Morgunblaðið - 20.10.2010, Side 11
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2010
Kaupaukinn* þinn þegar þú kaupir 2 Helena Rubinstein vörur
þar af eitt 50 ml andlitskrem:
- Prodigy krem 15 ml
- Prodigy Replasty peel krem 5 ml
- Prodigy Replasty dropar 7 ml
- All mascara augnhreinsir 50 ml
- Lash Queen Sexy Eyes maskari
- Color Clone farði 10 ml
- HR taska
Verðmæti kaupaukans 19.500 kr.
Einnig aðrar gerðir kaupauka*G
ild
ir
á
ky
nn
in
gu
nn
im
eð
an
bi
rg
ði
re
nd
as
t.
Ei
nn
ka
up
au
ki
á
vi
ðs
ki
pt
av
in
.
G
ild
ir
ek
ki
m
eð
öð
ru
m
til
bo
ðu
m
.
10%
AFSLÁTTUR
AF HRVÖRUM
Á KYNNINGU
HELENA RUBINSTEIN DAGAR
Í ÁRSÓL GRÍMSBÆ
MIÐVIKUDAGINN 20. OG FIMMTUDAGINN 21. OKTÓBER
E f s t a l a n d i 2 6 - G r í m s b æ - S í m i 5 5 3 1 2 6 2
HR GJAFADAGARNIR ÞÍNIR
„Eftirlætisörnefni mitt er Sleðmeiðar-
ásar. Þetta örnefni er ekki til á kortum
en þess er getið í nokkrum bréfum frá
17. öld. Örnefnið Sleðmeiðarásar er
fornt eftir því sem ég hef komist næst.
Ég kynntist þessu skemmtilega ör-
nefni við lestur bréfa Eggerts ríka
Björnssonar en hann var sýslumaður í
Barðastrandarsýslu á 17. öld. Lengst
af bjó Eggert þó á Skarði á Skarðs-
strönd í Dalasýslu. Bréfabók hans er
varðveitt í Þjóðskjalasafni Íslands og
hefur að geyma bréf frá árunum 1632-
1673. Örnefnið Sleðmeiðarásar vakti
óskipta athygli mína undir eins. Hver
freistast ekki til þess að velta fyrir sér
tilurð þess í huga sér? Þetta örnefni,
Sleðmeiðarásar, kemur við sögu í fjór-
um bréfum Eggerts ríka, fyrst árið
1637, því næst árið 1638 og loks í
tveimur bréfum frá árinu 1663. Eggert
reyndi að kaupa Sleðmeiðarása árið
1637 og er landspildan sögð liggja á
milli jarðanna Dagverðarness og Arn-
arbælis í því bréfi.
Eggert átti margar jarðir fyrir vest-
an. Þar á meðal var Dagverðarnes.
Komst Eggert í harðvítuga landa-
merkjadeilu við Hákon nokkurn Árna-
son, eiganda Arnarbælis. Snérist deil-
an um mörk fyrrnefndra jarða, en
mörk þeirra virðast hafa legið á eða
við Sleðmeiðarása. Eggert klagaði Há-
kon fyrir fógetanum á Bessastöðum
m.a. fyrir að hafa í félagi við annan
mann brotið niður hús í sinni eigu en
það mun hafa staðið á Sleðmeiðarás-
um. Í Sýslu- og sóknarlýsingum Dala-
sýslu frá 19. öld er ekki talað um Sleð-
meiðarása heldur
„Sleðmeimarása“.
Í þeirri heimild er
örnefnið sagt vera
fornt og almennt
ekki í notkun. Þess
í stað er talað um
Brandása. Þó er
getið um hústóft
sunnan til í Sleð-
meimarásum í
Sýslu- og sóknar-
lýsingunum og er ekki útilokað að það
séu rústirnar af húsi því er brotið var
niður og fyrr getur. Ekki vil ég þó full-
yrða neitt um það að óathuguðu máli
en það væri óneitanlega skemmtilegt
ef það fengist staðfest. Þess má til
gamans geta að Arnarbæli var eina
jörðin á Skarðsströnd sem Eggert
eignaðist aldrei og var sagt að það
hafi haldið fyrir honum vöku því ein-
hvern tímann mun hann hafa mælt
„Oft vekur þú mig, Arnarbæli“.
