Morgunblaðið - 20.10.2010, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
FRÉTTASKÝRING
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Kröfur sem ekki fást greiddar við
gjaldþrotaskipti fyrnast á tveimur
árum frá lokum skipta, verði boðað
stjórnarfrumvarp um breytingar á
lögum um fyrningu kröfuréttinda að
lögum. „Þetta er gríðarleg réttarbót
fyrir fólk sem lendir í þeirri ógæfu
að verða gjaldþrota,“ segir Ögmund-
ur Jónasson dómsmálaráðherra.
Ríkisstjórnin samþykkti frum-
varpið á fundi sínum í gær. Það er
nú í kostnaðarmati hjá fjár-
málaráðuneytinu og verður síðan
kynnt í öllum þingflokkum. Stefnt er
að því að frumvarpið verði lagt fram
í vikunni.
Almennur fyrningarfrestur kröfu-
réttinda er nú fjögur ár en lengri
frestur í ýmsum tilvikum. Frest-
urinn byrjar að líða þegar skiptum
lýkur þegar um er að ræða kröfur
sem ekki fást greiddar í gjald-
þrotaskiptum. Þær falla niður þegar
fyrningarfresti lýkur nema frest-
urinn rofni, til dæmis vegna máls-
höfðunar kröfuhafa sem þannig geta
haldið kröfu sinni lengi til streitu.
Þrengt að slitum fyrningar
Í frumvarpsdrögunum er gert ráð
fyrir því að kröfurnar falli niður að
tveimur árum liðnum og ekki verði
hægt að slíta fyrningunni nema í
undantekningartilvikum. Sam-
kvæmt upplýsingum blaðsins lúta
þau að því ef kröfuhafi hefur sér-
staka hagsmuni af því að rjúfa fyrn-
inguna og getur sýnt fram á að lík-
legt megi telja að hann fái kröfu sína
greidda á nýjum fyrningartíma.
Kröfuhafi þarf að leita til dómstóla
með það. Þegar hagsmunir kröfu-
hafa eru metnir er horft til þess af
hvaða rót krafan er runnin. Sem
dæmi er tekið að um geti verið að
ræða kröfu á hendur þrotamanni
sem til hefur orðið með saknæmri
eða ámælisverðri háttsemi hans.
„Í stað þess að vera hundelt og
nánast ýtt utangarðs í samfélaginu á
fólk þess kost að reisa sig við að nýju
innan ekki allt of langs tíma,“ segir
Ögmundur Jónasson og segir breyt-
inguna einnig góða í efnahagslegu
tilliti. „Þar með verður fólk fyrr fært
um að taka að nýju þátt í samfélag-
inu og efnahagslífinu.“.
Lagabreytingin mun ekki breyta
miklu um innheimtu skattkrafna rík-
isins. Ríkið hefur haft þá stefnu í
áratug að láta duga að gera árang-
urslaus fjárnám fyrir kröfum sem
ekki fást greiddar hjá eignalausu
fólki. Þær afskrifast þá að fjórum ár-
um liðnum, ef skuldarinn ekki greið-
ir og ekkert annað kemur til.
Árangurslausum fjárnámum hef-
ur fjölgað mjög undanfarna mánuði
eftir að kröfuhöfum var gert auð-
veldara um vik að fá úrskurð um
það.
Sá sem óskar eftir gjald-
þrotaskiptum þarf að leggja fram
250 þúsund króna tryggingu fyrir
kostnaði við skiptin. Það er ástæða
þess að innheimtumenn ríkissjóðs
hættu að krefjast gjaldþrotaskipta,
nema í undantekningartilvikum. Aft-
ur á móti er algengt að ríkið krefjist
gjaldþrotaskipta lögaðila enda er
það forsenda afskriftar krafna.
Kröfur falla niður eftir tvö ár
Stjórnarfrumvarp gerir ráð fyrir styttingu fyrningartíma krafna eftir gjaldþrot
Fólk fyrr fært um að taka að nýju þátt í samfélaginu, segir dómsmálaráðherra
„[...]þannig að ekki sé
verið að elta þá sem
fara í gjaldþrot út
yfir gröf og dauða.“
Jóhanna Sigurðardóttir
Kuldalegt var um að litast í höfuðborginni í gær og
snjókomu varð vart. Snjólínan í Esjunni virðist vera
að skríða nær og nær og eflaust er þess ekki langt
að bíða að veturinn gangi í garð, en fyrsti vetrar-
dagur er á laugardag. Á aðfaranótt fimmtudags er
spáð næturfrosti í borginni.
Að sögn lögreglunnar á Akureyri hefur hálku
ekki orðið vart, en þar var í gær þurrt frost og
grámi í fjöllum. Veðurstofan spáir éljum og svölu
veðri á norðan- og austanverðu landinu út vikuna.
Sunnanlands er búist við bjartara veðri fram yfir
helgi. kjartan@mbl.is
Grámi í fjöllum og vetur nálgast
Morgunblaðið/Golli
Sjö þingmenn VG, Sjálfstæðis-
flokks, Framsóknarflokks og Hreyf-
ingarinnar hafa lagt fram þings-
ályktunartillögu á Alþingi um að
þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um
hvort halda beri áfram aðlögunar-
og viðræðuferli Íslands og Evrópu-
sambandsins. Gert er ráð fyrir að
þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram
samhliða kosningum til stjórnlaga-
þings í nóvember.
