Morgunblaðið - 20.10.2010, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2010
Eygló frænku mína
sá ég fyrst í desember
árið 1943. Ég var þá
nýlega orðinn átta ára,
átti þrjár frænkur fyrir og þótti for-
vitnilegt að sjá þessa fjórðu frænku
mína. Þar lá hún agnarsmá í lítilli
vöggu í húsi föðurafa míns við Berg-
staðastræti í Þingholtunum. Sjálfur
átti ég heima í húsi við Bergþóru-
götu í Skólavörðuholti sem móðurafi
minn byggði. Á þeim árum fór fólk
fyrirvaralaust í heimsóknir fótgang-
andi á sunnudögum. Ég kom því oft í
heimsókn á Bergstaðastrætið og oft-
ar en ekki var þar fyrir fólk í heim-
sókn. Mannlífið breyttist síðan með
bættum efnahag og vaxandi tækni,
fólk varð sjálfstæðara og upptekn-
ara. Skyldfólkið fór að hittast aðeins
í afmælum og síðar í tugafmælum.
Við Eygló gengum fyrst hvort sína
leiðina, ég í raungreinum, hún í
tungumálum, en síðan sömu leiðina í
uppeldis- og kennslufræðum í Há-
skóla Íslands. Leiðir okkar lágu síð-
ar saman í Menntaskólanum við
Hamrahlíð árið 1979. Þar fór ég að
sjá Eygló aftur, ekki þó á sunnudög-
um, heldur alla hina dagana. Þar sá
ég fyrir mér fullmótaða konu, frjáls-
lega í fasi með félagslegt útstreymi,
en Eygló var mjög virk í félagsstörf-
um. Hún gerðist áfangastjóri og síð-
Eygló Eyjólfsdóttir
✝ Eygló Eyjólfs-dóttir fæddist í
Reykjavík 28. nóv-
ember 1943. Hún lést
á blóðlækningadeild
Landspítalans 28.
september 2010.
Útför Eyglóar fór
fram frá Fríkirkjunni
í Reykjavík 8. október
2010.
ar aðstoðarskóla-
meistari. Ég komst
ekki hjá því, sléttur
kennarinn, að líta upp
til hennar. Þannig liðu
árin. Ég fluttist úr
Breiðholtinu í Grafar-
voginn. Fjarlægðin við
minn gamla skóla var
orðin ennþá meiri, stór
hluti dagsins fór í
akstur fram og til baka
tvisvar á dag, dag eftir
dag. Ég frétti að reisa
skyldi framhaldsskóla
í Grafarvoginum sem
ætti að heita Borgarholtsskóli við
götu sem héti Mosavegur. Við hjónin
fórum í göngutúr að Borgarholti.
Þar urðu á vegi okkar berar klappir
og blautar mýrar. Þar sáum við
mosa, en ekki Mosaveg. Stuttu síðar
var þar risinn gríðarlega stór fram-
haldsskóli og Eygló orðin skóla-
meistari þar. Ég hóf kennslu í stærð-
fræði haustið 1997 í
Borgarholtsskóla. Þar mætti ég
nemendum úr ýmsum brautum.
Sumir létu sér það lynda að læra
stærðfræði, aðrir vildu heldur liggja
undir bílum. Eygló útskrifaðist með
MA-gráðu í skólastjórnun frá
Minnesotaháskóla árið 1991. Með þá
þekkingu að vopni var hún vel í stakk
búin að stýra nýjum framhaldsskóla
sem telur á annað þúsund nemenda.
Ég minnist þeirrar stundar þegar
hún kom inn í kennslutíma og til-
kynnti nemendum að enginn skyldi
ganga inn á útiskóm. Ekki gekk það
átakalaust, en allir starfsmenn skól-
ans gengu í lið með henni. Borgar-
holtsskóli ber af flestum öðrum skól-
um í hreinlæti og reglusemi. Þegar
inn er komið fyllist maður aðdáun,
upplyftingu og virðingu fyrir stofn-
uninni. Að nokkrum árum liðnum
fékk Eygló einn illræmdasta sjúk-
dóm sem hrjáir mannkynið með
þeim afleiðingum að hún varð að yf-
irgefa hina krefjandi skólastjórnun.
Ég minnist þess vors 2001 þegar
Eygló sleit skólanum í hinsta sinn og
mér fannst myrkrið grúfa yfir á þeim
sólbjarta vordegi.
