Morgunblaðið - 20.10.2010, Qupperneq 6
SVIÐSLJÓS
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Íbúðalánasjóður eignaðist í gær 44
íbúðir í tveimur blokkum í Vindakór í
Kópavogi með því að bjóða þrjár
milljónir króna í hverja og eina íbúð.
Alls námu kröfur sjóðsins í blokkina
um einum milljarði. En þar með eru
kröfurnar sem á þeim hvíla alls ekki
upp taldar. Talið er að um 500-700
milljónir kosti að ljúka við húsin sem
nú liggja undir skemmdum, sam-
kvæmt lauslegu mati HK-fasteigna,
fasteignafélags í eigu VBS-bankans
sem var skráður eigandi íbúðanna
þar til í gær.
Sló blokkina í eldhúsinu
Uppboðið var haldið í íbúð á 2.
hæð stigagangs númer 2 við Vinda-
kór. Sú íbúð og nokkrar aðrar í sama
stigagangi eru hvað lengst komnar.
Búið er að pússa veggina, draga raf-
magn í leiðslur og setja upp nokkra
ofna. Á baðherberginu er búið að
setja upp sturtubotn en hvorki nudd-
baðkar né sturtuklefa með nuddstút-
um, eins og ætlunin var. Aðrar íbúðir
eru flestar mun skemmra á veg
komnar og aðeins er búið að setja
gólfefni á eina íbúð, sýningaríbúð á 1.
hæð. Það er reyndar ónýtt eftir
vatnsleka.
Í íbúðinni þar sem uppboðið
fór fram er aðeins merki um
vatnsleka við einn vegg íbúð-
arinnar en af mönnum sem
þekkja húsið og voru viðstadd-
ir uppboðið mátti heyra að það
væri lítið. Báðar blokkirnar
liggja undir skemmdum. Á ann-
arri þeirra er ekki búið að ljúka við
að klæða húsið með flísum og á
hinni blokkinni er ekki byrjað
að setja klæðninguna upp. Ein-
angrun sem er utan á blokk-
unum er því víðast illa eða
óvarin fyrir vatni og vind-
um. Í vetur verður að kynda
blokkirnar til að koma í veg
fyrir frekari rakaskemmdir.
Fulltrúi sýslumanns og rit-
ari voru mætt með viðeigandi
skjöl og lítinn hamar. Þá var
allt til reiðu. Brynjar Kvaran
eyddi ekki miklum tíma til að ræða
formsatriði, enda vissu allir við-
staddir um hvað málið snerist. Það
varð strax ljóst að aðeins einn aðili
ætlaði að bjóða í íbúðirnar; Íbúða-
lánasjóður. Brynjar lýsti eftir boðum
og Magnús Barðdal Reynisson, lög-
fræðingur hjá Íbúðalánasjóði, bauð
þrjár milljónir. „Ég lýsi eftir frekari
boðum. Fyrsta, annað. Ég lýsi eftir
frekari boðum í þriðja og síðasta
sinn. Ekkert kemur fram,“ sagði
Brynjar og sló hamrinum í lágan
vegg sem skildi að eldhús og borð-
stofuna. „Þá er það næsta eign.“
Þannig gekk uppboðið fyrir sig á öll-
um íbúðunum 44, ekki var gengið
íbúð úr íbúð heldur voru þær allar
boðnar upp í eldhúsinu í íbúðinni á 2.
hæð. Fulltrúi Íbúðalánasjóðs bauð
ávallt þrjár milljónir og aðeins liðu
tæplega 40 mínútur þar til uppboðið
var um garð gengið. Þó fór nokkur
tími í deilur milli fulltrúa Íbúðalána-
sjóðs og fulltrúa VBS-banka um
hvort flísar og innréttingar í kjallara
tilheyrðu íbúðunum eða væru
lausafé sem ekki ætti að bjóða upp.
Bókað var um þetta á báða bóga.