Gunnar Örn Hannesson sagn-
fræðingur á Þjóðskjalasafni Íslands.
Uppáhaldsörnefni Gunnars Arnars Hannessonar
Á Kili Mikið er af fornum örnefnum
við Hveravelli á Kili.
Sleðmeiðarásar ekki á kortum
Gunnar
Hannesson
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Art of Living-stofnunin er al-þjóðasjálfboðaliðastofnunsem hefur það að mark-miði að lyfta upp anda ein-
staklingsins og koma í veg fyrir ofsa
og streitu í þjóðfélaginu og veröld-
inni. Stofnunin er með námskeið í
streitulosun með athyglina á sjálfið
og náttúruna/umhverfið, auk þess
sem stofnunin sýnir fram á hvernig
þjóðfélagslegar breytingar geta verið
til bóta fyrir einstaklinginn og hvern-
ig á að sætta andstæðar hugmyndir.
Lilja Steingrímsdóttir hjúkr-
unarfræðingur er formaður Art of
Living á Íslandi.
„Ég kynntist Art of Living árið
2002 í Sviss. Þá var ég í persónulegri
krísu; var með mörg stór verkefni og
útúrstressuð. Ég hafði aldrei fundið
neitt sem veitti mér slíka hugarró
sem öndunartækni Art of Living.
Maður lærir að líta á vandamál eins
og áhugaverð verkefni til að takast á
við. Ég hef stundað öndunartæknina
síðan 2004 og stofnaði Art of Living
hér á landi 2007.
Ég bjó í Sviss í þrettán ár, þegar
ég kom hingað í árslok 2006 var
kreppan ekki byrjuð og það var svo
mikið stress, allir þurftu að vera á
fullu alltaf, svo ég fann að þessi tækni
átti erindi hér og fór að kenna hana.
Svo kom efnahagskreppan og stress-
ið er öðruvísi núna, það er meiri reiði
en öndunin tekur reiðina í burtu,“
segir Lilja.
Áþreifanlegt stress
Nú er stödd hér á landi Natalya
Lazutkina, Art of Living-kennari frá
Rússlandi, og verður hún hér fram að
jólum. Lazutkina kom beint til Ís-
lands af námskeiði hjá Sri Sri Ravi
Shankar sem stofnaði Art of Living
fyrir um þrjátíu árum. Lazutkina
ferðast um Evrópu og kennir önd-
unartæknina. Hún segist finna það
áþreifanlega í mörgum löndum hvað
fólk er stressað. Líka á Íslandi.
„Þegar ég kom hingað var ég
undrandi á því hvað það eru mörg
samtök hér sem hjálpa fólki sem er
stressað og þunglynt. Hér er ekki svo
mikið af fólki úti á götu svo það er
erfitt að finna hvernig fólki líður en
það fólk sem ég hef hitt brosir ekki
mjög mikið,“ segir Lazutkina.
Lazutkina kom aðallega hingað
til lands til að blása ungu fólki eld-
móði í brjóst og sýna því hvers það er
megnugt.
„Ég ætla að kenna ungu fólki að
takast á við stressið, því það mæðir
mikið á ungu fólki í dag, það er svo
mikið val og því finnst það þurfa að
gera allt. Ég ætla að hjálpa því að
finna sjálft sig á orkumiklu nám-
skeiði,“ segir Lazutkina en námskeið
hennar fyrir ungt fólk verður haldið í
byrjun nóvember.
Styrkjandi öndunartækni
Art of Living byggist aðallega á
ákveðinni öndunartækni sem styrkir
einstaklinginn.
„Það er erfitt að lýsa þessari
tækni en það er óhætt að segja að
fólk uppgötvi eitthvað nýtt. Þetta er
mjög auðveld tækni sem allir geta til-
einkað sér. Þeir sem hafa farið í
gegnum námskeið geta notað
tæknina hvenær sem er og hvar sem
er. Það þarf ekki stanslaust að vera
að sækja námskeið til að halda
tækninni við.
