Morgunblaðið - 13.09.2010, Síða 12
12 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2010
fljótlegt og gott
ÓDÝRT
OG GOTT
kr.
kg399
Ódýrt kjötfars
Frummælendur verða:
• Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands
• Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express
• Hallbjörn Karlsson, fjárfestir
Að loknum framsögum verður opið fyrir fyrirspurnir og umræður.
Fundarstjóri: Andrés Magnússon,
framkvæmdastjóri SVÞ.
Þátttökugjald kr. 2.000,
morgunverður innifalinn.
Skráning: svth@svth.is
eða í síma 511 3000.
Fjárfestingarstefna Framtakssjóðs Íslands
Hvernig eiga lífeyrissjóðirnir að koma að
uppbyggingu atvinnulífsins?
SVÞ boðar til opins morgunverðarfundar fimmtudaginn 16. september
kl. 8:30 í Gullteig B, Grand Hóteli Reykjavík
Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri
Glitnis, beitti áhrifum sínum innan
lánanefndar bankans til að auka lán-
veitingar til félaga tengdra eigend-
um bankans. Þetta sagði Alexander
K. Guðmundsson, fyrrverandi fjár-
málastjóri bankans, í eiðsvarinni yf-
irlýsingu sinni sem lögð var fyrir
dómstól í New York. „Að auki varð
mér ljóst að einhver utan innsta
hrings Weldings í bankanum hafði
mikil áhrif á þankagang hans,“ segir
í yfirlýsingunni. Jafnframt segir
hann að oft hafi Lárus skipt um
skoðanir á málum yfir helgi, sem af-
greidd höfðu verið innan bankans
vikuna áður. Alexander nefnir að
hann hafi talið Lárus of tengdan eig-
endum bankans og að bankinn hafi
undir hans stjórn lánað of mikið til
tengdra aðila – Baugs, FL Group og
annarra fjárfestingafélaga. Alexand-
er segist hafa rætt þessar lánveit-
ingar ítrekað við Lárus. Meðal
þeirra skjala sem finna má á vef-
svæði dómstólsins í New York er
samkomulag milli Alexanders og
slitastjórnarinnar, þess efnis að
slitastjórnin muni ekki standa að eða
höfða einkamál á hendur Alexander,
í skiptum fyrir þær upplýsingar sem
hann hefur veitt . thg@mbl.is
Segir eigendur hafa
beitt Lárus þrýstingi
Lánveitingar til tengdra aðila óeðlilegar
geirs má ráða að hann hafi séð fyrir
sér að sameina þær eignir sem
Baugur átti ennþá, og þær sem
bankinn hafði keypt af fyrirtækinu, í
nýtt félag. Það gekk hins vegar ekki
eftir, sem kunnugt er. Í febrúar 2009
fór Baugur í greiðslustöðvun og í
næsta mánuði var félagið tekið til
gjaldþrotaskipta.
Neitar að hafa stýrt Glitni
Í júní 2007 varð Jón Ásgeir stjórn-
arformaður FL Group, og Pálmi
Haraldsson varaformaður stjórnar.
Jón hafnar því að sú breyting hafi
markað endanlega valdatöku í Glitni,
eins og Steinunn Guðbjartsdóttir,
formaður slitastjórnar Glitnis, hefur
orðað það. „Þetta er einfaldlega ekki
rétt. Ég sat ekki stjórnarfundi
[innsk.: Glitnis], fundi fjárfestinga-
eða áhættunefndar bankans. Al-
mennt ræddi ég ekki við bankann
fyrir hönd Baugs Group eða dóttur-
fyrirtækja. Starfsmenn þeirra fyrir-
tækja sáu um slíkt. Ég þekkti hr.
Welding ágætlega, og var í aðstöðu
til að senda honum tölvupóstskeyti
með ábendingum um viðskiptatæki-
færi. Ég stýrði hins vegar aldrei
rekstri bankans,“ segir í vitnisburð-
inum. Máli sínu til stuðnings bendir
Jón Ásgeir á að snemma árs 2008
hafi Glitnir neitað Baugi Group um
lán til að fjármagna yfirtökuna á Wo-
olworths, breskri verslanakeðju.