Íbúð slegin á mínútu
Íbúðalánasjóður eignast 44 íbúðir á uppboði í blokkunum við Vindakór 2-8
Talið að 500-700 milljónir kosti að ljúka við bygginguna Einn bjóðandi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stórar íbúðir Ítrekað hefur verið brotist inn í blokkirnar og ýmsu stolið, m.a. kamínum sem búið var að setja upp í íbúðunum. Meðalstærð íbúðanna er
145m². Sú minnsta er 115 m² en sú stærsta er 194,6 fermetrar. Íbúðirnar átti að afhenda með afar glæsilegum innréttingum, m.a. nuddbaðkari.
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2010
Maðurinn sem slasaðist í spreng-
ingu á heimili sínu á Siglufirði á
mánudag liggur nú á gjörgæslu-
deild Landspítalans í Fossvogi.
Maðurinn, sem er á sjötugsaldri,
hlaut alvarlega áverka, meðal ann-
ars brunasár, en er ekki í lífshættu.
Að sögn lögreglunnar á Akureyri
sem annast rannsókn málsins virð-
ist maðurinn hafa verið að vinna
með slípirokk þegar neisti komst í
eldfim efni sem voru geymd á neðri
hæð hússins. Lögreglan segist eiga
eftir að fá úr því skorið hvaða efni
þetta hafi verið, en um er að ræða
einhverskonar eldfiman vökva. Það
skýrist vonandi þegar hægt verði
að ræða við manninn.
Neisti komst
í eldfiman vökva
Í ár hafa verið
fryst tæplega 17
þúsund tonn af
uppsjávar-
afurðum í fisk-
iðjuveri HB
Granda á Vopna-
firði. Þetta er
nýtt vinnslumet
en 2004 voru
fryst 12.700 tonn
af afurðum á
Vopnafirði. Þá var tæpur helmingur
afurðanna heilfryst loðna en nú eru
það síldar- og makrílafurðir sem
verið hafa uppistaðan í framleiðsl-
unni, tæplega 11.000 tonn af síld og
rúmlega 4.800 tonn af makríl.
Meira fryst en áður
á Vopnafirði
Frysting Í vinnsl-
unni á Vopnafirði.
Helgi Magnús
Gunnarsson, yfir-
maður efnahags-
brotadeildar
ríkislögreglu-
stjóra, segist hafa
sagt lögmanni
Gildis í símtali að
hann hefði ekki
tekið ákvörðun
um rannsókn á
sjóðnum og það
væri rétt en hins vegar hefði hann
ekki vitað að saksóknari í tíma-
bundnu starfi hefði tekið slíka
ákvörðun.
Árni Guðmundsson framkvæmda-
stjóri Gildis gerir athugasemdir við
fréttaskýringu í Morgunblaðinu í
gær og segir að í ljósi upplýsinga frá
yfirmanni efnahagsbrotadeildar
ríkislögreglustjóra hafi sjóðurinn
sent frá sér yfirlýsingu, þar sem þær
upplýsingar hafi komið fram. Sjóð-
urinn hafi því ekki vísvitandi sent
frá sér ranga tilkynningu.
Röng tilkynning
byggð á misskilningi
Helgi Magnús
Gunnarsson
Jónas Margeir Ingólfsson
jonasmargeir@mbl.is
Tillögur mannréttindaráðs Reykjavíkur-
borgar um að banna sálmasöng og listsköpun í
trúarlegum tilgangi fer í grundvallaratriðum
gegn Aðalnámskrá grunnskóla og hindrar að
kennarar geti sinnt sínu lögboðna hlutverki.
Þetta er skoðun Fjalars Freys Einarssonar,
grunnskólakennara í kristnum fræðum, sið-
fræði og trúarbragðafræði.
„Sem kennari í kristnum fræðum, sið-
fræði og trúarbragðafræði, finnst mér hendur
kennara bindast talsvert við þessar tillögur
auk þess sem þær stangast á mörgum sviðum
á við Aðalnámskrá grunnskóla sem hefur
reglugerðarígildi og er það plagg sem öllum
grunnskólakennurum ber að fara eftir,“ segir
Fjalar Freyr.
