Morgunblaðið - 11.09.2010, Side 31
Minningar 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2010
pabba í Reykjavík, hafði talið
Magga og Lóu á það að taka við
mér í sveit, vandalausum og móð-
urlausum borgarstaulanum. Ég
fann það um leið og ég steig yfir
þröskuldinn í Hvammi að ég var
hjá góðu fólki. Dvölin í Hvammi
reyndist mér mikið lífsins happ.
Magnús bóndi var höfðingi í lund
og framgöngu. Lóa var ein besta
manneskja sem ég hef kynnst og
hjá henni var hlýtt og skjól. Hún
burtkallaðist áður en ég náði að
þakka henni fyrir það sem hún gaf
mér. Ég geri það hér með.
Gestrisnin í Hvammi var meiri
en annars staðar. Stundum keyrði
um þverbak og Magnús bóndi gat
ekki heyjað fyrir gestagangi.
Reyndar grunaði mig að hann
hefði meira gaman af gestum en
heyönnum, gestrisnin var honum í
blóð borin. Ég man að eitt sinn
sváfu gestir í 12 rúmum í gamla
bænum en tjaldað var í túninu fyr-
ir þá sem ekki komust fyrir innan-
dyra. Og ekki voru hjónin spör á
matinn. Lóa eldaði en hélt sig að
mestu til hlés meðan Magnús stóð
yfir gestum og sá til þess að eng-
inn kæmist frá borði ósprunginn.
„Hvað er að sjá þetta, ég held þér
veiti ekki af þessu, hvað láttu ekki
svona, éttu,“ sagði Magnús með
þessu yndislega samblandi af
þjósti, spotti og hlýju og otaði að
okkur fatinu. Magnús hafði lag á
því að setja gestinn í öndvegi en
sjálfan sig til hliðar. Allt sem hraut
af vörum gestsins var merkilegt og
tekið undir það með tilþrifum, þó
svo að gesturinn væri ekki annað
en gelgjupiltur úr Reykjavík.
Höfðuborgin hét reyndar öðrum
nöfnum í Hvammi, ýmist Sódóma
og Gómorra eða Stóra Babýlon,
eftir því hver gállinn var á Magn-
úsi. Ég minnist líka samtals Magn-
úsar við veðurfræðingana í sjón-
varpinu. Hann átti þá að
sérstökum vinum og gekk um gólf í
háværum samræðum við þá undir
veðurfréttunum á kvöldin.
Ég var í sveit í Hvammi þrjú
sumur. Sveitin varð mér annað
heimili um nokkurra ára bil og
þangað sótti ég um helgar, jól og
páska, hvert sinn sem færi gafst. Í
Hvammi var mér tekið sem jafn-
ingja frá fyrsta degi og sem einum
úr fjölskyldunni. Ég minnist
Magga og Lóu með þökk og virð-
ingu. Ég sá Magnús bónda í síð-
asta sinn í fyrrasumar þegar ég
leit inn í Hvammi á leið minni aust-
an af fjörðum. Hann var þá orðinn
95 ára en erfitt var að trúa því.
Hann gekk beinn í baki og horfði
hátt. Glettnin og hlýjan í augunum
söm við sig. Áhuginn á mönnum og
málefnum eldheitur sem fyrr en
minnið aðeins farið að slævast.
Blessuð sé minning þín, Magnús,
og ykkar beggja.
Bjarni Bjarnason.
Nú þegar Magnús Sigurjónsson í
Hvammi, Vestur-Eyjafjöllum er
fallinn frá minnist ég hans með
hlýhug og þakklæti. Við Einar nut-
um alltaf mikillar gestristni og
góðvildar á heimili hans í Hvammi,
en þar komum við oft. Einar var
mörg sumur í Hvammi, sem krakki
og unglingur, en þeir voru bræðra-
synir. Þar höfðu framættir þeirra
búið. Þaðan átti hann dýrmætar
minningar. Vinátta við Hvamms-
fólkið var djúp og einlæg alla tíð.
Stóri vinningurinn í lífi Magn-
úsar var elskuleg eiginkona hans,
hún Lóa. Lóa í Hvammi hét Sigríð-
ur Jónsdóttir frá Björnskoti, Vest-
ur- Eyjafjöllum. Hún var einstök,
bæði falleg og góð og mikil mynd-
arhúsmóðir. Þau eignuðust sjö
mannvænleg börn og fjölda afkom-
enda. Hann missti hana alltof fljótt
árið 1981, en hún var ekki nema 64
ára. En þá kom til hans hin ágæt-
asta myndarkona Guðbjörg Helga-
dóttir frá Seljalandsseli, Vestur-
Eyjafjöllum, og bjuggu þau saman
í Hvammi þar til hún féll frá árið
1998. Eftir það bjó hann einn þar
til hann fór í hárri elli á Lund á
Hellu.
Magnús var félagsvera, mikið
snyrtimenni og mikill gestgjafi,
enda komu margir að Hvammi
bæði skyldir og vandalausir. Hann
hafði yndi af ferðalögum. Alltaf
skoðaði hann og íhugaði hvernig
hús og mannvirki voru byggð. Það
var gaman að heyra hann lýsa því,
í smáatriðum og gæða frásögnina
lífi. Hann var góður smiður og
byggði upp í Hvammi. Hann vann
líka utan heimilis við smíðar og
mannvirkjagerð.
Ég þakka Magnúsi í Hvammi
samfylgdina á lífsleiðinni og bið
börnum hans og afkomendum
blessunar í framtíðinni.
Margrét Sigurðardóttir.
Kæru vinir okkar á Íslandi.
