Morgunblaðið - 11.09.2010, Page 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2010
Ítrekað hefur komið fram hjá ráð-herrum ríkisstjórnarinnar, sér-
staklega forystumönnum hennar,
að þeir eru undir gríðarlegu vinnu-
álagi og eru orðnir alveg ofboðs-
lega þreyttir.
Þjóðin hefur öll mikla samúð meðráðherrunum en fagnar því að
þeir skuli ekki bera þennan harm
sinn í hljóði. Enn
verra þykir þó að
nú er álagið orð-
ið slíkt að það er
farið að há ráð-
herrunum í störf-
um þeirra. Að
minnsta kosti
tveir ráðherrar
ríkisstjórn-
arinnar hafa til
að mynda orðið fyrir alvarlegu
minnistapi vegna álagsins.
Össur Skarphéðinsson, utanrík-isráðherra, man ekki eftir að
„menn hafi rætt það í minni-
hlutastjórninni að sækja um ESB“.
Óhætt er að fullyrða að þegar Öss-
ur er farinn að gleyma því hvort
ríkisstjórn sem hann sat í ræddi um
að taka upp helsta áhugamál hans
þá sé vinnuálagið vissulega orðið
allt of mikið.
Annar ráðherra „man ekki“ held-ur eftir þessu máli og hlýtur
það að teljast hættumerki fyrir rík-
isstjórnina ef að minnsta kosti tveir
ráðherrar muna ekki eftir máli af
þessari stærðargráðu.
Getur verið að fleiri ráðherrarséu farnir að tapa minni í þessu
máli og muni ekkert hvort ákveðið
var að sækja um aðild að ESB?
Getur verið að sá eini sem maneftir þessu sé aðstoðarmað-
urinn fyrrverandi og núverandi
sem nefndi það um daginn í
framhjáhlaupi? Getur verið að við-
komandi hafi ef til vill munað eftir
því alveg óvart?
Össur
Skarphéðinsson
Alvarlegt minnistap
Veður víða um heim 10.9., kl. 18.00
Reykjavík 14 skýjað
Bolungarvík 14 léttskýjað
Akureyri 13 skúrir
Egilsstaðir 14 skýjað
Kirkjubæjarkl. 13 skýjað
Nuuk 6 skýjað
Þórshöfn 12 skúrir
Ósló 12 skýjað
Kaupmannahöfn 15 súld
Stokkhólmur 15 skýjað
Helsinki 16 skýjað
Lúxemborg 17 skýjað
Brussel 17 léttskýjað
Dublin 18 skýjað
Glasgow 17 léttskýjað
London 20 léttskýjað
París 22 léttskýjað
Amsterdam 15 skýjað
Hamborg 17 skýjað
Berlín 17 léttskýjað
Vín 19 skýjað
Moskva 17 skýjað
Algarve 27 heiðskírt
Madríd 28 heiðskírt
Barcelona 25 léttskýjað
Mallorca 25 skýjað
Róm 22 léttskýjað
Aþena 26 léttskýjað
Winnipeg 12 skúrir
Montreal 17 skýjað
New York 21 léttskýjað
Chicago 19 léttskýjað
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
STAKSTEINAR
VEÐUR KL. 12 Í DAG
11. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:40 20:10
ÍSAFJÖRÐUR 6:41 20:19
SIGLUFJÖRÐUR 6:23 20:02
DJÚPIVOGUR 6:08 19:41
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Sanddæluskipið Perla var vænt-
anlegt að Landeyjahöfn nú í morg-
un. Skipið lagði úr höfn í Reykjavík
um klukkan 15.00 í gær. Óttar
Jónsson, skipstjóri, áætlaði að sigl-
ingin tæki um 16 klukkustundir.
Samkvæmt veður- og öldus-
pám í gær var ágætis útlit fyrir
dýpkunarstörf við Landeyjahöfn.
Óttar sagði að spáð væri vestanátt
og yrði hún ekki mjög hvöss gæti
orðið mögulegt að eiga við þetta.
„Ef það verður gott veður og við
getum verið að ættum við að verða
búnir að opna þetta þannig að
Herjólfur geti byrjað að ganga á
sunnudag eða mánudag,“ sagði Ótt-
ar.
