Morgunblaðið - 25.09.2010, Qupperneq 42
42 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2010
Sudoku
Frumstig
5
2 9 1
6 9 5 2
9 1 8
1 8 7
3 1
6 3 5
9 8 7 2 6
6 2 9 7
2
8 1
9 8 7 1 6
5
3 6 8
7 9 3 6
3 1
8 7
2 8
9 4
9 3
4 5 3
9 7
5 6
5 1 3
4
3 1 4 8 6
7 2 5 3 4 8 6 9 1
9 8 3 5 1 6 2 4 7
6 4 1 7 2 9 5 8 3
1 9 4 2 8 5 3 7 6
2 3 8 1 6 7 4 5 9
5 6 7 4 9 3 8 1 2
3 7 2 8 5 1 9 6 4
8 1 6 9 3 4 7 2 5
4 5 9 6 7 2 1 3 8
7 3 1 8 4 5 9 2 6
9 4 2 6 1 3 5 8 7
6 5 8 7 2 9 1 3 4
8 1 5 2 9 4 7 6 3
4 7 9 5 3 6 8 1 2
2 6 3 1 7 8 4 5 9
5 2 4 9 6 1 3 7 8
1 9 6 3 8 7 2 4 5
3 8 7 4 5 2 6 9 1
1 3 7 8 9 4 5 6 2
8 4 5 6 1 2 9 7 3
2 9 6 5 7 3 1 4 8
4 7 8 2 3 1 6 9 5
3 6 9 4 5 8 2 1 7
5 1 2 9 6 7 3 8 4
9 5 3 7 8 6 4 2 1
7 2 1 3 4 9 8 5 6
6 8 4 1 2 5 7 3 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er laugardagur 25. september,
268. dagur ársins 2010
Orð dagsins: Á þeim degi munuð þér
skilja, að ég er í föður mínum og þér í
mér og ég í yður. (Jh. 14, 20.)
Vestmannaeyjar hafa alltaf veriðbara dökkir klettar í mistri úti
við sjóndeildarhringinn í lífi Vík-
verja, þar til í ágústlok þegar þær
urðu dökkir klettar í mistri undir
fótum Víkverja. Landeyjahöfn varð
Víkverja tilefni til að víkka út sjón-
deildarhringinn og bregða sér í
sunnudags„bíltúr“ til Eyja.
Fyrir algjöran utanbæjarmann
var eitt og annað sem vakti athygli
þarna úti fyrir suðurströndinni. T.d.
að í Vestmannaeyjabæ eru óvenju-
mörg einbýlishús búin einhvers kon-
ar turni. Þetta mun vera vegna þess
að skipstjórar vilja halda áfram að
vera í brúnni þótt þér séu í landi.
Samkvæmt kenningu Víkverja og
samferðafólks.
x x x
Annað sem vakti athygli er að íVestmannaeyjabæ er mikill
fjöldi veitingastaða, sem virðast
reyndar flestir bjóða upp á pitsur, og
ekki færri en tvö (eða voru það
þrjú?) bakarí við aðalgötuna. Hins-
vegar eru eiginlega engin tré í Vest-
mannaeyjum. Einnig stakk í stúf
hversu lítill Herjólfsdalur er, ef dal
skyldi kalla. Víkverja er til efs að þar
sé í alvöru hægt að koma fyrir 15
þúsund manns í tjöldum, það hlýtur
að vera einhver vel útfærð sjón-
hverfing þeirra Eyjamanna.
x x x
Mesta athygli Víkverja fékk þóauðvitað fegurðin í Eyjum
sem er óumdeilanleg allt frá Heima-
kletti að Stórhöfða. Víkverji var ekki
einn um að njóta hennar þennan dag
því allt var krökkt af utanbæjarfólki
í Vestmannaeyjabæ. Í Pompei norð-
ursins var heil rúta af skólakrökk-
um, það var traffík á Sædýrasafninu
og veitingastaðir þétt setnir bæði í
hádeginu og um kvöldmatarleytið.
x x x
Víkverji hét sjálfum sér því aðfara brátt annan sunnudags-
bíltúr til Eyja og taka sundföt og
gönguskó með sér í það skiptið.
Gríðarlegt magn af sandi hefur gert
Víkverja erfitt fyrir að halda það lof-
orð en af því verður fyrr eða síðar.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 kringumstæður, 4
gagnlegs, 7 kona, 8 kyrrðar,
9 illdeila, 11 bókar, 13 vaxa,
14 hefur í hyggju, 15 lemur,
17 áfjáð, 20 tíndi, 22 svæfill,
23 kapítuli, 24 verða súr, 25
heimilis.
