Morgunblaðið - 09.10.2010, Blaðsíða 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 2010
✝ Hafsteinn HólmÞorleifsson var
fæddur í Leifahúsi á
Siglufirði 3. febrúar
1935. Hann varð
bráðkvaddur á heim-
ili sínu, Eyrargötu
29, að morgni þriðju-
dagsins 28. sept-
ember 2010.
Foreldrar Haf-
steins voru hjónin Jó-
hanna Sesselja Jóns-
dóttir húsmóðir fædd
26. mars 1905, dáin 7.
júní 1989 og Þorleif-
ur Hólm múrari fæddur 26. maí
1910, dáinn 18. apríl 1988. Þau
hjón eignuðust sex börn. Elstur
var Hafsteinn, næst kom Elva
Hólm fædd 10. apríl 1936, dáin 6.
mars 2007; Sverrir Hólm fæddur
23. febrúar 1942, dáinn 19. apríl
1942; Kristinn Jón Hólm fæddur 2.
júlí 1943, búsettur á Akureyri
ásamt fjölskyldu sinni, Þyri Sigríð-
Siglufirði og bjó þar þangað til
hann flutti í sitt eigið húsnæði á
Eyrargötunni. Hann stundaði hefð-
bundið barna- og gagnfræða-
skólanám á Siglufirði. Sem ungur
maður var hann til sjós á ýmsum
togurum yfir vetrarmánuðina en
kom í land á vorin til að sinna
sauðburði og öðrum þeim verkum
sem gera þurfti. Síðar vann hann
almenna verkamannavinnu, m.a.
hjá Bæjarútgerð Siglufjarðar, S.R.
og hjá Þormóði ramma þar sem
hann lauk starfsævi sinni 67 ára.
Þegar starfsævinni lauk sneri
Hafsteinn sér alfarið að búskapn-
um sínum, en hann átti alltaf
nokkrar kindur sem hann hugsaði
um af mikilli alúð og natni. Á síð-
ari árum hafa þrjár kisur átt heim-
ili sitt á Eyrargötunni og átti hann
alltaf tíma og þolinmæði fyrir þær,
hvort sem var á nóttu eða degi.
Hafsteinn var mikill Siglfirð-
ingur og vildi hvergi annars staðar
vera. Hann vildi helst aldrei fara
það langt frá firðinum sínum fagra
að hann kæmist ekki heim í kaffi
og til að sofa.
Útför Hafsteins fer fram frá
Siglufjarðarkirkju í dag, laug-
ardaginn 9. október 2010, og hefst
athöfnin kl. 14.
ur Hólm fædd 21.
apríl 1946, dáin 21.
október 1977 og
óskírð Hólm fædd og
dáin 8. september
1947.
Árið 1965 hóf Haf-
steinn sambúð með
Sigurbjörgu Helgu
Jónsdóttur f. 10. des-
ember 1933. Þau
eignuðust fjögur
börn. Elst er Kristín
Hólm, fædd 7. janúar
1966, búsett í Reykja-
vík, Jón Hólm, fædd-
ur 14. febrúar 1967, búsettur á
Siglufirði, Hanna Björg Hólm,
fædd 18. júlí 1968 og Þyri Sigríður
Hólm, fædd 7. janúar 1978, dáin
12. júní 1978. Hafsteinn og Helga
bjuggu allan sinn búskap að Eyr-
argötu 29.
Þegar Hafsteinn var á fyrsta ári
fluttist hann ásamt foreldrum sín-
um að Hvanneyrarbraut 17 á
Ég aldrei hef lofað að brautin sé bein,
né blómstígar gullskrýddir alla leið
heim.
Ég get ekki lofað þér gleði án sorgar,
á göngu til himinsins helgu borgar.
En ég hefi lofað þér aðstoð og styrk,
og alltaf þér birtu þó leiðin sé myrk.
Mitt ljúfasta barn ég lofað þér hef,
að leiða þig sjálfur hvert einasta skref.
(Staðf. Hjálmar Jónsson)
Pabbi okkar var mikill Siglfirðing-
ur og vildi hvergi annars staðar
vera. Hann vildi aldrei fara það langt
frá firðinum sínum fagra að hann
kæmist ekki heim í kaffi og til að
sofa. Honum nægði að fá sér stuttan,
daglegan bíltúr inn að Mánárbeygju
og yfir sumarmánuðina fóru hann og
mamma oft hring í Fljótunum og
komu þá alltaf við á Ketilásnum til
að fá sér hressingu.
