Morgunblaðið - 11.09.2010, Qupperneq 42
42 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2010
Og meira RIFF því Íslendingur
sá um kvikmyndatöku í tékknesk/
þýsk/slóvösku kvikmyndinni 3
Seasons in Hell sem sýnd verður á
hátíðinni, Karl Óskarsson. Sögusvið
myndarinnar er Prag árið 1947 og
segir af nítjan ára gömlum dreng,
Ivan Heinz, sem strýkur að heiman
til að helga sig frelsinu, listinni og
byltingarkenndum stjórnmálum.
Hann hittir glæsilega og heillandi
konu, hina tvíkynhneigðu Jönu, og
hefst með þeim eldheitt og hættu-
legt ástarsamband. Er komm-
únistar taka við stjórnartaumunum
verða óvæntir atburðir.
Stiklu úr myndinni má sjá á vef
hennar, 3seasonsinhell.com/ og
jafnframt myndband um gerð
hennar.
Karl Óskarsson mynd-
aði 3 Seasons in Hell
Fólk
Það verða Hjálma-jól í ár því væntanleg er bók
með myndum ljósmyndarans Gúnda, Guð-
mundar Vigfússonar, af hljómsveitinni en henni
mun fylgja plata með áður óútgefnum lögum
Hjálma. Guðmundur Kristinn Jónsson, eða Kiddi
Hjálmur eins og hann er oft nefndur, segir
Gúnda hafa fylgt sveitinni allt frá því hún var
stofnuð. „Gúndi var alltaf með okkur í Fálkum í
gamla daga og svo fara hann og Siggi út í nám,
hann fer í grafíska hönnun en Siggi í ljós-
myndum. Svo snýst þetta einhvern veginn við og
hann fær áhuga á ljósmyndun. Svo þegar Hjálm-
ar byrja er hann í vinahópnum og hefur fylgt
okkur alveg frá því að Hjálmar byrjuðu,“ segir
Kiddi. „Allt í einu föttuðum við að við værum
komnir með gott ljósmyndasafn frá öllu tíma-
bilinu og langaði að gefa þetta út, koma þessu á
bók.“ Í bókinni verður m.a. að finna ljósmyndir
af Hjálmum í hljóðveri og á Jamaíku. Ólafur Páll
Gunnarsson, útvarpsmaður á Rás 2, mun rita
texta bókarinnar og segir Kiddi að bókin eigi að
vera í stærð vínylplötuumslags og að henni muni
fylgja plata, vonandi vínylplata. „Við eigum lög
sem við höfum gert í gegnum tíðina sem hafa
ekki farið á plöturnar okkar, t.d. Mugison-lagið
og lag sem við gerðum með Dísu, við gerðum
Stuðmanna-cover-lag sem átti að fara á Stuð-
manna-tribute-plötu sem varð aldrei af. Svo eru
„out takes“ frá Jamaíku sem við kláruðum núna,
sem verða á plötunni,“ segir Kiddi. Stefnt er að
útgáfu í október og upplagið um 2-3.000 eintök.
helgisnaer@mbl.is
Hjálmar í tónum og myndum
Ljósmynd/Gúndi
Á Nasa Trommarinn Nils „Nisse“ Törnqvist.
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í
Reykjavík, RIFF, hefst 23. sept-
ember nk. og verður haldin opn-
unarhátíð í Þjóðleikhúsinu að
kvöldi þess dags. Veislustjóri og
kynnir verður uppistandarinn Ari
Eldjárn en Ari ku vera mikill kvik-
myndaáhugamaður, með gráðu í
handritaskrifum frá London. Borg-
arstjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr,
setur hátíðina.
