Framsóknarblaðið - 07.04.1983, Page 1
6. töhiblað
Yestmannaeyjum, 7. apríl 1983
42. árgangur
Y Kjósum ^
ábyrga
menn
á þing
Vinnubrögð Alþýðubandalagsins
þjóðinni of dýr
Garðar Sigurðsson sendir
okkur Þórami Sigurjónssyni
kveðju í sínum stíl í Eyjablað-
inu nýlega. Alveg ósjálfrátt
kemur í hugan að ritsmíð þessi
sé sjálfsvöm, þar sem Garðar
reyni að koma þeim orðrómi,
sem um hann hefur gengið, á
okkur Þórarinn. Það er a.m.k.
óskiljanlegt af hverju hann var
að eyða orðum á okkur, ef við
værum slíkir híðisbangsar, sem
fram kemur í grein hans, þar
sem varla mundi þá hvarfla að
neinum að fela okkur umboð til
setu á Alþingi. Ég hef ekki talið
ræður Garðars Sigurðssonar á
Alþingi á kjörtímabili því, sem
nú er að ljúka, og skal því ekki
fullyrða neitt um fjölda þeirra.
Hitt vita allir þar, að hann hefur
verið þrautseigari við aðra list
en orðsins list, enda þótt sú geti
lítt talist til þingstarfa. Og
stundum hefur sú þaulsætni
hans haft áhrif á afgreiðslu
þingmála. En sennilega skilja
menn það við lestur greinar
Garðars af hverju ræðuhöld
hans á Alþingi hafi ekki borið
meiri árangur en raun ber vitni.
Hitt þori ég óhræddur að bera
undir dóm allra, sem til þekkja,
hvort störf mín eða Garðars
Sigurðssonar hafa sett meiri
svip á Alþingi á liðnu kjörtíma-
bili. En þrátt fyrir Garðars-stíl-
inn á greininni eru þar tvö
efnisatriði, sem rétt er að víkja
að nokkrum orðum.
Samkomudagur Alþingis
Laugardaginn 19. feb. s.l. var
ég fulltrúi Framsóknarflokks-
ins á fundi aðila þingflokkanna
um lokafrágang stjómarskrár-
breytingar um kjördæmaskip-
un. Þar lagði Ólafur Ragnar
Grímsson, formaður þing-
flokks Alþýðubandalagsins,
fram þá kröfu, að þingflokk-
amir gerðu með sér bindandi
samkomulag um endanlega af-
greiðslu þess máls og nýjar
kosningar á þeim gmndvelli.
Skyldi nýtt Alþingi verða kall-
að saman í byrjun maí og stað-
festa breytingar á stjómar-
Vantar skemmti-
krafta á þing?
Ámi Johnsen sendir mér
tóninn enn á ný og nú í síðasta
tölublaði Frétta.
Þar telur hann mér það helst
til foráttu að vera Eyfirðingur
að uppruna og að ég sé ekki
nógu skemmtilegur, auk þess
sem hann sér ástæðu til að
benda mér á að taka Georg
Hermannsson, fýrrverandi
kaupfélagsstjóra, mér til fyrir-
myndar.
Ég vil taka undir það með
Áma, að Georg sé góð fyrir-
mynd hverjum sem er og mættu
reyndar fleiri taka hann sér til
fyrirmyndar, enda er hann
góður og gegn framsóknar-
maður.
Um uppmna minn hef ég
ekkert að segja nema það að ég
er ánægður með að vera ætt-
aður úr því myndarhéraði, sem
Eyjafjörður er, en ég tel mig
alveg fullgildan sunnlending í
dag, eftir þriggja ára búsetu hér
í Eyjum.
Á nákvæmlega sama hátt tel
ég að Ámi geti verið hreykinn
af uppruna sínum héðan úr
Eyjum, en hljóti eftir sem áður
að teljast Reykvíkingur í dag,
eftir margra ára búsetu þar.
