Morgunblaðið - 09.10.2010, Síða 1
VIÐTAL
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„Strákurinn er í sjöunda himni og
segist vera að upplifa bestu daga
lífs síns,“ sagði Gísli Kristjánsson,
arkitekt í Malmö í Svíþjóð, í sam-
tali við Morgunblaðið í gær. Það
hljóp á snærið hjá syni hans, Erik,
um síðustu helgi. Erik, sem er 16
ára gamall, var að leika sér með
fótbolta fyrir utan hús sænsku
knattspyrnustjörnunnar Zlatan
Ibrahimovic í Malmö, þar sem faðir
Eriks vinnur að endurbótum. Ibra-
himovic kom auga á pilt og hreifst
af hæfileikum hans.
„Zlatan var ekki að tvínóna við
hlutina heldur hringdi í menn hjá
AC Milan og sagði þeim frá hæfi-
leikum stráksins. Síðan gekk hann
til Eriks og sagði honum að pakka
niður í tösku. Hann væri á leið til
Mílanó daginn eftir,“ sagði Gísli
þegar Morgunblaðið náði í hann í
gær. „Erik spurði á móti: Ertu
ekki að djóka? Zlatan svaraði og
sagði að um fúlustu alvöru væri að
ræða og spurði á móti: Ertu ekki
til?
Þetta er mikið ævintýri fyrir
strákinn,“ sagði Gísli um hádegið í
gær en hann hafði ekki komið
neinu í verk það sem af var degi
þar sem hann hafði ekki haft undan
að svara fyrirspurnum sænskra
fjölmiðla eftir að fréttin af för Er-
iks til Mílanó fór sem eldur í sinu
um sænska fjölmiðla í gærmorgun.
Erik verður í viku hjá ítalska
stórliðinu. „Hann seg-
ist eiginlega lifa í
draumi,“ segir Gísli.
Erik byrjaði ekki að
æfa knattspyrnu af
krafti fyrr
en fyrir þremur árum
með félagi í Malmö.
„Áður var hann í kajakróðri með
mér. Einn góðan verðurdag söðlaði
Erik um og sagðist vilja fara að
æfa fótbolta. Mér leist nú ekkert
sérstaklega á það þar sem það get-
ur verið erfitt að byrja að æfa
svona seint. En hann hlustaði ekki
á mig heldur tók til við æfingar.
Síðan hefur hann verið með fót-
boltann hreinlega fastan við tærn-
ar á sér frá morgni til kvölds,“ seg-
ir Gísli sem fluttist til Svíþjóðar
þriggja ára gamall og hefur búið
þar síðan. Hann er kvæntur
sænskri konu en hefur haldið ís-
lenskum ríkisborgararétti. Erik er
hins vegar með sænskt ríkisfang
eins og móðirin. Hann leggur stund
á nám við verslunarskóla í Malmö.
„Erik segir í gamni að ástæðu
þess að hann er þver og þrjóskur
og hafi aldrei gefist upp sé að leita
í íslenska blóðinu,“ segir Gísli létt-
ur í bragði.
Gísli vinnur ásamt fleirum að
endurbótum á gömlu og gríðarlega
stóru húsi sem Ibrahimovic á í
Malmö. „Ég hef þekkt Zlatan í
nokkur ár og er að vinna fyrir hann
um þessar mundir að endurbygg-
ingu húss sem hann á í Malmö. Við
þekkjumst vel,“ sagði Gísli Krist-
jánsson, arkitekt í Malmö.
Erik Gíslason fór með pabba sínum í
vinnuna og endaði hjá AC Milan á Ítalíu
Erik Gíslason
LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 2010
íþróttir
Ekki smeykur Indriði Sigurðsson, vinstri bakvörður íslenska A-landsliðsins í fótbolta, er ekki
smeykur að mæta Cristiano Ronaldo í landsleiknum á þriðjudaginn á Laugardalsvelli. 2
Íþróttir
mbl.is
Norðmenn héldu
sigurgöngu sinni
áfram í und-
ankeppni Evr-
ópumóts lands-
liða í
knattspyrnu í
gærkvöld. Norð-
menn sóttu Kýp-
urbúa heim og
fóru með sigur af
hólmi, 2:1.
John Arne Riise kom Norð-
mönnum yfir strax á 2. mínútu
leiksins með þrumufleyg og John
Carew bætti við öðru marki á 42.
mínútu. Ioannis Okkas minnkaði
muninn fyrir heimamenn.
Nani og Ronaldo góðir
Portúgalar koma til Íslands á
sunnudagskvöldið með gott vega-
nesti en þeir báru sigurorð af Dön-
um, 3:1, í undankeppni EM en leikið
var í Portúgal. Nani, leikmaður
Manchester United, kom Portúgöl-
um í 2:0 í fyrri hálfleik.
Ricardo Carvahlo varð fyrir því
óláni að skora sjálfsmark á 79. mín-
útu en Ronaldo innsiglaði sigur
Portúgala sex mínútum síðar eftir
undirbúning frá Nani.
Portúgalar komust með sigrinum
upp í annað sætið í riðlinum. Norð-
menn hafa 9 stig í efsta sæti, Portú-
galar 4, Danir 3, Kýpurbúar 1 en Ís-
lendingar reka lestina. Íslendingar
taka á móti Portúgölum á Laug-
ardalsvellinum á þriðjudaginn en
löngu uppselt er á leikinn.
Norðmenn
eru enn á
sigurbraut
John Arne
Riise
Reuters
Á uppleið Nani skoraði tvívegis í 3:1 sigri Portúgala gegn Dönum í gærkvöld í undankeppni EM. Ísland verður
næsti mótherji Portúgals sem hefur byrjað keppnina illa. Norðmenn eru efstir í H-riðli en Ísland er neðst.
Reuters
Góður Zlatan
Ibrahimovic kom
Erik virkilega á
óvart.
„Ertu ekki að djóka?“
Hlynur Bærings-
son, fyrrv. leik-
maður Íslands-
og bikarmeist-
araliðs Snæfells
úr Stykkishólmi,
byrjaði með
glæsibrag í
fyrsta deildar-
leik sínum með
Sundsvall í
sænsku úrvals-
deildinni í körfuknattleik í gær-
kvöld. Hlynur skoraði 20 stig og tók
að auki 15 fráköst í 89:60 sigri liðs-
ins gegn Eco Örebro. Jakob Sigurð-
arson lék einnig vel með Sundsvall
en hann skoraði 15 stig.
seth@mbl.is
Hlynur byrjar
með látum
Hlynur
Bæringsson
Björgólfur
Takefusa, knatt-
spyrnumaðurinn
marksækni, er á
förum frá KR þó
hann eigi eitt ár
eftir af samningi
sínum við félag-
ið. Þetta kom
fram í viðtali við
hann á Fótbolt-
i.net í gær.
Björgólfur er þrítugur og skoraði 6
mörk í 20 leikjum fyrir KR í úrvals-
deildinni í sumar. Hann er annar
markahæsti KR-ingurinn í efstu
deild frá upphafi með 50 mörk.
Björgólfur fer
frá KR-ingum
Björgólfur
Takefusa