Morgunblaðið - 20.10.2010, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2010
Á morgun, fimmtudag kl. 12-13,
stendur lagadeild Háskólans í
Reykjavík fyrir fyrirlestri um heil-
brigðismál í stofu v.1.0.2 (Betelgás)
í húsnæði skólans, Menntavegi 1.
Fyirlesari á fundinum verður dr.
Brigit Toebes. Hún mun fjalla um
tilhneigingu stjórnvalda til að finna
hagkvæmar lausnir í heilbrigðis-
málum, út frá réttinum til heilsu og
sjónarhorni mannréttinda.
Dr. Toebes hefur starfað sem
lögfræðilegur ráðgjafi hollenskra
stjórnvalda og sem lektor við laga-
deild Háskólans í Aberdeen í Skot-
landi. Hún hefur skrifað fjölda
fræðigreina á sviði mannréttinda
og heilbrigðisréttar. Fundurinn fer
fram á ensku. Aðgangur er ókeypis
og öllum opinn.
Fundur um hagræð-
ingu í heilsumálum
Félagið Matur-saga-menning stend-
ur fyrir fundaröð um „mat úr villtri
náttúru Íslands“. Fyrsti fundurinn
verður á morgun, fimmtudag kl.
20-22, í Sjóminjasafninu Víkinni,
Grandagarði.
Á fundinum mun Stefán Hrafn
Magnússon, hreindýrabóndi frá
Grænlandi, fjalla um hreindýra-
afurðir. Stefán hefur búið á Græn-
landi í mörg ár og rekur þar stórt
hreindýrabú. Þá mun Páll Stein-
grímsson, kvikmyndagerðarmaður
frá Vestmannaeyjum, segja frá
lunda- og fýlanytjum, en hann
þekkir vel til bjargfuglaveiða. Hér
er einstakt tækifæri til að fræðast
um hreindýra- og bjargfuglsnytjar.
Allir eru velkomnir og er að-
gangur ókeypis. Veitingasala verð-
ur í Víkinni.
Matur úr villtri nátt-
úru Íslands kynntur
Síminn og Græn
framtíð hafa
opnað sýningu í
verslun Símans í
Kringlunni þar
sem hægt verður
að skoða far-
símaþróunina frá
upphafi farsíma-
væðingar fram
til dagsins í dag,
farsímasöguna og skemmtilegar
GSM-auglýsingar í gegnum tíðina.
Þá verður hægt að skoða það
ferli sem „ónýtur“ farsími fer í
gegnum við endurvinnslu. Þrátt
fyrir að fólk skipti reglulega um
farsíma eru gömlu tækin í mörgum
tilvikum enn heil og hægt að nýta
þau á ýmsan hátt. Sýningin stendur
til 11. nóvember nk.
Sýning í Kringlunni
um sögu farsímans
STUTT
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Af um 318 þúsund Íslendingum höfðu 10.583 náð
80 ára aldri 1. janúar sl. Þar af voru 293 karlar og
konur orðin 95 ára eða eldri. Mannfjöldaspá Hag-
stofunnar gerir ráð fyrir að eftir 20 ár verði Ís-
lendingar orðnir tæplega 372 þúsund talsins. Þá
stórfjölgar í hópi elstu borgaranna. Þeir verða
samkvæmt spánni rúmlega 18 þúsund og gera má
ráð fyrir að 50 úr þeim hópi hafi náð 100 ára aldri.
Þessar upplýsingar má lesa úr Landshögum
2010, tölfræðiárbók Hagstofunnar, sem kemur út í
dag, á Alþjóðadegi hagtalna. Landshagir hafa að
geyma kynstur upplýsinga um íslenskt samfélag.
Meðal þess sem þar kemur fram er að á þessu
ári eru 95% 16 ára unglinga í námi, til muna fleiri
en fyrir nokkrum árum og á síðasta ári stunduðu
313 einstaklingar nám á doktorsstigi.
Tölur um refsingar og afbrot leiða í ljós að þrjú
af hverjum fjórum afbrotum eru vegna umferð-
arlagabrota. Þeim hefur fjölgað mjög sem notfæra
sér rétt til fæðingarorlofs. Þannig tóku feður að
meðaltali 94 daga í fæðingarorlof í fyrra en mæður
177 daga. Og dregið hefur úr reykingum, svo ekki
verður um villst. 15,8% íbúa landsins reykja dag-
lega. Fjarskiptatæknin nær inn á nálega öll heim-
ili. Á hverja 1.000 íbúa eru 1.039 GSM áskriftir,
91% landsmanna notar netið daglega og öll heimili
þar sem búa börn yngri en 16 ára eru með tölvu.
