Morgunblaðið - 20.10.2010, Page 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2010
✝ Auður Árnadótt-ir, kaupmaður í
verzluninni Emblu,
fæddist í Reykjavík
26. júní 1936. Hún
lést á St. Jósefsspít-
ala í Hafnarfirði
þann 13. október sl.
Foreldrar hennar
voru Árni Yngvi Ein-
arsson, forstjóri á
Reykjalundi, f. 17.
janúar 1907, d. 5.
apríl 1978 og kona
hans, Hlín Ingólfs-
dóttir, f. 20. október
1909, d. 8. nóvember 1993. Systk-
ini Auðar eru: Svala, f. 1939, Ing-
ólfur, f. 1942, Hlín, f. 1945, Einar,
f. 1948 og Páll, f. 1951.
Auður giftist 31. desember 1956
Hermanni J. E. Þórðarsyni flug-
umferðarstjóra, f. 26. mars 1931.
Foreldrar hans voru Þórður Ein-
arsson og Ragnheiður Jóhanns-
dóttir, bæði frá Ísafirði. Auður og
Wittrup Willadsen og dóttir þeirra
er Kara Wittrup Andreasdóttir, f.
2010. b) Rós Pétursdóttir, f. 1981
og c) Unnur Pétursdóttir, f. 1986.
3) Árni Yngvi, f. 19. maí 1959.
Kona hans er Guðríður B. Rail, f.
1959. Börn þeirra eru: a) Árni
Yngvi, f. 1980 og á hann dótturina
Rakel Auði, f. 2002. b) Berta, f.
1981. Maður hennar er Sigurður
Júlíusson og eiga þau börnin Klöru
Ósk, f. 2003 og Benjamín Árna, f.
2008. c) Bryndís Anna, f. 1986.
Auður ólst upp í Reykjavík og
gekk í Laugarnesskóla. Foreldrar
hennar fluttu í Mosfellssveit árið
1949 og hófust þá handa við upp-
byggingu Reykjalundar. Auður
sótti framhaldsnám við Skóga-
skóla árin 1951-1952. Hún setti síð-
an á stofn kven- og barnafataverzl-
unina Emblu við Strandgötu 29 í
Hafnarfirði árið 1964. Rak hún
verzlunina við góðan orðstír allt til
ársins 2004 og hafði þá flutt verzl-
unina í stærra húsnæði við Strand-
götu 28.
Útför Auðar verður gerð frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag, 20.
október 2010, kl. 15.
Hermann bjuggu
fyrstu hjúskaparár
sín í Reykjavík, um
tíma á Keflavík-
urflugvelli en í Hafn-
arfirði frá 1961.
Börn Auðar og
Hermanns eru: 1)
Sigríður, f. 19. maí
1956. Maður hennar
er Pálmar Krist-
mundsson, f. 1955.
Börn þeirra eru: a)
Brynhildur, f. 1980.
Maður hennar er
Óskar Hafnfjörð
Auðunsson og eiga þau soninn
Auðun, f. 2009. b) Pálmar Tjörvi, f.
1984. Sambýliskona hans er Sig-
urlaug Lísa Sigurðardóttir. c)
Auður, f. 1989. Sambýlismaður
hennar er Richard Alen Banks. d)
Hlín, f. 1993. 2) Hlín, f. 27. sept-
ember 1957. Dætur hennar eru: a)
Ylfa Björk Ingimarsdóttir, f. 1977.
Sambýlismaður hennar er Andreas
Elskulega Auður amma; var
hornsteinn í mínu lífi; var konan
sem hélt á mér undir skírn; hafði
mýkstu húð sem ég hef nokkru
sinni vitað; var hluti af tvíeyki sem
gegndi stóru hlutverki í uppvexti
mínum og heimili þeirra var griða-
staður fyrir ungling sem varð
stundum þreyttur á litlum systk-
inum og heimilisstörfum; vildi
helst af öllu borða skyndibita; var
fyrsti vinnuveitandi minn; var ein-
staklega falleg kona og á yngri ár-
um sínum líktist hún Ingrid Berg-
man; var dugnaðarforkur sem
byggði upp farsælt fyrirtæki af
eigin rammleik var alltaf að lofta
út og viðra sængurföt; sagði yf-
irleitt attur en ekki aftur; taldi að
börn ættu að læra snemma að fara
í leikhús og fór með 7 ára skottu
að sjá Heimsljós sem skildi mikið
eftir sig; hafði alltaf tíma fyrir
spjall og spurningar; var yndisleg
kona, stórkostleg fyrirmynd og
hennar verður sárt saknað.
Ég skal vaka og vera góð
vininum mínum smáa,
meðan óttan rennur rjóð,
roðar kambinn bláa,
og Harpa syngur hörpuljóð
á hörpulaufið smáa.
Stundum var í vetur leið
veðrasamt á glugga.
Var ekki’ eins og væri’ um skeið
vofa’ í hverjum skugga?
Fáir vissu að vorið beið
og vorið kemur að hugga.
(Halldór Laxness.)
