Framsóknarblaðið


Framsóknarblaðið - 18.11.1983, Síða 2

Framsóknarblaðið - 18.11.1983, Síða 2
2 FRAMSÓKNARBLAÐIÐ ÁBYRGÐARMAÐUR Andrés Sigmundsson RITNEFND: Sigurgeir Kristjánsson, Sigurður Gunnarsson, Guðmundur Búason, Jón Eyjólfcson, Oddný Garðarsdóttir, Bima Þórhallsdóttir, Gtorg Stanley Aðalsteinsson, Jóhann Bjömsson. Þú átt samleiÖ með framsókn Það er ekki of mikið sagt, að Framsóknarflokkurinn í Vestmannaeujum standi nú á tímamótum. Nœstu helgi verður haldinn hér í Eyjum kjördœmisþing Framsóknarflokksins í Suðurlandskjördœmi. Framsóknar- fólk í Eyjum vœntir þess, að þingið samþykki mjög svo breytta tilhögun við val efstu manna lista flokksins til Alþingiskosninga. Einnig að hlutur kvenna innan flokksins verði gerður enn meiri en hann er í dag. Þetta munu vœntanlega vera helstu mál sem koma til kasta þingsins í þetta skiptið. Umrœður um stjórnarsamstarf Framsóknarflokks og Sjálfstœðisflokks kemur ekki til með að vera aðal umrceðuefni kjördcemisþings Framsóknarflokksins í Vest- mannaeyjum, einfaldlega vegna þess, að ekki er óáncegja með aðgerðir ríkisstjórnarinnar, heldur aðgerðaleysis stjórnarinnar. Það, er nýkjörinn formaður Sjálfstceðisflokksins lcetur frá sér fara um, að hann sceki ekki eftir setu sem ráðherra í núverandi ríkisstjórn, er ekki hcegt að skilja öðruvísi en að Sjálfstceðisflokkurinn leiti nú að útgönguleið úr ríkis- stjórninni. Því fyrr sem það skeður því betra. Byggðastefnan ogjöfnun kjara er ekki á dagskráþessarar ríkisstjórnar. Þeir ríku verða ríkari og þeir fátceku verða fátœkari. Það er stefna Sjálfstceðisflokksins. Slíkt er ekki vilji hins almenna kjósanda Framsóknarflokksins. Að staðið sé við áður boðaða stefnu umjöfmð og sáttir milli þéttbýlis og dreifbýlis er lágmarkskrafa til forystu Framsóknarflokksins. Það hefur aldrei gefist vel að hundsa vilja þeirra er fylgja Framsóknarflokknum að máli. Islendingar eru sér meðvitaðir um þann mikla vanda sem við höfum við aðglíma. Launafólk hefursýnt mikla biðlund. I sameiningu og með samvinnu eigum við að vinna að bcettum lífskjörum, fá fólk til liðs við Framsóknarflokkinn til að skapa réttlátt þjóðfélag, þar sem manngildið er sett ofar auðsöfnun. Það er hlutverk Framsóknarflokksins. Allt annað er hégómi og mun leiða til drottnunarpeningaaflanna verri lífkjara meðal almennings og óscetti milli landsmanna. Drengskapur og ábyrgð hafa verið aðalsmerki Framsókn- arflokksins. Hinn almenni kjósandi gerir sér vonir um, að flokkurinn standi einhuga vörð um þástefnu sína. Við eigum að framkvcema nákvcemlega eins og kjósendur hafa œtlast til af okkur. I dag þarf Framsóknarflokkurinn að endurskoða hlutverk sitt í ríkisstjórn. Stefna Framsóknarflokksins er sú sem allir landsmenn geta fallist á, "'komin frá fólkinu sjálfu. Ekki öfgakenningar sóttar til annarra landa. Framsóknar- flokkurinn er flokkur fólks sem hefur haft að leiðarljósi jöfnuð, samvinnu, heiðarleika og drengskap. Undan þessu megum við ekki víkja. Framsóknarflokkurinn hrópar á hjálp til landsmanna svo ekki taki við tímar ósáttar og niðurrifs í landinu. Sjálfstœðisflokkur og Alþýðubandalag eiga svo ótrúlega margt sameiginlegt, m.a. það að skipta fólki upp í tvcer fylkingar með eða móti hernum. Sameiginlegt markmið þessara tveggja flokka, Sjálfstœðisflokks og Alþýðubanda- lags er að viðhalda ófriði og ósáttum meðal landsmanna. Við þurfum á öðru að halda í dag. Reynslan af sterkri stjórn Sjálfstœðisflokksins I dag hafa Vestmannaeyingar reynslu af sterkri stjórn Sjálfstceðismanna við stjórn hér í bœjarfélaginu. Þeir byrjuðu á, að koma sjálfum sér fyrir í há embœtti í hcestu launaflokka, bílastyrk ogfleira í sama dúr, um leið og þeir frömdu trúnaðarbrot á einum félaga sínum. Loforð eru svikin daglega, skuldasöfnun hefur