Morgunblaðið - 03.09.2010, Blaðsíða 38
38 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2010
Sudoku
Frumstig
4 9
7 9 1 2
6 3 7
4
3 7 5 2
5 2 6 3 9
1 7 3 9 6
5
2 4
5 1
9 7 2 6
2 9 4 8
4 7
2 7 6
8 9 4
6 5 7 9
6 2 8
2 1 8
6
8 3
9 3 2 5
5 3 7
7 4
1 2 5
3 9 6
9 4 5
7 4 2 8 3 5 9 6 1
8 3 6 1 7 9 4 5 2
1 5 9 4 6 2 3 7 8
2 8 3 6 4 1 5 9 7
9 1 4 7 5 8 2 3 6
5 6 7 9 2 3 1 8 4
6 2 8 5 9 4 7 1 3
3 9 1 2 8 7 6 4 5
4 7 5 3 1 6 8 2 9
9 6 4 1 8 2 5 7 3
2 3 8 5 4 7 9 6 1
1 7 5 6 3 9 4 8 2
5 8 6 7 9 1 3 2 4
7 1 2 4 6 3 8 5 9
3 4 9 8 2 5 6 1 7
4 2 1 3 5 6 7 9 8
6 9 3 2 7 8 1 4 5
8 5 7 9 1 4 2 3 6
3 1 7 2 9 6 5 4 8
8 5 2 3 4 1 7 6 9
9 6 4 8 7 5 2 3 1
6 7 3 1 5 2 8 9 4
5 4 9 6 8 7 1 2 3
1 2 8 9 3 4 6 5 7
7 8 5 4 2 3 9 1 6
4 9 1 5 6 8 3 7 2
2 3 6 7 1 9 4 8 5
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 3. september,
246. dagur ársins 2010
Orð dagsins: Nýtt boðorð gef ég yður,
að þér elskið hver annan. Eins og ég
hef elskað yður, skuluð þér einnig
elska hver annan. (Jóh. 13, 34.)
Baráttan er í algleymingi í Pepsi-deild karla í fótbolta og spenn-
an magnast með hverri umferð.
Fjögur lið berjast um Íslandsmeist-
aratitilinn og önnur fjögur eru í
fallbaráttu en jafnmörg lið sigla
lygnan sjó um miðja deild.
x x x
Keflvíkingar voru með titilinn íhöndum sér fyrir tveimur ár-
um en misstu af honum á síðustu
stundu. Þeir hafa ekki náð að fylgja
árangrinum eftir og hafa sennilega
valdið mestu vonbrigðunum í deild-
inni í ár. Til að mynda hafa þeir
gert fæst mörkin en þegar slakur
sóknarleikur liðsins var áréttaður í
Morgunblaðsgrein brá þjálfarinn á
það ráð að neita að tala við blaða-
menn Moggans og skipaði leik-
mönnum sínum að gera slíkt hið
sama.
x x x
Margir undrast þessa framkomuþjálfarans og spyrja hvernig
það sé að vera lærisveinn hjá læri-
meistara sem ekki talar. Víkverji
hallast reyndar að því að þjálfarinn
sé frekar hörundsár og í stað þess
að viðurkenna vandamálið og taka á
því kenni hann boðberanum um.
Það er hins vegar ekki vænleg leið
til árangurs eins og mörg dæmi eru
um og mál er að linni.
x x x
Aðeins eru eftir fjórar umferðir ídeildinni en í kvöld hefst ný
keppni hjá karlalandsliðinu, undan-
keppni Evrópukeppni landsliða. Ís-
lendingar taka þá á móti
Norðmönnum á þjóðarleikvanginum
í Laugardal og sækja síðan Dani
heim á þriðjudag.
Ólafur Jóhannesson landsliðs-
þjálfari hefur ákveðið að rétta ung-
um leikmönnum keflið að þessu
sinni. Það er djörf ákvörðun en
ungu strákarnir hafa staðið sig vel
og þeir hafa sýnt að þeir geta vel
axlað þá ábyrgð sem því fylgir að
vera fulltrúar Íslands í keppni eins
og Evrópukeppni. Verkefnið er
verðugt og spennandi verður að
fylgjast með liðinu í keppninni. vík-
verji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 planta, 4 loð-
skinns, 7 ílátin, 8 trassar,
9 nóa, 11 vitlaus, 13
grein, 14 ófullkomið, 15
kúnst, 17 máttar, 20
gyðja, 22 rotin, 23 brenn-
ur, 24 dagsláttu, 25
heyið.