Sakar aðra um öfund
Jón Ásgeir ræðir tilurð Baugs-
málsins frá árinu 2005 í vitnisburði
sínum. Þar segir að hann að ákær-
urnar hafi átt rætur sínar í annarleg-
um og pólitískum hagsmunum, og að
þeim hafi verið ætlað að eyðileggja
mannorð hans og Baugs. „Þar sem
ég hafði áorkað meira en nokkur
annar athafnamaður eða stjórnmála-
maður á Íslandi voru margir, sem
valdið höfðu, öfundsjúkir vegna þess
árangurs sem ég hafði náð.“
Skuldir Baugs voru
langt umfram eignir
Jón Ásgeir neitar því að hafa haft áhrif á rekstur Glitnis
Glitnir Jón Ásgeir segir að hann hafi ekki reynt að stýra rekstri bankans, en
hafi þó sent bankastjóranum tölvupóstskeyti með viðskiptahugmyndum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
FRÉTTASKÝRING
Þórður Gunnarsson
thg@mbl.is
Um það leyti þegar Glitnir, Kaup-
þing og Landsbankinn lentu í fangi
ríkisins í október 2008 námu heild-
arskuldir Baugs Group 1,4 milljörð-
um punda. Eignir fyrirtækisins voru
hins vegar metnar á aðeins 536,5
milljónir punda. Þetta kemur fram í
vitnisburði Jóns Ásgeirs Jóhannes-
sonar fyrir dómstóli í Bretlandi,
vegna málsóknar slitastjórnar Glitn-
is á hendur fyrrverandi eigendum og
stjórnendum bankans. Jón bendir á í
vitnisburði sínum að skuldir Baugs
Group hjá hinum nýríkisvæddu
bönkum hafi samtals verið 1,1 millj-
arður punda, en skuldir hjá öðrum
bönkum en þeim hafi numið 280
milljónum punda. Eignastaða Baugs
var því neikvæð um 920 milljónir
punda við hrunið. Af þessu má ráða
að félagið hafi verið ógjaldfært
nokkru fyrir hrunið, þó svo að eigna-
hlutur fyrirtækisins í Stoðum, áður
FL Group, hafi höggvið stórt skarð í
efnahagsreikning félagsins, en sem
kunnugt er var FL Group kjölfestu-
fjárfestir í Glitni, en sú eign strok-
aðist vitanlega út þegar FME tók
bankann yfir. Raunar hefur komið
fram að skiptastjóri Baugs hyggist
sýna fram á að fyrirtækið hafi verið
ógjaldfært snemma á árinu 2008,
ákveðnum riftunarmálum sem
þrotabúið hefur höfðað til stuðnings.
Project Sunrise sett af stað
Jón Ásgeir segir að strax eftir
hrun hafi Baugur Group sent teymi
manna til Íslands til að reyna að
semja við kröfuhafa fyrirtækisins, í
því augnamiði að vinna úr erfiðri
stöðu fyrirtækisins með því að
breyta skuldum í hlutafé. Morgun-
blaðið hefur greint frá því að Baugur
hafi smám saman selt Iceland-versl-
anakeðjuna inn í íslensku bankana á
árinu 2008. Af vitnisburði Jóns Ás-
Úrskurðarorð
dómarans sem
ákvað að fram-
lengja skyldi
frystingu eigna
Jóns Ásgeirs Jó-
hannessonar um
allan heim hafa
verið birt á vef-
svæði dómstóls-
ins í New York.
Dómarinn sagði
meðal annars að flókið fyrirtækjanet
Jóns Ásgeirs kallaði á framlengingu
frystingarinnar, enda gæfi það
ástæðu til að, í það minnsta, hafa fyr-
irvara á því að Jón Ásgeir hefði skil-
að inn tæmandi eignalista. „Vel má
vera að þessi háttur hafi verið hafður
á vegna ráðlegginga sérfræðinga,
eins og hr. Jóhannesson hefur haldið
fram. Engu að síður veldur þetta ein-
staklega flókna fyrirtækjanet, sem
inniheldur meðal annars félög stað-
sett á Kýpur, Panama og svo fram-
vegis, nokkrum áhyggjum að mínu
mati,“ sagði dómarinn í úrskurð-
arorðum sínum. Dómarinn sagði að
rökin fyrir frystingu eigna Jóns væru
meira en fullnægjandi, og vísaði þar
meðal annars í íslensk dómsmál sem
Jón tengist.
Flókið net
fyrirtækja
Jón Ásgeir
Jóhannesson
Enski dómarinn var
ómyrkur í máli