Þá segir í tilkynningu vegna
þessa að vel valinn einstaklingur
verði fenginn til þess að halda hina
árlegu „hátíðargusu“ en þá er
manneskja tengd kvikmyndageir-
anum fengin til að hella úr skálum
reiði sinnar í ræðu. Opnunarhátíð-
inni lýkur með sýningu á opn-
unarmynd RIFF, bandarísku gam-
anmyndinni Cyrus. Kvikmynd mun
ekki hafa verið sýnd í Þjóðleikhús-
inu um langt skeið. Að kvikmyndar-
sýningu lokinni verður efnt til opn-
unarhófs í Þjóðleikhúskjallaranum
og fagnað fram eftir nóttu. Hátíð-
inni lýkur 3. október en dagskrá
hennar má kynna sér á riff.is.
Opnunarhátíð RIFF
í Þjóðleikhúsinu
Hinn mjög svo ágæta öfgarokks-
sveit Gordon Riots mun halda sína
lokatónleika í kvöld á Faktorý (áð-
ur Grand Rokk) ásamt We Made
God og At Dodge City. Gordon
Riots hafnaði í þriðja sæti Músíktil-
rauna árið 2007 og strax um sum-
arið kom út stuttskífa, hin stórgóða
Witness the Weak Ones. Í fyrra
kom svo út breiðskífan Dirt’n-
’Worms. Takk fyrir rokkið, strákar,
þið stóðuð ykkur vel!
Gordon Riots kveður
á Faktorý í kvöld
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Kristján Freyr Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Kima á Íslandi, situr
og fer í gegnum diska á lager Kima er
blaðamaður heilsar upp á hann. Til-
efnið er þriggja ára afmæli þessarar
merku útgáfu sem hóf starfsemi árið
2007 og hefur síðan þá sáð fræjum af
miklu kappi í frjóan svörð íslensks
tónlistarlífs.
„Það er nokkuð magnað að standa í
fyrirtækjarekstri á þessum tímum,“
segir Kristján kankvís. „Það er nokk-
urs konar ástar/haturssamband við
netið í tónlistarbransanum t.d. og en
er ekki búið að smíða eitthvert líkan
sem getur látið netvæðingu tónlistar
ganga vel upp með fjármálakerfinu.
Menn setja sig annað hvort í stell-
ingar Stóra bróður eða fara á hnén og
biðja um aur, setja svokallaða sam-
viskulása á tónlistina.“
Lausnir
Kristján tók við framkvæmda-
stjórastöðu fyrirtækisins hér á Ís-
landi í liðnum febrúar en útgefandinn
og eigandinn, Baldvin Esra, býr í
Belgíu þar sem hann plottar heims-
yfirráð fyrirtækisins. Þessi lýsing
blaðamanns er ekki nema að hálfu
leyti í gríni því að atorka Baldvins og
hans fólks er slík að allt getur gerst.
Kristján segir að hvað netið varðar
séu Kima-menn að vinna að haldbæri
lausn, reyna að „miðja“ þetta mál
eins og hann orðar það.
„Fyrst og síðast viljum við vera í
góðu samstarfi við listamennina. En
það þarf að vera grundvöllur sem sér
til þess að allir fái eitthvað fyrir sinn
snúð. Það eru til ýmsar gáttir og form
við sölu tónlistar og við erum að vinna
með veffróðum mönnum við að kokka
upp einhverjar lausnir og leiðir.“
Hrifinn
Í haust eru m.a. væntanlegar plöt-
ur með Benna Hemm Hemm þar sem
Retro Stefson sér um undirleikinn,
nýtt efni frá Sin Fang Bous, nú bara
Sin Fang er líka á leiðinni og fyrsta
breiðskífa rokksveitarinnar Swords
of Chaos er bráðkomandi. Einnig má
vænta frekara efnis frá hinu bráð-
skemmtilega hliðarmerki Brak en
næsta plata er með sveit/verkefni
sem kallar sig Just another snake
cult. Hin stórgóða sveit Nolo
hefur og verið „hækkuð í tign“
og gefur út næstu plötu sína á
vegum Kimi.
„Einnig erum við að vinna
að framleiðslu Backyard
myndarinnar sem er að
koma í bíó í næstu viku, og
erum að flytja inn fullt af
erlendri snilld eins og frá
Morr, Touch og Drag city.