Pabbi byrjaði ungur að snúast í
kring um kindur og eftir að hann
hætti að vinna hafði hann nógan
tíma fyrir þessa ferfættu vini sína. Á
vorin átti sauðburðurinn hug hans
allan og þær voru margar ferðirnar
sem hann fór í fjárhúsið sitt til að at-
huga með ærnar. Þegar allar kind-
urnar og lömbin voru komin til fjalla
var fjárhúsið þrifið hátt og lágt, gert
við það sem hafði bilað yfir veturinn
og hlaðan fyllt af ilmandi heyi fyrir
næsta vetur. Pabbi heyjaði alla tíð
upp á gamla móðinn; sló með orfi og
ljá og rakaði með hrífu ásamt fjöl-
skyldunni. Þegar haustaði fór hann
að hlakka til að fá fullorðnu kind-
urnar sínar í hús aftur, eftir að þær
höfðu notið lífsins á fjöllum. Síðustu
vikurnar sem hann lifði var hann í
smalamennsku og fjárréttum hingað
og þangað um nágrenni Siglufjarðar
og var sannarlega í essinu sínu.
Undanfarin 20 ár hafa kisur verið
hluti af fjölskyldunni. Fyrstu árin
bitust Högni og Skotta um athygli
pabba sem hann átti alltaf nóg af.
Síðar fékk hann það sára og erfiða
verkefni að lóga þessum vinum sín-
um og hafði hann þá á orði að aldrei
hafði honum dottið í hug að hann
ætti eftir að þurfa að aflífa kisurnar.
Undanfarin fimm ár hefur Tina
haldið honum og mömmu við efnið.
Pabbi átti til endalausa þolinmæði
fyrir hana, hvort sem var á nóttu eða
degi. Hann hugsaði líka vel um villtu
dýrin. Í nokkur ár gaf hann dúfum
svo til á hverjum morgni, stundum
gaf hann villiköttum matarafganga,
hrafninn fékk stundum góðgæti og
smáfuglunum var gefið út um stofu-
gluggann.
Pabbi okkar var fastur fyrir og
ekki auðvelt að fá hann til að skipta
um skoðun. Hann vildi byrja alla
vinnu snemma á morgnana til að
nota daginn sem best og honum lík-
aði illa allur seinagangur og fannst
óþarfi að taka margar pásur þegar
verið var að vinna einhver verk.
Hann var mikill heimilismaður og
hugsaði vel um allt sitt. Hann var
þúsundþjalasmiður, gat gert alla
hluti og gerði þá vel. Hann kenndi
okkur að vinna alla vinnu vel og
vinna hana strax, ekki láta neitt
bíða.
Hann pabbi okkar var mikill Sigl-
firðingur og vildi hvergi annars stað-
ar vera. Fjörðurinn hans var honum
afar kær og þar hafði hann allt sem
skipti hann máli.
Við sendum pabba okkar innilegar
kveðjur og þakkir fyrir allt og allt.
Kristín, Jón og Hanna Björg.
Þegar Siglufjörður skartaði sínum
fegurstu haustlitum kvaddi Haf-
steinn Hólm þetta líf. Það var í hans
anda að hverfa á annað tilverustig
þegar fjörðurinn hans var hvað feg-
urstur. Hafsteinn var innfæddur
Siglfirðingur, bjó þar alla tíð og vildi
hvergi annars staðar vera. Hann
unni sínum heimahögum afar heitt.
Hafsteinn var mikið náttúrubarn
og kunni góð skil á náttúrunni. Gat
lesið í veður og vinda og vissi hve-
nær best væri að hefja heyskap.
Hann var einn eftir af þeim mönnum
á Siglufirði sem héldu nokkrar kind-
ur.
Það veitti honum mikla gleði og
fullnægju í lífið að hugsa um sitt fé
og umstangið við það. Snyrti-
mennskan réð þar ríkjum. Haustið
var hans árstíð, göngur og réttir
voru hans líf og yndi.
Áhugamál Hafsteins snerust um
náttúruna og eðli hennar. Átti hann
t.d. mikið safn af uppstoppuðum
fuglum sem hann safnaði í gegnum
árin.
Kunni hann skil á tegundum og
nöfnum íslenskra fugla, hegðun
þeirra og háttum.
Hafsteinn var heilsteyptur maður
sem kom fram eins og hann var
klæddur, beinskeyttur og lá ekki á
skoðunum sínum um menn og mál-
efni. Undir yfirborðinu leyndist til-
finningaríkur og ástúðlegur maður.
Hann hafði ríka kímnigáfu og glettn-
in skein úr augum hans þegar hon-
um hafði tekist að koma einhverjum
á óvart.
Hafsteinn og Helga bjuggu sér og
börnum sínum yndislegt heimili á
Eyrargötunni á Siglufirði, þar ríkir
hin íslenska gestrisni, allir velkomn-
ir og alltaf heitt á könnunni.
Við áttum því láni að fagna að hitt-
ast öll fjölskyldan, sem búsett er
hérlendis, sl. vor á heimili þeirra
hjóna. Tilefnið var 100 ára afmæli
Leifa Hólm.