Við sendum Steinari, Höskuldi,
Gunnhildi og barnabörnum, svo og
Eyjólfi, föðurbróður mínum, og
Svanfríði, konu hans, innilegar sam-
úðarkveðjur.
Blessuð sé minning frænku minn-
ar.
Egill Sigurðsson.
Kveðja til kennara.
Það er með mikilli hlýju sem ég
minnist þýskukennara míns hennar
Eyglóar Eyjólfs frá árunum í MH
frá 1980-1984. Þýska var nú kannski
ekki mitt besta fag en alltaf þegar að
hún kenndi mér átti ég vísa ágæt-
iseinkunn. Ekki veit ég hvernig hún
fór að því þar sem að hjá öðrum
kennurum átti ég, með einni undan-
tekningu þó, í miklum vandræðum
með að hreinlega ná áfanganum. En
hlýleg návist hennar og þolinmæði í
kennslunni vakti áhuga minn á fagi
sem annars var erfitt að einbeita sér
að. Henni var svo sannarlega gefið
að kenna og kveikja áhuga hjá nem-
endum sínum.
Síðast þegar ég hitti þessa ynd-
islegu konu sátum við á biðstofu á
krabbameinsdeildinni á Landspítal-
anum í janúar á síðasta ári. Við
spjölluðum saman um stund eins
gamlar vinkonur þótt við hefðum
ekki sést í mörg herrans ár. Hún var
hlý í fasi og áhugasöm um gamlan
nemanda þó að hún stæði augljós-
lega frammi fyrir miklum erfiðleik-
um. Við kvöddumst á ganginum, hún
óskaði mér góðs og ég henni sömu-
leiðis. Það er skarð í raðir kennara
að þurfa að kveðja svo frábæran leið-
beinanda sem Eygló var. Ég mun
ávallt vera þakklát þeirri andagift
sem hún blés mér í brjóst gagnvart
þýskunni í þá daga og kom mér í
gegnum námið.
Ég sendi aðstandendum mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Hrafnhildur Gunnarsdóttir.
Þegar Eygló Eyjólfsdóttir er
kvödd eru mér efst í huga leiftur frá
liðnum dögum sem brugðu birtu,
gleði og hlýju á veg okkar sem mun-
um hana á samverustundum stúd-
entanna sem brautskráðust úr MA
1961. Í þeim hópi var maður hennar,
Steinarr Höskuldsson, sem ungur
felldi hug til þessarar glæsilegu
stúlku. Með þeim var mikið jafnræði
um gáfur og gjörvileik. Steinarr var
ágætur fimleika- og íþróttamaður í
skóla, en mest prýðir hann eðlislæg
hógværð og fágun í framkomu. Með
Eygló og honum hallaðist ekki á að
þessu leyti, og trúlegt þykir mér að
þau hafi jafnan verið samhent og
samhuga í lífi og sambúð. Eygló var
drengur góður. Hjá henni fór saman
reisn og prúðmennska og hlýtt og já-
kvætt viðmót að ógleymdum þeim
krafti og lífsfjöri sem einkenndi hana
á góðra vina fundum og kveikti hjá
öllum gleði í sinni. Sá er nú sökn-
uðurinn mestur að þeir verða ekki
fleiri um sinn.
Eygló Eyjólfsdóttir sótti nám af
miklum dugnaði heima og erlendis,
austan hafs og vestan, í tungumál-
um, kennslu- og uppeldisfræðum og
skólastjórn. Hún var því ágætlega
menntuð í sínum greinum, enda varð
kennsla og skólastjórn og uppeldi
ungrar kynslóðar ævistarf hennar.
Jafnframt átti hún hlut að kennslu-
bókargerð og var um hríð sérfræð-
ingur í menntamálaráðuneyti. Hún
varð fyrsti skólameistari Borgar-
holtsskóla og átti mikinn þátt í mót-
un hans, og það er trúa mín að þar
muni þess lengi sjá stað, því að fyrir
fáeinum dögum hafði ég spurnir af
tæplega tvítugum nemanda sem þar
var að byrja nám í haust og taldi sig
loks hafa fundið skóla við hæfi. Þrjú
ár dvaldist Eygó í Kenýa á áttunda
áratugnum meðan Steinarr var þar
ráðgjafi vegna norræns samvinnu-
verkefnis í þróunarmálum. Áhrif
Afríkudvalarinnar endurspegluðust
eftir heimkomuna í félagsstörfum
Eyglóar og annars áhugafólks um
málefni þróunarlanda, en hún lét
einnig að sér kveða í félags- og hug-
sjónamálum starfssystkina sinna í
kennarastétt og gegndi formennsku
í fleiri en einum samtökum þeirra.
