Morgunblaðið - 09.10.2010, Síða 11
Ljósmynd/Helga Margrét Pálsdóttir
Leirbað Blaðamaður kátur á kafi í hveraleir. Leirböð hafa verið stunduð á Heilsustofnun NLFÍ um árabil.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Tryggðu þér miða í síma 551 1200 eða smelltu þér á leikhusid.is
Mbl., IÞ
„Þetta leikverk er svo auðskilið, svo skemmtilegt, fyndið,
andríkt og einfalt, að ég óska þess heitast, að allir landsmenn megi
njóta og læra af“. Pressan.is, BS
Þú mátt ekki missa af þessari
einstöku sýningu!
Aðeins örfáar sýningar vegna fjölda áskorana!
Fim 21/10 kl. 20.00 U
Fös 29/10 kl. 20.00 Ö
Fim 4/11 kl. 20.00 Ö
Lau 13/11 kl. 20.00
Fim 18/11 kl. 20.00
Fös 26/11 kl. 20.00 Ö
Fös 3/12 kl. 20.00
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 2010
„Ég ætla að njóta þess að sofa út og
hvíla mig eftir ferðalag, ég skrapp í
síðbúið sumarfrí til systur minnar
sem býr á Þorskhöfða (Cape Cod) og
ég fór líka í stutta menningarreisu til
Boston,“ segir Gunnþóra Halldórs-
dóttir starfsmaður Kvikmyndasafns
Íslands þegar hún var spurð að því í
gær hvað hún ætlaði að gera í dag.
„Síðan fer ég í sund og verð lengi,
í Suðurbæjarlaug Hafnarfjarðar og
fer þar í útiklefann, sem er best. Ég
þarf líka að pakka upp úr töskum og
skoða fíneríið sem ég kom með heim
úr flakkinu.
Klukkan fjögur skelli ég mér svo í
Bæjarbíó hér í Hafnarfirði þar sem
við ætlum að sýna gamlar eldgosa-
myndir frá hinum ýmsu gosum. Þetta
eru fjórar myndir og hafa sumar
þeirra farið víða um heim. Tvær
þeirra segja frá Heklugosinu árið
1947, aðra þeirra gerði Vigfús Sig-
urgeirsson en hina gerði Ósvaldur
Knudsen. Ein myndanna sýnir Surts-
eyjargosið 1963, Prospect of Iceland,
sem er landkynn-
ingarmynd sem
framleidd var fyr-
ir íslenska ríkið
og upplýs-
ingaþjónustu
NATO. Úr henni
sýnum við valin
brot. Tónlistin í
þessari mynd er
eftir Jón Nordal
og heitir Sinfon-
ieta, leikin af Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands.
Fjórða myndin er Eldeyjan, víðfræg
mynd sem Páll Steingrímsson, Ernst
Kettler og Ásgeir Long gerðu um eld-
gosið í Heimaey árið 1973. Þetta er
áhrifarík frásögn þar sem þeir fylgd-
ust með Eyjamönnum og þessi mynd
hlaut gullverðlaun í Atlanta sem
besta fréttamynd ársins 1974.“
Gunnþóra segist kannski kíkja út á
lífið í kvöld og sjá hvort íslenskir
karlmenn standist samanburðinn við
þá sem búa á Þorskhöfða.
Hvað ætlar þú að gera í dag?
Gos Úr kvikmyndinni Eldeyjan þar sem fylgst er með gosinu í Heimaey 1973.
Eldgosabíó og sundsprettur
Gunnþóra
Halldórsdóttir
Fyrst á hverasvæðinu
LEIRBÖÐ
Leirböð hafa verið stunduð á Heilsustofnun NLFÍ um
árabil. Eftir stofnun HNLFÍ, í júlí árið 1955, byrjuðu
þau fljótlega og þá með svipuðu sniði og er í dag. Þau
voru fyrst á hverasvæðinu í Hveragerði. Böðin hafa
reynst gigtar- og psóríasissjúklingum vel til lengri
eða skemmri tíma. Leirböð hafa einnig reynst vel við
þreytu og streitu.
Leirinn sem notaður er fæst úr hverum í nágrenni
Heilsustofnunarinnar í Hveragerði. Í hveraleirnum er
m.a. kísilsýra sem talin er góð fyrir húðina auk þess
sem hitinn, 38-40 gráður, gerir stoðkerfi líkamans
gott. Efnisþyngd leirsins gerir það að verkum að hit-
inn er dýpri. Djúpur hitinn slakar á vöðvum og linar
verki í stoðkerfi.
Gestir sem eru
haldnir hjarta- eða
lungnasjúkdómum,
hafa verið með
æðahnúta eða farið
í æðahnútaaðgerðir
svo og þeir sem eru
með nikkelofnæmi
geta ekki nýtt sér
leirmeðferð. Tími í
leirbaði er fimm-
tán mínútur og á
eftir eru tuttugu mínútur í slökun. Hægt er að fara
bara með hendur og/eða fætur í leirböðin.
Hver Leirinn er
tekinn úr hver-
unum fyrir ofan
Hveragerði.