Morgunblaðið - 20.10.2010, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2010
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Bókin, Fornbókaverslun Braga
Kristjónssonar, varð 50 ára á
þessu ári og af því tilefni verða all-
ar bækur í búðinni til sölu með
50% afslætti. Útsalan hefst í dag
og stendur í viku.
Alls eru bækurnar og ritin í
búðinni um 40.000 talsins en Ari
Gísli Bragason viðurkennir þó að
þetta sé bara ágiskun. „Þetta er
ekki nákvæm vörutalning, svona
okkar á milli,“ segir hann. Enginn
viti í raun hversu margar bækur
eru á þeim 150 fermetrum sem
búðin nær yfir.
Miðað við þessa ágiskun eru
því um 270 rit á hverjum fermetra.
Myndin drap reyfara-
viðskipti
Bókin var stofnuð á Klapp-
arstíg 26 vorið 1960 og árið 1996
var hún sameinuð fornbókaversl-
uninni Bókavörðunni, sem Bragi
Kristjónsson stofnaði árið 1976.
Bragi segir að fræðirit af
ýmsu tagi seljist best, íslensk
fræði, norræn fræði, héraðssaga,
ættfræði og fleira. „Og líka mikið
af þýddum skáldsögum, svona
betri sögum, ekki ruslið sko. Ekki
reyfararnir, þeir eru dauðir.
Sjoppulitteratúrinn er kominn inn
í myndina. Eftir að vídóið og þetta
kom datt öll sala á reyfurum niður,
sem var stór hluti af þessum við-
skiptum hér áður fyrr.“
Þótt lagerinn sé ekki tölvu-
skráður og raunar engin tölva í
búðinni reka þeir Bragi og Ari net-
verslun, bokin.is. Í gegnum hana
selja þeir töluvert af bókum, ekki
síst til erlendra háskóla sem kenna
íslensku og íslensk fræði. „Þeir
kaupa fræðirit, um íslensk fræði
og sögu og alls konar. Jafnt í Jap-
an, Þýskalandi, Bandaríkjunum og
Danmörku og úti um allan heim.
Það er kennd forníslenska eða ís-
lenska í um 120 skólum í útlöndum
og þeir náttúrlega þurfa að eiga
viss undirstöðurit í íslenskum
fræðum. Þeir geta keypt frekar
heldur en íslenskar stofnanir sem
hafa verið fjársveltar á þessu sviði
í mörg ár,“ segir Bragi.
Hann segir að viðskiptin hafi
aukist. „Yngra fólk sem maður
hefur aldrei séð áður kemur hing-
að og kaupir betri þýdd skáldverk,
Dostojevskí, Tolstoy og Hem-
ingway og þessa kalla, og fer með
þau niður í skuggann þegar það er
orðið þreytt á sjónvarpinu, því
sjónvarpið er svo leiðinlegt og lé-
legt yfirleitt.“
Framtíð fornbókaverslunar
virðist því björt, í það minnsta um
þessar mundir.
Fornbókabúðin býður 50%
afslátt á 50 ára starfsafmæli
Um 40.000 bækur og rit eru í búðinni Ungt fólk kaupir góð þýdd skáldverk
Morgunblaðið/Ómar
Tekið í nefið Oft er slegið á létta strengi í Bókinni. Bragi ásamt Ara Gísla syni sínum og Eiríki Ágústi Guðjónssyni.
Næsti fræðslufundur Minja og sögu
verður haldinn í Þjóðminjasafni Ís-
lands fimmtudaginn 21. október nk.
og hefst kl. 17.00. Steinunn Krist-
jánsdóttir dósent ræðir um upp-
gröftinn á Skriðuklaustri.
Í fyrirlestrinum verður dregin
fram mynd af byggingum og starf-
semi Skriðuklausturs miðað við nið-
urstöður uppgraftrar sem staðið hef-
ur yfir síðan 2002. Fjallað verður
sérstaklega um átta tilfelli sullaveiki
sem hafa fundist í gröfum á staðnum
en öll eru þau að líkindum frá 16. öld.
Farið verður yfir sögu sullaveikinn-
ar sem herjaði á Íslendinga öldum
saman og varð einn af mannskæð-
ustu sjúkdómum hérlendis um langa
hríð.
Segir frá
uppgreftri
Búist er við 290
fulltrúum af öllu
landinu á ársfund
Alþýðusambands
Íslands sem hefst
á morgun í
Reykjavík. Árs-
fundurinn stend-
ur yfir í tvo daga
og er yfirskrift
hans Stop, hingað
og ekki lengra. Samkvæmt upplýs-
ingum ASÍ verður áherslan við um-
ræður lögð á atvinnu- og kjaramál í
ljósi komandi kjarasamninga auk vel-
ferðarmála.
Ákveðin hefur verið sú nýbreytni
að taka upp þjóðfundarform við um-
ræður á ársfundinum, að sögn Hall-
dórs Grönvold, aðstoðarfram-
kvæmdastjóra ASÍ.
Skipt verður í þrjár málstofur sem
fjalla um einstök málefnasvið. Í einni
verður fjallað um efnahags- og kjara-
mál, í annarri um velferðar- og vinnu-
markaðsmál og loks verður fjallað
sérstaklega í málstofu um atvinnu- og
umhverfismál. Í stað þess að drög að
ályktunum í einstökum málaflokkum
verði lögð fyrir ársfundinn, eins og
venja hefur verið, eru nú eingöngu
lögð fyrir fundinn umræðuskjöl þar
sem stefna ASÍ í einstökum málum er
tekin saman.
Það verður hins vegar hvers mál-
efnahóps fyrir sig að móta hvaða til-
lögur verða lagðar fram til afgreiðslu
sem stefna og ályktanir ASÍ.
Kosningar á föstudag
Við setninguna á morgun munu
bæði forseti ASÍ og félagsmálaráð-
herra flytja ávörp. Þá hefjast almenn-
ar umræður og því næst taka málstof-
urnar til starfa. Kosningar til æðstu
embætta fara fram á föstudaginn.
Stefnan sett með
þjóðfundarsniði
Halldór Grönvold
Hálfur Skírnir í handbundnu skinnbandi, handbandi, er dýrasta ritið í
fornbókaversluninni, að sögn Ara Gísla. Árgangar 64-126 kosta 180.000
krónur, fullu verði, en á útsölunni verður ritið á 90.000 krónur.
Fleiri dýrar bækur leynast í búðinni, m.a. 1.-57. árgangur
Eimreiðarinnar í handskinnbandi á 180.000 krónur.
Einnig útgáfa Gunnars Gunnarssonar rithöf-
undar á Landnámu, áritað og tölusett,
á 60.000 krónur.
Ódýrustu ritin í forn-
bókaversluninni eru á 100
krónur, áður en tekið er tillit
til afmælisafsláttarins.
Dýrasta ritið á 180.000 krónur
HÁLFUR SKÍRNIR Í HANDBANDI
Fæst á 90.000 krónur á útsölunni.
21. 23.
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Þykkar, þunnar, síðar, stuttar, heilar, hnepptar
PEYSUR Str. 36-52