Morgunblaðið - 20.10.2010, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2010
www.xo.is
Borgarahreyfingin
– langstærsta
stjórnmálaaflið
á Íslandi innan skamms Þjóðin á þing!
Morgunblaðið/Ómar
Frumkvöðlar Valdimar Örn Flygenring og Eiríkur Guðmundsson leiðbeina á leiklistar- og kvikmyndanámskeiði.
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Leikararnir Valdimar ÖrnFlygenring og EiríkurGuðmundsson reka fyrir-tækið Studio list sem sér-
hæfir sig í námskeiðahaldi í leiklist
og kvikmyndagerð. Fyrir tveimur
mánuðum tóku þeir höndum saman
við Vinnumálastofnun og eru með
námskeið á vegum átaksins Ungt
fólk til athafna sem er til að aðstoða
atvinnulausa einstaklinga á aldr-
inum 16 til 29 ára við að komast aft-
ur út á vinnumarkaðinn.
„Okkur Eiríki fannst svona
námskeið tilvalið til að vekja frum-
sköpun hjá ungmennum sem eru
kannski búin að lenda í erfiðri lá-
deyðu vegna atvinnuleysis. Það hef-
ur sýnt sig hjá mörgum samfélögum
að svona vinna getur komið þeim til
baka. Enda hefur upplitið á þeim
sem eru á námskeiðunum hjá okkur
snarbatnað,“ segir Valdimar.
Þeir eru með um 30 til 40 ung-
menni í hóp og eru námskeiðin alla
daga vikunnar, fjóra tíma í senn.
Boðið er upp á tveggja mánaða nám-
skeið í kvikmyndagerð og þriggja
mánaða námskeið í leiklist.
„Við kennum tæknivinnu í kvik-
myndum og leiklist. Það er farið í
tökur, klippingu, vélar, ljós og hljóð,
svo er unnið með fullkominn tækja-
búnað sem við höfum fjárfest í, kvik-
myndaðar stuttar senur eða tilfall-
andi atburðir. Leiklistarnámskeiðið
er hefðbundnara, Eiríkur hefur
kennt leiklist í menntaskólum og það
nýtist vel. Ungmennin hafa líka
fengið að skrifa handrit,“ segir
Valdimar sem er mjög ánægður með
þann áhuga sem þau hafa sýnt nám-
skeiðunum.
Leita að verkefnum
„Við sáum það mjög fljótlega að
í staðinn fyrir að við séum að toga
þau eitthvað þarf ekki nema rétt að
ýta við þeim. Það sem við erum að
koma af stað innan í þeim er þessi
frumsköpunarkraftur, hann eflist
um leið og aðeins er ýtt við honum.
Við sáum strax mun á þeim, þetta er
orðið allt annað fólk.
Við erum líka að reyna að finna
verkefni fyrir ungmennin sem þau
myndu vinna á okkar tæki í fram-
haldi af námskeiðinu, svo þetta sé
líka atvinnuskapandi. Við fengum
t.d. það skemmtilega verkefni að
gera örlitla kynningarmynd fyrir
Háskólann um daginn sem var mjög
gaman og kom flott út. Ég auglýsi
bara hér með eftir verkefnum, stutt-
myndum eða auglýsingum eða öðru
fyrir ungmennin að vinna. Ef fólk er
með eitthvað sem þarf að gera væri
gaman ef það hefði samband við
okkur,“ segir Valdimar.
Studio list opnaði heimasíðu ný-
lega þar sem hægt er að sjá það sem
þeir bjóða upp á og efni sem hefur
verið unnið á námskeiðunum. Valdi-
mar segir að þeir ætli að bjóða upp á
frekari námskeið fyrir aðra hópa
fljótlega.
Frumsköpunar-
krafturinn vakinn
„Okkur Eiríki fannst svona námskeið tilvalið til að vekja frumsköpun hjá ung-
mennum sem eru kannski búin að lenda í erfiðri ládeyðu vegna atvinnuleysis,“
segir leikarinn Valdimar Örn Flygenring um námskeið í kvikmyndagerð og leik-
list sem hann og Eiríkur Guðmundsson bjóða atvinnulausum ungmennum uppá
hjá Studio list. Námskeiðshaldið er í samstarfi við átakið Ungt fólk til athafna.
Studio list er staðsett í Braut-
arholti 20, 3. hæð.
Heimasíðan er:
www.studio-list.com
Það eru margir kattareigendur í
þessum heimi sem vilja allt fyrir
köttinn sinn gera. Það getur nagað
eigendur að innan að sjá litla krútt-
inu sínu leiðast; ganga um sama
garðinn aftur og aftur, leika með
sama dótið og sofa til að drepa þenn-
an leiðinlega tíma. Því er vefsíðan
Cattv.com himnasending. Þar er
hægt að kaupa kvikmyndir á mynd-
diskum og spólum fyrir ketti að horfa
á, í boði eru myndirnar: Video Catnip
og Cat-TV II en í henni koma m.a. fyr-
ir mýs, fuglar, íkornar, naggrísir og
fiskar.
Einnig er boðið upp á eina kvik-
mynd fyrir hunda til að horfa á; Dog-
gie Adventure og er hún tekin upp frá
sjónarhorni hunds sem fer í ferðalag.
Það er fjölskyldufyrirtækið Pet A
Vision sem heldur úti vefsíðunni en
það framleiddi sína fyrstu kisu-
kvikmynd árið 1989. Enn er sú mynd
sú mest selda hjá fyrirtækinu.
Fyrirtækið selur líka leikföng fyrir
kisur á vefsíðunni og hefur sett upp
fyrstu vefsíðuna í heimi fyrir ketti, er
hún á slóðinni: www.cattv.com/
catwebsite.php. Á þeirri síðu má
velja um sex fígúrur, m.a. fugl og
flugu, til að láta sveima um tölvu-
skjáinn. Kötturinn getur þá dundað
sér við að reyna að veiða fígúruna
sem flögrar stöðugt um á skjánum,
um er að ræða stórskemmtilega af-
þreyingu og örvun fyrir kisu litlu.
Vefsíðan www.cattv.com
Gaman Þessum kisum leiðist ekki þar sem þær horfa á lítinn fugl hoppa um.
Elskar þú kisukrúttið þitt?
Málþing um fitufordóma á vegum
félags- og mannvísindadeildar Há-
skóla Íslands fer fram á morgun,
fimmtudaginn 21. október frá kl. 16-
18 í stofu 103 á Háskólatorgi.
Fordómar vegna holdafars eru al-
gengir og svo rótgrónir í okkar
menningu að fæst okkar átta sig á
því þegar þeir koma fram. Þeir hafa
aukist á undanförnum áratugum og
koma fram á öllum stigum þjóðlífs-
ins, allt frá leikskóla til atvinnu-
markaðarins. Barátta við slíka for-
dóma er mannréttindabarátta. Á
málþinginu munu tveir erlendir fyr-
irlesarar flytja erindi um þetta efni.
Annar er dr. Kerry O’Brien, dósent í
heilsu- og félagssálfræði við Háskól-
ann í Manchester og rannsakandi á
þessu sviði. Hinn er Marilyn Wann,
bandarísk baráttukona og rithöf-
undur sem staðið hefur í forgrunni
baráttunnar gegn holdafars-
mismunun um árabil.
Málþingið setur Sigrún Daníels-
dóttir, sálfræðingur á Landspítalan-
um. Allir eru velkomnir og aðgangur
er ókeypis.
Endilega …
… fræðist um fitufordóma
AP
Líkaminn Það berjast margir við offitu og við fordóma gagnvart líkama sínum.