Lóðrétt | 1 landræmur,
2 gljúfrin, 3 meðvitund,
4 kák, 5 látin, 6 harma,
10 hús, 12 aðgæsla, 13
saurga, 15 blítt, 16 úr-
koma, 18 iðngreinin, 19
benin, 20 klettanef, 21
feiti.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 flakkarar, 8 bokka, 9 tínir, 10 fár, 11 tjara, 13
aurar, 15 hosan, 18 hluta, 21 ala, 22 fleðu, 23 ruddi, 24
flatmagar.
Lóðrétt: 2 lukka, 3 krafa, 4 aftra, 5 annir, 6 ábót, 7 frár,
12 róa, 14 ull, 15 höfn, 16 svell, 17 naust, 18 harka, 19
undra, 20 alin.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 f5 2. g3 Rf6 3. Bg2 e6 4. Rf3
Be7 5. 0-0 0-0 6. c4 d5 7. b3 c6 8.
Bb2 De8 9. Re5 Rbd7 10. Rd3 Bd6
11. Rd2 e5 12. dxe5 Rxe5 13. Rxe5
Bxe5 14. Bxe5 Dxe5 15. cxd5 cxd5
16. Rf3 Dd6 17. e3 Bd7 18. Dd3 Re4
19. Hfd1 Bc6 20. Hac1 a5 21. Rd4
Df6 22. f3 Rg5 23. h4 Rf7 24. Dxf5
Dd6 25. f4 Hae8 26. Dd3 Rh6
Staðan kom upp á Politiken Cup,
alþjóðlegu móti sem lauk fyrir
skömmu í Helsingjareyri í Dan-
mörku. Bragi Halldórsson (2.253)
hafði hvítt gegn Dick Sørensen
(1.911). 27. Rxc6 bxc6 28. Hxc6!
Da3 29. Bxd5+ Kh8 30. Hxh6! og
svartur gafst upp enda fátt til varn-
ar. Bragi fékk helming vinninga á
mótinu eða fimm talsins en hann
mun lækka um 49 stig vegna
frammistöðu sinnar á mótinu.
Hvítur á leik
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Glatað hjarta.
Norður
♠K654
♥84
♦983
♣KD92
Vestur Austur
♠93 ♠ÁG10
♥K109752 ♥G63
♦752 ♦D64
♣ÁG ♣10876
Suður
♠D872
♥ÁD
♦ÁKG10
♣543
Suður spilar 3G.
Við erum stödd í Sumarbrids í Síðu-
múlanum. Vestur vekur á multi 2♦ og
austur svarar leitandi á 2♥. Suður dobl-
ar, vestur gengst við hjartalitnum með
passi og norður stekkur áskorandi í 3♠.
Suðri hugnast ekki útspil í gegnum
♥ÁD og tekur til sín sögnina með 3G.
Allir pass og óvæntur tígull út upp á
drottningu og kóng. Er til vinningsleið?
Ekki sakar að taka tígulslagina strax.
Kemur þá á daginn að austur má ekkert
spil missa í fjórða tígulinn. Augljóslega
þarf austur að valda báða svörtu litina,
en er ekki í lagi að henda einu hjarta?
Sjáum til. Sagnhafi spilar þá laufi á
kóng, spaða á drottningu og aftur laufi.
Vestur drepur, spilar spaða til makkers
og loks kemur hjarta í gegn. Suður
svínar, fær næsta slag á ♥Á og sækir
spaðann. Og austur grætur glatað
hjarta.
3. september 1919
Flogið var í fyrsta sinn á Íslandi,
í Vatnsmýrinni í Reykjavík.
Flugvélin var af Avro-gerð og
flugmaðurinn enskur, Cecil Fa-
ber að nafni. Fólk var undrandi
að sjá „nýjasta galdraverk nú-
tímans svífa loftsins vegu“, að
sögn Morgunblaðsins.
3. september 1982
Sýning á verkum Bertels Thor-
valdsens var opnuð á Kjarvals-
stöðum, en hún var á vegum
Thorvaldsenssafnsins í Kaup-
mannahöfn. Þetta var í fyrsta
sinn í 134 ára sögu safnsins sem
verkin voru sýnd utan Dan-
merkur.
3. september 1988
Brúin yfir ósa Ölfusár var form-
lega tekin í notkun. Hún er 360
metra löng. Leiðin milli Þorláks-
hafnar og Eyrarbakka styttist
úr 45 kílómetrum í 15 kílómetra.
3. september 2000
Li Peng, forseti þjóðþings Kína,
kom í þriggja daga opinbera
heimsókn til Íslands, ásamt
fylgdarliði. Nokkrar deilur urðu
um samskipti gestanna við fjöl-
miðla.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist …
Siggeir Magnússon, íþróttakennari í Garðabæ,
fagnar 45 ára afmæli í dag. Hann verður þó ekki
við íþróttakennslu í Varmárskóla í Mosfellsbæ í
dag, þar sem hann kennir alla jafna nemendum í
fyrsta og upp í tíunda bekk. Siggeir heldur sig
þessar vikurnar á heimavígstöðvunum, en hann
er í feðraorlofi og sinnir 10 mánaða gömlum
syni sínum.