Síst má þó gleyma söngnum, en
Eygló var lengi í Léttsveit Kvenna-
kórs Reykjavíkur og lét ekki sitt eft-
ir liggja í starfi hans.
Síðasta áratug hefur norðanstúd-
entahópurinn frá 6́1 ásamt mökum
ár hvert efnt til helgarferðalags á
sumri sem orðið hefur þátttakendum
ógleymanleg reynsla vegna gamalla
og nýrra kynna. Þá urðu mér best
ljósir mannkostir og hæfileikar
Eyglóar Eyjólfsdóttur. Reykjavík-
urstúlkan úr MR kunni vel við sig í
hópi norðanstúdentanna og sagði
okkur það skýrt og skorinort oftar
en einu sinni. Nú sé ég hana fyrir
mér í stafalogni og miðnæturbirtu
söngkvöldið góða á Raufarhöfn 2007
þegar við vorum í Þistilfjarðarför.
Þar naut hún sín sannarlega í réttu
hlutverki í voraldarveröld norður-
slóða. Og slíkt hið sama í skógar-
lundinum í Keldudal og víðar í Dýra-
firði 2008, þegar Davíð Gíslason og
Steinarr leiddu okkur um átthaga
sína – og miklu oftar. Það er mikill
söknuður að slíkri konu, en hún lifir í
vitund okkar sem nutum og þökkum
samfylgdina og biðjum ástvinum
hennar huggunar og friðar Guðs í
ljósi minninganna.
Hjörtur Pálsson.
✝ Jón M. Baldvins-son fæddist í
Reykjavík 29. októ-
ber 1927. Hann lést á
heimili sínu 1. októ-
ber 2010.
Foreldrar hans
voru Sigríður Jóns-
dóttir fædd í Stykk-
ishólmi 5. september
1905, látin í Kaup-
mannahöfn 30. maí
2003, og Baldvin
Helgason fæddur í
Reykjavík 17. októ-
ber 1905, látinn 10.
nóvember 1973.
Systkini Jóns eru
Ingibergur, f. 1928,
og Gunnlaug, f.
1930. Hálfbræður
Jóns voru Sigurður
Jónsson og Ulrik
Jónsson.
Eiginkona Jóns er
Hólmfríður Guð-
mundsdóttir og
þeirra dætur eru
Sólrún Jónsdóttir og
Sigrún Jónsdóttir.
Útför Jóns fór
fram í kyrrþey.
Vinur er kvaddur. Jón M. Bald-
vinsson listmálari er farinn til æðra
lífs. Þroski og reynsla eru vega-
nestið hans. Kenningar um lífs-
reynslu og breytni eru næringin í
endurfæðingu og ræður því hvernig
manna er minnst. Jón náði æðsta
stigi. Breytni í lífinu var öllum til
góðs. Listamaður á æðsta stigi og
hampaði sér ekki. Verk hans voru
unnin af innblæstri; fagmenntun
hans meiri en flestra. Túlkun og
sköpun, æðra stig en sést hefur.
Fjölskyldufaðir, kærleiksríkur og al-
fullkominn að visku. Jón nam söng.
Var skemmtikrafturinn Kóras.
Greip til ýmissa ráða þegar á bját-
aði, dó ekki ráðalaus. Rak gistiheim-
ili og fleira. Hann var félagi í Guð-
spekifélaginu í áratugi; tryggur
vinur Grétars Fells og Sigvalda
Hjálmarssonar. Kynntist náið Sun
Wu Kung Yoga, sem vakti mikla at-
hygli með fræðslu sinni og skoðun-
um. Afstaða hans til lífsins réðst af
virði hlutanna til þróunarinnar og
hið liðna var mikilvæg reynsla sem
bar að meta. Trúði ekki á peninga
nema þeir væru nýttir til góðs og
framtíðarheilla, af kærleika og skiln-
ingi. Hvöt Jóns er af öðrum stigum
og minning um hann er af æðri stig-
um. Nú er hann okkur fyrirmynd
sem lyftir okkur á æðra stig. Jón var
raungóður vinur, vildi öllum vel.
