Morgunblaðið - 20.10.2010, Page 26
26 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2010
Sudoku
Frumstig
8 6
3
1 4 2 9
9 2
4
7 6
3 6 9 7
7 3 9 4 6
2 7 8 1
2 7
4 9 2
7 8 5
3 7
2 1 9 3
9 3 5
4
1 7
5 2 8 9
4 9 5 7 1
5 2
7
3 9 8 2
2 1 9 4
6
1 4 7 5
7 3 6 4
8 3 5 7 1 2 4 6 9
7 2 6 5 9 4 1 8 3
9 1 4 8 6 3 7 5 2
5 8 7 9 2 6 3 4 1
3 6 2 1 4 8 5 9 7
4 9 1 3 7 5 8 2 6
6 5 9 4 3 7 2 1 8
1 7 8 2 5 9 6 3 4
2 4 3 6 8 1 9 7 5
4 1 7 9 3 5 8 2 6
2 6 3 8 4 1 5 9 7
9 8 5 7 6 2 1 4 3
7 3 8 2 5 9 6 1 4
1 4 2 3 8 6 9 7 5
5 9 6 4 1 7 3 8 2
8 5 9 6 2 4 7 3 1
6 7 4 1 9 3 2 5 8
3 2 1 5 7 8 4 6 9
4 6 8 9 5 2 1 7 3
2 5 1 8 7 3 6 9 4
3 7 9 1 6 4 5 8 2
1 3 7 2 8 5 9 4 6
9 4 6 7 3 1 8 2 5
8 2 5 4 9 6 3 1 7
6 1 2 5 4 8 7 3 9
5 9 4 3 1 7 2 6 8
7 8 3 6 2 9 4 5 1
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 20. október,
293. dagur ársins 2010
Orð dagsins: Biðjið og yður mun gef-
ast, leitið og þér munuð finna, knýið
á, og fyrir yður mun upplokið verða.
(Matt. 7, 7.)
Víkverji vill vera upplýstur. Þessvegna fór hann í ljósabúð á dög-
unum og festi kaup á þessu líka
smekklega ljósi frá framleiðandanum
Brilliant. Víkverji er ekki mikill raf-
virki og telur miklar líkur á að raf-
magni slái út í heilu byggðarlögunum
fari hann að skrúfa niður og festa upp
ljós og luktir. Það kemur hins vegar
ekki í veg fyrir að hann lesi á umbúð-
ir. Það forvitnilega við textann á um-
búðunum utan um ljósið frá Brilliant
var ekki varan sjálf, heldur hvar hún
var framleidd. Fyrirtækið, sem mun
vera næststærsti ljósaframleiðandi í
Evrópu, er nefnilega í Gnarrenburg,
litlu þorpi í Norður-Þýskalandi.
Gárungarnir hafa nefnilega heyrst
kalla Reykjavík Gnarrenburg eftir að
nýr borgarstjóri tók við völdum. Nú
er hægt að upplýsa að nafnið er upp-
tekið, en hins vegar væri við hæfi að
Jón Gnarr leitaði til kollega síns í
Gnarrenburg með það í huga að koma
á vinasambandi milli Reykjavíkur og
þessa þrjú þúsund manna þorps í
Neðra-Saxlandi.
x x x
Víkverji hefur ávallt haft dálæti áleikaranum og leikstjóranum
Clint Eastwood, allt frá því hann lék í
myndunum Arnarhreiðrinu með
Richard Burton og kúrekamyndinni
High Plains Drifter. Upp á síðkastið
hefur Eastwood haft sérstakt lag á að
koma á óvart. Í myndinni Gran Tor-
ino lék hann forpokaðan gamlan
mann, sem vingast við dreng af
hmong-þjóðflokknum og í Million
Dollar Baby var hann í hlutverki
hnefaleikaþjálfara, sem tekur unga
stúlku upp á arma sína. Nýjasta
mynd Eastwoods var frumsýnd fyrir
helgi og ber hún heitið Hereafter,
sem útleggja mætti Hinumegin og
snýst um hvað taki við eftir dauðann.
Slíkar spurningar hafa ekki þvælst
fyrir vígreifum hetjum Eastwoods
hingað til. „Þessar hugsanir fara í
gegnum kollinn á öllum af og til,“ seg-
ir Eastwood í samtali við New York
Times. „Er líf eftir dauðann? Hvernig
er það? Öll helstu trúarbrögðin hafa
reynt að eiga við þessa spurningu.“
Og nú hefur Eastwood lagt sitt lóð á
vogarskálarnar.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 bölvar mikið, 8
syfjuð, 9 trylltum, 10 læri,
11 gamla, 13 vondur, 15
laufs, 18 dreng, 21 fúsk, 22
ósanna, 23 glufur, 24 fugl.