Um skemmtilegheit mín ætla
ég ekkert að fjölyrða og læt mér
skránni og afgreiða kosninga-
lögin á 1-2 vikum. Síðan skyldi
það rofið og nýjar kosningar
boðaðar í júnílok eða júlí. Þetta
væri heildarpakki, eins og hann
orðaði það, sem yrði að ná fram
að ganga, hvað sem öðmm
málum Iiði. Ólafur G. Einars-
son, formaður þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins, tók eindregið
undir þessa kröfu. Ég andmælti
þessu strax og sagði, að Fram-
sóknarflokkurinn legði áherslu
á, að þegar að loknum kosn-
ingum 23. apríl yrði mynduð
meirihlutastjóm, sem legði
fram tillögur um aðgerðir í
efnahagsmálum til þess að
koma í veg fyrir að atvinnulíf
stöðvaðist eða yrði fýrir ó-
bætanlegu tjóni. Ólafur Ragnar
Grímsson lýsti sig algerlega
andvígan þessu viðhorfi mínu.
Jón Helgason
Það yrði engin tími til að hugsa
um efnahagsmál eða atvinnulíf
á þeirri stundu. Stjómarskrár-
breytingin og nýjar kosningar
yrðu að ganga fyrir öllu, hvaða
áhrif sem það hefði á atvinnu-
lífið í landinu. Magnús H.
Magnússon var fulltrúi Al-
þýðuflokksins á þessum fundi
og tók hann undir það, að kosn-
ingar þyrftu að verða eins fljótt
og hægt væri að nýju, enda þótt
ekki mætti alveg gleyma efna-
hagsmálunum. Ég þurfti enga
línu að ofan til að hafna þessari
kröfu þríflokkanna, eins og
Garðar Sigurðsson virðist telja
algerlega nauðsynlegt til að
taka afstöðu í máli. Að mínu
mati er það svo sjálfsagt að
hagsmunir atvinnulífsins gangi
fyrir. En það var til að innsigla
þennan vilja þríflokkanna, sem
þeir fluttu hinar furðulegu til-
lögur um samkomudag nýs Al-
þingis, enda hafði sá vilji einnig
komið fram í framsöguræðum
Geirs Hallgrímssonar og
Svavars Gestssonar fyrir
stjómarskrárbreytingunni, en
Framhald á 2. síðu
Fjölgum atvinnutækifærum
Guðmundur Búason
þau í léttu rúmi iiggja, en ég vil
aðeins benda Áma Johnsen á
það, að ef hann er að leita fyrir
sér sem skemmtikraftur, þá
er það allt önnur stétt manna en
alþingismenn, sem hafa tekið
það hlutverk að sér í okkar
þjóðfélagi.
Þar em margir hinir mætustu
menn og ég efa ekki að Ámi
hefði sómt sér vel í þeim hópi.
En ég segi það við Áma, í
fullri vinsemd, að ég held að
okkur vanti margt annað,
frekar en skemmtikrafta, inn á
Alþingi íslendinga í dag.
—Guðmundur Búason.
Á liðnu kjörtímabili hafa
verið bæði skin og skúrir.
Óhöpp og erfiðleikar hafa
steðjað að eins og oft áður, en
þróun og framfarir em miklar,
þó að mörgum finnist hægt
ganga. Auðlindir Iands og sjáv-
ar eru miklar og við eigum að
vinna að hagkvæmri nýtingu
þeirra eftir því sem kostur er.
Skynsamleg vinnubrögð til að
auka notkun innlendra auð-
linda þarf að gerast með þjóð-
arhag fyrir augum.
Þörfin fyrir fleiri atvinnu-
tækifæri vex stöðugt með fjölg-
un þjóðarinnar, svo að unga
fólkið þurfi ekki að flytja úr
sinni heimabyggð, þegar það
kemur til starfa í þjóðfélaginu.