Hljóp undir bagga í raunum. Þar
sem hjarta slær af gæsku og kær-
leika þar eru Guðs vegir, lífsgleði og
fylling. Jón fer um geiminn og finnur
staði fyrir sig. Í verkum hans má sjá
veruleikann sem er vegur hans til
frambúðar lífsins. Jón samdi lög,
mjög lifandi sem vekja hlýju og ást-
úð, kærleik og gleði. Ég kveð Jón
með fullvissu um endurfundi í næsta
lífi.
Grímur Marinó.
Vinur minn Jón Baldvinsson,
myndlistarmaður, hefur kvatt efnis-
víddina okkar og okkur öll hér.
Þann efnisveruleika okkar tilveru,
sem Jón skildi til hlítar og kunni að
notfæra sér lögmál hans tímabundið
sér og sínum í hag, á meðan hann
skapaði nýjan heim á léreftinu. Já,
meistari Jón Bald hefur sagt skilið
við þennan veruleika efnisins, þetta
„hérognú“, sem við reyndar rædd-
um svo oft um báðir tveir, hvor við
annan. Sem og um takmarkanir þess
sama. Og það er einmitt þetta, sem
ég vil leyfa mér að þakka mikið fyrir
núna og vonandi í nafni margra
fleiri, það er að segja að fá þannig
tækifæri til að hitta manneskju, sem
hafði þá víðsýni til að bera að geta
svissað huganum milli vídda, en
samt tekið með harðan veruleika
efnisins og um leið séð raunhæfa
fleti á heildartilveru manneskjunn-
ar. Sjá allt tengjast saman með or-
sök og afleiðingu. Þetta er hæfileiki
sem ekki öllum er gefinn. Og þess
vegna mun ég sérstaklega sakna
stopulla funda okkar, en það er önn-
ur saga.
Skiljanlega er mér það ljúft að
kveðja hér þennan merka mann og
þessa leitandi sál og um leið að færa
innilegar samúðarkveðjur til Hólm-
fríðar og dætranna, með þeirri
ábendingu, að þessi skörpu skil í efn-
isheimi manneskjunnar, okkar allra,
segja ekkert til um víðfeðmi sköp-
unarverksins annað en að sífelld
hringrás á sér stað. Og að við erum
öll hluti af henni.
Áður en ég kvaddi Jón síðast í ný-
liðnum ágústmánuði í Kópavoginum,
ræddum við um framhaldið. Með til-
vísun í ártöl og fæðingardaga vorum
við sammála um það, að nú væri
kominn tími á að hugsa næst um það
allt saman og gera áætlanir. Og Jón
sagði mér að hann stæði klár. Og ég
sá það á augnatilliti hans að um það
þyrfti ekki að ræða meir. Mér hlýn-
aði um hjartaræturnar og enda þótt
ég muni fara á mis við vitsmuni Jóns
oftar en áður næstu misserin, þá er
samt vottur af sama yl þar enn í dag.
Einar Þorsteinn, Berlín.
Jón M. Baldvinsson
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GRÓA SIGURÐARDÓTTIR,
Grandavegi 47,
Reykjavík,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Boðaþingi í Kópa-
vogi sunnudaginn 17. október.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskapellu föstu-
daginn 22. október kl. 11.00.
Hjálmar Hermannsson, Sigríður Kolbrún Guðjónsdóttir,
Einar Vilhelm Þórðarson, Halldóra Gunnarsdóttir,
Guðleif Margrét Þórðardóttir, Kolbeinn Sigurjónsson,
Helgi Þórðarson, Auður Atladóttir,
Sigurður Þórðarson, Helena Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
SIGURÐUR BÁRÐARSON
frá Heiði í Mývatnssveit,
Krummahólum 8,
Reykjavík,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 12. október.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn
21. október kl. 13.00.
Marta Kristín Stefánsdóttir,
Björg Wessing, Lars Wessing,
Sigrún Sigurðardóttir, Vignir Ólafsson,
Rebekka Sigurðardóttir, Jósef Smári Ásmundsson,
barnabörn og langafabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
MARTA SONJA MAGNÚSDÓTTIR,
síðast til heimilis að,
Austurbrún 6,
andaðist á Hrafnistu í Reykjavík miðvikudaginn
13. október.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn
22. október kl. 13.00.
Börn, tengdabörn, barnabörn,
barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.