Lóðrétt | 2 slítur, 3 kyrr-
sævi, 4 skömm, 5 sæg, 6 bí-
lífi, 7 lítill, 12 ró, 14 biblíu-
nafn, 15 þvættingur, 16
flangsast upp á, 17 álögu, 18
listar, 19 afturkallaði, 20
landabréf.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 skass, 4 barms, 7 ætlar, 8 refur, 9 orð, 11 torf, 13
gaum, 14 eitra, 15 flet, 17 traf, 20 tal, 22 tolla, 23 jurta, 24 korði,
25 terta.
Lóðrétt: 1 skært, 2 aflar, 3 skro, 4 barð, 5 rofna, 6 særum, 10
rotta, 12 fet, 13 gat, 15 fátæk, 16 eflir, 18 rýrar, 19 flaga, 20
tapi, 21 ljót.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
20. október 1728
Eldur kom upp í Kaupmanna-
höfn og stóð í þrjá daga. Þá
brann mikill hluti bókasafns
Árna Magnússonar en flest
skinnhandrit björguðust.
20. október 1905
Landsdómur var stofnaður til
að dæma í málum gegn ráð-
herrum fyrir brot á stjórnar-
athöfnum.
20. október 1989
Borgarleikhúsið í Reykjavík
var vígt. Það hafði verið
þrettán ár í byggingu og var
rúmir tíu þúsund fermetrar
að flatarmáli. Í því voru þá
tveir salir, annar fyrir 570
manns í sæti, hinn 270 manns.
Nýr salur bættist við í októ-
ber 2001.
20. október 2006
Kvikmyndin Mýrin var frum-
sýnd. Leikstjóri var Baltasar
Kormákur en hann gerði
handrit ásamt Arnaldi Indr-
iðasyni, en samnefnd bók
hans kom út sex árum áður. Á
rúmum tveimur mánuðum
voru áhorfendurnir 81.850 og
var Mýrin talin best sótta ís-
lenska myndin síðan mæl-
ingar hófust árið 1995.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. a3
Bxc3+ 5. bxc3 Rc6 6. e4 Rxe4 7. Dg4 f5
8. Dxg7 Df6 9. Dxf6 Rxf6 10. Rf3 b6 11.
d5 Ra5 12. Rd4 Kf7 13. dxe6+ dxe6 14.
Bf4 Ba6 15. Rf3 Re4 16. Re5+ Kf6 17.
f3 Rd6 18. O-O-O Hhd8 19. h4 Rf7 20.
Rd7+ Kg7 21. Hh3 Kh8 22. Bg5 Rxg5
23. hxg5 Kg7 24. Hh6 Bxc4 25. Bxc4
Rxc4 26. Hdh1 Hh8 27. f4 c5 28. Hxe6
Hae8
Staðan kom upp í opna flokki Ól-
ympíuskákmótsins í Khanty-Mansiysk
í Síberíu í Rússlandi. Stórmeistarinn
Baadur Jobava (2710) hafði hvítt gegn
stigahæsta skákmanni heims, Magnusi
Carlsen (2826). 29. Hxh7+! Hxh7 30.
Hxe8 Kf7 31. Ha8 Hh1+ 32. Kc2 a5 33.
Ha7 Rxa3+ 34. Kd2 Hh2 35. Rxb6+
Kg6 36. Hxa5 Hxg2+ 37. Kd1 Rb1 38.
Hxc5 Rd2 39. Rd5 Re4 40. Hc6+ Kf7
41. Re3 og hvítur vann skákina nokkru
síðar.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Zia finnur drottningu.
Norður
♠Á63
♥KG
♦ÁK42
♣K432
Vestur Austur
♠DG42 ♠10975
♥83 ♥D92
♦D8765 ♦103
♣98 ♣DG106
Suður
♠K8
♥Á107654
♦G9
♣Á75
Suður spilar 6♥.
Í þætti gærdagsins sást hvernig
Brad Moss vann 7♥ glæsilega með
tvöfaldri þvingun eftir útspil í trompi.
Á hinu borðinu varð Zia Mahmood
sagnhafi í 6♥ og fékk út spaða. Frá
bæjardyrum Zia virtist bráðnauðsyn-
legt að finna trompdrottninguna til að
ná í tólf slagi. Og það gerði hann svika-
laust.
Zia lét trompið hreinlega eiga sig.
Hann drap fyrsta slaginn á ♠K og spil-
aði tígli á ás. Tók svo ♠Á og trompaði
spaða. Spilaði tígli á kóng og trompaði
tígul, en austur henti laufi. Það voru
góð tíðindi. Zia lauk undirbúningnum
með því að taka ♣Á-K og trompa tígul
í fjórða sinn. Þá voru fjögur spil á
hendi. Heima átti Zia ♥Á107 og lauf-
hund, en í borði tvo laufhunda og
♥KG. Hann spilaði laufi og lagði upp.
