Morgunblaðið - 25.09.2010, Síða 35
Elsku besti afi
minn, þú farinn ert frá
mér en þú verður allt-
af í hjarta mínu. Þú ert
fyrirmynd mín á
harmonikku og ég ætla mér að ná
jafn góðum árangri og þú.
Þegar ég byrjaði að æfa á nikkuna
varstu svo stoltur af mér, og það
verð ég alltaf með bros þitt í hjart-
anu.
Í vor sagði tónlistarkennarinn
minn, Daníel Arason, að ég ætti að
spila inn á diskinn þinn og ég var yfir
mig montin að fá að gera það. Og í
lok júní spilaði ég inn á diskinn þinn
og það var mér mikill stuðningur að
vita að þú varst mjög stoltur af mér.
Þú og amma vissuð ekki að ég
myndi spila á diskinum þínum, en
þegar ég var nýbúin að spila á hann
kom ég strax að sýna þér það, þér og
ömmu kom það mjög á óvart og féllu
nokkur tár við hlustun.
Ég elska þig svo mikið afi minn, þú
varst svo sterkur.
Ég mun alltaf muna þig. Ég og Jó-
hann munum halda uppi minningu
þinni á nikkunni.
Nú svífur elsku afi minn
í unað móti þér
svo tengjast ykkar blessuð bönd
er bresta urðu hér.
Þín
Harpa Mjöll Fossberg.
Elsku afi, eftir 14 ár saman þá ert
þú nú farinn frá mér og eftir situr
tómarúm í hjarta mínu sem enginn
mun fylla upp í.
Ég gleymi aldrei þegar ég var 7
ára þegar þú gafst mér mitt fyrsta
dómarasett sem vinur þinn Gylfi
Orrason reddaði þér handa mér.
Svo þegar skólaganga mín hófst
fyrir alvöru þá varst þú alltaf tilbú-
inn til að hjálpa mér í hverju sem er
við heimalærdóm, þinn stuðningur
var ómetanlegur. Svo alltaf þegar ég
var að biðja mömmu um eitthvað og
hún neitaði þá leitaði ég alltaf til afa
og hann reddaði öllu. Þú varst mér
eins og pabbi fyrstu árin og ólst mig
upp og verð ég ykkur ömmu ævin-
lega þakklátur. En í fyrra ákvað ég
að fara að læra á gítar og afi varð
mjög stoltur af mér og þá fékk ég
glæsilegan Fender-gítar í ferming-
argjöf frá ömmu og afa sem ég spila
daglega á og oft á dag.
Eftir að hafa verið að læra á gítar í
rúmlega eitt ár þá varð mér hugsað
til þín og þinnar harmónikku sem ég
byrjaði að læra á og ég veit að þú, afi,
ert og varst mjög stoltur af mér þeg-
ar amma skutlaði mér í fyrsta harm-
ónikkutímann minn með þessa
glæsilegu nikku sem þú arfleiddir
mig að. Svo munum við Harpa Mjöll
sjá um að halda uppi minningu þinni
á harmónikkurnar okkar, og ég vona
að eftir nokkur ár verði ég orðinn
eins mikill snillingur á harmónikku
Óli Fossberg
Guðmundsson
✝ Óli Fossberg Guð-mundsson fæddist
á Akureyri 13. maí
1936. Hann andaðist á
Fjórðungssjúkrahús-
inu í Neskaupstað 18.
september 2010.
Útför Óla fór fram
frá Eskifjarðarkirkju
24. september 2010.
eins og þú varst svo ég
geti spilað lagið sem
þú samdir um mig.
Ég vil launa þér allt
sem þú gerðir fyrir
mig og passa vel
ömmu fyrir þig, elsku
afi minn, takk fyrir að
hafa verið til staðar
fyrir mig. Ég vil láta
fylgja með textann
sem þú samdir um mig
þegar ég fæddist sem
er að koma út á þinni
gullfallegu plötu.
Sem sólargeisli komst þú í veröld mína,
Er fæddist þú á björtum sumardegi.
Nú bið ég guð að blessa velferð þína
Og leiða þig á grýttum lífsins vegi.
Þú mömmu þinni ungri gleði gefur.
Allir elska og blessa vininn sinn.
Og hvort sem að þú vakir eða sefur,
Sem engill komst þú í hjarta okkar inn.
Er ömmu hendur mildar um þig strjúka,
Þú brosir blítt og hjalar á þinn hátt.
Og vildir helst að seint því muni ljúka,
því hendur ömmu hafa töframátt.
Elsku afi, takk fyrir allt, þín verð-
ur sár saknað.
Kveðja, þinn sólargeisli,
Jóhann Veigar Fossberg
Davíðsson.
Elsku besti afi okkar, okkur þykir
svo leiðinlegt að þú sért farinn frá
okkur og komir ekki oftar í Skamma-
dalinn að sækja okkur til að fara með
okkur út á rúntinn í fjöruferð á Mjó-
eyri og að leika okkur í árabátnum
sem er þar í fjörunni, svo fórst þú
með okkur í sjoppuna að kaupa
nammi og ís.
Það var svo gaman þegar við kom-
um á Túngötuna til ykkar ömmu. Þú
fórst með okkur fram í herbergi þar
sem þú teiknaðir, litaðir, leiraðir og
gerðir ýmislegt skemmtilegt með
okkur. Það var svo gaman þegar þið
pabbi fóruð með okkur í Húsdýra-
garðinn að skoða öll dýrin sem þar
eru.
