Morgunblaðið - 20.10.2010, Síða 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2010
RISA
FORNBÓKAMARKAÐUR
Bókin ehf
Klapparstígur 25-27
(á horni klapparstígs og hverfisgötu)
Sími 552 1710.
Opið virka daga 12-18
laugardaga 12-17
Efnum til bókaveislu daganna 20.- 27. nóvember
Tugþúsundir bóka í boði
Bókaveislan hefst á hádegi
Verið velkomin
50%afslátturaf öllum bókumí versluninni
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Ramzan Kadyrov, forseti sjálfsstjórnarlýðveldis-
ins Tsjetsjeníu í Rússlandi, segir að allir skæru-
liðarnir sem réðust inn í þinghús héraðsins í gær-
morgun hafi verið felldir. Tók það herinn um 20
mínútur að ná stjórn á aðstæðum eftir að hann
réðst gegn árásarliðinu en ekki er vitað hversu
fjölmennt það var, sennilega fimm eða sex manns.
Mennirnir gerðu skyndiárás með sprengjum og
byssum, hrópandi íslömsk slagorð. Þingmönnum
Tsjetsjena létu lífið í stríðum við rússneska herinn
eftir að héraðið lýsti yfir sjálfstæði í kjölfar upp-
lausnar Sovétríkjanna 1991. Stjórnvöld í Moskvu
hafa í mörg ár barist við íslamska skæruliða sem
hafa fært sig upp á skaftið í Tsjetsjeníu og öðrum
Kákasushéruðum. Margir á svæðinu eru múslím-
ar eins og Tsjetsjenar.
Rússar sendu í gær frá sér á ný alþjóðlega
handtökuskipun á Akhmed Zakajev, útlægan leið-
toga Tsjetsjena sem krefjast sjálfstæðis en hann
býr í London. Rússar segja hann hafa skipulagt
hryðjuverk.
Árás í Grozní hrundið
Rússar senda frá sér handtökuskipun á sjálfstæðissinnann Zakajev í London
tókst með naumindum að forða
sér upp á efri hæð hússins í
höfuðstaðnum Grozní. Minnst
einn innrásarmannanna mun
hafa sprengt sig. Þrír örygg-
isverðir og einn óbreyttur
borgari féllu í árásinni, að sögn
rússneskra fjölmiðla, og 17 að
auki særðust.
Kadyrov nýtur stuðnings
Rússa og hefur verið sakaður
um margvísleg mannréttindabrot. Tugþúsundir
Ramzan Kadyrov
Þótt tíu sinnum fleiri villisvín séu nú
veidd í Frakklandi en fyrir 30 árum
fjölgar þeim stöðugt og sama er að
segja um Evrópulönd eins og Þýska-
land og Ítalíu. Frakkar skutu
560.000 dýr í fyrra en þessi mikla
veiði virðist ekki duga til.
Svínin valda ýmsum vanda. Nún-
ingur er milli bænda og veiðimanna
sem valda stundum tjóni á ökrum,
liðlega 20 þúsund dýr lentu árekstri
við bíla í fyrra. Villisvín í Þýskalandi
éta m.a. sveppi og ber sem eru
menguð geislavirku caesium sem féll
þar eftir Tsjernobyl-kjarnorkuslysið
í Úkraínu 1986. Kjötið er því vara-
samt og einnig geta villisvín oft bor-
ið með sér sníkjudýr og hættulega
smitsjúkdóma.
Ekki er vitað hvað veldur aukinni
viðkomu hjá dýrunum en gylturnar
eignast að jafnaði fimm grísi.
Ógnandi Villisvín eru öflug dýr og
afskaplega vel tennt.
Svín í út-
rásarhug
Fjölgun í Evrópu
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, og Liam Fox varnarmálaráð-
herra áttu í gær fund með æðstu mönnum hersins til að kynna þeim mesta
niðurskurð í nær tvo áratugi. Næstu árin verða engar breskar þotur á nýju
flugmóðurskipi og fækkað verður í landhernum um 7000 manns.
Reuters
Þú færð ekki meira!
Búið er að finna lík allra námumann-
anna 37 sem lokuðust inni þegar gas-
sprenging varð í kolanámu í Kína á
laugardag. 239 manns tókst að kom-
ast út en um 2500 tonn af koladufti
þyrluðust upp við sprenginguna.
Hvergi verða jafn mörg námuslys
og í Kína, um 2600 dauðaslys urðu í
fyrra en þeim hefur þó fækkað um
rösklega helming frá 2004.
Nú hafa reglur í Kína enn verið
hertar og embættismenn námufyr-
irtækjanna verða nú að vera með
námumönnum niðri í námunum sem
ætti að verða öflugur hvati til að efla
öryggið, segir í frétt BBC.
En þegar hefur heyrst um dæmi
þess að farið sé í kringum regluna. Í
einni námunni voru sjö námumenn
að nafninu til gerðir aðstoðarfor-
stjórar og taldist þá reglunum vera
fullnægt. kjon@mbl.is
Lík námumanna
í Kína fundin
Yfirvöld herða
öryggisreglurnar
Kolin mikilvæg
» Um 70% af allri orku í Kína
koma frá kolakyntum orkuverum.
» Ríkið framleiðir 40% af öllum
kolum en þar verða um 80%
dauðaslysa í kolanámum.
» Kínverskur námumaður er
100 sinnum líklegri til að deyja
af slysförum en bandarískur
starfsbróðir hans.