Lóðrétt | 1 karldýr, 2
steinn, 3 tala, 4 erfið, 5
skjögrar, 6 púði, 10 svera,
12 haf, 13 illgjörn, 15 poka,
16 gubbaðir, 18 áleggið, 19
ærslahlátur, 20 kvista, 21
bjartur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1hjónaband, 8 sýpur, 9 leyna, 10 ull, 11 afann, 13 asann,
15 borðs, 18 ógæfa, 21 kák, 22 lasna, 23 áttin, 24 miðaftann.
Lóðrétt: 2 japla, 3 nýrun, 4 bulla, 5 neyða, 6 assa, 7 bann, 12 níð,
14 sæg, 15 boli, 16 rusli, 17 skata, 18 ókátt, 19 æstan, 20 asni.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 d6 6. Bg5 e6 7. Dd2 Be7 8.
O-O-O Rxd4 9. Dxd4 O-O 10. f3 a6 11.
h4 b5 12. Kb1 Bb7 13. Dd2 Hc8 14. Bd3
Rd7 15. a3 Re5 16. Bxe7 Dxe7 17. h5 h6
18. Be2 Hfd8 19. g4 d5 20. exd5 exd5
21. Dd4 Rc6 22. Df4 b4
Staðan kom upp á breska meist-
aramótinu sem lauk fyrir skömmu í
Canterbury í Englandi. Alþjóðlegi
meistarinn Adam Hunt (2408) hafði
hvítt gegn stórmeistaranum Peter
Wells (2488). 23. Bd3! bxc3 24. Df5
Df6 25. Dh7+ Kf8 26. Hde1 g5 27.
hxg6 Dg7 28. Hxh6! sókn hvíts myndi
halda áfram þótt drottningaruppskipti
yrðu. 28…fxg6 29. He6! Hc7 30. Dxg6
Dxg6 31. Hexg6 Kf7 32. Hh7+ Kf8 33.
Hf6+ Ke8 34. Bg6+ og svartur gafst
upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Doblspeki Lightners.
Norður
♠--
♥G106
♦ÁKD1094
♣G1094
Vestur Austur
♠DG86432 ♠Á10975
♥Á ♥84
♦76 ♦853
♣832 ♣ÁD7
Suður
♠K
♥KD97532
♦G2
♣K65
Suður spilar 6♥ dobluð.
Bara ef Theodore Lightner hefði ver-
ið svolítið skýrari árið 1930: Dobl á
slemmu biður um „óeðlilegt“ útspil,
sagði kallinn, ekki það sem við blasir í
samhenginu – eitthvað annað. En
hvað?!
Spil dagsins er frá úrslitaleik bikar-
keppninnar: Suður vakti á 1♥. Vestur
stökk í 3♠, norður sagði 4♥ og austur
4♠. Sjölitur er til sóknar og suður sagði
5♥, sem norður hækkaði í 6♥. Rifjaðist
þá upp fyrir austri hin forna speki Lig-
htners og hann doblaði slemmuna út á
ÁD í laufi.
„Það er nefnilega það,“ hugsaði vest-
ur. „Ég á að spila út tígli eða laufi.
Ómögulegt að segja hvort er rétt. Best
að byrja á ♥Á og kíkja á blindan.“
Blindur reynist vera beggja blands, en
minnugur þess að doblið er oft byggt á
óvæntri eyðu skipti vestur yfir í … tígul.
25. september 1975
Lagarfossvirkjun var vígð.
Þar með tvöfaldaðist raforku-
framleiðsla í Austfirðinga-
fjórðungi, en rafmagns-
skortur hafði háð atvinnulíf-
inu þar. Sumarið 2007 var
virkjunin stækkuð úr 8 mega-
vöttum í 28 megavött.
25. september 1992
Rokkhljómsveitin Jethro Tull
lék á Akranesi, í tilefni af
fimmtíu ára afmæli bæjarins.
Tónleikarnir „þóttu takast
gríðarvel og tónleikagestir al-
mennt í sjöunda himni,“ að
sögn Morgunblaðsins.
25. september 2000
Vala Flosadóttir, 22 ára, vann
bronsverðlaun á Ólympíu-
leikunum í Sydney með því að
stökkva 4,50 metra í stangar-
stökki. „Þetta var hreinlega
yndislegt,“ sagði Vala í sam-
tali við Morgunblaðið. Hún var
fyrsta íslenska konan sem
komst á verðlaunapall á Ól-
ympíuleikum.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Þorvaldur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Sam-
bands sveitarfélaga á Austurlandi, fagnar 70 ára af-
mæli í dag. „Ég hef verið lukkunnar pamfíll í lífinu
og það eina sem skyggir á er konumissir fyrir tólf ár-
um. Annars hefur lífið leikið við mig alveg frá fæð-
ingu á Siglufirði,“ segir Þorvaldur.