„Við vorum svo lánsöm að eignast strák fyrir
tæpu ári. Það eru náttúrlega bara forréttindi að
fá að vera heima og sinna stráknum og fá að
taka fyrstu skrefin með honum,“ segir Siggeir,
en fyrir eiga hann og eiginkona hans, Guðný Gunnsteinsdóttir,
tvær stelpur, tólf og átta ára. Siggeir lék á sínum tíma handbolta
með Víkingi, Stjörnunni, Fram og Aftureldingu og hann er enn við-
loðandi handboltann sem þjálfari í yngri flokkum hjá Stjörnunni í
Garðabæ.
Siggeir segist ekki vera mikið fyrir afmælisveislur, en geri sér
þó frekar dagamun á áratugaafmælum með sínum nánustu. „Þó er
aldrei að vita nema maður fari út að borða í kvöld og hafi það
huggulegt í tilefni dagsins,“ segir Siggeir. aij@mbl.is
Siggeir Magnússon 45 ára
Fyrstu skrefin með syninum
Nýirborgarar
Reykjavík Þór-
unn María
fæddist 5.10.
2009 kl. 09.08.
Hún vó 3.220 g
og var 49 cm
löng. Foreldrar
hennar eru
Bjarki Þór Arn-
arson og Ing-
veldur Gísla-
dóttir.
Flóðogfjara
3. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 0.40 2,8 6.57 1,5 13.33 3,0 20.04 1,5 6.17 20.39
Ísafjörður 2.38 1,4 9.08 0,8 15.39 1,7 22.23 0,8 6.15 20.50
Siglufjörður 5.29 1,1 11.07 0,7 17.31 1,2 5.58 20.33
Djúpivogur 3.35 0,8 10.25 1,6 16.53 0,9 22.56 1,4 5.44 20.10
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Í dag er gott að tala um peninga við
nána ættingja eða félaga. Skínandi orð ein-
hvers nákomins dáleiða þig.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú ert með augun opin fyrir ástaræv-
intýrum eða spennandi dægrastyttingu.
Sparsemi er dyggð sem alltaf borgar sig.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Ekki reyna að synda á móti
straumnum í dag. Krafturinn liggur í loftinu
og hann er fullur hugrekkis og æv-
intýraþrár.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú ert óvenju óþolinmóð/ur í dag.
Heilindi skipta sköpum fyrir góðan árangur
í ástarsambandi.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Forðastu rifrildi við vini eða félaga í
dag, þér hættir til að ýta undir ágreining
með framkomu þinni núna. Taktu þér frí um
helgina.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það þýðir ekkert að sitja með hend-
ur í skauti og bíða þess að aðrir geri hlutina
fyrir mann. Búðu þig undir það að þiggja
gjafir, greiða og hlunnindi frá öðrum.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það getur verið erfitt að skera úr um
deilumál annarra. Oftast ertu varkár og ert
því þakklát/ur fyrir daginn. Góður svefn
gerir gæfumuninn.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Láttu þér ekki bregða þótt
margt óvænt gerist í dag og þú eignist já-
bræður sem þú hafðir allra síst átt von á.
Samtöl við foreldra eða aðra fjölskyldu-
meðlimi eru mikilvæg.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það er engin ástæða til þess að
fyrtast, þótt aðrir leiti svara hjá þér. Gættu
þess að misnota ekki forréttindi þín. Þú
færð óvænta heimsókn um helgina.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það er engin ástæða til þess að
leggja út í ævintýr einn síns liðs. Reyndu að
missa ekki sjónar á velferð þinna nánustu.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þér getur liðið ósköp vel án pen-
inga, og þú ert jafn rík/ur og þú ert
ánægð/ur. Nú er rétti tíminn til að ganga
að samningaborði.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú munt komast að því að þú átt
margt sameiginlegt með vinnufélögum þín-
um. Reyndu að eyða aldrei orku til einskis.
Stjörnuspá
Erla Hafliða-
dóttir, Brunnum
14, Patreksfirði,
er áttræð í dag.
Erla hefur rekið
gisti- og veit-
ingaþjónustu í 40
ár og undan-
farna áratugi
starfrækt Gistihús Erlu. Erla tekur
á móti gestum í Félagsheimili Pat-
reksfjarðar laugardaginn 4. sept.
milli kl. 16 og 18 og vonast til að sjá
sem flesta.
80 ára
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is