Vel spilað, en „þrettán út“.
„Ég ætla bara að mæta deginum með brosi á vör
og láta koma í ljós hvað hann ber í skauti sínu. Svo
drekk ég væntanlega kaffi með nánustu ætt-
ingjum í kvöld,“ segir Grétar Þorsteinsson sem er
sjötugur í dag.
Grétar hélt síðast upp á stórafmæli þegar hann
varð fimmtugur og það er honum afar minnis-
stætt. „Það var síðasta stórafmælið í ættinni þar
sem foreldrar mínir voru enn við þokkalega heilsu
og við feðgarnir gátum tekið lagið saman, eins og
við gerðum oft í gegnum tíðina.“
Grétar lét af embætti forseta ASÍ í október 2008
og daglegur erill hefur minnkað mikið síðan þá. Undanfarna daga
hefur Grétar notið síðsumarsins í sumarbústað sínum í Gnúpverja-
hreppi, nánar tiltekið í landi Stóra-Hofs, skammt frá Árnesi. Tré-
smíðafélag Reykjavíkur keypti jörðina upp úr 1990, þegar Grétar var
formaður, og gaf félagsmönnum kost á reitum undir bústaði. Grétar
tryggði sér reit nokkru síðar. Grétar hefur verið ötull við skógrækt
en hann giskar á að hann hafi gróðursett um 2000 plöntur, þar af
nokkrar nú í haust. „Það er kominn ágætur skógur í kringum mig,“
segir Grétar. runarp@mbl.is
Grétar Þorsteinsson er sjötugur
Gróðursetti ágætan skóg
Söfnun
Freyja Geirsdóttir,
Brynhildur Inga Er-
lingsdóttir, Arna
Geirsdóttir og Kol-
finna Dröfn Helga-
dóttir héldu tombólu
fyrir framan Björns-
bakarí á Fálkagötu í
Vesturbæ Reykjavík-
ur. Þær söfnuðu 1.361
kr. sem þær færðu
Rauða krossi Íslands.
Flóðogfjara
20. október Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 4.51 3,5 11.01 0,9 17.05 3,6 23.15 0,8 8.34 17.52
Ísafjörður 0.42 0,5 6.44 1,9 12.57 0,5 18.56 1,9 8.47 17.49
Siglufjörður 2.46 0,4 8.57 1,2 15.02 0,4 21.11 1,2 8.30 17.32
Djúpivogur 1.55 2,0 8.09 0,7 14.14 1,9 20.16 0,7 8.05 17.20
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Stjörnuspá
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þér finnst greinilega gaman í
vinnunni, og þess vegna nærðu svona langt.
Reyndu að fá að vera í einrúmi part úr degi.
Þú færð tilboð fljótlega sem slær þig út af
laginu.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Vertu bara eins og þú átt að þér og þá
muntu sjá hverjir eru vinir þínir. Einhver
kemur þér skemmtilega á óvart.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Kannski þarftu að takast á við erf-
iða manneskju, kannski erfitt verkefni. Skilin
á milli vináttu og ástar geta stundum vafist
fyrir fólki.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Mundu að öllu gamni fylgir nokkur
alvara. Láttu engan þvinga þig til sam-
komulags heldur láttu í þér heyra. Þér hefur
fundist þú aðþrengd/ur að undanförnu.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þér tekst að miðla málum ef þú kemur
til dyranna eins og þú ert klædd/ur. Þér
finnst sem einhver leyni þig einhverju. Það
þýðir ekki að þú eigir að gefast upp.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Forðastu tal um peninga eins og
heitan eldinn. Eldaðu frekar góðan mat og
bjóddu til þín vinum.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það er rangt að halda um of í liðinn
tíma. Horfðu framhjá mistökum þínum –
hvað geturðu annað gert?
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Kuldalegt augnaráð manneskju
í valdastöðu veldur þér áhyggjum. Sinntu
starfi þínu af kostgæfni, það kemur að
viðurkenningu, þótt síðar verði.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Hæfileiki þinn til þess að vera
úrræðagóður nýtur sín vel núna. Einbeittu
þér að endurbótum og endurskipulagningu.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Dagurinn er góður fyrir fasteigna-
viðskipti. Það er eins og allir vilji ná athygli
þinni og þú mátt hafa þig allan við.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Eru engar lausnir í sjónmáli?
Með því að hreinsa af borðinu, býrðu til
páss fyrir eitthvað nýtt. Taktu þér frí ef þú
átt þess nokkurn kost.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú átt sjaldan frí en þar sem það er
framundan skaltu reyna að njóta þess í
botn. Allt verður á sínum stað er þú snýrð
til baka.