Morgunblaðið - 11.09.2010, Síða 43
Menning 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2010
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 564 0000
16
16
12
L
L
L
12
16
14
L
SÍMI 462 3500
16
12
L
L
16
RESIDENTEVIL:AFTERLIFE kl. 8-10
THEOTHERGUYS kl. 2(600kr.) 4-8-10
AULINNÉG 3D kl. 2(900kr.)-4
DESPICABLEME3D kl. 6
THEEXPENDABLES kl. 6
SÍMI 530 1919
16
12
L
L
L
18
16
RESIDENTEVIL:AFTERLIFE 3D kl. 6.15-8.30-10.30
THEOTHERGUYS kl. 3-5.30-8-10.30
THEFUTUREOFHOPE kl. 2-4-6-8.30
AULINN ÉG 3D kl. 2*(1100kr.) 4.10-6.15
AULINN ÉG 2D kl. 2*(650kr.) 4.10
THE HUMAN CENTIPEDE kl. 10.20
THEEXPENDABLES kl. 8-10.20
RESIDENTEVIL: AFTERLIFE3D kl. 5.50-8-10.10
RESIDENTEVIL: AFTERLIFE3D LÚX kl. 1.30-3.40-5.50-8-10.10
THEOTHER GUYS kl. 3.10-5.30-8-10.30
DESPICABLEME3D kl. 1*(950kr.) 3.40-8
AULINN ÉG 3D kl. 1*(950kr.) 3.20-5.50
AULINN ÉG 2D kl. 1(650kr.) 3.20
SCOTTPILGRIM VS THEWORLD kl. 5.30-8
THEEXPENDABLES kl. 10.10
SALT kl. 10.30
KARATEKID kl. 1(650kr.)
.com/smarabio
**Gleraugu innifalin
* Gleraugu seld sér
Sýnd kl. 4, 8 og 10 (3D) - enskt tal
Sýnd kl. 2(650kr), 4, 6 (2D) - íslenskt tal
Sýnd kl. 2(950kr), 4, 6 (3D) - íslenskt tal
ÍSLENSKT TAL
VINSÆLASTA MYNDIN
Á ÍSLANDI Í DAG!
Á heildina litið er Aulinn
ég 3D einstaklega vel
heppnuð teiknimynd sem
hentar ekki einungis
börnum, heldur öllum
aldurshópum.
H.H. - MBL
Sýnd kl. 5:50, 8 og 10:15
Sýnd kl. 8 og 10 (POWERSÝNING)
STEVE CARELL
POWE
RSÝN
ING
Á STÆ
RSTA
DIGIT
AL
TJALD
I LAN
DSINS
KL. 10
Sýnd kl. 1:50(650kr)
„Mikið er nú gaman að geta
loks hlegið innilega í bíó“
-H.S.S., MBL
-bara lúxus
Sími 553 2075
www.laugarasbio.isTilboð í bíó GILDIR Á ALLARSÝNINGAR MERKTARMEÐ RAUÐU
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
Bókaverslunin Útúrdúr hefur hafið sölu á tímaritinu FUKT
en blaðið sérhæfir sig í nútímalegum teikningum í víðum
skilningi. Ingvar Högni Ragnarsson, einn eigenda Útúrdúrs,
segir tímaritið vera veglega viðbót við tímaritaflóru verslunar-
innar. „Útúrdúr er í samstarfi við útgáfufyrirtæki víða erlend-
is og áhugi var fyrir hendi að gefa tímaritið út á Íslandi. Við
slógum bara til,“ segir Ingvar.
Ritstjórinn Björn Hegart og hönnuður blaðsins, Ariane
Spanier, voru stödd í Útúrdúr í gær þar sem þau kynntu tíma-
ritið og eldri tölublöð fyrir gestum og gangandi. Uppákoman
er liður í kynningarferð tímaritsins um Evrópu og munu að-
standendur blaðsins enda ferðalagið í New York í nóvember.
Í nýjasta tölublaðinu voru þrettán myndlistarmenn og rit-
höfundar fengnir til aðstoðar við að velja listamenn sem
kynntir eru í blaðinu. „Þetta heppnaðist mjög vel og margir
nýir listamenn voru uppgötvaðir sem tilheyrðu kannski ekki
beint þessum geira,“ segir Ingvar.
Tímaritið er gefið út hjá útgáfufyrirtækinu Revolver í Berl-
ín og hefur komið út frá árinu 2000.
Nútímalegar
teikningar
Tímaritið FUKT í Útúrdúr
Heimildarmyndin (eða gerviheimild-
armyndin) I’m Still Here fær skelfi-
lega útreið í umfjöllun fréttavefjar-
ins Slate. Segir í upphafi greinar að
það versta við myndina sé að hún sé
til. Þá skipti litlu hvort um gervi-
heimildarmynd sé að ræða eða ekki.
Leikstjórinn Casey Affleck hafi
ákveðið að gera myndina með mági
sínum Joaquin Phoenix, sem er um-
fjöllunarefni myndarinnar en um
það segir í greininni að sjálfstortím-
ing Phoenix, eiturlyfjanotkun og
andlegir erfiðleikar, hafi verið nýtt
sem umfjöllunarefni í grínheimild-
armynd og því sé erfitt að kyngja.
Höfundur greinarinnar, Dana Ste-
vens, segir greinilegt að Phoenix sé
kolruglaður og þjáður maður, mynd-
in sé „óþverraskrásetning“.
Phoenix „kolruglaður“
Útreið Phoenix er tekinn í gegn á Slate sem og leikstjórinn Affleck.
Hluti sýningar listakonunnar Yoko
Ono í galleríinu Haunch of Venison í
Berlín hefur vakið þó nokkra athygli
erlendra fjölmiðla: stór gluggarúða
með gati í eftir byssukúlu. Ono segir
verkið eiga að vekja áhorfendur til
umhugsunar um hið mikla ofbeldi og
misþyrmingar sem finna megi í
heiminum. Sýning Ono ber yfir-
skriftina Das Gift, en þar leikur hún
sér með ensku og þýsku, því orðið
gift þýðir gjöf á ensku en eitur á
þýsku. Ono segir ætlunina að fá
gesti til að horfast í augu við ofbeldi
en þó án þess að glata voninni.
Rúðuverkið ber heitið „The Hole“,
eða „Gatið“. Sýningin stendur til 13.
nóvember.
Gjöf og eitur
Yoko Ono
Gatið Ono fyrir aftan verk sitt.