Morgunblaðið - 12.10.2010, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 2010
HHHH
T.V. – KVIKMYNDIR.IS
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
HHH
- S.V. – MORGUNBLAÐIÐ
HHHH
- K.I. – PRESSAN.IS
HHHH
- T.V. - KVIKMYNDIR.IS
SÝND Í KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
AVÍK
Miðasala er hafin í miðasölu sambíóanna
Kringlunni, boðið er upp á númeruð sæti
Afsláttarkort á allar sýningar komin í sölu
ÞAÐ BESTA Í BRESKU LEIKHÚSI
Í BEINNI ÚTSENDINGU Í BÍÓ
650 kr.
r.
650 kr.
650 kr.
650 kr.
ÞRIÐJUDAGSBÍÓ
Complicite’s
A Disappearing
Number
14. október 2010 kl. 18:00
Hamlet NT
9. desember 2010 kl. 19:00
FELA
13. janúar 2011 kl. 19:00
Donmar Warehouse’s
King Lear
3. febrúar 2011 kl. 19:00
Frankenstein
17. mars 2011 kl. 19:00
The Cherry
Orchard
30. júní 2011 kl. 18:00
ENDURSÝND
Á MORGUN
MIÐVIKUDAG
KL. 18:00
THE TOWN kl.8 -10:20 16
FURRY VENGEANCE kl.5:50-8 L
ALGJÖR SVEPPI OG... kl.6 L
THE GHOSTWRITER kl.10 12
/ KEFLAVÍK
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Breiðbandið er hljómsveit sem varð
til fyrir tilviljun. Þrír vinir hittust
reglulega og glömruðu á gítar sér til
skemmtunar en þegar vinkona
þeirra gifti sig ákváðu þeir að búa til
smá prógramm í tilefni af því. Það
tókst svo vel að fólk fór að panta þá á
uppákomur. Síðan þá hafa þeir gefið
út tvær skífur sem báðar eru upp-
seldar og spilað mjög víða um landið
auk þess að spila í Horsen í Dan-
mörku hjá Íslendingafélaginu þar og
síðan í Moll of America í Minneapol-
is. „Þetta tækifæri í Minneapolis
kom þannig til að við vorum á leið-
inni þangað hvort eð var,“ segir
Rúnar Ingi. „Ég sá á netinu að þeir
voru með tónlistarprógramm og
sendi þeim tölvupóst hvort þeir vildu
íslenska hljómsveit að syngja íslensk
jólalög á íslensku og þeir svöruðu
um hæl að þeir vildu það.“
Kúgaðar fitubollu
Hljómsveitin gerir mikið grín að
því þeir séu kúgaðir af eiginkonum
sínum og hvað þeir séu feitir. Í einu
laganna syngja þeir: „Ég er feitur og
frjáls.
Ég er með helling af hökum.
Fitubollur snúum saman bökum.
Ég er með stærstu ístru á landinu.
Þess vegna er ég í Breiðbandinu.“
Aðspurður hvort þeir séu virki-
lega feitir svarar Rúnar Ingi: „Nei,
nei, við erum bara of litlir miðað við
þyngd.“
Væla sig til árangurs
Breiðbandið er eina hljómsveitin
sem hefur náð að væla sig inn í sjón-
varpsþáttinn Popppunkt. Meðlimi
langaði svo til að komast í þáttinn að
þeir litu til Dr. Hook sem á sínum
tíma gerði lagið The cover of the
Rolling Stones og komust sex vikum
síðar á forsíðu tímaritsins. Breið-
bandið samdi þá lagið Popppunktur
og nokkrum vikum síðar komust þeir
í þáttinn. En Felix Bergsson, annar
stjórnandi þáttarins, sagði að þetta
yrði ekki gert aftur.
Vinsæl revía
Breiðbandið hefur ekki látið sér
nægja að gefa út geisladiska sem
seljast upp heldur settust þeir niður
einn daginn og skrifuðu revíu þar
sem gert var grín að opinberum að-
ilum í Reykjanesbæ. Helga Braga-
dóttir leikstýrði verkinu og varð
verkið að aðsóknarmestu áhuga-
mannasýningu ársins á Íslandi. Þar
sem ansi mikið hefur gengið á í
Reykjanesbæ undanfarið ár eru með-
limir Breiðbandsins búnir að einsetja
sér að semja nýja revíu sem gerir
grín að ástandinu. „Það er oft sagt
um okkur Keflvíkinga að við séum
negrar Íslands. Við getum ekkert
annað en að spila tónlist og erum góð-
ir í íþróttum. Þá er bara best að gera
bara það,“ segir Rúnar Ingi.
Morgunblaðið/ÞÖK
Þéttir Hljómsveitin Breiðbandið er með allra þéttustu sveitum sögunnar.