Spurður hvort það sé ekki skrýtið að vera bara
fyrrverandi hitt og þetta; kennari, skólastjóri, bæjar-
stjóri á Seyðisfirði og frá helginni fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri SSA, segir Þorvaldur svo ekki vera,
slíkt sé lífsins gangur. „Núna eru þessi tímamót komin og ég hlakka mik-
ið til að takast á við breyttar lífsvenjur,“ segir Þorvaldur. „Ég hef nóg að
gera. Ég ætla að byrja á því að taka sjálfan mig í gegn, ég ætla að spila
golf og vera töluvert á skíðum í vetur. Svo tekur við hörkuvinna hjá
gamla manninum, en að svo stöddu gef ég ekki upp hvað það verður.“
Þorvaldur verður í vinnunni afmælisdaginn og kann því vel. „Ég verð
með minn síðasta aðalfund hjá sambandinu og næ að taka í spaðana á
sveitarstjórnarmönnum á Austurlandi í lok aðalfundarins. Þetta gerist
ekki betra. Síðan verð ég með börnunum og mökum þeirra á Tenerife í
vikutíma í lok október. Hvað er hægt að fara fram á meira?“ spyr Þor-
valdur að lokum. aij@mbl.is
Þorvaldur Jóhannsson 70 ára
Lukkunnar pamfíll
Flóðogfjara
25. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 1.11 0,4 7.14 4,0 13.24 0,5 19.27 3,9 7.20 19.20
Ísafjörður 3.11 0,2 9.03 2,1 15.24 0,3 21.16 2,1 7.25 19.25
Siglufjörður 5.28 0,2 11.39 1,3 17.44 0,2 7.08 19.08
Djúpivogur 4.27 2,3 10.42 0,4 16.41 2,1 22.46 0,4 6.49 18.49
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Allar aðstæður hafa sínar góðu og
slæmu hliðar. Reyndu að sjá þær jákvæðu.
Einhver kemur þér á óvart í vikunni.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Hvað gengur og hvað gengur ekki er
álitamál. Megrunin fær að fjúka út í veður
og vind ásamt fjárhagsáætluninni.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Oft leitar maður svars langt yfir
skammt. Bara það að þú skulir bera kennsl
á mikilleika gefur til kynna að þú getir
sjálf/ur náð þeim hæðum.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Að skapa allt milli himins og jarðar
lætur þér líða frábærlega vel. Spurðu þig
þrisvar hvort þú þurfir á viðkomandi hlut
að halda áður en þú opnar budduna.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú heldur inni í þér tilfinningunni sem
þarf að komast út. Farðu þér því hægt og
láttu tímann vinna með þér.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Syndin er lævís og lipur. Tímamörk
þrýsta á þig, þú þarft að leggja nokkuð á
þig til þess að mæta þeim, en getur það
alveg.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Til þín er litið um forustu og þú átt
ekki annarra kosta völ en að axla þá
ábyrgð. Hafðu þetta í huga.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú hefur komið þér vel fyrir
og mátt þess vegna gefa þér tíma til að
njóta ávaxtanna af erfiði þínu. Haltu því
vöku þinni mjög vel.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú þarft að tala við yfirmann
þinn eða annan yfirboðara í dag. Varastu
að senda öðrum misvísandi skilaboð.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú hefur lagt hart að þér að
undanförnu og ert þú að uppskera laun
erfiðis þíns. Reyndu að taka hlutunum með
ró.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Nýttu daginn til þess að tjá til-
finningar þínar. Hikaðu ekki við að hjálpa
honum. Reyndu að finna út hvert þitt hlut-
verk er í þessu öllu.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Innsæi þitt varðandi það sem aðrir
eru að fást við hittir naglann algerlega á
höfuðið. Þú ert ekki tilbúin/n í fast sam-
band ennþá.
Stjörnuspá
Jón Sigurvin
Pétursson, fyrr-
um bóndi á
Hraunsmúla, og
lögreglumaður í
Snæfellsness- og
Hnappadals-
sýslu, er átt-
ræður í dag, 25.
september.
80 ára
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is
Gunnar S.
Magnússon
myndlistar-
maður verður
áttræður mánu-
daginn 27. sept-
ember. Gunnar
hefur haldið
fjölda sýninga og
tekið þátt í ýms-
um uppákomum. Hann hélt síðast
sýningu í anddyri Hallgrímskirkju í
febrúar síðastliðinn.
80 ára
Árnaðheilla