Tölur Hagstofunnar sýna örar breytingar á
ýmsum sviðum þjóðlífsins. Af mannfjöldatölum
má sjá að í fyrra gengu 2.960 einstaklingar í hjóna-
band, nokkru færri en á árunum á undan. En mikil
breyting hefur orðið aldri brúðhjóna. Þannig var
aðeins einn brúðgumi undir 20 ára aldri í fyrra en
á árunum 1971-1975 voru brúðgumar á tánings-
aldri alls 91. Stúlkur undir 20 ára aldri sem gengu í
hjónaband voru aftur á móti nokkru fleiri í fyrra
eða 13. En þær voru 30 fyrir tíu árum og á
árunum 1971-1975 voru brúðir sem ekki
höfðu náð tvítugsaldri 369.
Færst hefur mjög í vöxt að
eldra fólk gangi í hjónaband. 70
karlar sem voru orðnir 60 ára
eða eldri gengu í hjónaband í fyrra.
Til samanburðar voru brúðgum-
ar, sem náð höfðu 60 ára aldri, að-
eins 19 talsins samanlagt á árun-
um 1971-1975. Brúðir sem náð
hafa þessum aldri, 60 ára og eldri,
eru nokkru færri en brúðgum-
arnir í aldurshópnum. Þær voru
45 í fyrra.
Dæmi um hagtölur frá Hagstofu Íslands
Einstæðir foreldrar 2010
Feður Mæður
1.102
11.703
Með 6 milljónir eða
meira í árstekjur 2009
Karlar Konur
22%
7%
Dagar teknir í
fæðingarorlof 2009
Feður Mæður
94
177
Fjölgun í trúfélögum 2005-2010
Kaþólska kirkjan
Búddistafélag
Íslands
Rússneska
rétttrúnaðarkirkjan
Fyrsta babtista-
kirkjan
10,8%
10,1%
24,2%
23,7%
Vöru- og þjónustukaup einstaklinga um
netið - hlutfall sem keyptu um netið
79%
48%
57%
68%
Hlutabréf,
tryggingar
Aðgöngumiðar
á viðburði
2007 2010
Íslendingar með erlent
ríkisfang 1. janúar 2010
6,8%
Raforkunotkun
vegna stóriðju
79%
Hlutfall 80 ára og eldri
sem eru vistmenn á
stofnunum aldraðra
22,6%
Íslendingar 16-74 ára
sem nota heimabanka
83%
50
íþróttaslys voru
tilkynnt til almanna-
trygginga árið 2009
313
stunduðu nám
á doktorsstigi
árið 2009
Landsmenn fara að meðaltali
5 sinnum á ári í bíó
Þrjú af hverjum fjórum afbrotum
er vegna umferðarlagabrota
Landsmenn ferðast að meðal-
tali þrjá daga innanlands
Árið 2009 var að meðaltali
1,6 debetkort á hvern íbúa
Tæknivæddari, námfúsari
og ganga eldri í hjónaband
Alþjóðadagur hagtalna er haldinn í dag, 20.10.
2010, að tilstuðlan Sameinuðu þjóðanna. Hag-
stofur og hagskýrsluaðilar um allan heim
munu í dag vekja athygli á starfsemi sinni
með ýmsum hætti og eru kjörorð dags-
ins þjónusta, fagmennska og
heilindi. Hagstofa Íslands mun
nýta þennan dag og vekja at-
hygli á starfsemi sinni. Lands-
hagir, hagtöluárbók Hagstofunnar,
kemur út í dag í 20. sinn.
Þá verður spurningaleikur sett-
ur upp á vef Hagstofunnar, hag-
stofa.is, og þar verða dregnar fram
ýmsar tölulegar staðreyndir varð-
andi barnið sem fæðist í dag auk
talnafróðleiks af ýmsu tagi.
Spurningaleikur á
vefsíðu Hagstofunnar
20.10.2010 ALÞJÓÐADAGUR HAGTALNA
Hagstofan birtir mikinn fróðleik um íslenskt samfélag í Landshögum 2010