Við samhryggjumst innilega
vegna fráfalls ættföðurins Magn-
úsar frá Hvammi. Við erum harmi
slegin við þessar sorgarfréttir af
okkar kæra vini og góðu mann-
eskju, Magnúsi Sigurjónssyni.
Minningarnar um einn vand-
aðasta fulltrúa Íslendinga mun lifa
með okkur og börnum okkar um
ókomna tíð.
Kær kveðja frá Rússlandi,
Alfred og
Tatyana Heptner.
Þjóðir rísa. Þjóðir falla. Sumar
deyja á meðan aðrar fæðast. Í tím-
ans rás fræðir sagan okkur um ör-
lög þjóða. En hversu oft hófst fall
þjóða, siðferðislegt eða efnahags-
legt, ekki í einhverjum darraðar-
dansi? Í dansi, þar sem þær
gleymdu uppruna sínum, gleymdu
þeim gildum, sem gert höfðu þær
að þjóð.
Ég sótti Magnús Sigurjónsson í
Hvammi heim í hvert skipti, er ég
kom til Íslands þá áratugi, sem ég
bjó erlendis. Ekki aðeins vegna
þess að Magnús var höfðingi heim
að sækja og allra manna hugljúfi.
Ekki aðeins vegna þess að hann
var heimsborgari, án þess að hafa
þurft að ferðast um allar heimsins
borgir, sem með sinni einlægri for-
vitni og frásagnargáfu gat haldið
uppi samræðum við hvern sem er,
hvaðan sem hann kom, hverrar
trúar sem hann var, án fordóma.
Ég var stoltur af því að þekkja
Magnús og kynna hann fyrir vinum
mínum og gestum. Því fyrir mér
var hann og mun alltaf vera Ís-
lendingurinn í okkur, sem við meg-
um aldrei gleyma.
Ég votta frændfólki mínu frá
Hvammi og aðstandendum þess
mína dýpstu samúð.
Guð blessi minningu Magnúsar í
Hvammi.
Eyþór Eyjólfsson.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Kveðja frá fyrrverandi samstarfskonum,
Kristfríður, Jóhanna Steinunn,
Hraundís og Sigríður.
✝ Ulrike Kimpfler fæddist í Suður-Þýskalandi.
Útför Ulrike fór fram frá Reyk-
holtskirkju, Borgarfirði 30. ágúst 2010.
Ulrike Kimpfler
MOSAIK Hamarshöfða 4 - 110 Reykjavík
sími 587 1960 - www.mosaik.is
Legsteinar og fylgihlutir
Vönduð vinna og frágangur
Yfir 40 ára reynsla
Sendum myndalista
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, stjúpfaðir,
tengdafaðir, bróðir, afi og langafi,
HAUKUR HARALDSSON
mjólkurfræðingur
frá Húsavík,
Mýrarvegi 115,
Akureyri,
lést á Sjúkrahúsi Akureyrar 4. september.
Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn
14. september kl. 10.30.
Jarðsett verður í Húsavíkurkirkjugarði.
María Sigríður Þórðardóttir,
Guðný María Hauksdóttir, Teitur Bergþórsson,
Jóhannes Haukur Hauksson, Ásdís Melsted,
Þórður Gunnar Sigurjónsson, Birgitta Lúðvíksdóttir,
Steinn Oddgeir Sigurjónsson, Áslaug Stefánsdóttir,
Sigmundur Sigurjónsson,
Ingi Rúnar Sigurjónsson, Hildur Salína Ævarsdóttir,
Guðmundur Sigurjónsson, Bryndís Viggósdóttir,
Sigurður Haraldsson, Kristín Haraldsdóttir,
afa- og langafabörn.
✝
Ástkær frænka okkar,
SIGRÚN ÁSTRÓS SIGURÐARDÓTTIR
sníða- og kjólameistari,
sem lést mánudaginn 6. september á Hrafnistu í
Reykjavík, verður jarðsungin frá Áskirkju
miðvikudaginn 15. september kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jóna Þorleifsdóttir,
Erna Bryndís Halldórsdóttir,
Sigrún Pálína Sigurpálsdóttir.
✝
Ástkær eiginmaður minn, sonur minn, bróðir og
tengdasonur,
AÐALSTEINN FRIÐJÓNSSON,
Hjallalundi 18,
Akureyri,
varð bráðkvaddur föstudaginn 3. september.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn
15. september kl. 13.30
Kolbrún Sigurðardóttir,
Ragna Aðalsteinsdóttir,
systkini, tengdaforeldrar
og aðrir aðstandendur.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
HALLDÓRA GUNNARSDÓTTIR
sálfræðingur,
lést sunnudaginn 5. september í Gautaborg.
Útför hennar fer fram frá St. Birgittas Kapell í
Gautaborg, föstudaginn 17. september kl. 13.00.
Bjarni Arngrímsson,
Edda Bjarnadóttir, Ulf Karlquist,
Friðrik Bjarnason,
Arngrímur Bjarnason, Susanne Isaksson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐRÚN ALEXANDERSDÓTTIR,
Ási,
Hveragerði,
áður Íragerði,
Stokkseyri,
lést miðvikudaginn 8. september.
Útförin fer fram frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn
18. september kl. 14.00.
Jón Hallgrímsson,
Ragnheiður Hallgrímsdóttir, Birkir Pétursson,
Guðný Hallgrímsdóttir,
Alexander Hallgrímsson, Guðbjörg Birgisdóttir,
Helga Hallgrímsdóttir, Jóhann Þórarinsson,
Benedikt Hallgrímsson, Hulda Bjarnadóttir,
Sigríður Hallgrímsdóttir, Brynjar Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.