Hvíl í friði elsku amma.
Brynhildur.
Sumarið 1945, í endaðan júlí,
langaði okkur systurnar í gömlu
sundlaugarnar í Laugardal. Það
var auðsótt mál enda höfðum við
oft farið áður, en við áttum að taka
Ingólf bróðir okkar sem var
þriggja ára með okkur. Auður var
þá 9 ára, og undirrituð 5 ára. Það
var löng leið að ganga úr Miðtúni
inn í Laugar, en það gekk vel. Við
komumst ofan í Laugarnar og allt
gekk vel til að byrja með en fljót-
lega fór undirrituð að væla og vildi
fara heim og Ingólfur fór að væla
og kalla á mömmu svo Auður, sem
fann að hún var orðin eitthvað
þreytt ákvað að koma okkur heim.
Ég man hvernig hún hvatti mig
áfram og sagði: Þú verður að
ganga sjálf, ég get ekki borið ykk-
ur bæði. Það reyndist nefnilega
miklu lengra heim. Heim kom hún
okkur og mamma sá að eitthvað
mikið var að og náði í lækni og
greindumst við öll með lömunar-
veiki. Heimilið var umsvifalaust
sett í sóttkví. Í hönd fóru miklir
erfiðleikar, en allt fór þó vel með
hjálp góðra manna og kvenna. Það
sem einkenndi Auði alla tíð var
góðmennska og mikill dugnaður.
Elsku Auður, stóra systir mín,
takk fyrir allt sem þú hefur gert
fyrir mig og mína.
Svala systir
Þann 13. október kvaddi mæt
kona þennan heim. Það var hún
elsku stóra systir mín, hún Auður.
Það má með sanni segja að hún
hafi borið nafn með rentu. Hún var
fyrsta barn foreldra okkar og var
koma hennar þeim mikill auður
þar sem þau höfðu bæði barist við
berkla sem ungt fólk. Hún var
okkur systkinunum einnig mikill
auður því að hjá henni áttum við
öll athvarf, skilning og hjálp ef á
þurfti að halda. Minningarnar eru
margar en mig langar að nefna
eina sem lýsir Auði vel, áræði
hennar og skapgerð, þegar hún
var aðeins 9 ára gömul. Von var á
barni í systkinahópinn og vissi hún
að það myndi koma í hennar hlut
að passa þetta barn. Ekki var mik-
ið um barnavagna á þessum árum
en hún tók til sinna ráða. Pabbi
vinkonu hennar var skipstjóri á
stóru skipi, fór hún til hans og bað
hann um að kaupa vagn handa
barninu sem var á leiðinni. Þessi
góði maður gerði það og í vagn-
inum fékk ég að vera og hún við
stjórnvölinn. Pabbi okkar var ekki
mjög hress með framtakið á sínum
tíma, þó að hann yrði seinna stolt-
ur af kaupkonunni sinni.
Við ólumst upp á Reykjalundi
frá árinu 4́9 og tókum þátt í upp-
byggingu staðarins og málefnum
SÍBS. Það þurfti að sendast, selja
blöð og merki og var Auður mikil
hjálparhella foreldra okkar. Þau
voru ófá skiptin sem hún tók við
stjórninni á heimilinu eða var
mömmu til aðstoðar við það sem
þurfti að gera á stóru heimili. Við
höfum oft talað um það systkinin
að það hafi verið mikil gæfa að fá
að alast upp á þessum stað og í
þessu umhverfi þar sem sam-
heldni, hjálpsemi og virðing fyrir
fólki voru aðalsmerki. Það hefur
án efa mótað okkur systkinin. Auð-
ur var alltaf að hjálpa lítilmagn-
anum og styðja við bakið á þeim
sem minna máttu sín.
Á Reykjalundi hitti hún Hemma,
æskuástina sína, sem varð lífsföru-
nautur hennar í 60 ár. Mér fannst
þau vera eins og ævintýrapersónur
því að ég fékk að taka þátt í til-
hugalífinu með þeim. Meira að
segja fékk ég að vera með þeim á
17. júní þegar þau trúlofuðu sig.
Alla tíð hefur hún verið mín fyr-
irmynd í einu og öllu. Heimili
hennar var okkur og börnunum
alla tíð opið og hjartagæska þeirra
hjóna með eindæmum. Vil ég
þakka þeim báðum fyrir allt, allt,
allt.
Auður var einnig mikill stuðn-
ingsmaður „Bjarkanna“ og þau
bæði, til hennar sótti ég góð ráð og
stuðning og var hún ein af þessum
fágætu konum sem voru með
„blátt“ Bjarkarhjarta alla tíð, takk
fyrir það.
Án hennar verður lífið aldrei
eins, en ég mun minnast hennar
systur minnar með virðingu, þökk
og söknuði í hjarta alla tíð.
Ég skal vaka og vera góð
vininum mínum smáa,
meðan óttan rennur rjóð,
roðar kambinn bláa,
og Harpa sýngur hörpuljóð
á hörpulaufið gráa.
