Morgunblaðið - 20.10.2010, Page 8
FRÉTTASKÝRING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Talsmenn Sjómannasambands Ís-
lands og Félags skipstjórnarmanna
segja að hugmynd Jóns Bjarnasonar
sjávarútvegsráðherra um leigugjald á
tilteknum fisktegundum sé út í hött, á
móti lögum og stefni samningum í
uppnám.
„Við erum alfarið á móti allri fram-
leigu á kvóta,“ segir Sævar Gunn-
arsson, formaður Sjómannasambands
Íslands, um yfirlýsingu Jóns Bjarna-
sonar sjávarútvegsráðherra þess efnis
að hann ætli að úthluta ákveðnu
magni af þorski, ýsu, ufsa, gullkarfa
og íslenskri sumargotssíld til skipa ut-
an aflamarks og gegn sérstöku gjaldi.
Eitt helsta baráttumálið
Sævar segir Sjómannasambandið
leggjast gegn allri leigu á kvóta
„vegna þess að karlarnir okkar eru
látnir borga leigugjald til þeirra sem
eru handhafar kvótans hverju sinni“.
Hann segir að frá 1992 hafi eitt helsta
baráttumál Sjómannasambandsins
verið að koma í veg fyrir leigubrask
með kvóta og skipti þá engu hvort rík-
ið eða útgerðarmenn eigi hlut að máli.
Hins vegar verði menn að bíða
átekta og sjá hvað gerist því á þessari
stundu viti enginn hvað ráðherra hafi
mikið magn í huga, hvar eigi að taka
kvótann, hvort þetta verði viðbót-
arkvóti eða yfir höfuð hvort þetta
verði að veruleika. Í gildi séu lög í
landinu sem banni að sjómenn séu
látnir taka þátt í kaupum á aflaheim-
ildum, en enginn hafi farið eftir þeim.
Komi þessi leiga til sé bara verið að
bæta gráu ofan á svart. „Ég vona bara
að það verði ekkert úr þessu,“ segir
hann.
Útfærsla á fyrningarleið
Árni Bjarnason, formaður Félags
skipstjórnarmanna, tekur í sama
streng. Hann segir ekkert að marka
ráðherrann sem hafi í vitna viðurvist
lýst sig andsnúinn fyrningarleiðinni,
en þetta útspil væri ekkert annað en
þessir háu herrar haldi að vanir sjó-
menn standi í hópum á hliðarlínunni
tilbúnir að taka við en það er langur
vegur frá því að svo sé.“
Kjörin skert
Árni bendir á að engir kjarasamn-
ingar séu til fyrir sjómenn á smábát-
um og á því þurfi að taka, en hug-
myndir ráðherra séu sem olía á eld.
Verði þessi hugmynd að veruleika sé
verið að skerða kjör sjómanna og ann-
arra stétta launafólks sem byggja á
sjávarútvegi.
„Það er verið að ganga í augun á
þeim sem minnst þekkja til sjávar-
útvegs á Íslandi og telja sjálfgefið að
þeir eigi að fá sinn skerf af auðlinda-
rentunni fyrir það eitt að vera Íslend-
ingar, þótt þeir hafi varla komið niður
á bryggju, hvað þá út á sjó,“ segir
hann og vísar einkum til liðs í 101
Reykjavík. „Það gengur ekki að allir
geti verið leigubílstjórar þótt þeir eigi
bíl og að sama skapi geta ekki allir
veitt úr takmarkaðri auðlind. Þetta er
einfaldlega staðreynd sem ekki verður
horft framhjá hvað sem öðru líður.“
Samningar í uppnámi
Félag skipstjórnarmanna og Sjómannasamband Íslands leggjast gegn hug-
myndum ráðherra um að leigja út aflaheimildir í þorski, ýsu, ufsa, gullkarfa og síld
Morgunblaðið/Alfons
Netaveiðar Þegar netin eru bunkuð af golþorski þurfa handtökin að vera eldsnör svo hægt sé að leggja netin aftur.
ákveðin útfærsla á henni.
„Ég sé ekki hvernig við eigum að
ljúka kjarasamningi, þegar allar for-
sendur eru einhvers staðar úti í mó-
um,“ segir hann, en samningar eru
lausir um áramót. Þetta, í viðbót við
afnám sjómannaafsláttarins, geti
hreinlega leitt til þess að sjómenn fari
í verkfall, að sögn Árna. „Þetta kippir
grundvellinum undan því að við getum
samið,“ segir hann.