Vestmannaeyjar eru þar ekki
undanskildar, þó að sjávarút-
vegur sé þar öflugur. Og þó að
nokkuð hafi áunnist með
ýmisskonar þjónustu- og fram-
leiðsluiðnaði svo sem með
byggingu myndarlegrar skipa-
lyftu og fleiri þátta, má ekki
láta staðar numið.
Okkur vantar vel skipulagða
og samræmda uppbyggingu
margskonar iðnaðar svo að vel
megi fara. Ég tel líka að í
Suðurlandskjördæmi bjóðist
margt af því sem til þarf, svo að
öflugur iðnaður geti risið upp.
Með tilkomu öruggs raf-
magns frá okkar stóru orku-
verum, sem búið er að byggja
og þeirri miklu orku sem enn er
óvirkjuð, ætti að geta risið upp
öflugur iðnaður, ekki síst þar
sem stór og góð höfn er fyrir
hendi, eins og hér í Vest-
mannaeyjum, með miklum
stækkunarmöguleikum.
Hér er líka duglegt og traust
fólk, sem oft hefur lagt á sig
mikla vinnu til þess að bjarga
verðmætum sem dugmiklir sjó-
menn hafa flutt að landi. Hefur
það líka sýnt það í verki, að
lagni og hugvitsemi er hér ríkj-
andi.
Það er því einsýnt, að hér
væri hægt að auka öryggi
byggðarinnar og gera atvinnu-
lífið tryggara.
Það hlýtur að vera hags-
munamál allrar þjóðarinnar að
innlend iðnaðarframleiðsla
verði efld, svo sem kostur er,
ekki aðeins tímabundið á með-
an við erum að komast út úr
þeim mikla efnahagsvanda sem
við erum nú að glíma við,
heldur með traustri uppbygg-
ingu til frambúðar.
Það veigamikla hlutverk,
sem íslenskur iðnaður gegnir,
og hlýtur að gegna í atvinnu-
uppbyggingu landsmanna í
framtíðinni, er svo stórt, að
hlutur hans í fjarmagni til upp-
byggingar þarf að vera mikill.
Að því þarf og verður að vinna,
meðal annars til þess að sem
flestir fái nóg að starfa við sitt
hæfi og til tryggingar örari
vaxtar þjóðartekna.
HVERT STEFNIR
Menn gleyma því oft að
þakka það sem vel er gert.
Vafalaust geta þó flestir tekið
undir það, að mikið hefur
áunnist í uppbyggingu atvinnu-
veganna, í samgöngumálum
með uppbyggingu vega, flug-
valla, hafna og ferjumála ásamt
mörgu fleiru. Góðar samgöng-
ur eru undirstaða að öflugu at-
vinnulífi.
Og ef við lítum til síðasta
áratugs, þá blasir við sú stað-
reynd, að aldrei hefur orðið
Þórarinn Sigurjónsson
meiri efnahagsbreyting á ís-
landi en á því tímabili. Kaup-
máttur verkamannalauna hefur
aukist um milli 30 og 40% á
þessum árum, eins og hag-
skýrslur sína, meðan í ná-
grannalöndum okkar hefur
orðið lítil kaupmáttaraukning.
Uppbygging í mörgum kaup-
stöðum og kauptúnum hefur
orðið svo mikil á þessum árum,
að þeir eru óþekkjanlegir
miðað við það sem áður var.
Og hvaðan hefur svo komið
það mikla fjármagn sem gert
hefur það mögulegt að standa
undir þeim miklu framförum
og velmegun sem átt hefur sér
stað síðasta áratuginn? Flestir
munu gera sér það ljóst. Út-
færsla landhelginnar og sigur
okkar í landhelgisbaráttunni,
ásamt stórfelldri uppbyggingu
fiskiskipastólsins og fískiðju-
veranna hafa lagt grundvöllinn
að hinum miklu framförum og
bættu lífskjörum á undan-
gengnum árum. Og þegar ver
Framhald á 2. síðu