Svo erum við að flytja út
okkar lsitamenn og
dreifa þeim í Evrópu og
Ameríku. Við erum
afskaplega stoltir
af öllu stöffinu sem
við gefum út og þeim frábærum við-
tökum sem við höfum fengið!“
Í fyrra var stofnað annað und-
irmerki, Borgin, sem leitaði inn á
markaðsvænni mið með útgáfum á
plötum Hjaltalín og Hjálma m.a.. Það
merki er nú í launalausu leyfi eins og
Kristján orðar það.
„Borgin var samstarf þriggja
manna, Baldvins, Guðmundar Krist-
ins Jónssonar (Kiddi Hjálmur) og
Steinþórs Helga Arnsteinssonar.
Þetta gekk mjög vel en svo komu upp
mismunandi hugmyndir um hvert
ætti að taka þetta merki þannig að
það er í salti eins og er.“
Kristján, sem starfaði lengi vel í
bókabransanum, segist hafa hrifist af
því hvernig Baldvin hafi háttað sínum
útgáfumálum og því slegið til er Bald-
vin bauð honum starf.
„Hann var að bjóða upp á fleiri
leiðir til að koma tónlist út til fólksins
auk þess sem hann hefur mjög
skemmtilegt og hispurslaust viðhorf
til þessara mála. Hann nálgaðist
sveitir t.d. og bauðst einfaldlega til að
sjá um excel-hliðina á útgáfumál-
unum, leiðinlegu hlutina, en tónlist-
armönnum hættir til að vera mjög lé-
legir á það ágæta forrit. Baldvin er
hins vegar mjög góður í excel (hlær
við).“
Ekkert rugl hjá Kima
Kimi Records fagnar 3ja ára afmæli í Havaríi í dag „Fyrst og síðast
viljum við vera í góðu samstarfi við listamennina,“ segir framkvæmdastjóri
Orka Swords of Chaos eru á meðal þeirra sveita sem eru á mála hjá Kima. Plata þeirra kemur út nú eftir helgi.
Afmælisdagur Kima verður hald-
inn hátíðlegur í Havaríi í dag.
Hljómsveitirnar Reykjavík!,
Morðingjarnir og Nolo munu
leika þar fyrir gesti milli 14-
17. Að sjálfsögðu verða
í boði afmælisveit-
ingar. Í tilefni af af-
mælinu verður efnt
til sérstakrar af-
mælisútsölu í
kjallara Havarís á
geisladiskum, vín-
ylplötum og öðrum
varningi (aðallega bol-
um). Þar verður hægt
að fylla á plötusafnið á
kostakjörum eins og
Kima-liðar orðar það.
Kimi Records hefur ver-
ið starfandi síðan á
haustmánuðum 2007
og gefið út jaðarmúsík af ýmsum
stærðum og gerðum. Stofnandi er
Baldvin Esra Einarsson og óhætt
að segja að fyrirtækið hafi vaxið
og dafnað síðan. Kimi dreifir einn-
ig plötum fyrir fjölmargar útgáfur
(innlendar sem erlendar) og tón-
listarmenn á Íslandi. Kimi Records
hefur einnig staðið að útgáfu á er-
lendum mörkuðum og hefur gefið
út níu plötur í Evrópu og Banda-
ríkjunum. Á næstu mánuðum
koma tvær til viðbótar. Fyrirtækið
rekur einnig menningarmiðstöðina
Havarí í samvinnu við Svavar Pétur
Eysteinsson og Berglindi Häsler
(úr Skakkamanage) og sinnir tón-
leikahaldi og öðrum viðburðum.
Félagið er með aðstöðu í miðborg
Reykjavíkur og útjaðri Gent í Belg-
íu en hóf starfsemi í höfuðstað
Norðurlands, Akureyri.
Tónleikar, markaður,
glens, grín og fullt, fullt meira
ÉG ER ÞRIGGJA ÁRA Í DAG!
Framkvæmdastjórinn
Kristján Freyr
Halldórsson.