Morgunblaðið - 11.09.2010, Side 48
LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 254. DAGUR ÁRSINS 2010
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 590 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Pabbi Völu Grand í uppákomu
2. Á gjörgæslu eftir vinnuslys
3. Ástardýnan slær í gegn
4. Jóhanna beitti þrýstingi
Hjálmar halda í
kvöld óvænta tón-
leika á Sódómu
Reykjavík. Húsið
verður opnað kl.
22.30 og hefur
reggísveitin leik
upp úr miðnætti. Í
október er væntanleg ljósmyndabók
með myndum af Hjálmum og mun
henni fylgja plata með áður óútgefn-
um lögum hljómsveitarinnar, m.a.
lögum sem hún tók upp á eyjunni Ja-
maíku í fyrra.
Tónleikar Hjálma,
bók og plata
Sýningar á hinum vinsæla gam-
anleik Harry og Heimir hefjast að
nýju í Borgarleikhúsinu á morgun. Í
verkinu leika Karl Ágúst Úlfsson, Örn
Árnason og Sigurður Sigurjónsson en
verkið er byggt á samnefndum fram-
haldsþáttum sem fluttir
voru á Bylgj-
unni 1988-
92. Þeir
þættir hafa
verið gefn-
ir út í
pakka á
fjórum
geisla-
plötum.
Harry og Heimir
aftur á fjalirnar
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg vestlæg eða breytileg átt og sums staðar skúrir, en léttir
heldur til um landið austanvert seint í dag. Hiti 8 til 17 stig, svalast við austurströndina.
Á sunnudag Suðaustan 8-15 m/s og rigning, en hægari NA-lands og þurrt fram undir
kvöld. Hiti 8-16 stig.
Á mánudag Hæg breytileg átt og víða skúrir. Heldur kólnandi veður.
Á þriðjudag og miðvikudag Hvöss norðanátt með rigningu fyrir norðan og austan.
Eyjamenn og KR-ingar mætast í stór-
leik helgarinnar í fótboltanum á
morgun þegar 19. umferðin verður
leikin. „Við horfum á stöðuna þannig
að við getum komið okkur í alveg dýr-
lega stöðu með sigri,“ segir Heimir
Hallgrímsson þjálfari ÍBV. Rúnar
Kristinsson þjálfari KR segir að sitt
lið haldi sér í titilbaráttunni með sigri
í Eyjum. »4
Stórleikur helgarinnar
fer fram í Eyjum
Landsbyggðin er með
örugga forystu gegn liði
höfuðborgarinnar í „ís-
lenska Ryder-bikarnum“ í
golfi, en fyrri keppnisdag-
urinn var á Korpúlfsstaða-
velli í gær. Staðan er 9:3,
landsbyggðarmönnum í
hag. Þeim nægir að vinna
þrjá leiki af tólf í tvímenn-
ingi í dag til að bera sigur úr
býtum í keppninni annað ár-
ið í röð. »1
Landsbyggðin
stefnir í sigur
Rúnar Kárason, landsliðsmaður í
handknattleik, lék í gærkvöld síðasta
leik sinn með þýska liðinu Füchse
Berlín. Strax í dag spilar hann fyrsta
leikinn með nýju liði, Bergische, og er
þar kominn á fornar Íslendingaslóðir.
„Ég er viss um að
skiptin eru rétti
leikurinn í
stöðunni hjá
mér,“ segir
Rúnar Kára-
son. »3
Með tveimur liðum
á tveimur dögum
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Réttadagurinn
er mikilvægur
fyrir samfélagið.
Fjölskyldurnar
hittast. Börnin
koma heim til að
hjálpa til og vera
með störfunum,“
segir Steinar
Halldórsson í
Auðsholti, fjall-
kóngur Hrunamanna.
Mikil stemning var í Hrunaréttum í
gær, eins og venjulega. Fjöldi fólks
mætti, enda blíðskaparveður.