Í greinargerð með tillögunni segir
að meirihluti alþingismanna endur-
spegli ekki meirihluta þjóðarinnar í
afstöðunni til aðildar að Evrópu-
sambandinu. Sambandið geri ráð
fyrir að eining sé meðal þings og
ríkisstjórnar umsóknarþjóðar um
aðildarumsókn en engri slíkri ein-
ingu sé til að dreifa á Íslandi. Skoð-
anakannanir sýni andstöðu almenn-
ings við aðild og naumur og
ósannfærandi þingmeirihluti sé fyr-
ir henni. Þá sé ríkisstjórnin sjálf
sundurþykk í afstöðunni til umsókn-
ar og inngöngu.
Ef áframhaldandi aðildarviðræð-
ur verði samþykktar í þjóðarat-
kvæði hafi stjórnvöld fengið skýrt
umboð í hendur, ekki fyrr.
Þingmenn fjögurra flokka
Vigdís Hauksdóttir, þingmaður
Framsóknarflokks, er fyrsti flutn-
ingsmaður þingsályktunartillögunn-
ar en einnig standa að tillögunni Ás-
mundur Einar Daðason, þingmaður
Vinstri grænna, Birgitta Jónsdóttir,
þingmaður Hreyfingarinnar, Hall-
dóra Lóa Þorvaldsdóttir, varaþing-
maður VG, Pétur H. Blöndal og
Árni Johnsen, þingmenn Sjálfstæð-
isflokks, og Birgir Þórarinsson,
varaþingmaður Framsóknarflokks.
kjartan@mbl.is
Leggja til þjóðaratkvæða-
greiðslu um ESB-viðræður
Morgunblaðið/Ómar
Tillaga Pétur Blöndal og Vigdís
Hauksdóttir standa að tillögunni.
Sjö þingmenn leggja fram þingsályktunartillögu
Borgarfulltrúar Besta flokksins og
Samfylkingarinnar samþykktu í
gær að fela skrifstofustjóra borg-
arstjóra að vera æðsti yfirmaður
embættismanna borgarinnar, að
borgarstjóra undanskildum. Full-
trúar Sjálfstæðisflokksins og VG
lýstu yfir andstöðu við þessa
breytingu og kröfðust þess að
staðan yrði auglýst.
Í samþykkt meirihlutans kemur
fram að borgarstjóri var áður yf-
irmaður átta sviðsstjóra, tíu skrif-
stofustjóra og innri endurskoð-
anda, auk aðstoðarmanns. Þá eru
ótalin bein samskipti hans við yf-
irmenn tíu fyrirtækja borgarinnar.
Eftir breytinguna heyra allir
æðstu embættismenn borgarinnar
undir skrifstofustjórann, Regínu
Ásvaldsdóttur, að undanskildum
borgarlögmanni og innri endur-
skoðanda. Fram kemur að þessi
ráðstöfun er tímabundin og jafn-
hliða verður skrifstofa borgar-
stjóra efld í því skyni að styrkja
stjórnun og samhæfingu í stjórn-
kerfi borgarinnar. Þá muni Regína
taka að sér verkstjórn í vinnu við
heildarendurskoðun á stjórnkerfi
borgarinnar, fyrir hönd borg-
arstjóra.
Óljós ábyrgð
Borgarfulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins og VG telja að meiri-
hlutinn geti ekki breytt starfi
borgarstjóra með þessum hætti,
án ítarlegrar lýðræðislegrar um-
ræðu. Vakin er athygli á því að í
tillögunni séu engar línur lagðar
varðandi verksvið, valdsvið og um-
boð viðkomandi starfsmanns né
heldur hver ábyrgð hans sé gagn-
vart borgarráði.
„Það sem er verst við þessa að-
gerð er að hún færir í raun valdið
fjær íbúum Reykjavíkur og nær
kerfinu sjálfu. Það er ekki góð
þróun, hvort sem hún er skil-
greind sem tímabundin eða var-
anleg,“ segir í bókun fulltrúa
minnihlutans í borgarstjórn
Reykjavíkur.
Skrifstofustjóri yfir
embættismönnum
Minnihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur
segir að valdið sé fært fjær íbúum borgarinnar
Friðrik Ó. Frið-
riksson, formað-
ur Hagsmuna-
samtaka
heimilanna, fagn-
ar frumvarpinu
ef það leiðir til
fullnaðarfyrn-
ingar krafna
tveimur árum
eftir gjaldþrot.
Hann segir að
ójafnvægi hafi verið milli skuldara
og fjármálafyrirtækja sem hafi
gengið fram af miklu ofríki. Það
geti orðið raunverulegt val hjá
fólki sem á í miklum fjárhags-
kröggum að lýsa sig gjaldþrota.
„Það á þá nýjan aðgöngumiða inn í
samfélagið en er ekki neytt til að
fela eigur sínar og stunda viðskipti
í svarta hagkerfinu,“ segir Friðrik.
Þá telur hann að breytingin kunni
að stuðla að því að fjármálafyr-
irtækin verði viljugri til að semja
um kröfur sínar í stað þess að hóta
gjaldþroti.
Fjármálafyrirtækin
verða viljugri til að
semja
Friðrik Ó.
Friðriksson