Elsku besti afi, þú verður alltaf í
hjarta okkar.
Ég kveð þig heitu hjarta.
- Minn hugur klökkur er.
Ég veit, að leið þín liggur
svo langt í burtu frá mér.
Thelma Rún Fossberg
og Daði Örn Fossberg.
Ó bróðir minn, nú sól til viðar sígur
og söngvar hljóðna, fölva slær á jörð.
Þeir fljúga burt er húmið yfir hnígur
er himinhvolfið fylltu þakkargjörð.
Þar dimmir nú og dökknar hér í heimi,
ó bróðir minn, þú horfinn ert mér frá.
Í mínu hjarta minning þína geymi,
Ég man þig æ; og tárin stöðugt væta brá.
Ó bróðir minn, ég heyri klukkur hljóma,
því hér og nú er þungbær ögurstund.
Í mínum huga minningarnar óma,
þú mér ert horfinn Drottins þíns á fund.
Ó bróðir minn, minn hugur harmi sleginn
nú horfir fram á dægrin tóm og löng.
Mín von er sú, við hittumst hinum megin
og helgum Guði færum okkar dýrðarsöng.
(Ingibjörg Guðnadóttir)
Elsku Bára og fjölskylda, ég votta
ykkur öllum mína dýpstu samúð og
megi minningar um góðan eigin-
mann, föður, tengdaföður, afa og
langafa lifa um ókomin ár.
Guð blessi minningu þína kæri
bróðir.
Þinn bróðir,
Reynir.
Ég var ekki hár í loftinu þegar ég
fylgdist með Óla Fossberg í markinu
hjá Þór á Akureyri. Ég æfði líka með
Þór og var markmaður eins og Óli.
Við markmennirnir vorum auðvitað
alltaf flottastir.
Við pollarnir fengum að heim-
sækja hann þar sem hann pressaði
buxur hjá Sambandinu og hlustuðum
á sögurnar hans. Við litum mikið upp
til hans og hann var mikil fótbolta-
hetja í okkar augum og ekki
skemmdi það að hann spilaði með
hljómsveit Ingimars Eydals. Ég
man að hann spilaði á nikkuna, greip
í gítarinn og sló trommurnar. Hann
var alltaf hrókur alls fagnaðar þegar
hann var með nikkuna á þrettánda-
gleði Þórs.
Leið Óla lá til Eskifjarðar og hissa
varð ég sjálfur þegar mín leið lá
þangað líka. Óli eignaðist konu á
Eskifirði, hana Báru sína og hefði
hann ekki getað eignast betri eigin-
konu. Þau voru mjög samhent hjón
og gaman að sækja þau heim. Óli tók
sér ýmislegt fyrir hendur og var
dugnaðarforkur, við unnum saman á
síldarplaninu, þó aðalstarf Óla hafi
verið múrverk, enda lét enginn síld-
arvertíð framhjá sér fara. Oft voru
síldarslúttin fjörug og ekki skemmdi
það nú skemmtunina þegar Óli greip
nikkuna.
Óli vinur minn Fossberg lifði að
heyra þær fréttir að Þór kæmist í úr-
valsdeildina og efa ég ekki að það
hafi glatt hann mikið.
Ég kveð góðan vin og sannan
Þórsara með söknuði.
Hvíl í friði.
Atli Viðar Jóhannesson.
MINNINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2010
lést miðvikudaginn 22. september.
Jarðar förin auglýst síðar.
Sigrún Sigurjónsdóttir, Sverrir Sigurjónsson og fjölskyldur.
Elskulegur bróðir okkar
Gunnólfur Sigurjónsson
Hátúni 8, Reykjavík
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
HINRIK THORARENSEN
fyrrv. framkvæmdastjóri,
Álfheimum 20,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli þriðjudaginn
21. september.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju fimmtudaginn
30. september kl. 13.00.
Emilía Thorarensen,
Hinrik Thorarensen yngri,
Svanlaug Dóra Thorarensen, Haukur Harðarson,
Haukur Örn og Sara.
✝
Elskulegur, ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
MAGNÚS BLÖNDAL,
lést miðvikudaginn 15. september og verður
jarðsunginn frá Grensáskirkju miðvikudaginn
29. september kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag
Íslands.
Jónas Blöndal, Sigríður G. Blöndal,
Arnþór Blöndal, María G. Blöndal,
Sigurður Blöndal,
afabörn og langafabörn.
✝
Innilegar þakkir til ykkar allra er sýnduð okkur
vinarþel, hlýhug og samúð við andlát og útför
elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
INGIBJARGAR SVEINSDÓTTUR,
Hjallalundi 18,
Akureyri.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á
lyflækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri,
öldrunarlækningadeild á Kristnesi og Umönnun,
Heilbrigðisþjónustu ehf.
Árni Jóhannesson,
Sigurður Kristinsson, Anna Dís Bjarnadóttir,
Jóhannes Árnason, Sólveig Þóra Jónsdóttir,
Jónas Ingi Árnason,
Björg Guðrún Pétursdóttir,
barnabörn og langömmubörn.
✝
Elskuleg frænka okkar og vinkona,
HELGA STEFÁNÍA THORDERSEN,
Hrafnistu Hafnarfirði,
áður Ölduslóð 4,
Hafnarfirði,
lést á Hrafnistu miðvikudaginn 8. september.
Útförin hefur farið fram.
Margrét Thordersen,
Vigdís Thordersen,
Stefán Thordersen,
Ólafur Thordersen,
Guðný Thordersen
og fjölskyldur.