Einsog hún gaf þér íslenskt blóð,
úngi draumsnillíngur
megi loks hin litla þjóð
leggja á hvarm þér fíngur,
- á meðan Harpa hörpuljóð
á hörpulaufið sýngur.
(Halldór Laxness)
Elsku Hemmi, Sigga, Hlínsa,
Árni og fjölskyldur, megi minn-
ingin um einstaka konu og ynd-
islega móður og ömmu lifa í hjört-
um ykkar.
Heiðarlundar „armýið“ sendir
samúðarkveðjur.
Ykkar
Hlín og Ketill.
Mig langar til að minnast Auðar
Árnadóttur systur minnar, en hún
lést þann 13.10. síðastliðinn eftir
langvinn veikindi.
Auður var elst sex barna for-
eldra okkar, þeirra Árna Y. Ein-
arssonar og Hlínar Ingólfsdóttur.
Fyrsta minning mín um Auði
var þegar hún var að fara með
okkur Svölu, yngri systkinin, í
sund í gömlu sundlaugina í Laug-
ardalnum. Dugnaðurinn í henni að
þvælast þetta með okkur, þurrka
okkur og klæða en ég var bara 4-5
ára. Fyrstu æviárin bjuggum við í
Miðtúninu þar til foreldrar okkar
fluttu að Reykjalundi vorið 1949.
Þar ólumst við upp við leik og
störf. Auður fór fljótlega að vinna í
Auður Árnadóttir
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HERBORG GUÐMUNDSDÓTTIR,
Hátúni 4,
lést á Landspítalanum í Fossvogi mánudaginn
18. október.
Útförin verður frá Fossvogskirkju mánudaginn
25. október kl. 13.00.
Jónína Herborg Jónsdóttir,
Jón Herbert Jónsson, Inger Jónsson,
Ingibjörg Sigurðardóttir, Guðjón Sigurðsson,
Elinborg Sigurðardóttir, Axel F. Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona, móðir og tengdamóðir,
LILJA ÞORVALDSDÓTTIR,
Glóru 2,
Flóahreppi,
andaðist á Sjúkrahúsi Suðurlands á Selfossi,
sunnudaginn 17. október.
Útför hennar verður gerð frá Hraungerðiskirkju
föstudaginn 22. október kl. 13.30.
Heimir Ólafsson,
Ágúst Gísli Heimisson,
Sigmundur Þórir Jónsson,
Tanja Rún Jónsdóttir, Tómas Alfonsson.
✝
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi, langafi og
bróðir,
ÞORSTEINN LÁRUS BJÖRNSSON,
Kolgröf,
Skagafirði,
lést á dvalarheimilinu á Sauðárkróki fimmtudaginn
14. október.
Útförin verður frá Reykjakirkju laugadaginn
23. október kl. 14.00.
Björn Grétar Þorsteinsson, Áslaug Sveinsdóttir,
Eymundur Jóhann Þorsteinsson,
Ásta Hrönn Þorsteinsdóttir,
Halla Guðbjörg Þorsteinsdóttir,
Ingimundur Sverrisson, Sigfríður Héðinsdóttir,
Margrét Björnsdóttir,
afabörn og langafabörn.
✝
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
ÞÓRHALLUR FILIPPUSSON,
andaðist á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki
sunnudaginn 17. október. Útför hans fer fram frá
Sauðárkrókskirkju föstudaginn 22. október
kl. 14.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabba-
meinsfélag Skagafjarðar.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir.
Anna Pálína Þórðardóttir,
Ólöf Þórhallsdóttir, Jóhannes Hjálmarsson,
Þórunn Oddný Þórhallsdóttir,
Filippus Þórhallsson,
Dagbjört Kristín Þórhallsdóttir, Benjamín Gunnarsson,
Kristín Þóra Þórhallsdóttir, Nicholas Stagg,
barnabörn og langafabörn.
✝
Ástkær sonur okkar, bróðir og frændi,
ÖRN EGILL PÁLSSON
lögfræðingur,
lést á heimili sínu fimmtudaginn 14. október.
Útför fer fram frá Víðistaðakirkju þriðjudaginn
26. október kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim
sem vilja minnast hans er bent á UNICEF.
Páll H. Kristjánsson, Rósa Helgadóttir,
Bjarnveig Pálsdóttir, Hallur Ágústsson,
Unnur Lea Pálsdóttir, Pétur H. Pétursson,
Viktor Stefán Pálsson, Margrét Björk Ólafsdóttir,
Íris Björk Pálsdóttir, Bjarni Arnaldsson,
Páll Ágúst, Andri Berg, Herdís, Sara Rós,
Róbert Dagur, Rósa Björk, Anton Breki,
Glódís Ólöf og Brynhildur Sif.
✝
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð, hlýju og kærleik við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður og afa,
MOGENS RÚNARS MOGENSEN.
Diljá Gunnarsdóttir,
Regin F. Mogensen, Sara Lind Þórðardóttir,
Birta Mogensen, Jónas Árnason
og afabörn.