Breiðbandið er
feitasta bandið
Breiðbandið gefur út sína þriðju smá-
skífu Hljómsveitin er skipuð þremur
feitum og kúguðum körlum
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
VOD (Video On Demand) er mynd-
bandaleiga á Skjánum (kallast þar
Skjárbíó) sem hægt er að komast í ef
menn eru nettengdir og með mynd-
lykil frá Símanum. Skjárinn fór að
bjóða upp á þessa þjónustu fyrir tæp-
um fimm árum en aðsókn í þessa leigu
hefur vaxið gríðarlega. Undirritaður
heyrði fyrst um þetta frá kvikmynda-
gerðarmönnum sem eru himinlifandi
með þetta framtak enda skila sér
miklu meiri peningar til þeirra í gegn-
um þetta form en gerðu áður í gegnum
vídeóleigurnar sem vanalega greiddu
eina ákveðna lokagreiðslu í upphafi og
gátu síðan leigt út að vild án þess að
nokkuð meira kæmi til listamannanna.
Ari Kristinsson sem leikstýrt hefur
nokkrum barna- og unglingamyndum
segir að þar sem þær séu hálf tíma-
lausar sé hann enn í dag að fá árlega
góða fúlgu á þrettán ára gamla mynd.
Ragnar Bragason og hópurinn í kring-
um Vesturport hrósa samstarfinu líka.
Áhersla á íslenskar myndir
En til að geta notfært sér þessa
þjónustu frá Skjánum þarf að hafa net-
tengingu og panta uppsetningu á Sjón-
varpi Símans. Þegar það er afgreitt er
eftirleikurinn auðveldur og bíómynd-
irnar fara að rúlla í sjónvarpinu þínu.
Þegar mynd er leigð í gegnum VOD
hefur maður rúman sólarhring til að
horfa á hana.
„Þegar þú kveikir á sjónvarpinu
dettur þú inn í þetta kerfi sem við er-
um búin að vera að byggja á mörgum
árum,“ segir Friðrik Friðriksson sem
er yfir VOD á Skjánum. „Þetta er
langstærsta vídeóleiga landsins. Við
erum með stúdíósamninga við öll
helstu framleiðslufyrirtæki heimsins.
Við leggjum þó áherslu á íslenskar
myndir. Kvikmyndir eru hjarta kerf-
isins. Við erum með samninga við alla
helstu íslensku framleiðendurna og
áhorf á þær er mjög gott. Það eru yfir
þrjú þúsund titlar sem eru í boði í kerf-
inu; bæði nýjar og klassískar myndir.
Fram að þessu höfðu myndbandaleig-
urnar forskot á okkur því þeir fengu
myndirnar á undan okkur. Stóru fram-
leiðslufyrirtækin í Bandaríkjunum
leyfðu okkur ekki að bjóða upp á
myndirnar fyrr en hálfu ári eftir að
vídeóleigurnar fengu þær. Nú er þetta
að breytast. Tvö stór bandarísk fram-
leiðendafyrirtækin (Warner og Uni-
versal) láta okkur nú þegar fá þetta á
sama tíma og önnur fyrirtæki eru
skammt undan. Þannig að forskotið er
farið. Þetta eru skýr skilaboð um að
markaðurinn sé að veðja á VOD-ið,“
segir Friðrik frá Skjánum.
Þáttaraðir vinsælar
Heimildarmyndir og myndir fyrir
bæði börn og unglinga eru í boði. En
það sem hefur sprungið út á síðustu
tveimur árum eru þáttaraðirnar.
Þær njóta mikilla vinsælda. Og mað-
ur hefði haldið að ef um mjög vinsæl-
ar þáttaraðir væri að ræða væru allir
búnir að sjá þær þegar á VOD-ið
væri komið, en svo er ekki. Það er
mjög mikil eftirspurn eftir þeim þar.
Við erum einnig með gamlar þátta-
raðir eins og Heilsubælið og Fóst-
bræður og þær seljast ágætlega,“
segir Friðrik.
Ástæðan fyrir velgengninni er
augljós. Að vídeóleigan sé komin inn
í stofu til þín gerir allt auðveldara.
Aldrei þarf maður að hafa áhyggjur
af því að skila spólunni of seint eða að
spólan sem mann langar í sé ekki
inni. Ofan á það er verðið aðeins
lægra. Aðspurður heldur Friðrik
samt að vídeóleigurnar muni ekki
deyja út. „Nei, ég held það ekki. En
þú sérð það sjálfur að þetta eru orðin
breytt fyrirtæki. Er ekki veit-
ingasalan orðin um 50-60% af velt-
unni? Þannig að samsetningin er orð-
in öðruvísi en hún var, útleiga á
myndunum er ekki jafn stór hluti af
veltunni og hún var. En ég held að
þær hverfi ekki. Svo eru ekki allir
tengdir við netið og það fólk mun
áfram þurfa vídeóleigurnar.“
Myndbandaleigan komin
heim í stofu landsmanna
Úr Brimi Ýmis þ́ægindi fylgja því að geta leigt sér mynd stafrænt.
Yfir 3.000 bíó-
myndir eru að-
gengilegar í sjón-
varpinu þínu,
heima í stofu
George Michael ræddi við blaða-
menn fyrir utan heimili sitt í Lond-
on í gær þar sem hann var nýkom-
inn úr steininum. „Ég vil bara fá að
byrja upp á nýtt,“ sagði hann. Hann
var handtekinn í júlí þegar hann
hafði ekið á ljósmyndavöruverslun
og var í annarlegu ástandi, lá fram
á stýri Range Rover-bifreiðar.
Reuters
Í ruglinu George gamli Michael hefur séð fífil sinn fegurri.
Georg
minn …