Uppgjör verði könnuð
Skötuselsfrumvarpið fór illa í við-
mælendur og Árni segir að ekki hafi
komið fram hvort sjómenn hafi í þeim
tilvikum verið látnir taka þátt í kostn-
aði vegna kvótaleigunnar. Hann segist
vera búinn að óska eftir því við Verð-
lagsstofu að uppgjör viðkomandi út-
gerða verði könnuð. Eitt stærsta bar-
áttumál sjómannasamtakanna hafi
um árabil verið að reyna að koma í veg
fyrir að sjómenn yrðu látnir taka þátt í
kvótaleigu en stöðugt kæmu fram til-
vik þar sem traðkað væri á mönnum í
því efni.
„Maður hefur á tilfinningunni að
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2010
Bankarnir sem reistir voru á rúst-um hinna gömlu hafa ekki fót-
að sig á veg til framtíðarinnar. Þeir
fela sig á bak við „bankaleynd“ þeg-
ar engin efni eru til slíks. Þeir mis-
muna fólki og hafa reynst sér-
staklega hallir undir þá sem ekki er
hægt að deila um að réðu mestu um
að íslenska bankakerfið hrundi.
Engin heilbrigð skýring getur verið
til á því. Um hina óheilbrigðu skýr-
ingu verður að upplýsa. Þar gildir
engin bankaleynd.
Páll Vilhjámssonskrifar: „Lands-
bankinn er ríkis-
banki og ætlað að
vera hornsteinn í
endurreistu atvinnu-
lífi. Fréttatilkynning
um að bankinn hafi
fylgt verklagsreglum í afskriftum
skulda Nónu ehf. gefur til kynna að
bankinn taki hlutverk sitt alvarlega.
Landsbankinn endurskoðar vænt-anlega viðskipti sín við Jón Ás-
geir Jóhannesson, fyrrum Baugs-
stjóra, í samræmi við vilja til að
þjóna almannahagsmunum en
stunda ekki samfélagslegt hryðju-
verk.
Landsbankinn veitti Jóni Ásgeiriheimild til að stjórna áfram
fjölmiðlaveldinu sem kennt er við
365-miðla en það hefur hann mis-
kunnarlaust notað til að fegra mál-
stað auðmanna og hrunvalda og
draga fjöður yfir óhæfuna sem við-
gekkst á útrásarárum.
Samkvæmt skilgreiningu níðistLandsbankinn á almenningi á
meðan bankinn leyfir að Jón Ásgeir
og fjölskylda fari með yfirráðin yfir
365-miðlum.“
Landsbankinn verður að gerahreint. Hver er óheilbrigða
skýringin?
Páll Vilhjálmsson
Landsbankinn
skuldar svör
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 19.10., kl. 18.00
Reykjavík 4 léttskýjað
Bolungarvík 3 heiðskírt
Akureyri 4 léttskýjað
Egilsstaðir 1 snjóél
Kirkjubæjarkl. 2 léttskýjað
Nuuk 12 skýjað
Þórshöfn 1 snjókoma
Ósló 6 skúrir
Kaupmannahöfn 8 léttskýjað
Stokkhólmur 7 skúrir
Helsinki 5 skúrir
Lúxemborg 7 heiðskírt
Brussel 10 léttskýjað
Dublin 10 skýjað
Glasgow 8 léttskýjað
London 8 skýjað
París 12 skýjað
Amsterdam 8 skúrir
Hamborg 10 léttskýjað
Berlín 7 skúrir
Vín 10 skýjað
Moskva 1 heiðskírt
Algarve 21 heiðskírt
Madríd 21 heiðskírt
Barcelona 16 heiðskírt
Mallorca 17 heiðskírt
Róm 17 léttskýjað
Aþena 21 léttskýjað
Winnipeg 7 skýjað
Montreal 8 skýjað
New York 12 alskýjað
Chicago 12 skýjað
Orlando 26 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
20. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:34 17:52
ÍSAFJÖRÐUR 8:47 17:49
SIGLUFJÖRÐUR 8:30 17:32
DJÚPIVOGUR 8:05 17:20
Á aðalfundi Landssambands
smábátaeigenda fyrir helgi var
harðlega mótmælt þeirri fyr-
irætlun sjávarútvegsráðherra
að úthluta auknum þorsk- og
ýsukvóta með því að leigja hann
út líkt og gert var með skötusel.
Fundurinn krafðist þess að
auknum heimildum yrði út-
hlutað til núverandi handhafa
veiðiheimilda enda hefðu þeir
þurft að þola miklar skerðingar
á undanförnum misserum og ár-
um.
Yrði ákvörðun ráðherra að
veruleika myndu laun sjómanna
lækka verulega og verið væri að
kasta stríðshanska inn í grein-
ina.
Kröftug
mótmæli
SMÁBÁTAEIGENDUR ÆFIR