Perla mun fjarlægja haft sem
myndast hefur út frá eystri hafn-
argarði Landeyjahafnar og fyrir
hafnarmynnið. Um er að ræða gos-
efni úr Eyjafjallajökli sem Mark-
arfljót bar til sjávar. Lóðsinn í
Vestmannaeyjum hefur mælt stærð
tungunnar sem teygir sig út frá
hafnargarðinum. Siglingastofnun
vann áfram að mælingum í gær.
Perla hóf vinnu við dýpkun
Landeyjahafnar í byrjun apríl sl.
Þegar veður hamlaði leitaði skipið
vars í Vestmannaeyjahöfn. Óttar
taldi að sami háttur yrði á nú ef
veður yrði vont. Skipið getur ekki
athafnað sig við dýpkun ef ölduhæð
er meiri en 1,2 metrar. Í sameig-
inlegri tilkynningu Siglingastofn-
unar, Eimskips og Vegagerðarinnar
í gær sagði m.a. að Perlan yrði til
taks svo lengi sem þörf krefði. Þá
hefði verið gert ráð fyrir því frá
upphafi að fyrsta vetur Land-
eyjahafnar þyrfti töluverðar dýpk-
unarframkvæmdir í höfninni. Al-
mennt ríkjandi suðvestanáttir
mundu þó eiga stærstan þátt í að
koma gosefni frá höfninni á haf út.
Landeyjahöfn verður áfram að-
alhöfn Herjólfs í vetur og áætlun
miðast við siglingar þangað.
„Ef þær aðstæður skapast að
dýpi verður ekki nægjanlegt mun
skipið sigla í Þorlákshöfn en með
ölduspám og tíðum dýptarmæl-
ingum mun gefast að minnsta kosti
tveggja sólarhringa ráðrúm til
breytinga á áætlun.“
Landeyjahöfn gæti opnast um helgina
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Perla Dýpkunarskipið lagði af stað frá Reykjavík í gær.
Danski skákmað-
urinn Bent Larsen
er látinn, 75 ára að
aldri. Hann var
sexfaldur Dan-
merkurmeistari í
skák, fyrst árið
1954, og varð al-
þjóðlegur stór-
meistari árið 1956,
liðlega tvítugur.
Larsen var um
árabil einn af sterk-
ustu skákmönnum
heims. Á sjöunda
og áttunda áratug
síðustu aldar tók
hann fjórum sinnum þátt í áskor-
endamótum um réttinn til þess að
tefla um sjálfan heimsmeistaratit-
ilinn. Þrjú skipti í röð komst hann í
undanúrslit, en tókst aldrei að vinna
sjálfan titilinn. En þó hann bæri
aldrei titilinn sjálfur afrekaði hann
það að leggja sjö heimsmeistara að
velli, þeirra á meðal Boris Spassky,
Bobby Fischer og Anatoly Karpov.
Larsen var Íslendingum
að góðu kunnur, en hann
tefldi oft á Íslandi, og var
sæmdur hinni íslensku
fálkaorðu árið 2003. Hann
háði meðal annars sögu-
frægt einvígi við Friðrik
Ólafsson um Norð-
urlandatitilinn í skák í
Reykjavík, árið 1956, en þá
bar Daninn sigur úr být-
um. „Við vorum miklir
mátar og byrjuðum að
tefla saman þegar við vor-
um 15 ára gamlir. Við
fylgdumst að lengi vel og
það alltaf mikið kapp í okk-
ur þegar við hittumst yfir borðið.
Það var aldrei gefið neitt eftir,“ seg-
ir Friðrik, en þeir Larsen voru jafn-
aldrar. Þeir áttu eftir að mætast oft
við taflborðið eftir það, en alls öttu
þeir kappi 35 sinnum, síðast í sýn-
ingareinvígi árið 2003.
Larsen lést í fyrradag á heimili
sínu, í Buenos Aires í Argentínu, eft-
ir skammvinn veikindi.
Skákmeistarinn Bent Larsen látinn
Lagði sjö heimsmeistara