum og útilegum í
Hlíðarfjalli – Vaglaskógi og víða í
dásemd Eyjafjarðar.
Á unga aldri bast Dibbi skáta-
hreyfingunni föstum böndum, þar
sem Tryggvi Þorsteinsson skátafor-
ingi var leiðtogi fjölda ungra Akeyr-
inga. Þar hefur sjálfsagt ráðið
nokkru um að þeir voru systkina-
börn. Aldrei varð ég félagi í
Skátafélagi Akureyrar, en með leyfi
Tryggva fékk Dibbi að kenna mér
skátafræðin er ég var 15 ára.
Nám sitt í skólanum rækti hann
af samviskusemi og sýndi ekki af
Sigtryggur
Sigtryggsson
✝ Sigtryggur Sig-tryggsson fæddist
á Þrúðvangi við Ak-
ureyri 31. ágúst 1933.
Hann andaðist á
heimili sínu 9. júní
2010.
Sigtryggur var
jarðsunginn í kyrrþey
18. júní 2010.
sér nein strákapör.
Hann var dagfars-
prúður og dulur og
líktist þar föður sínum
og því fólki er átti að
frændsemi sjálft þjóð-
skáldið og náttúru-
fræðinginn Jónas
Hallgrímsson.
Þótt dulur væri og
þögull á stundum átt-
um við okkur gleði-
stundir og þær bestar
í fegurð náttúrunnar,
hvort heldur landið
var hulið snæ eða hag-
inn grænn.
Að loknu gagnfræðaprófi skildi
leiðir að nokkru en sambandi var
haldið þótt það mætti hafa verið
meira.
Síðasta skiptið sem við hittumst
var er fermingarbörnin frá 1947
mættust á Akureyri 2007. Það var
yndisleg stund og vonandi okkur öll-
um sem þar mættust til mikillrar
gleði.
Dibba varð ábyggilega hugsað til
skemmtilegra æskustunda er hann
stakk upp á því að fara með okkur
Hauk Ottesen upp í Hlíðarfjall og
sýna okkur vatnsþróna sem gerð
hafði verið til að mætti framleiða
snjó í fjallinu. Þar hrifumst við sam-
an í síðasta skiptið.
Til fjölda ára barðist Dibbi við
veikindi, sem ég er ekki viss um að
allir hafi haft nógu næman skilning
á, og varð þá oft að berjast við
brekkuna bröttu.
Fyrir góða vináttu vil ég þakka
um leið og ég sendi eftirlifandi eig-
inkonu, börnum og fjölskyldum
þeirra alúðar samúðarkveðjur.
Höskuldur Goði Karlsson.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga.
Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt á
reitinn Senda inn efni á forsíðu mbl.is og viðeigandi efnisliður valinn.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að
hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en
3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu
birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15
línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Minningargreinar
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu,
ALICE BERGSSON NIELSEN,
Rjúpnasölum 12,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi fyrir góða umönnun og
hlýhug.
Örn Helgi Steingrímsson,
Örn Hans Arnarson,
Gústaf Arnarson, Johanna Friberg Arnarson,
Arnar Hans Gústafsson, Eydís Alice Christina Gústafsdóttir.
✝
Okkar hjartkæra vinkona og mágkona,
ELSA KARLSDÓTTIR PEDERSEN,
Klapparhlíð 1,
Mosfellsbæ,
lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn
29. ágúst.
Útförin verður frá Fossvogskapellu í dag,
föstudaginn 3. september, kl. 13.00.
Matthildur Einarsdóttir,
Helga Gísladóttir,
Aðalheiður Erlendsdóttir
og aðrir aðstandendur.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
FJÓLA ÓSKARSDÓTTIR,
Hjallabraut 33,
Hafnarfirði,
andaðist á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Holtsbúð
miðvikudaginn 1. september.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Elías Andri Karlsson, Bára Ólafsdóttir,
Ómar Sævar Karlsson, Fjóla Valdimarsdóttir,
Óskar Gísli Karlsson, Vildís Halldórsdóttir,
Sólbjörg Karlsdóttir,
barnabörn, langömmubörn
og langalangömmubarn.
✝
Yndisleg móðir okkar og tengdamóðir,
SIGRÚN B. ÓLAFSDÓTTIR,
Árskógum 8,
109 Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut
miðvikudaginn 1. september.
Útförin fer fram frá Seljakirkju fimmtudaginn
9. september kl. 13.00.
Dóra Sigrún Hilmarsdóttir, Helgi Pétursson,
Ólöf Heiða Hilmarsdóttir, Sigursteinn Jósefsson.
✝
Ástkær frænka okkar,
BJÖRG SÓLVEIG JÓNSDÓTTIR,
Bubba
frá Bessastöðum,
Fljótsdal,
lést sunnudaginn 29. ágúst.
Jarðsungið verður frá Fossvogskirkju þriðjudaginn
7. september kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á Blindra-
félagið eða Elliheimilið Grund.
Fyrir hönd aðstandenda,
Anna og María Frímannsdætur,
Jóhanna Einarsdóttir,
Auður, Jón og Anna Bergsteinsbörn.