Morgunblaðið - 11.09.2010, Síða 25
Umræðan 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2010
Vinun, ráðgjafar- og þjónustu-
miðstöð, er stofnuð til að veita fólki
frelsi þrátt fyrir skerta færni sökum
veikinda, slysa eða öldrunar. Þjón-
usta Vinunar er notendavæn og hag-
kvæm lausn fyrir þá sem vilja stýra
eigin þjónustu og viðhalda færni til
athafna dagslegs lífs.
Umhyggja og sveigjanleiki
í stefnumótun
Það þóttu tíðindi og tilefni til
fréttaflutnings þegar eldri íbúar
heimilis í Hveragerði gátu fyrr á
árinu rölt fram í eldhús og fengið sér
kaffi sjálfir, ráðið því sjálfir hvenær
þeir nærðust og hvort þeir spiluðu
vist eða póker. Þetta var byggt á
nýrri hugmyndafræði um öldr-
unarheimili sem kallast Eden. For-
dæmi fyrir slíku voru þá ekki til hér á
landi en strangar reglur gilda enn um
ákveðna fjarlægð milli eldhúss og
íbúa á flestum öldrunar- og hjúkr-
unarheimilum.
Mikilvægi slíks sjálfræðis er gíf-
urlegt en flest göngum við að því sem
gefnu. Fólk þarf að finna tilgang með
lífinu, þrátt fyrir heilsuleysi eða öldr-
un. Það er ekki nóg að byggja eða
breyta byggingum, þótt slíkt tilheyri
eðlilega ferlinu. Það þarf að vinna á
breytingum á menningunni sjálfri.
Núverandi menning á mörgum stofn-
unum byggist á sjúkrahúsmódelinu
en þar er þjónusta og meðferð skipu-
lögð og veitt af starfsfólki. Ef öldr-
unar- eða æviheimili fólks er rekið
með svipuðu sniði og sjúkrahús er
áherslan oft á meðferð fremur en um-
hyggju í stefnumótuninni. Þetta má
jafnvel telja eðlilegt í ljósi hagræð-
ingar og kostnaðar vegna þjónust-
unnar. Ef umhyggjan er hins vegar
gagnkvæm hvetur hún íbúann til
þátttöku og þannig hefur hann áhrif á
eigið líf og hefur hlutverk, sem styrk-
ir sjálfsmyndina.
Samfélagið er blessunarlega í sí-
felldri mótun og ógrynni rannsókna
um líf aldraðra og fatlaðra hafa sýnt
fram á mikilvægi þess að fólk geti
haldið sjálfstæði sínu og fundið fyrir
öryggi og tilgangi á eigin heimili. Við
leggjum alla áherslu á að undirbúa
börnin okkar fyrir lífið, horfum á
styrkleika þeirra og státum okkur af
þeim. Þegar fötlun og veikindi sækja
að á öllum aldri eru það nákvæmlega
sömu þættir sem skipta máli, en oft
er einblínt á það sem ekki er hægt, í
stað þess sem hægt er að gera við
þær aðstæður. Slík takmörkun leiðir
af sér vanmátt þeirra sem eiga við
fötlunina að stríða og þeir upplifa sig
vanhæfa til daglegra verka. Ef þjón-
ustan er notendastýrð og sveigjanleg
er auðveldara að ná tökum á breytt-
um aðstæðum þrátt fyrir skerta
færni.
Sveigjanleiki smærri fyrirtækja
– lausn sem virkar
Yfirfærsla frá ríki til sveitarfélaga í
málefnum fatlaðra tekur gildi um
áramótin. Því ríður á að sinna öllum
biðlistum ásamt því að viðhalda þeirri
þjónustu sem áður hefur verið veitt af
hendi ríkis. Þetta eru áskoranir sem
smærri vönduð fyrirtæki geta tekið á
sig með þeim sveigjanleika sem þarf.
Stofnanatengd þjónusta og kerf-
isbundin er í eðli sínu háð takmörk-
unum, lengri boðleiðum og ósveigjan-
leika, þótt ómissandi sé. Með aðkomu
smærri fyrirtækja eins
og Vinunar geta sveit-
arfélög breitt yfir sér-
tækari þjónustu sem
óneitanlega þarf í
kringum langveika ein-
staklinga eins og park-
insonssjúklinga, þung-
lyndissjúklinga og
geðfatlaða, svo dæmi
séu nefnd. Þjónusta við
þessa einstaklinga þarf
að vera sveigjanleg og
koma inn með litlum
fyrirvara þegar þörfin
rís, án þess að sömu
einstaklingar þurfi að
bera aukna fjárhags-
lega byrði. Vinun býður
upp á þennan sveigj-
anleika.
Nú er tíminn til þess
að sporna við ótíma-
bærum innlögnum á
stofnanir og fyr-
irbyggja vandamálin
áður en þau rísa. Auk-
inn sveigjanleiki í þjón-
ustu þar sem þjónustan er sniðin að
einstaklingnum inni á heimilinu en
ekki hentugleika þjónustukerfisins
býður bjartari framtíð öllum þeim
sem búa við skerta færni. Horfa þarf
til lausna þar sem lífsgæði eru metin
ásamt getu fólks til þess að starfa og
vera þátttakendur í samfélaginu.
Sparnaðurinn hefur sýnt sig hjá ná-
grannaþjóðum okkar með slíkum
lausnum og Íslendingar hafa alla
burði til þess að veita þær lausnir og
virða þar með sjálfsögð mannréttindi
allra.
www.vinun.is
Eftir Védísi H. Árnadóttur »Nú er tíminn til
þess að sporna við
ótímabærum innlögnum
á stofnanir og fyrir-
byggja vandamálin
áður en þau rísa.
Védís Hervör
Árnadóttir
Höfundur er markaðs- og
kynningarstjóri Vinunar.
Tækifæri til þróunar samfélagsúrræða –
sveigjanleiki í þjónustu á vegum Vinunar
Stórfréttir
í tölvupósti
Borðstófustólar Verð frá 12.900 krSófaborð í úrvali Verð frá 34.900 kr
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18 og Laugard. frá 11 til 16
327.9
00 kr
Base
l 2H2
Verð
frá
Áklæði að eigin vali
Landsins mesta úrval af sófasettum
Patti Húsgögn
Roma Lux Hornsófi 2H2 Verð frá 252.900 kr
Fusite 6731 - leðursett
Chesterfield leðursett 3+1+1
Rín Hornsófi 2H2 Verð frá 285.900 kr
299.9
00 kr
499.9
00 krVer
ð áðu
r
149.9
00 kr
Sófae
tt 3+1
+1
Verð
frá