Mikið af fólki sem er farsælt í
viðskiptalífinu notar þessa önd-
unartækni til að ná betri einbeitingu
og sjálfsstyrkingu. Hún hjálpar
manni að vaxa, ná árangri, verða af-
slappaðri og með skarpari huga,“
segir Lazutkina og Lilja bætir við:
„Öndunartæknin kemur upp-
haflega frá Indlandi. Hluti af henni
kemur úr jóga en Sri Sri Ravi Shank-
ar setti tæknina saman. Það er t.d.
gott að nota tæknina þegar maður er
þreyttur og orkulaus. Við öndum
báðar í korter á hverjum morgni og
þá hefur maður mikla orku í gegnum
daginn, þetta verður vani eins og að
bursta tennurnar.“
Allur ágóði í góðgerðarstarf
Art of Living er með sjálf-
boðaliða í um 150 löndum og hvetur
fólk til þjóðfélagsvinnu og sam-
hjálpar. Samtökin eru meðal annars
sáttasemjarar við stríðsátök, hvetja
konur til að nýta orku sína betur, eru
með endurhæfingu fanga og hvetja
til verndunar náttúrunnar og réttrar
nýtingu hennar.
„Allur ágóði af námskeiðunum
sem við höldum fer í góðgerðarstaf,
við byggjum t.d. skóla á Indlandi og
störfum í fátækrahverfum Brasilíu.
Ef eitthvað gerist í heiminum eru
sjálfboðaliðar okkar þar,“ segir La-
zutkina.
Lilja, og Lazutkina á meðan hún
dvelur hér á landi, bjóða upp á fleira
en námskeið því þær eru líka með
ókeypis vinnustofur fyrir fólk sem er
forvitið um aðferðir Art of Living.
„Við erum með ókeypis vinnu-
stofur í Rauða krossinum eftir hádegi
hvern miðvikudag og líka í Hlut-
verkasetrinu á miðvikudögum og þar
erum við líka með vinnustofur á
mánudögum kl. 19 fyrir ungt fólk.
Við förum líka í fyrirtæki og stofn-
anir og kennum starfs- og vistmönn-
um þessa öndunartækni eftir þörfum
á stuttum tíma,“ segir Lazutkina.
Hún verður með sex daga YES!+-
námskeið fyrir ungt fólk í byrjun
nóvember og síðan verður Art of Li-
ving-byrjendanámskeið fyrir alla 18.
til 23. nóvember næstkomandi.
Listin að lifa
Morgunblaðið/Golli
Sjálfsstyrking Lilja Steingrímsdóttir og Natalia Lazutkina kenna fólki að losna við stressið.
„Ég ætla að kenna ungu fólki að takast á við stressið,
því það mæðir mikið á ungu fólki í dag,“ segir Nata-
lya Lazutkina frá Rússlandi sem er stödd hér á landi
á vegum Art of Living. Stofnunin er með námskeið í
streitulosun sem byggist á sérstakri öndunartækni.
Lilja Steingrímsdóttir kynnti Íslendinga fyrir Art of
Living og segir hafa verið mikla þörf á.
„Þetta nám-
skeið er gjör-
samlega bú-
ið að breyta
hugarfarinu
mínu, ég er
roslega já-
kvæð núna
og sé ekkert
neikvætt í lífi
mínu. Ég er alltaf glöð og það er
hætt að draga mig niður ef ein-
hver er pirraður í kringum mig.
Ég er komin með miklu meira
sjálfstaust og trúi miklu meira á
sjálfa mig. Ég er bara að lifa í
núinu og er ekki jafn stressuð og
ég var undir ákveðnum kringum-
stæðum. Ég mæli með að allir
fari á þetta námskeið og það
mun breyta lífi þínu á betri hátt.“
Umsögn manneskju sem fór á
námskeið Art of Living, tekin af
vefsíðu samtakanna.
Umsögn um
námskeiðið
ART OF LIVING
Um Art of Living má lesa nánar
á vefsíðunum: www.artofliving.is
og www.artofliving.org.