Það var kátt á hjalla, mikið spjall-
að og spaugað, sólin skein og logn
var á firðinum. Við fórum í göngutúr
um bæinn, þar var Hafsteinn á
heimavelli og kunni frá mörgu að
segja.
Í minningunni er Hafsteinn dæmi
um hinn íslenska alþýðumann sem
unni fjölskyldu sinni, náttúrunni og
áhötthögunum og undi glaður við
sitt.
Við kveðjum þig, bróðir, með
þessu fallega ljóði um Siglufjörð.
Hér við íshaf byggð var borin
bærinn okkar, Siglufjörður,
inn í fjöllin skarpt var skorinn
skaparans af höndum gjörður.
Til að veita skjól frá skaða
skipunum frá norðurslóðum,
sem að báru guma glaða
gull er fundu í hafsins sjóðum.
Hér er skjól og hér er ylur
hart þó ís að ströndum renni,
Þó að hamist hörkubylur
hlýju samt hið innra kenni.
Fólkið sem að byggir bæinn
bestu lofgjörð honum syngur
um að bæti öllum haginn
eitt, að vera Siglfirðingur.
(Bjarki Árnason.)
Helgu, Kristínu, Jóni og Hönnu
Björgu sendum við okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Kristinn Hólm og fjölskyldur.
Hafsteinn Hólm
Þorleifsson ✝Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
FRÍÐA FREYMÓÐSDÓTTIR,
Andrésbrunni 17,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn
1. október.
Útför fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn
11. október kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
líknarstofnanir.
Ásdís K. Molvik,
Erla Helgadóttir, Tómas Guðmarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
RÚNAR I. SIGFÚSSON
verkfræðingur,
Freyjugötu 35,
Reykjavík,
lést þriðjudaginn 5. október á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi. Útförin fer fram frá
Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 14. október
kl. 15.00.
Björg Østrup Hauksdóttir,
Einar Þorbjörn Rúnarsson, Eva Arnarsdóttir,
Marta Margrét Rúnarsdóttir, Daníel Pálmason,
Sigrún Birna Rúnarsdóttir,
Helena Katrín Einarsdóttir.
✝
Ástkæri eiginmaður, stjúpfaðir, bróðir, mágur og
frændi,
PÁLL STEFÁNSSON
framreiðslumaður,
Asparfelli 6,
Reykjavík,
varð bráðkvaddur á heimili sínu þriðjudaginn
5. október.
Nataly Stefánsson,
Tatiana Helgason, Haukur Helgason,
Amalía Stefánsdóttir, Leif Bryde,
Guðný Stefánsdóttir,
Hafsteinn Stefánsson, Sigrún Óla
og frændsystkini.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, stjúpmóðir,
amma, langamma og langalangamma,
SIGÞRÚÐUR G. BLÖNDAL,
Sissa,
lést þriðjudaginn 5. október á heimili sínu.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn
12. október kl. 13.00.
Ellert Halldórsson,
Sigríður Blöndal, Sverrir Kristinsson,
Guðrún B. Blöndal, Ágúst Friðgeirsson,
Kristinn V. Blöndal Marlene Chavarria Fritz,
Ragnhildur Ellertsdóttir,
Hrafnhildur Ellertsdóttir, Alexander Ólafsson,
Fanney Ellertsdóttir, Kristinn Guðjónsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
LILJA ÓLAFSDÓTTIR,
Dvalarheimilinu Nausti,
Þórshöfn,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga á
Húsavík, þriðjudaginn 5. október.
Útförin verður auglýst síðar.
Ólafía B. Matthíasdóttir, Þórarinn B. Gunnarsson,
Bjarki Friðgeirsson,
Matthildur Jóhannsdóttir,
Oddný Matthíasdóttir,
Ólafur Stefánsson, Steinfríður Alfreðsdóttir,
Magnea Stefánsdóttir, Þorsteinn Sæmundsson,
Einar Stefánsson, Guðlaug Ragna Jónsdóttir,
Jón Stefánsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
bróðir og afi,
GÍSLI THEODÓR ÆGISSON,
Sólhlíð 8,
Vestmannaeyjum,
sem lést á heimili sínu sunnudaginn 3. október,
verður jarðsunginn frá Landakirkju fimmtudaginn
14. október kl 12:00.
Guðbjörg Guðmundsdóttir,
Gunnar Már Kristjánsson, Unndís Ósk Gunnarsdóttir,
Ástþór Ægir Gíslason,
Guðmundur Gísli Gíslason, Regina Ovesen,
Garðar Smári Gíslason,
Jóhann Helgi Gíslason,
Þuríður Gísladóttir,
systkini og barnabörn.