aldrei í sögu Vestmannaeyjakaupstaðar verið eins mikil og verklegar framkvœmdir aldrei verið eins litlar. Sjálfstœðismenn sögðust cetla að stjórna sjálfir. Það er nú farið að koma á daginn. Kjördæmisþingið í Eyjum. Kjördœmisþing Framsóknarflokksins verður nú haldið í Eyjum. Við vœntum góðs af þeim tillögum og þeim umrœðum sem þar verða. En, framsóknarfólk á Suðurlandi! Sofandaháttur er ekki leiðin til þess að leiða mál fram. Gamall málsháttur hljóðar svo: Bændur eru kjarni hverrar þjóðar. Það eru orð að sönnu. Rísúr rekkju bóndi góður og vektu þitt heimafólk. Við eigum mikið óunnið verk framundan. Tökumst á í sameiningu undir merki Framsóknarflokksins Islandi til heilla. Andrés Sigmundsson Þar með gafst nokkrum útvöldum lögfræð- ingum og leiftursóknartittum t&jkifæri á að berjast um bitann á landsmótinu sr, nkvæmt forskrift flokkseigendanna. Út af fyrir sig verður ekki hægt að segja að hægt sé að óska hinum almenna áhanganda íhaldsins til hamingju með hinn nýja formann. f fyrsta lagi vegna þess, að auðvitað bar apparatinu ekki gæfa til þess að kjósa sér þann sem mesta stjórnmálareynslu hefur, heldur þvert á móti, þann sem minnsta revnslu hefur. í öðru lagi vegna þess að sá sem fyrir valinu varð er kunnur fyrir leiftursóknarmennsku sína í vinnuveitendasambandinu og annað ekki. Má þar með segja að endanlega hafi Sjálfstæðisflokkurinn eignast sitt rétta andlit innávið og útávið og er þess vegna óhætt að óska andstæðingum íhaldsins sérstaklega til hamingju með það. Óraskvaldur íhaldsins með orðunum „stétt með stétt." passar nú ekki lengur. Haft er eftir mörgum gallhörðum íhalds- gránanum að máli þessu hafi verið "klúðrað." Ekki þykir Skallharði ósennilegt að "klúður- gerðarsýkillinn" hafi borist á landsmót íhaldsins. Eftir er svo að sjá hvernig nýja formann- inum og fulltrúa atvinnurekendaíhaldsins muni takast að halda íhaldshjörðinni saman, en nokkrir þóttust a.m.k. hafa séð frosið íhaldsbrosið á varaformanninum. Þá hefur íhaldið kosið sér nýjan formann eftir að Geir Hallgrímsson heildsali og lögfræðingur hafði tilkynnt, öllum almennum áhangendum íhaldsins til ánægju, að hann væri hættur formennsku. Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir: BEÐIÐ í MYRKRI Sýning fimmtudags- kvöld kl. 20.30 Sunnudagkvöld Kl. 20.30 Beðið I myrkri Nú standa yfir hjá Leik- félagi Vestmannaeyja sýn- ingar á sakamálaleikritinu Beðið í myrkri, eftir Fried- rick Knott. Þýðandi er Loftur Guðmundsson og leikstjóri er Edda Aðal- steinsdóttir. Leikendureru 8, en alls standa 14 manns að sýningunni. Hanna Birna og Elín Helga sýna mjög góðan leik. Skúrkarnir eru tæplega nógu miklir skúrkar. nógu miklir skúrkar. Run- ólfur, sá ágæti leikari, fellur ekki inn í þetta hlutverk, nema helst í lokin. Sama er að segja um Ólaf Tý. Hans hlutverk gefur ekki mikla mögu- leika, en hann er frjáls- legur og skírmæltur. Það heyrist ekki nógu vel í Jónasi Þór, en Guðmndur Jensson er skírari, og fer vel með sitt litla hlutverk. Edda virðist komast vel frá sinni frumraun sem leikstjóri. Lýsing og hljóð, sem er mikið atriði í þessari sýningu, er í góðu lagi, þó finnst mér hljóðið í spila- dósinni varla nógu eðli- legt. Atburðarásin er hröð og spennan helst allan tímann. Sýningar hafa verið illa sóttar og má vera að mikil vinna sé einhver afsökun. Eg vil hvetja bæjarbúa til að sjá þetta leikrit. Það er skemmtilegt og spenn- andi og Leikfélagið á það skilið að menningarvið- leitni þess sé metin. Eg óska Eddu til hamingju með sína frumraun sem leikstjóri, hún stóð sig með prýði, eins og vænta mátti. J.B.

x

Framsóknarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framsóknarblaðið
https://timarit.is/publication/795

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.