Í tillögum mannréttindaráðs segir að
fermingarfræðsla trúfélaga skuli fara fram ut-
an skólatíma en undanfarin ár hafa nemendur í
8. bekk fengið frí í tvo daga til að sitja ferming-
arfræðslunámskeið. Í tillögum mannréttinda-
ráðs segir að þetta setji
skólastarf úr skorðum og
slík truflun sé óæskileg.
Fjalar segir foreldra
þurfa að biðja um leyfi fyrir
barn sitt vegna ýmissa
ástæðna í öllu skólastarfi.
„Það er á ábyrgð foreldra
að óska eftir leyfi fyrir sitt
barn. Ef undanskilja á sér-
staklega leyfi sem foreldrar
biðja um vegna ferming-
arfræðslu er Mannréttindaráð Reykjavík-
urborgar farið langt út fyrir sitt verksvið og
farið að mismuna nemendum vegna trúar sinn-
ar.“
Bannað að gefa Nýja testamentið
Í tillögum mannréttindaráðs segir enn-
fremur að heimsóknir starsfsmanna trúfélaga
í grunnskóla og dreifing trúarrita, s.s. Nýja
testamentis, verði óheimil.
Fjalar bendir á að á tímum fjölmenningar
ætti mannréttindaráð frekar að hvetja til sam-
ræðu og fræðslu um trúfélög í stað þess að
banna slíkt að hætti alræðisríkja. Hann bendir
einnig á að í Aðalnámskrá grunnskóla er stefnt
að því að nemendur þekki efni Biblíunnar, geri
sér grein fyrir trúarlegu og menningarlegu
mikilvægi hennar og kynnist jafnframt sögu
hennar.
„Á hverju hausti í tæp 60 ár hafa Gídeon-
menn heimsótt grunnskóla landsins og gefið
nemendum Nýja testamentið. Gídeonmenn
hafa í heimsóknum sínum sýnt háttvísi og til-
litssemi við nemendur og lagað sig vel að
breyttu trúarmynstri í skólastofunni. Gjöf
þeirra er höfðingleg og styður vel við skóla-
starfið og þá kennslu sem þar fer fram. Slíka
gjöf ber að þakka en ekki hafna. Ef önnur sam-
tök geta boðið öllum grunnskólabörnum trúar-
rit sitt myndi það nýtast vel í kennslu,“ segir
Fjalar.
Þá bendir Fjalar á áfangamarkmið Aðal-
námskrár en þar er gert ráð fyrir að nem-
endur „kynnist enn frekar íslenskri sálmahefð
og trúarlegri tónlist og myndlist“ og að þeir
„heimsæki kirkju og skoði helstu kirkjumuni“.
Þannig kveður Fjalar tillögur mannrétt-
indaráðs ganga í berhögg við Aðalnámskrá því
í tillögunum eru ferðir í bænahús og sálma-
söngur bönnuð.
Tillögur ganga þvert á aðalnámskrá
Kennari í trúarbragðafræðum telur tillögur mannréttindaráðs hindra að kennarar geti sinnt lög-
boðnu hlutverki sínu Segir að þakka beri Gídeonfélaginu fyrir gjöfina í stað þess að hafna henni
Morgunblaðið/Kristján
Dansað Margir telja vegið að litlu jólunum
með tillögum mannréttindaráðs Reykjavíkur.
Fulltrúi Íbúðalánasjóðs bauð
ávallt þrjár milljónir. Þannig
vildi hann vera viss um að
vera ávallt yfir lögveðum,
þ.e. fasteignagjöldum og
brunatryggingum. Íbúða-
lánasjóður var á 1. veðrétti
í öllum tilvikum og var því
að bjóða í sinn eigin veðrétt.
Hann leysir því í raun til
sín íbúðirnar en reiðir
ekki fram fé. Upphæðin er
m.a. höfð lág til að
minnka uppboðsgjöld
til sýslumanns. Eftir því
sem bjóða þarf hærra
lækkar skuld fyrri eig-
anda minna. Auk lána
frá ÍLS höfðu hvílt á
blokkunum lán frá Glitni
fyrir um einn milljarð, auk
lána frá VBS.
Lágt tilboð
MILLJARÐUR FRÁ GLITNI
Fjalar Freyr
Einarsson