Mikil breyting hefur orðið á yf-
irbragði réttastarfanna frá því Stein-
ar var að alast upp. „Bændurnir komu
til að draga féð og með aðstoðarfólk
með sér. Núna kemur fullt af fólki,
heilu rúturnar, bara til að fylgjast
með og hitta annað fólk. Það er mikil
menning í kringum þetta,“ segir
Steinar. Heima á bæjunum er víða
elduð kjötsúpa sem dugar fyrir tugi
manns.
Sömu andlitin ár eftir ár
Steinar getur þess að þrjátíu og
tveir hafi farið til smölunar afréttar
og svo margir hafi riðið á móti að ná-
lægt hundrað manns hafi rekið féð
síðasta spottann í réttirnar.
„Það er mikil hjálp í þessu fólki.
Það sér að maður er kominn með kind
í klofið og í sitt hvora höndina og kem-
ur manni til hjálpar,“ segir Steinar
sem var að draga fé sitt í gær þegar
samtalið fór fram.
Sömu andlitin sjást ár eftir ár,
mönnum finnst nauðsynlegt að kom-
ast í réttir, og það eru ekki aðeins
stjórnmálamenn sem vilja blanda
geði við kjósendur. Sumir koma
langt að. Dagbjartur Einarsson
útgerðarmaður úr Grindavík er
fastagestur og Steinar bjóst við
því að hann færi að bresta í
söng fyrst Árni Johnsen væri
mættur. „Það var farið að syngja
miklu meira eftir að Árni fór að venja
komur sínar hingað. Hann kemur
með söngtextana og drífur fólk með
sér,“ segir Steinar.
Tæplega sex þúsund fjár komu af
fjalli að þessu sinni. Það er tæpur
helmingur þess fjár sem kom í
Hrunaréttir fyrst þegar Steinar man
eftir sér. Raunar er töluvert af fé í
heimahögum, sem ekki er rekið á af-
rétt. Esther Guðjónsdóttir í Sól-
heimum, formaður landbúnaðar-
nefndar Hrunamannahrepps, segir
að aðeins sé að fjölga aftur. Nýir
sauðfjárbændur bætast við með tíu til
tuttugu ær og sumir þeirra sem fyrir
voru auka við sig. „Það er gleðilegt að
fé sé farið að fjölga á ný,“ segir hún.
Hrunaréttir eru orðnar lélegar og
nú hefur verið ákveðið að byggja nýj-
ar. Byrjað verður á verkinu í haust.
„Fólk kemur manni til hjálpar“
Réttadagurinn
er mikilvægur fyr-
ir sveitasamfélagið
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Útigangsfé Systkinin frá Syðra-Langholti, þau Haukur Már, Hugrún Jóna og Árni Þór Hilmarsbörn, heimtu af
fjalli þrjár kindur sem gengið höfðu úti sl. vetur. Kindanna hafði verið leitað töluvert í fyrrahaust.
Steinar
Halldórsson
Ný Hrunarétt verður að hluta til byggð úr stuðlabergi.
Esther Guðjónsdóttir, ritari Sauðfjárræktarfélags Hruna-
manna, segir að hún verði fallegt mannvirki og geti orðið
aðdráttarafl fyrir ferðafólk.
Almenningurinn verður hlaðinn úr stuðlabergs-
dröngum úr námu í Hrepphólum en dilkarnir
smíðaðir úr járni. Eyktamörkin verða sýnd
með hærri steinum í veggnum. Í miðju al-
menningsins er stærsti drangurinn,
rúmlega þriggja metra hár. Hann hefur
þegar verið reistur og var flaggað á
honum í gær. Síðast var flaggað í
Hrunarétt fyrir 56 árum þegar
gamla réttin var tekin í notkun.
Mörk sýnd milli eykta
NÝ RÉTT ÚR STUÐLABERGI
Esther
Guðjónsdóttir
Forsala á tónleika Yoko Ono Plastic
Ono Band í Háskólabíói laugardaginn
9. október hófst í gærmorgun kl. 10 á
vefnum midi.is og seldist upp á tón-
leikana á augabragði.
Uppselt á Yoko Ono
Plastic Ono Band