Morgunblaðið - 11.09.2010, Side 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2010
„Þarna koma saman ólíkir straumar
sem áhugavert verður að sjá mæt-
ast,“ segir Þorgeir Pálsson, fyrrver-
andi flugmálastjóri og forstjóri
Flugstoða, nú prófessor við Háskól-
ann í Reykjavík. Hann verður ráð-
stefnustjóri á alþjóðlegri ráðstefnu
um vandamálin sem askan úr Eyja-
fjallajökli skapaði fyrir flugið.
Menntafélagið Keilir heldur ráð-
stefnuna á Ásbrú næstkomandi mið-
vikudag og fimmtudag. Um 250
manns hafa skráð sig, frá Evrópu,
Ameríku og Asíu, fulltrúar framleið-
enda, flugfélaga, yfirvalda og ýmissa
stofnana sem koma að fluginu. Einn-
ig jarðvísindamenn sem funda áfram
á Hvolsvelli eftir að ráðstefnunni
lýkur, í meiri nánd við eldstöðina.
Margar ráðstefnur hafa verið
haldnar um flugið eftir að ösku-
vandamálið kom upp. Þorgeir segir
að það geri þessa ráðstefnu áhuga-
verða að hún er fjölþættari, komið er
inn á fleiri svið; flugið, jarðvísindin
og stefnumörkun hjá stjórnvöldum,
svo dæmi séu tekin.
Mismunandi áherslur hafa verið í
Evrópu og Ameríku um það hvernig
bregðast eigi við ösku í háloftunum.
Þorgeir segir áhugavert að sjá meg-
inlöndin mætast. Það sem fram kem-
ur á ráðstefnunni verður síðan inn-
legg í umræðuna á þingi alþjóða
flugmálastofnunarinnar sem fram
fer síðar í mánuðinum. helgi@mbl.is
Ólíkir straumar mætast
250 þátttakendur á ráðstefnu um vandamál flugsins í eld-
gosinu í Eyjafjallajökli Fulltrúar ólíkra sjónarmiða mætast
Morgunblaðið/Kristinn
Strókurinn Mikil gjóska spýttist upp úr eldstöðinni í Eyjafjallajökli og truflaði flug víða við Atlantshaf. Vandamálið
og viðbrögðin hafa mikið verið rædd og verða enn til umræðu á alþjóðlegri ráðstefnu hjá Keili á Ásbrú.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Þuríður Backman, alþingismaður og
formaður heilbrigðisnefndar Alþing-
is, sagði að sér hefði brugðið við að
lesa í Morgunblaðinu í gær að leitað
hafi verið til Hjálparstarfs kirkjunn-
ar vegna sjúklinga sem ekki var
hægt að útskrifa af sjúkrahúsi nema
borgað væri fyrir lyf.
„Ég tel að heilbrigðisnefnd þurfi
að fá upplýsingar um og skoða um-
fang þessa, hvaða lyf þetta eru og
með hvaða hætti farið er að útskrifa
sjúklinga með lyfseðil eða lyf sem
sjúkrahúsið hefur þá lagt út fyrir og
er að rukka fyrir þegar sjúklingur
útskrifast, ef rétt reynist,“ sagði
Þuríður. Hún kvaðst ætla að láta
taka málið upp í heilbrigðisnefnd Al-
þingis
Þuríður sagði að sér hafi ekki ver-
ið ljóst að fólk væri útskrifað af
sjúkrahúsum með lyf sem það þyrfti
að greiða fyrir.
Skoða þarf ástæðu fjölgunar
hjálparbeiðna vegna lyfjakaupa
„Eins og ég hef þekkt þetta þá
hafa sjúklingar útskrifast með lyfja-
ávísun sem þeir þurfa þá að leysa út
eftir útskrift,“ sagði Þuríður.
Hún taldi að ekki þyrfti síður að
skoða hvers vegna fólk leiti í ríkari
mæli eftir aðstoð hjá hjálparstarfi
vegna lyfjakaupa, eins og fram kom í
fréttinni. Þar sagði m.a. að mikil
aukning á styrkbeiðnum hafi orðið
þegar flensufaraldur gekk hér í
fyrra.
„Nú eru sýklalyf ekki niðurgreidd
og ég dreg þá ályktun, af því þetta
var í kjölfar flensu, að þetta hafi ver-
ið vegna sýklalyfjakaupa. Það er
eitthvað sem kemur upp skyndi-
lega,“ sagði Þuríður.
Áfram er unnið að heildarendur-
skoðun á fyrirkomulagi greiðsluþátt-
töku sjúklinga, en Þuríður sagði að
sú vinna væri komin vel á veg.
„Ég vænti þess að þeirri vinnu
ljúki í vetur þannig að hægt verði að
taka upp nýtt fyrirkomulag,“ sagði
Þuríður. Hún sagði að breytingu á
lögum varðandi smásöluafslátt lyfja
hafi verið frestað vegna þeirrar
heildarendurskoðunar sem nú fer
fram. Með því hafi verið þrýst á að
vinnunni verði lokið sem fyrst.
Mun skoða beiðn-
ir um lyfjastyrki
Greiðsluþátt-
taka sjúklinga er
til endurskoðunar
Morgunblaðið/Sverrir
Lyf Æ fleiri hafa beðið Hjálparstarf
kirkjunnar um hjálp við lyfjakaup.
Zzzzzzzúúúúmmmm …
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
3
0
18